Morgunblaðið - 09.11.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.11.1999, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ aðir. Þetta voru oft torræð ljóð og samsett, talað var um myrkviði efnsins með vísun til þeirra vísinda sem skáldahópurinn dró nafn sitt af. Ljóðin voru lokuð, innhverf og erfið, ekki fyinr hvem sem er að skilja frekar en táknarunur DOS- kerfisins. I póstmódernískum bókmenn; tum er annað upp á teningnum. í þeim er ekki lögð áhersla á að kafa ofan í einstök bókmenntaform og rannsaka grunnbyggingu þeirra, að kanna hvaða leyndardómar liggja undir táknum tungumálsins og þenja strengi þess til hins ýtrasta. Póstmódemískar bókmenntir verða til á opnu svæði þar sem öllu ægir saman, eldri textum og yngri, ýmiss konar bókmenntaformum og jafn- vel öðram listformum. Um þetta svæði stiklar höfundurinn í galsa- fullum leik þar sem hann tengir saman ólíka hluti. Ur verður stiklu- texti á borð við þann sem áður var getið og lesa má för höfundarins úr. Þessi texti verður með öðrum orð- um til á yfirborðinu og er samsettur úr tilvitnunum og tengingum við eldri form og verk. Hann er ekki lokaður og innhverfur eins og sá módemíski heldur opinn og út- hverfur. Hassan orðaði það svo að sá módemíski væri haldinn ofsókn- aræði en sá póstmóderníski geð- klofa. Þetta gerir bókmenntirnar móttækilegar fyrir ýmsu sem áður stóð utan þeima. Þrátt fyrir að menn séu orðnir fráhverfír flóknum rannsóknum á innviðunum, mynd- bygging póstmódernískra höfunda sé jafnan einföld og andsögulegir þættir hafi þurft að víkja fyrir sögu- legum era tilraunimar nefnilega enn til staðar. Nærtæk dæmi era bækur eins og Vargatal Sigfúsar Bjartmarssonar, Fylgjur Haraldar Jónssonar og Góðir Islendingar eft- ir Huldar Breiðfjörð sem komu út á síðasta ári og gagnrýnendur áttu í miklum vandræðum með að flokka og skilgreina. Einnig mætti nefna sem dæmi tilraunir Gyrðis Elías- sonar, ísaks Harðarsonar og fleiri með uppsetningu Ijóða á síðasta áratug. Ljóðlínunum var ekki skip- að lárétt niður síðuna heldur mynd- uðu hring og tígul, kross og ex. Slík- ar tilraunir hafa haldið áfram, þó að dregið hafi úr öfgunum, og era gott dæmi um færsluna frá innviðunum til yfirborðsins, - í stað leitar að dýpstu rökum tungumálsins er áherslan á útlit textans. Tölvan ger- ir slíkt föndur auðveldara en þetta er ekki eingöngu föndur, þetta er ekki bara merki um að áherslan hafí flust af inntakinu á útlitið heldur endurspeglar þetta grundvallar- breytingu í menningu okkar. Bókmenntir þriðja árþúsundsins Samhengið milli rafheima og bók- mennta sem hér hefur verið ýjað að er áhugavert. Tækniþróunin og sá sýndarheimur sem sjónvarpið, tölv- an og Netið hafa skapað eiga sér samsvöran í þróun bókmenntanna á undanfömum áratugum. Tilhneig- ing bókmennta samtímans til að forðast djúpsævin, nákvæma grein- ingu á vandamálum og leit að al- tækum lausnum, sést einnig í breyttu viðhorfi til tölvunnar. Þráin eftir því að skilja það sem liggur undir niðri virðist ekki lengur vera til staðar. Það nægir að stikla á yfir- borðinu þar sem brotakennd og ein- földuð mynd af innviðunum birtist. Þetta þýðir samt ekki að