Morgunblaðið - 09.11.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
BÆKUR
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 B 7
Nýjar bækur
• VONIN blíð er eftir William
Heinesen í þýðingu Elíasar Mar.
í fréttatilkynningu segii': „Arið
1669 kemur sóknarpresturinn
Peder Börresen til Færeyja. Þetta
er á tímum Gabels landstjóra,
grimmdartímum sem kölluðu sára
niðurlægingu yfír Færeyinga.
Presturinn furðar sig á fátækt og
lítilmótleika umhverfisins. En
hörmungarnar sem mæta Börres-
en presti fá hann til að rísa upp
gegn ofureflinu.
Bókin sækir fyrirmyndir tO
raunverulegra atburða og sögu-
legra persóna í fortíð Færeyinga.
Bókin kom kom fyrst út á ís-
lensku ái'ið 1970.
Bókin er 425 bls. Verð: 1.599 kr.
• LÍTTU ekki um öxl er eftir
Karin Fossum í þýðingu Franziscu
Gunnai-sdóttur.
Lögreglan er kvödd til þegar iítil
telpa hverfur í friðsælum norskum
smábæ. Sama dag er tilkynnt að
unglingsstúlka þar í bænum hafi
fundist myrt í nágrenninu.
Karin Fossum (f. 1954) hóf feril
sinn sem ljóðskáld og eftir hana
liggja þrjár ljóðabækur og tvö smá-
sagnasöfn, en á síðustu árum hefur
hún nær alfarið snúið sér að ritun
spennusagna. Áður hefur komið út
eftir hana sagan Augu Evu.
Bókin 283 bls. Verð: 1.599 kr.
• AUGUþín sáu migereftir
Sjón.
Smábær í neðra Saxlandi í
Þýskalandi að næturlagi - er nokk-
ur staður friðsælli og ólíklegri til
tíðinda? En hvað ef þetta er á
stríðsárunum og dularfullur maður
er nýkominn á gistiheimili staðar-
ins þar sem meðal annarra þjón-
ustustúlkan Marie-Sophie gengur
til verka? Og hvernig getur stúlkan
orðið honum að liði?
Sjón hlaut bókmenntaverðlaun
DV árið 1995 fyrir bókina. Sagan
hefur verið þýdd á sænsku og er
væntaleg á fleiri tungumálum á
næstunni.
Bókin er231 bls. Verð: 1.399 kr.
Útgefandi bókanna er Uglan -
íslenski kiljuklúbburinn. Bækur-
nar eru prentaðar í Danmörku.
• MARARBÁR UR er ljóðasafn
eftir Elías Mar. í bókinni er úrval
ljóða frá árunum 1946-1998.
í fréttatil-
kynningu segir
að Elías Mar
muni vera kunn-
astur af skáld-
sögum sínurn,
Vögguvísu og
Sóleyjarsögu, en
ljóðagerð hefur
hann iðkað alla
tíð og í þessari
bók er að finna
margt það sem þekktast er og ág-
ætast af ljóðum hans auk nokk-
urra þýðinga erlendra ljóða.
Útgefandi erMál ogmenning.
Bókin er 91 bls., prentuð í
prentsmiðjunni Odda hf. Kápum-
ynd er eftir Jón og Nönnu Reyk-
dal. Verð: 2.980 kr.
BÆKUR
Sögur og Ijóð
GLOTTí GOLUKALDANN
Hákon Aðalsteinsson. Hörpuútgáf-
an 1999,184 bls.
FYRIR tveimur árum kom út
endurminningabók Hákonar Að-
alsteinssonar, Það var rosalegt, í
letur færð af Sigurdóri Sigur-
dórssyni. Það var skemmtileg bók
og birtist Hákon þar lesendum
sínum sem sagnamaður góður,
húmoristi og snjall hagyrðingur.
I þetta sinn grípur Hákon
pennann sjálfur og sýnir að hann
er einfær um að halda á honum
svo að vel fari.
I stærstu dráttum má skipta
bók hans í tvo aðalhluta. I fyrri
hlutanum er laust mál, smásögur,
endurminningaþættir og einn frá-
söguþáttur. I seinni hlutanum er
Rifbjerg
lítur um öxl
Endurminningar danska höfundarins Klaus
Rifbjergs og smásagnaúrval hans eru efni
__ _ ___
greinar eftir Orn Olafsson. Rifbjerg er með
afkastamestu höfundum, sískrifandi, en
hefur líka sínar efasemdir um feril sinn.
