Morgunblaðið - 17.11.1999, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Krefjast mikillar
hækkunar
kauptryggingar
VELSTJORAR krefj-
ast verulegrar hækkun-
ar kauptrygginar í
næstu kjarasamningum
og að Alþingi komi þeg-
ar i stað í veg fyrir
óeðlilegt fjárstreymi út
ur íslenskum sjávarútvegi. Þetta kemur fram í ályktunum Vélstjóra-
þings sem lauk sl. helgi.
Vélstjóraþing vill koma
í veg fyrir fjárstreymi
út úr sjávarútvegi
Vélstjóraþingið skoraði í ályktun-
um sínum á stjórn Vélstjórafélags
íslands að stofna sérstaka kjara-
og samninganefnd sem starfi allt
árið við söfnun gagna og við að
fylgja málum eftir. Nefndin eigi í
komandi samningum að leggja
þunga áhersla á verulega hækkun
kauptrygginar og að tímakaup
verði 1% af kauptryggingu. Þá
þyrfi einnig að koma verðmynd-
unarmálum fiskimanna í viðun-
andi horf.
Auk þess gerði þingið þá kröfu
til íslenskra stjórnvalda að óeðli-
legt fjárstreymi út úr fiskveiðik-
erfinu verði nú þegar stöðvað með
lögum en á undangengnum árum
hafimargir útgerðarmenn yfirgef-
ið greinina og tekið með sér gríð-
arlega fjármuni. Auðlindin sé hins
vegar sameign þjóðarinnar en
ekki eign einstakra útgerða.
Þá fór þingið fram á það við Al-
þingi að hinn svokallaði sjó-
mannaafsláttur verði réttnefndur;
t.d. ríkisstyrkur til útgerðar.
Ennfremur að hvalveiðar yrðu
heimilaðar hið fyrsta.
Vélstjóraþingið mótmælti í
ályktunum sínum harðlega af-
skiptum ríki.svaldsins af samning-
um sjómanna við LIU með setn-
ingu laga 1998. Jafnframt var
þess krafist að sjómenn fái frið í
næstu samningum til að ganga frá
kjarasamningi við LIÚ án af-
skipta utanaðkomandi aðila.
Markaðssetja þarf
vélstjórafagið
Menntamál voru meginumfjöll-
unarefni Vélstjóraþings að þessu
sinni. I ályktun um menntamáli
segir að bæta þurfi ímynd Vél-
skólans, Vélstjórafélagsins og vél-
stjórastarfsins, enda þurfi ímynd-
in að vera á þá vegu að skólinn sé
menntaskóli á tæknisviði.
Markaðssetja þurfi vélstjóra-
fagið mun betur til að stuðla að
fjölgun nemenda í vélskólanám.
Þetta megi gera m.a. með því að
kynna skólana, starf þeirra og
hvað það er að starfa sem vél-
stjóri og möguleika hans í starfi
til lands og sjávar. I þessu sam-
hengi sé ljóst að samband LIÚ,
VSFI og VI sé ekki góð auglýsing
og það þurfi að bæta á faglegan
hátt.
Þingið tók undir hugmyndir um
sameiningu sambærilegra tækni-
menntaskóla og ályktaði að vél-
stjóramenntun verði samþykkt
sem jafngildi stúdentsprófs að
loknum sambærilegum eininga-
fjölda og námstíma og að athuguð
verði brautartenging vélstjóran-
áms við aðra framhaldsskóla og
tenging þess við háskólastig verði
viðurkennd.
Reisa ísverksmiðju
á Grundarfirði
TIL stendur að koma á fót ísverks-
miðju í Grundarfirði og er þegar
búið að safna hlutafé fyrir 30 mil-
ljónir króna eins og að var stefnt.
Engin ísverksmiðja er á svæðinu
en þörfin er mikil til að sinna ísfiskflotanum og fiskvinnsluhúsunum.