galdurinn sé horfinn því að stiklur hvers og eins mynda texta þar sem brotun- um er raðað saman á einstakan hátt. Þannig fæst sjónarhom sem er alltaf nýtt. Ljóst má vera að tölvan hefur haft bein áhrif á bókmenntasköpun eins og ólíklegustu tilraunir með uppsetningu ljóða sanna best. En gera má ráð fyrir að bókmenntirnar muni í nánustu framtíð markast enn meir af þessu tæki. Netið mun vafa- laust verða einn aðalvettvangur bókmenntasköpunar. Bók- menntirnar verða þá hluti af ofur- veraleikanum, án fonns, án upphafs og endis, án takmarka nema þeirra sem slétt og fellt yfirborð skjásins setur þeim. Þetta era bókmenntir þriðja árþúsundsins; bókmenntir 3.0 Fíflaskipið á leið út flóann J0rgen Gustava Brandt er afkasta- mikið danskt skáld. Örn Ólafsson fjallar um verk hans. ESSI höfundur er eitt kunn- asta ljóðskáld Dana. Hann er liðlega sjötugur og hefur sent frá sér rúmlega fjöratíu Ijóða- bækur undanfarna hálfa öld. Auk þess liggur eftir hann hálfur annar tugur bóka af ýmsu tagi. Fyrir nokkra valdi höfundur úr- valsljóð sín (.Jorgen Gustava Brandt: Digte 1946-1996. IIII. Gyldendal 1997) .Hann tók að sögn aðeins helming ljóðanna með, en útkoman varð samt þriggja binda safn. Þar ber mikið á löngum ljóða- bálkum, þar sem myndræn lýsing á einhverju hversdagslegu húsi í Kaupmannahöfn, eða landslagi í sveit, vekur miklar endurminning- ar um árin milli stríða eða upp úr seinni heimsstyrjöld, þegar höf- undur var um tvitugt. Mér finnst þessi frásöguljóð yfirleitt meiri á breidd en dýpt. Þetta eru oft pæl- ingar í dagblaðaefni líðandi stund- ar. En vitaskuld er ekki hægt að leggja neitt heildarmat á þetta mikla Ijóðasafn hér. Hinsvegar skal litið á einstök ljóð, fyrst eitt úr síðasta ljóðasafninu, Auglit til aug- litis, 1996. Þar syngur hann lof hálfgerðu meðvitundarleysi t.d. timbrunar, og annars þess að hafa tilfinningu fyrir hlutunum fremur en röklegan skilning á þeim. Játning Eg er handgenginn rökkrinu það vakti víst grunsemdir margra þeim fannst víst að sækja bæri til ljóssins. En það er engin ástæða til að óttast myrkrið og kyrrðina Sjónin og hóðin þola ekki allar gjörðir ljóssins of lengi í einu. I rökkrinu vaknar sérstakur máttur í nálægum formum á undan litunum Enn svefndrukkin þynnkan býr yfir skilningi og fyrirgefningu áður en dagurinn lokkar til skilnings Þannig er fyrsta tjáning óákveðin í tilliti á undan heillun og framtakssemi því það sem gerist í ljósinu er enekkialltafhinugóða 1982 birtist í Ljóðasafninu Hop eftirfarandi ljóð. Fíflaskipið sem þar um ræðir var alþekkt myndefni á miðöldum, einskonar táknmynd villuráfandi mannkyns. T.d. er fræg slík mynd eftir Hollendinginn Hieronymus Bosch. I sérkennileg- um líkingum í lokin sáldrast ljós og loft eins og duft yfir fólkið, það má sýna hvemig það lætur berast stefnulaust, tekur áhrifum um- hverfisins viðbragðalaust. Sams- konar aðlögun má sjá í því hvernig söngur skipverja samlagast lands- laginu. Dirfskubragð An þess að ráðgast við hjarta mitt geng ég um borð í fíflaskip. I ringlaðri þvögu grillna á þilfarinu kem ég auga á elskuna mína sem reynir að fela tárvott andlit sitt. Það hefur gerst svo margt meðan við