KLAUS Rifbjerg hefur verið
einna mest áberandi danskra rit-
höfunda á síðasta þriðjungi þess-
arar aldar. Hann hefur ekki bara
sent frá sér þrjú skáldverk árlega
að meðaltali síðastliðna fjóra ára-
tugi, skáldsögur, ljóðabækur, smá-
sagnasöfn, heldur einnig leikrit,
kvikmyndir, revíur, blaðagreinar,
verið ritstjóri menningartímarits,
útgáfustjóri stærsta forlagsins,
Gyldendal, og áberandi í fjöl-
miðlum, enda opinskár og beinsk-
eyttur. Það er því með nokkurri
eftirvæntingu um innsýn í danskt
menningarlíf þessa tímabils sem
opnuð er nýútkomin bók með end-
urminningum hans.
Þetta er furðustutt bók, aðeins
230 bls., og helmingurinn fjallar
um bernsku- og unglingsár höf-
undar. Það sýnir ræktarsemi við
fjölskylduna, en undirritaður á
svolítið erfitt með að sjá að það
komi öðrum mikið við. Vissulega
leggur Rifbjerg sig fram um að
grípa tíðarandann, þau sérkenni
siða, lífsvenja og aðstæðna sem
síðan hafa breyst. Og það gerir
hann raunar alla bókina í gegn. En
flest er það kunnuglegt lesendum
danskra bókmennta m.a. skáld-
sagna Rifbjergs, og ekki sett fram
á nýjan hátt hér.
Rifbjerg er mjög opinskár og
óhlífinn, segir t.d. frá framhjáhaldi
sínu (og vina sinna), samviskubiti
vegna þess og að hann hafi hvað
eftir annað leitað til geðlæknis
vegna sjálfsmorðsþráhyggju. Sá
sagði hinsvegar að ekkert væri að
honum annað en tímabundin
streita sem fylgdi starfinu. Rif-
bjerg segir og nokkuð frá ritstörf-
um sínum og viðtökum verkanna,
hann segist oft hafa heyrt að hann
skrifi allt of mikið, og segist vita
manna best, að margt af því sé
ekki til frambúðar. En hann hafi
þurft að skrifa allt þetta til þess að
innanum og samanvið yrðu til var-
anlegri verk, og töluvert sé nú af
þeim líka. En þetta er síst af öllu
drembilát frásögn, Rifbjerg er sí-
fellt að draga fram veikleika sína
og aðdáun á hæfileikum annarra
og ágæti. Hann skýrir og langvist-
ir sínar á Spáni með því að þar
slapp hann við að leika þau hlut-
verk sem hann sjálfur og aðrir
höfðu komið honum í, þarna þekkti
hann enginn, hann var bara „há-
vaxni útlendingurinn“.
Rifbjerg víkur að mörgum
átakamálum undanfarinna ára-
tuga, sem hann hefur tekið þátt í.
Deilurnar um nútímamyndlist sem
hófust þegar almenningur fór að
telja sig dómbæran um það sem
hann hafði hingað til álitið leikfang
yfirstéttarinnar. 68-strauminn
sem Rifbjerg fylgdi framanaf eða
leiddi að nokkru, en fannst síðan
fara oft út í öfgar listhaturs og ein-
ræðistilhneiginga. Hann segist
hafa valdið endurnýjun danskra
bókmennta ásamt vini sínum Leif
Panduro m.a., en rekur lítt í
hverju þær nýjungar hafi falist.
Ennfremur rekur Rifbjerg hvern-
ig hann hlaut smám saman frægð,
frama og auð með mikilli sölu bóka
sinna, jafnvel ljóðabóka. Ennfrem-
ur þá öfund sem þetta vakti, of-
sóknir lýðskrumsblaðsins
Ekstrabladet t.d. En hann fer
gremjulega fljótt yfir sögu fyrir þá
sem ekki þekkja þetta þeim mun
betur. Satt að segja er eins og
hann skrifi þetta allt fyrir sig
sjálfan og sína nánustu. Auk þess
er bókin óskipuleg, stokkið fram
og aftur í tima og afar mikið um
endurtekningar. Hún er semsé
einskonar rabb við góðkunningja.