30 milljdna
hlutafé safnað
Að sögn Sigurðar Sigurbergssonar,
framkvæmdastjóra Soffaníasar
Ceeilssonar hf. í Grundarfirði, hef-
ur hugmynd um ísverksmiðju
blundað í Grundfírðingum í nokkur
ár enda menn talið að grundvöllur
væri fyrir rekstri slíkrar verk-
smiðju á staðnum og fyrir skömmu
hefði verið ákveðið að fara af stað
og safna_ 30 milljónum króna í
hlutafé. Á fyrsta fundi hefðu 14
manns skráð sig fyrir hlutafé en nú
væru skráðir nær 20 hluthafar fyrir
samtals 30 milljónum.
„Þessa dagana er verið að ganga
frá lausum endum og ráðgert er að
halda fund eftir tvær til þrjár vikur
til að ganga endanlega frá stofnun
hlutafélagsins Snæíss hf.,“ segir
Sigurður. „Það er engin ísverk-
smiðja, sem er með sjálfsaf-
greiðslubúnaði á töluvert stóru
svæði héma en þörfin er mikil.“
Flestir hluthafa á svæðinu
Sigurður segir að flestir hluthaf-
anna séu á svæðinu og öll fisk-
vinnslufyrirtækin og nánast allar
útgerðir í Grundarfirði séu á meðal
hluthafa en Eyjaís ehf. í Vest-
mannaeyjum sé einn af stærstu
hluthöfunum með fimm milljóna
króna hlutafé. Fjórir til fimm hlut-
hafar verða með þrjártil fimm mill-
jónir en aðrir minna. Á iyrsta fundi
var kosin fimm manna stjórn og
varastjórn en þeir eru Sigurður
Sigurbergsson, Magnús Kristins-
son frá Eyjaís ehf. í Vestmannaeyj-
um, Árni Halldórsson frá Fiskiðj-
unni, Ásgeir Ragnarsson frá
ílutningafyrirtækinu Ragnari &
Ásgeiri ehf. og Kristján Guðmun-
dsson frá Guðmundi Runólfssyni
hf.
ARON LENGDUR I POLLANDI
• HÚSVÍSKA skipið Aron ÞH
105 kom í síðustu viku til heima-
hafuar eftir að hafa verið í Stett-
in í Póliandi í tæpa þrjá mánuði
þar sem skipið var Iengt um 1,5
metra aftan við brú og var þar
byggt yfir svo þar skapaðist
mjög góð vinnuaðstaða fyrir
skipveija. Einnig var bætt við
spiium auk þess sem ýinsar fleiri
viðbætur og iagfæringar voru
gerðar. Jafnframt hefur verið
hönnuð lenging á skipinu mið-
skips en þeirri framkvæmd hefur
verið frestað og bíður betri tíma.
Stefán Guðmundsson, skip-
stjóri á Aroni, sagði að skipið
hefði reynst mjög vel á heimsigl-
ingunni en á leiðinni Ientu þeir í
nokkurri brælu. Eigandi Arons
er Knarrareyri ehf., fjölskyldu-
fyrirtæki Guðmundar A. Hólm-
geirssonar, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri þess.
Aron er kominn til veiða fyi-ir
sunnan Iand með fiskitroll og
mun landa í Þorlákshöfn.
Umbúðamiðlun kaupir
5.000 ker af Borgarplasti
NÝLEGA undirritaði Um-
búðamiðlun saming við
Borgarplast hf. um kaup á
5.000 fiskikerum af gerðinni
460. Um 80% keranna verða
afhent fyrir áramót og verð-
ur keraeign Umbúðamiðl-
unar þá orðin rúmlega 20 þúsund ker og fyrirtaBkið þar með orðið lang-
stærsti eigandi einangraðra kera á íslandi og jafnvel í heiminum. Alls
hefur Umbúðamiðlun keypt 8.400 ker á þessu ári - öll af Borgarplasti hf
og nú er svo komið að 75% af öllum kerum Umbúðamiðlunar eru fram-
leidd af Borgarplasti.