vorum aðskilin. Fíflaskipið leggur út á fjólubláan flóann. Það hvín í grillunum, hvín í reiðanum, og allir hefja skyndilega sturlaðan enda- lausan söng sem sameinast grýttri glitrandi kælingu strandanna. Vitfirringamir flögra um þilfarið og svigna í vindinum eins og seflundir Sumir hafa fleygt sér út af eða hniprast um tvöfalt líf. Sólarlagsljóminn sáldrar ógnvekjandi gulli sínu yfir nafnleysingjana meðan flögur logns falla í þennan draum á reki án kjarks eða marks eða miðs. Ljúkum þessum pistli með ljóði úr By frá 1983. I þessu ljóði eru sterkar andstæður; annarsvegar er borgarastyrjöldin sem þá geisaði í Beirút, hinsvegar smekkleg dönsk vínstofa þar sem heyrast aðeins hljóðlátar raddir og glamur ísmola í glasi. Þetta er ramminn, og sjón- varpið tengill þessara andstæðna. Það er sláandi að líkja því við Niag- arafoss, bæði vegna þess að sífellt fossar efni úr því, og margt af því efni er, eins og allir vita, stórbrotn- ar náttúramyndir. Auk þess er eins og skipti minnstu máli hvað er í sjónvarpinu, bara ef straumurinn er stöðugur. Þarna skiptast á fót- boltaleikur, náttúramyndir og stríð, þetta virðist fullkomlega jafngilt, a.m.k. virðist öllu þessu tekið af ámóta tómlæti (kannski vegna þess af fótboltaleiknum er lokið). Er ekki tómlætið meginefni ljóðsins? Það era sterkar andstæð- ur milli stríðsógnanna annarsveg- ar, en hlutlægrar kaldrar lýsingar á þeim hinsvegar. Þegar maður kastast upp í loftið, þá er það kallað „ekki í íþróttaanda" rétt eins og þetta væri fótbolti. Og líkunum á götunni er líkt við fataböggla. Svona kuldalegai’ verða lýsingarn- ar líklega enn áhrifameiri en ef þeim væri lýst með hluttekningu. Þegar kemur að mynd smástelp- unnar gagnvart byssuhlaupinu, virðist ljóðið stefna beint í væmnis- klisju, en það sneiðir hjá væmninni með því að skipta snögglega um, til lýsingar vínstofunnar. Eina vís- bendingin um tilfinningar er í loka- línunni, þar sem gestur sýnir svip- brigði óafvitandi. Andlit hans eins og rímar við andlit stúlkunnar, tengir þetta tvennskonar umhverfi. Og sú lína er áhrifamikil vegna þess að lesendum er látið eftir að reikna út hverskonar viðbrögð við stríðsmyndinni það muni vera. Vínstofa Skiptir um mynd í hálfrökkrmu fótboltaleiknum lokið á skjánum Nú er það ekki Niagara út úr veggnum sem barþjónninn annarshugar rænir hljóðinu heldur arabísk borg Ljósið blaktir yfir rústum heimskunnar fallin rafmöstur, einsleita múra leyniskyttumyrkur holanna Bíll springur fyrir framan bláa búðarhlera og upp um þakið kastast maður óíþrótta- mannslega fyrir framan vélbyssuhreiður A gangstéttinni liggja mannbögglamir Andlit lítillar stúlku flöktir í nærmynd fyrirframan byssuhlaup Ismolarnir glamra h'tillega í for- drykksglasinu undir hægu, hljóðlátu skrafi I vegginn með tækinu eru greypt rörop til skreytinga, í þeim speglar þar sem maður mætir sjálfum sér eða þeim sem stendur við hlið manns og óafvitandi kemur upp um andlit sitt Samstarf við látinn rithöfund * AHUGI og ást Antonio Ta- bucchis á Lissabon og Pes- soa byrjuðu dag einn er hann var námsmaður í París. Þá vissi hann ekkert um Portúgal og ætlaði sér ekki að bæta neitt úr því enda