Morgunblaðið - 09.11.1999, Blaðsíða 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Anatolis Fedjúkin, þjálfari Framliðsins.
Engu við að
ATHYGLISVERT er að fylgj-
ast með vinnubrögðum hins
rússneska þjálfara Framara,
Anatolis Fedjúkins. Sá sat
sallardlegur á varamanna-
bekknum fyrir leikinn meðan
leikmenn hans voru inni í bún-
ingsklefa að gera sig klára í
átökin. Greinilegt var að Fe-
djúkin hafði engu við að bæta
því sem farið hafði fram á æf-
ingum dagana á undan. Ekk-
ert var ákveðið á síðustu
stundu.
Þegar í leikinn kom var
hins vegar allt annað uppi á
teningnum. Þá fdr Fedjúkin
mikinn; baðaði út öllum öng-
um og hvatti menn dspart til
dáða. Takmörkuð tungumála-
kunnátta hans kemur í veg
fyrir margbreytilegar skipan-
ir, svona fyrst f stað, en þeim
mun meira fdr fyrir orðunum
bæta
pass og fríkast. Og þeim beitti
Fedjúkin dspart.
Leikmenn Safamýrarliðsins
segja raunar að mjög vel
gangi að skilja lærimeistar-
ann, þrdað hafi verið nýtt
tungumál, sk. „framíska" sem
dugi vel til síns brúks. Mun
hún standa saman af ensku,
þýsku með samkrulli af ís-
lensku og lærast fljdtt. Segja
Framarar.
Evia
menn
V
stýfðir
HAUKAR lyftu sér upp í miðja deild með öruggum og nokkuð
auðveldum sigri á döpru liði Eyjamanna í íþróttahúsinu við
Strandgötu á sunnudaginn, lokatölur 28:21. Leikmenn Hauka
voru með forystu allan leikinn og aðeins einu sinni var jafnræði
með liðunum, það var rétt í upphafi í stöðunni 1:1. Eftir það
réðu leikmenn ÍBV ekkert við gestgjafa sína og tókst aldrei að
ógna þeim að ráði.
Segja má að leikmenn Hauka hafí
vængstýft lið ÍBV strax í upphafi
með því að taka Guðfínn Kristmanns-
son úr umferð frá
lvar fyrstu mínútu og
Benediktsson leika síðan öfluga og
skrifar hreyfanlega fímm
manna vöm þar fyrir
aftan. Þetta óvænta útspil Guðmund-
ar Karlssonar, þjálfara Hauka, í
byijun kom Eyjamönnum algjörlega
í opna skjöldu, alltjent áttu þeir enga
ása upp í erminni. Sóknarleikur gest-
anna var bitlítill og hugmyndasnauð-
ur. Haukar nýttu sér þar hins vegar
vel að Eyjamenn voru sem slegnir út
af laginu, skoruðu tvö af fyrstu fjór-
um mörkum sínum úr hraðaupj)-
hlaupi og náðu þar strax öruggri for-
ystu, 4:1. Héldu þeir áfram að bæta
smátt og smátt við gegn ráðþrota liði
IBV og eftir 20 mínútna leik var
staðan, 14:8.1 kjölfar þess að Haukar
urðu einum leikmanni fátækari um
tíma tókst liðsmönnum IBV að skora
þrjú mörk í röð og minnka muninn í
þijú mörk, 14:11, og 15:13 skömmu
fyrir leikhlé, en þá stóð, 17:13.
Fyrri hluti síðari hálfleikur var
einn sá lakasti sem þessi lið hafa
lengi leikið og um tíma gerðu leik-
menn sig seka um að gera nær ein-
tóma vitleysu. Hver sóknin rann út í
sandinn eftir að dómararnir urðu að
grípa í taumana og dæma ruðning,
ólöglega hindrun, línu og skref,
ellegar þá að knettinum var annað-
hvort hent óyfirvegað að markinu
eða í hendur andstæðinganna. Sem
dæmi má nefna að af fyrstu þrettán
sóknum ÍBV tókst leikmönnum að-
eins að skora í tvígang. Þessi slaka
sóknamýting verður ekki alfarið
skrifuð á dómara leiksins, sem Eyja-
menn voru á stundum með réttu
ósáttir við. Haukar voru litlu betri,
liðið gerði aðeins 5 mörk úr fyrstu
þrettán upphlaupunum.
Haukum tókst heldur að hrista af
sér slenið á lokakaflanum og bæta
nokkuð leik sinn, vörnin var nokkuð
sterk og sóknarleikurinn var oft og
tíðum auðveldur gegn hriplekri vörn
IBV og verða markverðir liðsins
seint öfundaðir af því að standa
henni að baki.
Sem fyrr segir gekk herbragð
Hauka algjörlega upp, að taka Guð-
finn úr umferð frá upphafi til enda.
Aðrir sóknarmenn Eyjamanna
höfðu ekki burði til þess að taka við
hlutverki hans. Litháinn Aurímas
Frovolas náði sér ekki á strik í sín-
um fyrsta leik með liðinu og Miro
Barisic og Sigurður Bragason
reyndu að klóra í bakkann án árang-
urs. Engu máli skipti hvernig Eyja-
menn stilltu upp vörn sinni, engin
þeirra hreif á sóknarmenn Hauka.
Láti leikmenn Hauka skynsemi
og aga ráða ferð í leik sínum geta
þeir og eiga að vera í hópi efstu liða.
Hins vegar er voðinn vís þegar þeir
láta eftir sér að falla niður á sama
plan og slakur andstæðingurinn eins
og þeir gerðu sig á tíðum seka um
að þessu sinni.
Njörður Árnason, hornamaður Fraffl
Lárusi Long ref fyrir rass og sendir k
sem átti erfitt upp
Bergs
loka
Valsr
VALSMENN voru nálægt því að
verða fyrstir til að vinna íslands-
meistara Aftureldingar er liðin
mættust að Hlíðarenda á laugar-
daginn. Þegar fjórar mínútur voru
eftir hafði Valur yfir, 21:20, og mikil
spenna í íþróttahúsinu. Þá tók
Bergsveinn Bergsveinsson, mark-
vörður, til sinna ráða og lokaði
markinu og Afturelding fagnaði
sigri, 21:23. Staðan í hálfleik var
8:11 fyrir Mosfellinga.
Við þurftum að hafa verulega fyrir
sigrinum. Ungu strákarnir hjá Val
eru orðnir mjög góðir og spila skynsam-
lega. Þeir spiluðu langar
Vaiur B sóknir og það pirraði okkur
Jónatansson svolítið um tíma,“ sagði
skrifar Bergsveinn hetja Mosfell-
inga. „Ég fékk ekki mörg
skot á mig í fyrri hálfleik því vörnin tók
flest þeirra og eins voru þeir að skjóta í
stangirnar og framhjá. Ég varði hins veg-
ar mikilvæg skot á lokamínútunum og ég
er ánægður með það. Þetta var skemmti-
legur og spennandi leikur."
Fyrri hálfleikur einkenndist af sterkum
varnarleik beggja liða. Valsmenn byrjuðu
með framliggjandi vörn, en breyttu í flata
vörn eftir að staðan var orðin 10:5 fyrir
Aftureldingu. Með breyttri vöm og meiri
baráttu náðu Valsmenn að saxa á forskot-
ið fyrir leikhlé, 8:11.
Heimamenn héldu uppteknum hætti og
voru búnir að jafna eftir aðeins sex mínút-
ur í síðari hálfleik, 12:12. Markús Máni