Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 5

Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 5
MflMHM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 E 5 - ■ lífftSSll JSlÍBg® ■Jlllij Athygli þín er akkúrat það sem okkur vantar Lux Inflecta er ungt og metnaðarfullt hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að krefjandi þróunarverkefni fyrir erlenda markaði. Við leitum að kraftmiklum og hugmyndarikum forritara sem er tilbúinn að ein- beita sér heils hugar að ögrandi og spennandi starfi. Liðsmaðurinn sem við leitum að þarf að búa yfir hugmyndaauðgi, frumkvæði og góðri athyglisgáfu. Þar sem starfið felur í sér mótun hugbúnaðar framtiðarinnar þarf viðkomandi einnig að eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar og miðta hugmyndum. Víðtæk reynsla er ekki nauðsynteg enda mun viðkomandi öðtast hana hjá okkur. Hins vegar þurfa umsækjendur að hafa háskótamenntun á sviði tölvunar-, verk- eða tæknifræði - eða kerfisfræði frá TVÍ - og góða þekkingu á htutbundinni forritun í C++ eða 3ava. Umsóknir og fyrirspurnir skutu sendar til atvinna@luxinflecta.is Faríð verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. o LUX INFLECTA Lux Inflecta • Þverholti 14 • 105 Reykjavík • Sími: 5111210 • Fax: 5111211 wmmtmmmmmmmmmmmmm Búnaðarbanki íslands tók til staría 1. júlí 1930. Starísemi bankans hefur frá upphafi verið farsæl og hefur bankinn skilað hagnaði alla tíð. í dag eru útibú bankans 36 og stöðugildi ríflega 600. Umsvif bankans hafa tvöfaldast á síðustu þremur árum og er heildarfjármagn bankans nú 106 milljarðar. Velta á sfðasta ári var 5 milljarðar króna. Cott starísfólk á stóran þátt í farsælum rekstri Búnaðarbankans og starísmannamál verða sífellt mikilvægari íþeirri samkeppni sem ríkir. Starísmannahaldi bankans er ætlað það hlutverk að sjá til þess að öll umgjörð starísmannamála sé til fyrirmyndar svo rekstrarárangur verði áfram framúrskarandi. BUNAÐARBANKINN traustur banki Spennandi atvinnutækifæri Laust er til umsóknar starf sérfræðings í starfsmannahaldi Búnaðarbanka íslands hf. Starfssvið sérfræðings er á breiðu sviði starfsmannamála og felur m.a. í sér: • umsjón og þróun starfsmannatengdra upplýsinga á innri og ytri vef bankans • umsjón og uppbyggingu upplýsinga í starfsmannakerfi • aÖstoð við þróun starfsmannamála • aðstoð við launavinnslu • samantekt ýmissa upplýsinga um þróun starfsmannamála í bankanum • ýmis önnur störf tengd starfsmannamálum Næsti yfirmaður er starfsmannastjóri bankans. • Háskólamenntun eða sambærileg menntun er skilyrði. • Mjög góð tök á rituðu máli og almenn tölvukunnátta eru nauðsynleg. • Gerðar eru kröfur um sjálfstæði, færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar „Búnaðarbankinn -starfsmannamál" fyrir 18. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Sölumaðux Rótgróin innflutningsverslun í borginni, með mörg þekkt vöru- merki og leiðandi á sínu sviði, óskar að ráða sölumann til starfa sem fyrst. Starfssvið: Almenn sölumennska og þjónusta við viðskiptavini fyrir- tækisins ásamt mótun sölu- og markaðsmála í samvinnu við framkvæmdastjóra. Starfið hentar drífandi og áhugasömum einstaklingi, nauð- synlegt er að viðkomandi hafi reynslu af sölustörfum, sé skipu- lagður og geti unnið sjálfstætt. Góð laun eru í boði. Öllum umsækjendum heitiðfullum trúnaði og að lokinni ráðningu verða allar umsóknir endursendar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist af- greiðslu Mbl. merktar: „G - 8926" fyrir 15. nóv. Háskóli íslands Stundakennari í heimspeki Við heimspekideild er laust til umsóknar starf stundakennara í heimspeki við heimspeki- skor Háskóla íslands á vormisseri 2000. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar til 31. júlí 2000. Umsækjandi skal hafa lokið M.A.-prófi í heim- speki (eða ígildi þess) og sýna fram á hæfni til að kenna m.a. námsefni á sviði frumspeki og þekkingarfræði. Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um fræðistörf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil og störf (curriculum vitae) og eftir atvikum vottorð. Umsækjandi láti fylgja með umsagnir um kennslustörf sín eftir því sem við á. Laun eru skv. kjarasamningi fjár- málaráðherra og Félags háskólakennara. Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 1999 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Ollum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfs- ins þegarákvörðun hefurverið tekin. Nánari upplýsingar veitir starfsmannasvið í síma 525-4390 eða skrifstofustjóri heimspekideildar í síma 525-4401. Tryggingafulltrúi Hjá sýslumanninum á Patreksfirði er laustil umsóknar staða tryggingafulltrúa. Trygginga- fulltrúi annast dagleg störf sem heyra undir almannatryggingaumboð Tryggingastofnunar ríkisins og lúta m.a. að sjúkra- og slysatrygg- ingum, lífeyristryggingum o.fl. Umsækjendur þurfa að hafa góð tök á tölvu- vinnslu, þ.m.t. notkun internets, og geta hafið störf sem fyrst í nóvember. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Hlutastarf getur komið til greina. Konur jafnt og karlar eru hvötttil að sækja um starfið. Umsóknum, sem greina aldur, menntun og fyrri störf, skal skila til undirritaðs ekki seinna en 12. nóvember nk. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 3. nóvember 1999. Þórólfur Halldórsson. Hæfniskröfur og menntun: Netfang: thorir.thorvardarson@is.pwcglobal.com Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.