var hann þá á kafi í franskri menn- inguog sögu. „Ég var á leið niður á brautarstöð til að taka lestina heim og gekk þá fram á götubóksala, sem ég bað að selja mér ódýrastu bókina, sem hann ætti. Ég var næstum peninga- laus og hann lét mig fá smákver eft- ir einhvem, sem ég hafði aldrei heyrt nefndan: Femando Pessoa. Bókin hét „Tóbaksbúðin“ og hún hafði strax svo mikil áhrif á mig, að ég ákvað að læra portúgölsku." Tabucchi lærði ekM bara portú- gölsku eins og hver annar ferða- maður, heldur má segja, að Portúg- al hafi orðið hans annað fóðurland. Þar bjó hann lengi, var við nám og kennslu og veitti ítölsku menningar- miðstöðinni forstöðu. Konan hans er portúgölsk, Maria José de Lanca- stre, einnig sérfræðingur í Pessoa, og hann er ástríðufullur aðdáandi portúgalskrar menningar, sögu og matargerðarlistar. Hann fór hægt af stað sem rithöfundur en bækum- ar hans era glettnisfullur, saman- þjappaður en snilldarlegur texti. Éyrstu kynni Norðmanna af Ta- bucchi vora „Samkvæmt Pereira", sem kom út á norsku hjá Pax-for- laginu 1994. Hefur hún unnið til nokkurra viðurkenninga, m.a. Campiello- og Viareggio-verðlaun- anna. 1966 kom út „Indisk nattstyk- ke“ og nú „Síðustu þrír dagar Fem- ando Pessoa“. A næsta ári kemur út hjá Pax „Lisboa Requiem“. I „Síðustu þremur dögum Fern- ando Pessoa“ dregur Tabucehi upp mjög skemmtilega og frumlega mynd af skáldinu. Hún hefst með því, að Pessoa leggst inn á franska spítalann í Lissabon, á herbergi númer fjögur, vegna lifrarveiM. A þremur dögum tekur Pessoa á móti mörgum gestum, sínum eigin sögupersónum, fólM, sem hann hef- Antonio Tabucchi er fremur smávaxinn, ítalskur að ætt og fljótur að skipta skapi, segir Tone Myklebost. ur skapað og búið út með fæðingardegi, stjömukorti, eigin rit- hönd, jafnvel minnis- bók. Alvaro de Campos, Alberto Caei- ro, Richardo Reis, Bemardo Soares og Antonia Mora. Öll koma þau og ræða við Pessoa á banabeðin- um. Þau tala um Lissa- bon og ástina til lífsins, um konuna og karl- manninn, um þreyttar taugar og portúgalska súpu. I þessari við- ræðu lýkst upp öll ævi Pessoa, skrif hans og skoðanir. „Ég uppgötvaði Pessoa nokkurn veginn á sama tíma og ég var að byrja að skrifa," segir Tabucchi. Það var þó ekM auðvelt að vera rit- höfundur á Ítalíu á sjöunda ára- tugnum. Þá var nýframúrstefnan allsráðandi og þeir, sem aðhylltust hana, lýstu því m.a. yfir, að skáldsa- gan væri dauð. Tabucchi var í hálf- gerðri kreppu en þá komst hann að því, að Pessoa hefði glímt við þetta sama á þriðja áratugnum og fundið á því lausn. Hann endurnýjaði skáldsöguformið, bjó til skáld með ólíkan feril og ólíka hæfileika en sem áttu þó miMð saman að sælda. 011- um þessum persónum steypti hann síðan saman í bókum sínum. Ta- bucchi fannst, að úr því Pessoa hefði teMst þetta, þá gæti hann það líka og segja má, að þá hafi byrjað sam- starfið við hinn látna rithöfund. Þetta sambýli með öðrum rithöf- undi var þó enginn leikur heldur og það rann upp fyrir Tabucchi, að Pes- soa var farinn að endurspeglast í öll- um hans hugsunum og hugmynd- um. Hann vildi losna og það gerði hann með því að gera Pessoa að persónu í sínum eigin skrifum. Það