Skondið var að lesa ritdóm Jens
Kistrup, eins helsta leiklistargagn-
rýnanda Dana og jafnaldra Rif-
bjergs. Eftir að hann hefur rakið
flestar þær takmarkanir sem hér
að framan ræðir, klykkir hann út
með því að segja, röksemdalaust,
að bókin sé meistaraverk sem
sjálfsævisaga og lýsing þessa
tímaskeiðs.
Tíðarandinn gripinn
í vor birtist svo smásagnaúrval
Rifbjergs, Kort sagt, það hefur
hann sjálfur valið úr tug smá-
sagnasafna sinna frá aldarþriðj-
unginum 1964-97. Þetta eru 27
sögur á 270 bls., og vissulega með
ýmsu móti. Þó finnst mér mega
tala um sameiginlega meginstefnu
eða aðferð. Oftast gerist ekki neitt
sem valdi hvörfum í atburðarás
eða aðstæðum, sögupersónur eru í
sömu sporum í lok sögu og þær
voru í upphafi hennar. Þetta veld-
ur óhjákvæmilega tilfinningu sem
líka oft er orðuð, að allt sé óbreyt-
anlegt, fólk sitji fast í skorðum
þjóðfélagsins eða fjölskyldunnar.
Skáldmæltur
sagnamaður
aðallega bundið mál,
þó að nokkurt lausa-
mál sé einnig, aðal-
lega skýringar.
Bundna málið er af
ýmsum toga: stakar
vísur, gamanbragir
og alvarleg kvæði,
nokkur afmælis- og
kveðjuljóðmæli.
Smásögurnar eru
allar prýðisvel skrif-
aðar, en mismunandi
efnismiklar. Fyrsta
sagan, Hinn forboðni
ávöxtur, og sú
lengsta gæti hæglega
verið uppistaða í
heila skáldsögu og
Hákon
Aðalsteinsson
hefði kannski orðið
það í meðförum
sumra. Aðrar segja
frá kúnstugum og
gamansömum at-
burðum, svo sem
sagan Af jörðu ertu
kominn, Spilað á jól-
anótt og Eyjan í
norðri. Má ætla að
þar styðjist höfundur
við raunverulega at-
burði og spinni út frá
þeim. Þá eru tveir
stuttir endurminn-
ingaþættir, að mér
virðist. Þáttur af
Þorsteini á Kleif er
vafalaust sannsögu-
Klaus Rifbjerg
Skýrast er þetta í lýsingu á alka
sem telur sig geta hætt að drekka
af sjálfsdáðum, ef hann bara ferð-
ast burt frá öllu í sínu venjulega
umhverfi. Sjálfsblekkingu hans er
fylgt lið fyrir lið, alveg að fyrsta
sopa úr viskíflöskunni, en síðan
óráði hans og kvöl. I þessum sög-
um eru fyrst og fremst mjög ná-
kvæmar lýsingar á hversdagsleg-
um hlutum og athöfnum, oft
einhverju sem nú er horfið, leitast
er við að grípa tíðarandann, einnig
í orðalagi sem þá tíðkaðist. En
samtímanum er lýst á sama hátt,
og þetta er í rauninni aðferð ljóð-
skálda. Munurinn er bara sá, að í
ljóðum er miklu minna mál, og það
er hnitað um eitthvert meginat-
riði. Enda finnst mér Rifbjerg
miklu merkara ljóðskáld en sagna-
skáld. Þegar sjónum er einkum
beint að einhverju dæmigerðu,
einkennandi, þá er oft stutt í klisj-
ur, óskáldlegar alhæfingar. Hinu
bregður þó líka fyrir, að glitri á
nánast ljóðrænar myndir, einnig í
sögunum. Algengast hefur verið
að nota slíkar myndrænar lýsingar
þar til að sýna sálarlíf fólks óbeint,
en hér finnst mér meira bera á því
að sýna tilfinningalausa hlutver-
una sem andstæðu sálarlífs.
En hvað sem öllu þessu líður,
má segja að þessar sögur séu at-
hyglisverðar bókmenntalegar til-
raunir, til að hvarfla milli bók-
menntagi'eina. Vænti ég að það
höfði til margs íslensks bók-
menntafólks.
leg frásögn af sérkennilegum
manni. Ein sutt smásaga, Heiðin
og drengurinn, sker sig úr öðrum.
Þar slær höfundur alvarlegan tón.