Umbúðamiðlun hf. er
langstærsti eigandi
fiskikera á landinu
„Umbúðamiðlun sér um innkaup,
þrif, viðgerðir og förgun kera og
með tilkomu fyrirtækisins hefur öll
meðferð á kerum stórbatnað og nýt-
ing þeirra þar með, en það er þáttur
sem skiptir fyrirtækið eðlilega
miklu máli.
Það er reynsla Umbúðamiðlunar
og annarra sem reka stóran kera-
lager að innkaupsverðið eitt segir
ekki alla söguna. Heildarmynd af
reksti-i keralagers fæst ekki nema
þættir eins og þrif, viðgerðir og
forgun séu teknir með í reikninginn.
Aðferðafræði af þessum toga er auð-
vitað þekkt bæði hér heima og er-
lendis, þar sem menn skoða Total
Cost of Ownership (TCO) eða eign-
arhaldskostnað. Það felur í sér þau
hyggindi að spara ekki aurinn og
kasta krónunni - heldur skoða heild-
ardæmið og haga fjárfestingu í
tækjabúnaði í samræmi við það,“
segir í frétt frá Borgarplasti og Um-
búðamiðlun.
Auðveld í þrifum
Það er einkum þrennt sem hefur
verið aðalsmerki kera frá Borgar-
plasti. Rennislétt og ávalt yfirborð
þeirra gerir þau auðveld í þrifum,
viðgerðarkostnaður þeirra er í lág-
marki jafnframt því að styrkur og
ending er í besta lagi. Hönnun ker-
anna styður alla þessa kosti og þeir
leiða allir til meiri rekstrarhag-
kvæmni keranna og lægri eignar-
haldskostnaðar. Slíka kosti kunna
þeir vel að meta sem kaupa mikið af
kerum.
Þessir eiginleikar Borgarplast-
keranna eru ekki til komnir fyrir til-
viljun. Borgarplast hefur alla tíð lagt
megináherslu á vöruþróun, vöru-
vöndun og gæði. Árlega er allt að
10% af veltu fyrirtækisins varið til
vöruþróunar, gæða- og umhverfis-
mála. Fyrirtækið hefur rekið ISO
9001 vottað gæðakerfi frá árinu 1993
og var fyrst fyrirtækja í eigu íslend-
inga til að koma á umhverfisstjóm-
unarkerfi samkvæmt ISO 14001
staðlinum. Stórfelld kaup Umbúða-
miðlunar á kerum frá Borgarplasti
er traust vísbending um að íslensk
fyrirtæki láti sig í auknum mæli
varða áherslur Borgarplasts á beit-
ingu kerfisbundinna alþjóðlegra
vinnubragða til að auka vöragæði í
sátt við umhverfi og mannfólk.
Verkefnastaða Borgarplasts er
mjög góð um þessar mundir og hef-
ur sjaldan verið betri. Selst hefur vel
bæði á innanlandsmarkaði og er-
lendum mörkuðum. Unnið er á vökt-
um allan sólarhringinn sex daga vik-
unnar til að afgreiða upp í
fyrirliggjandi pantanir og eru horf-
ur á að sú staða verði a.m.k. fram í
apríl á næsta ári. Forráðamenn
Borgarplasts hf. þakka þessa vel-
gengni að stórum hluta velheppn-
aðri sjávarútvegssýningu í Kópa-
vogi og þeirri athygli sem beinst
hefur að fyrirtældnu í kjölfarið,
bæði hérlendis og ekki síður erlend-
is,“ segirífréttinni.
Sjöfn Guðmundsdsóttir, fjármálastjóri Borgarplasts, og Friðrik Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Umbúðamiðlunar hf. undirrita samn-
ing um kaup Umbúðamiðlunar á 5.000 kerum frá Borgarplasti.