Morgunblaðið - 09.11.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.11.1999, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ 8 C ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 ------------------------------- HANDKNATTLEIKUR Dormagen lagði Essen Eftir fimm sigurleiki í röð, þann síð- asta gegn meistaraliði Kiel, tapaði lið Páls Þórólfssonar og Patreks Jó- hannessonar, Essen, 23:20, fyrir öðru „Islendingaliði“ Bayer Dormagen í þýsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Sigurinn var sérlega mikil- vægur íjrir Dormagen sem hefur átt á brattann að sækja á leiktíðinni. Þá vann lið Julans Róberts Duranona, 28:25, sigur á Bad Schawartau. Skor- aði Duranona 6/5 mörk. Þá skildu Wuppertal og D/M Wetzlar jöfn, 23:23. Flensborg heldur hins vegar . efsta sæti deildainnnar eftir góðan sig- ur á Lemgo á útivelli, 27:21. Fimm sigurleikir Essen í röð höfðu fært liðið upp í hóp þeirra efstu og með sigri í Dormagen hefði liðið náð öðru sæti deildarinnar. Heimamenn voru ekki á því að gefa neitt eftir og mættu ákveðnir til leiks undir stjórn þjálfara sinna, Peters Pysalls og Guðmundar Guðmunds- sonar. Hinn tæplega fertugi mark- vörður liðsins, Andeas Thiel sýndi allar sínar bestu hliðar og sóknar- leikurinn var hiklaus. Eftir 15 mín- útna leik var Dormagen komið með fjögurra marka forskot, 7:3 og í hálf- leik var staðan 14:8. Leikmenn Es- sen bitu frá sér á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks og minnkuðu muninn > í 15:13. Einkum kom það til af stór- góðri markvörslu Stefans Heckers hjá Essen. Hecker og Thiel fóru á kostum í leiknum og sýndu að þeir voru ekki landsliðsmarkverðir Þjóð- verja í mörg ár fyrir ekki neitt og þeir hafa fáu gleymt þótt báðir verði þeir fertugir á næsta ári. Heeker varði fjögur vítaköst og Thiel þrjú. Héðinn Gilsson kom feikisterkur inn í leik Dormagen á lokakaflanum og gerði fjögur góð mörk og er óð- fluga að ná sér á strik eftir meiðsl. v Attu mörk hans drjúgan þátt í að tryggja Dormagen mikilvægan sigur í botnbaráttunni, 23:20. Róbert Sig- hvatsson skoraði einnig fjögur mörk fyrir Dormagen. Daði Hafþórsson var í leikmannahópi Dormagen en skoraði ekki að þessu sinni. Sama máli gildir um Pál Þórólfsson hjá Es- sen. Patrekur skoraði hins vegar eitt mark fyrir Essen. Sigurður Bjarnason var veikur og lék ekki með Wetzlar sem gerði 23:23 jafntefli við Wuppertal. Kemur ft-am á heimsíðu liðsins að það hafi saknað hans mjög í leiknum þar sem Sigurð- m- hafi leikið vel upp á síðkastið. Lið Guðmundar Hrafnkelssonar, Nordhorn, hefur nokkuð misst flugið eftir stórgóðan byrjun og um helgina - beið liðið lægri hlut fyrir Grosswall- stadt, 26:22 á útivelli sem lék þó án Frakkans Jaekson Richardson sem er meiddur. Willstatt tapaði tíunda leik sínum í röð, nú fyrir fjárvana liði Nettel- stedt, 27:24. Gústaf Bjarnarson lék mjög vel fyrir Willstatt, gerði 6 mörk og Magnús Sigurðsson er að sækja í sig veðrið eftir meiðsl og skoraði fjórum sinnum. Ólafur Stefánsson var markahæst- ur liðsmanna Magdeburgar sem tap- aði 22:19 á útivelli fyrir W.M. Frank- furt - skoraði fímm mörk. tennur brotnuðu ÁGÚSTA Edda Björns- dóttir fyrirliði efsta liðs 1. deildar kvenna, Gróttu/KR, varð fyrir því óláni í baráttuleik við Hauka á laugardag- inn að tvær framtennur í henni brotnuðu í at- ganginum. Leikurinn stöðvaðist um tíma með- an leikmenn leituðu að brotunum og fundu nokkur en ekki nógu mörg því tennurnar mölbrotnuðu að sögn Ágústu Eddu. „Ég hef oft fengið högg en aldrei lent í öðru eins,“ sagði Ágústa Edda, sem kom þó aftur inná eftir að hafa jafnað sig um stund. „Ég jafnaði mig og það var sett bómull undir vörina því brotin voru svo skörp. Ég verð örugglega að spila með góm en er samt ekki á því að leggja árar í bát,“ sagði Ágústa. Morgunblaðið/Jim Smart Ágústa Edda Björnsdóttir á fullri ferð að marki Hauka og skorar eitt af sjö mörkum sínum fyrir Gróttu/KR. Haukar engin fýrirstaða „VIÐ lögðum upp með að stressa okkur ekki of mikið og taka öllu með jafnaðargeði en vörnin byrjaði strax vel og hélt vel út leikinn auk þess að Fanney í markinu stóð fyrir sínu,“ sagði Ágústa Edda Björnsdóttir fyrirliði spútnikliðs Gróttu/KR eftir góðan 21:18 baráttusigur á háttskrifuðu liði Hauka á Seltjarnar- nesi á laugardaginn. Fyrir vikið trónir Grótta/KR á toppi 1. deildar kvenna - nokk- uð sem Ágústa Edda átti sjálf ekki ■■■■■1 von á. „Ég bjóst við Sesselja góðu gengi en varla Dagbjört vjg þvj ag þag gengi svona vel - við eigum jafnvel samt enn eftir að fá góða skyttu til liðs við okkur. Annars hugsum við ekkert of mikið um framtíðina, þetta er gott hjá okkur í dag og við ætlum að halda því áfram og hafa gaman af.