Bundna málið er allmikið og
tekur yfir allan seinni hluta bók-
arinnar. Mikið af því er í gamans-
ömum og hnyttnum anda og lýsir
snjöllum og hugkvæmum hagyrð-
ingi, sem hefur glöggt auga fyrir
því hvar feitt er á stykkinu. Inni á
milli eru svo kvæði alvarlegs eðlis
eða af ljóðrænum toga. Þar er um
meira en hagmælsku að ræða.
Skáldlegir neistar fljúga.
I bókinni eru allmargar ágætar
teikningar gerðar af Erlu Sigurð-
ardóttur.
Eg hafði gaman af að lesa
þessa bók og get því tekið undir
það, sem stendur á bókarkápu.
„Þetta er skemmtileg bók, sem
getur komið öllum til að brosa í
kampinn og „glotta í golu-
kaldann".
Sigurjón Björnsson
Nýjar bækur
Líf fólks-
ins
á Hlað-
hömrum
• HLAÐHAMRAR er skáldsaga
eftir Björn Th. Björnsson, byggð
á þjóðsögunni Sögubrot af Árna á
Hlaðhömrum.
En þar segir af
stórlyndum og
heiftræknum
bónda sem
myrðir tengda-
son sinn með
grimmilegum
hætti: stingur
hann átján sinn-
um með hnífi í
kviðinn. Guð-
rúnu dóttur
hansjþótti síðan dauðadómurinn
yfir Árna of linur og krafði yfir-
völd þess réttlætis að faðir hennar
yrði líflátinn með sama hætti og
hann myrti Jón, mann hennar, og
síðan brenndur til ösku. Mála-
fylgja Guðrúnar var slík að dóm-
endur urðu við ósk hennar.
í fréttatilkynningu segir að af
skáldlegu innsæi og sögulegri
þekkingu lýsi Björn stoltu fólki og
lítilmennum, brjóstgóðu fólki og
illgjörnu sem framar öllu reynir
að knésetja náungann. En ekki
síst fjalli þessi saga um hið flókna
samspil mannlegs eðlis og harðn-
eskjulegrar náttúru.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er212 bls, unnin íprentsm-
iðjunni Odda hf. Kápuna gerði
Guðjón Ketilsson. Verð: 3.980 kr.
• SVIPTINGAR á sjávarslóð er
minningabók eftir Höskuld
Skarphéðinsson, fyrrverandi skip-
herra.
í fréttatil-
kynningu segir:
„Airið 1958 steig
ungur stýrimað-
ur um borð í
Maríu Júlíu, eitt
af varðskipum
Landhelgisgæsl-
unnar, og varla
hafði hann lært
að rata um skip-
ið þegar til átaka
kom við Breta og Þjóðverja um 12
mílna landhelgi Islendinga. Fyrsta ~
landhelgisstríð okkar var hafið.“
I tæp fjörutíu ár starfaði Hösk-
uldur í flota Landhelgisgæslunn-
ar. Hann hóf störf á smæstu skip-
um gæslunnar, var á miðjum
vettvangi í öllum landhelgisátök-
um íslendinga og lauk ferli sínum
sem skipherra á flaggskipinu Tý
eftir farsælan og viðburðaríkan
starfsdag.
Rauði þráðurinn í minningasögu
Höskuldar er ósvikið yfírlætisleysi
og einlæg samúð hins lífsreynda
sjómanns með öllum þeim sem
þjást og þola. Útgefandi er Mál og
menning. Bókin er 223 bls., unnin
í prentsmiðjunni Odda hf. Kápum-
ynd gerði Guðjón Ketilsson. Verð: v
4.280 kr.
HRINGFERLI er níunda ljóðabók
Hallbergs Hallmundssonar.
í bókinni eru 40 Ijóð og segir í
fréttatilkynningu að hér heyrum
við rödd leitandans - einfarans,
sem stundum
hefurvillst af
leið, gengið
hring eftir hring
og fundist hann
vera týndur. Það
er rödd roskins -x
manns sem lítur
til baka af nokk-
urri viðkvæmni
og angurværð.
Útgefandi er
Brú. Bókin er56
bls., unnin íStensil hf. Dreifmgu
annast Ormstunga, Austurströnd
3, Scltjarnarnesi. Verð: 1.090 kr. V
Björn Th.
Björnsson
Hallberg
Hallinundsson