gerði hann fyrst 1990 með bóMnni „Lis- boa Requiem" og hef- ur síðan haldið því áfram. Tabucchi segir, að að því komi, að menn verði að kveða niður sína eigin upp- vakninga. „Samkvæmt Per- eira“, sem var kvik- mynduð 1995 með Marcello Mastroianni í aðalhlutverM, segir frá hinum dálítið raglaða menningarskríbent Pereira í Lissa- bon á fjórða áratug aldarinnar. Hann er fréttastjóri meðan yfirmað- ur hans er í fríi en þjáist af melting- artraflunum eða er kannsM öllu heldur í einhvers konar tilvistar- kreppu. Ber hann það upp við skriftaföður sinn og einnig málverk- ið af konunni sinni heitinni og auk þess kaupir hann heldur vafasama bókargagnrýni af ungum manni með „skrýtnar" hugmyndir. Þrúg- andi andrúmsloftið, sem einkenndi fasistastjórn Salazars, er yfir og allt um kring en að lokum grípur Per- eira til nokkurs, sem áður var óhugsandi. „I mínum augum er „Samkvæmt Pereira" ekM söguleg skáldsaga, heldur bara frásögn af ýmsu, sem gerist árið 1938. Vissulega er póli- tísk undiralda í henni en mér finnst margt annað jafn miMlvægt, tO dæmis þær siðfræðilegu, fagur- fræðilegu og sálfræðilegu víddir, sem birtast í persónunni Pereira,“ segir Tabucchi. Tabucchi segir, að pólitíkin í bók- inni sé ekki sótt í ástandið í ein- Antonio Tabucchi hverju tilteknu landi, heldur í það, sem finna má í allri Evrópu nú um stundir. Þegar hann skrifaði bóMna í upphafi þessa áratugar var það a.m.k. þrennt, sem minnti á árin fyr- ir stríð: Þjóðernishreyfingar og hat- ur á öðrum kynþáttum og útlend- ingum. Á því hefur ekM orðið nein breyting. „Ég á mér vafalaust einhverja portúgalska forfeður, sem ég þekM þó ekM, því að Portúgal er runnið mér í merg og bein,“ skrifar Ta- bucchi í „Lisboa Requiem" og hann er ánægður með að hafa eignast aðra fósturjörð. Það hjálpi mönnum við að sjá hlutina í öðra ljósi. Ta- buechi líkar það vel, að Portúgalar skuli ekM vera ofurseldir neyslu- hyggjunni enda hafi fátæktin löng- um neytt þá til að nota ímyndunar- aflið, t.d. í matargerðinni. Segir hann, að portúgalskir réttir séu ein- faldir en yndislegir. „Lisboa Requ- iem“ er ekM aðeins skáldsaga, held- ur líka bók um mat. Það hefur stundum valdið Ta- bucchi hugarangri hvað lífið býður okkur upp á marga kosti og neyðir okkur stöðugt til að vera að taka ákvarðanir. Hann verður næstum því dapur er hann veltir því fyrir sér hvað hann hefði getað gert og hvað hann hefði getað látið ógert. Skrifin hafa þó hjálpað. Þau gera honum Meift að vera einhver annar, að eiga sér önnur örlög. Antonio Tabucchi hefur verið sakaður um hofmóð og yfirlæti en hann vísar því á bug. Vissulega seg- ist hann fyrirlíta lágkúruna og smekkleysuna en það, sem honum sé kært, og það fólk, sem hann um- gengst, sýni hið gagnstæða. Fyrsti maðurinn, sem las „Samkvæmt Per- eira“, var æskuvinur hans, bílvirM í fæðingarbænum hans. Róttækling- ar á vinstrikantinum kalli hann hins vegar „aristókrata" í háðungarskyni vegna þess, að hann taM lítinn þátt í félagslífinu en kjósi heldur að vera innan um fjölskyldu sína og vini, forðist sjónvarpsmyndavélarnar og kunni ekki við að hampa sjálfum sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.