“ Gunnarsdóttir skrifar Grótta/KR byrjaði vel með sterkri vöm, sem skilaði þeim 4-5 marka forystu meðal annars eftir tvö hraðaupphlaup á meðan Haukar spiluðu ósannfærandi og virtist sem hugmyndaauðgi vantaði í sóknarleik þeirra. Haukastúlkur náðu sér ekki á flug og skiptu Judith Esztergal og Ingu Fríðu Tryggvadóttur útaf en liðið virtist finna betur taktinn eftir það. Engu að síður mættu Gróttu/KR stúlkur vígi-eifar til síð- ari hálfleiks og náðu sex marka for- skoti en allt gekk á afturfótunum hjá Hafnfirðingum. Um miðbik síð- ain hálfleiks jafnaðist leikurinn og liðin skiptust á að skora en Grótta/KR var ekki á því að gefa eft- ir verðskuldaða forystuna og sigr- uðu með þremur mörkum, 21:18. Hjá Gróttu/KR átti markvörður- inn Fanney Rúnarsdóttir stórleik auk þess að Ágústa Edda og Krist- ín Þórðardóttir stóðu sig með prýði en í Hafnarfjarðarliðinu voru Judit Esztergal og Harpa Melsteð best- ar. Hjördís Guðmundsdóttir í marki Hauka átti góða spretti og varði þegar lið hennar átti erfitt uppdráttar. ■ Úrslit/BIO ■ Staðan/BIO Sveiflan i havegum hofð i Víkinni „ÞETTA var mjög erfitt - alltof erfitt og ég var á nálum, sem er reyndar gott fyrir mig því þá er ég betur viðbúin,“ sagði Helga Torfadóttir markvörður Víkinga andstutt og lafmóð eftir 15:15 jafntefli við Val í hörkuspennandi leik í Víkinni í laugardaginn. Sveiflurnar voru miklar í leiknum og varla hægt að segja að skipst hafi á skin og skúrir - frekar hellidembur og glaðasól- skin sem fjölmargir áhorfendur upplifðu af innlifun. „Sveiflurn- ar eru einkennandi fyrir kvennahandknattleikinn en mjög gott var að sjá að liðin voru ekki á því að gefast upp eins og við gerðum of óft í fyrra,“ bætti Helga við en Víkingar geta ásamt XGróttu/KR státað af því að vera eina taplausa liðið í deildinni. Með mjög framliggjandi vöm slógu Víkingsstúlkur gesti sína frá Hlíðarenda út af laginu en HHH vörn Vals var engu stefán síðri og helsta skytta Stefánsson yíkinga, Kristín Guð- fnar mundsdóttir, komst *ekki að auk þess að vamarjaxlinn í vöm Vals, Eivor-Pála Blöndal, sá til þess að línumaðurinn snjalli Heiðrún Guðmundsdóttir fékk sig lítið hrært. Það var ekki fyrr en nokkrar mínútur voru liðnar af síð- ari hálfleik að Valsstúlkur losuðu sig úr álögunum en þá snem þær líka taflinu algerlega við með sjö mörkum í röð og breyttu stöðunni úr 10:6 í 10:13. Það skipti miklu að Alda Hrönn Jóhannsdóttir kom í mark Vals og varði af krafti. En taflinu var ekki lokið því með mik- illi elju skoruðu Víkingsstúlkur næstu fjögur mörk og taugar jafnt leikmanna sem áhorfenda vom þandar. Hvort lið fékk nokkur tækifæri til að gera út um leikinn en niðurstaðan varð sanngjamt jafntefli. „Við lékum vörnina vel en sókn- arleik eins og leikmenn hefðu aldrei snert handbolta áður enda var baráttan mikil og þá á kostn- að gæðanna,“ sagði Ágúst Jó- hannsson þjálfari Valsstúlkna myrkur í máli eftir leikinn. „Við áttum von á að þær myndu spila þessa framliggjandi 3-3 vörn í byrjun en samt einhverra hluta vegna kom það okkur í opna skjöldu. Engu að síður snerum við leiknum okkur í hag eftir hlé en þá fengu leikmenn stjörnur í aug- un og voru alltof ánægðar með sjálfar sig svo að ég get miðað við okkar leik jafnvel verið við jafn- teflið. Alda Jóhannsdóttir í mark- inu kom sterk inn og sumir leik- menn náðu sér á strik en það vantar meira frá lykilleikmönnum eins og Brynju Steinsen og Gerði Betu Jóhannsdóttur - ég hef samt ekki miklar áhyggjur að því, þær munu koma til.“ Ætluðum að vinna stórt „Við ætluðum að vinna stórt til að laga markahlutfallið hjá okkur,“ sagði Ragnheiður Stephensen stór- skytta úr Stjörnunni eftir 40:18 sigur á Aftureldingu á laugardag- inn. Reyndar byrjaði Afturelding á að skora tvö fyrstu mörkin áður en Garðbæingar tóku til sinna ráða og breyttu stöðunni í 11:4 - þar af komu níu mörk úr hraðaupphlaup- um. „Við fengum skell en verðum að halda haus,“ sagði Edda Egg- ertsdóttir fyrirliði UMFA eftir leikinn. „Við verðum að taka því og læra af hverjum leik en það er eng- in uppgjöf og við ætlum að bæta okkur.“ Sóley Halldórsdóttir lét til sín taka því fyrir utan að verja markið fyrir hlé náði hún að skora þrjú mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.