Morgunblaðið - 14.12.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.12.1999, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1999 SUND MORGUNBLAÐIÐ Sælutilfinning íslandsmet sem ÖRN ARNARSON hefur sett 1999 undanrásirnir, reyndi aðeins að tryggja mig inn í undanúrslitin og spara kraftana. I undanúrslitunum var ég staðráðinn í að gefa allt sem ég átti til að fá góða braut í úrslita- sundinu, sem fram fór daginn eftir. Ég held að það haf! síðan verið vilj- inn og höfuðið sem skiluðu mér of- ar en hinir í úrslitasundinu.“ Hélt að ég hefði orðið á eftir -100 metra sundið var gríðar- lega jafnt og mátti varla á milli sjá hverjir náðu efstu sætunum. Varst þú viss um sigur þegar þú komst að bakkanum? „Nei, ég hélt ég hefði orðið á eft- ir, en þegar ég leit síðan á tímatöfl- una og sá nafnið mitt efst fékk ég sælutilfínningu um líkamann. Það var æðislega gaman og sérstak- lega vegna þess að sundið var svo jafnt og lítill tímamunur. Þá er alltaf sætara að vera á undan en á eftir. Það er mjög erfitt að sætta sig við að tapa þegar munurinn er svona lítill. Ég held að sigurinn hjá mér hafí legið í því að ég er hand- leggjalengri en keppinautarnir." -Þú náðir öðrum besta tímanum í undanúrslitum í báðum greinun- um og lentir því á fímmtu braut- inni, erþaðhappabrautin? „Nei, hún er ekkert betri en fjórða. Ég komst bara ekki hraðar í hvorugri greinni í undanúrslitun- um þannig að það var ekkert um það að ræða að synda á fjórðu braut.“ - Hvernig var tilfínningin eftir að hafa náð öðrum titlinum? „Hún var auðvitað góð. Ég var mjög þreyttur og orkaði ekki einu sinni að fara á lokahófið á sunnu- dagskvöld. Fór frekar heim á hótel til að hvíla mig. Ég held að ég hafi notað alla mína orku í þetta mót.“ Hann sagði að margir þættir þyrftu að ganga upp til að ná svona góðum áragnri. „Það er fullt af fólki sem hefur hjálpað mér til að ná þessum árangri. Ég gæti ekki staðið í þessu einn og óstuddur, það er alveg ljóst. Ég er með góð- an þjálfara og síðan hafa foreldrar mínir og fjölskylda stutt vel við bakið á mér og hvatt mig til dáða. Starf Sundfélags Hafnarfjarðar er ómetanlegt og eins hefur Hafnar- fjarðarbær lagt sitt af mörkum." - Verður árangur þinn ekki til þess að gefa öðrum sundmönnum byr undir báða vængi? „Jú, ég held að það hljóti að vera. Ég hef nú rutt brautina og sýnt að þetta er hægt.“ Vantar 50 metra keppnislaug - Oft er talað um aðstöðuleysi hér á landi og að það hamli sun- díþróttinni. Hvað segir þú um það? „Það er ágæt æfingaaðstaða hér á landi. Eins og hjá okkur sem æf- um hjá SH, þá erum við með tvær ágætar laugar og vel staðið að öllu hjá félaginu. Það er ekkert undan neinu að karta í því sambandi. En hins vegar vantar tilfinnanlega 50 metra keppnislaug. Við höfum keppt í sömu lauginni í bikar- keppninni síðan 1937 og þó Sund- höll Reykjavíkur hafi verið góð á Á spjöld sögunnar SUNDKAPPINN Örn Arnar- son úr Hafnarfirði skráði nafn sitt á spjöld sögunnar er hann sigraði í 100 metra baksundi á Evrópumeistara- mótinu í 25 metra laug í Lissabon á sunnudag. Hann er þar með fyrstur Islend- inga sem getur státað af því að vera tvöfaldur Evrópum- eistari því hann vann einnig 200 metra baksundið á föstu- dag- Orn, sem er 18 ára síðan í ágúst, synti á 53,13 sekúnd- um í úrslitasundinu í 100 metrunum á sunnudag og bætti eigið Islandsmet, 53,30 sek., frá því í undanúrslitum á laugardag. 100 metra bak- sundið var gríðarlega spenn- andi og með frábærum enda- spretti tókst honum að skjóta sér framfyrir Tyrkjann Der- ya Buyukuncu í lokasundtak- inu og kom að bakkanum 4/ 100 hlutum úr sekúndu á undan. Volodymyr Nicola- ychuk frá Ukraínu varð þriðji á 53,27 sekúndum, en hann átti besta tfmann í und- anúrslitunum á laugardag, 53,13 sek. sem er nákvæm- Iega sami tímí og sigurtími Arnar á sunnudag. SUNDKAPPINN Örn Arnarson úrSundfélagi Hafnarfjarðar náði glæsilegum árangri á Evrópumeistaramótinu í Lissabon um helgina. Hann sigraði bæði í 100 og 200 metra baksundi og var þar með tvöfaldur Evrópumeistari. Hann varði titil sinn frá í fyrra í 200 metra baksundi og sigraði síðan nokkuð óvænt í 10O metra baksundi á lokadegi mótsins á sunnudag. Hann stakk sér átta sinnum til sunds á mótinu og setti fimmíslandsmet. Glæsilegur árangur hjá þessum 18 ára sundkappa. Sætara að verja titilinn - Er skemmtilegra að verja titil- inn en vinna hann ífyrsta sinn? „Það er miklu sætara að verja Örn Arnarson fagnar sigri í 100 m baksundi á EM í Lissabon, þar sem hann gerði sér lítið fyrir og varð tvöfaldur Evrópumeistari. Öm fagnaði einnig sigri í 200 m baksundi. Eg er auðvitað gríðarlega ánægður, en þetta tók á og ég var mjög þreyttur. Ég var alveg búinn andlega og Eftir líkamlega eftir 100 Va/ g metra sundið á Jónatansson sunnudaginn," sagði Örn í viðtali við Morgunblaðið.Hann sagði að þrotlausar æfingar undanfama mánuði hefðu skilað þessum frá- bæra árangri. Hann sagði þjálfara sinn, Brian Marshall, eiga stóran þátt í þessu og eins foreldrar og allir þeir fjölmörgu sem stæðu að baki sundíþróttinni í Hafnarfirði. - En áttir þú von á því að koma heim með tvenn gullverðlaun frá Lissabon? „Ég gerði mér auðvitað ákveðnar vonir um að verja titilinn í 200 metra baksundi, en vissi ekki alveg hvar ég stæði í 100 metrun- um. Það má segja að árangurinn í 100 metrunum hafi komið sjálfum mér nokkuð á óvart.“ Hann sagðist hafa synt 200 metrana á föstudag eins og hann ætlaði að synda þá. „Já, ég held að útfærslan á sundinu hafi gengið al- veg upp. Reyndar fannst mér ég eiga meiri kraft eftir á síðustu 50 metrunum en ég reiknaði með fyr- irfram. Ég ákvað að nota allt sem ég átti síðustu metrana og sigurinn var ótrúlega öruggur. Þegar 50 metrar voru eftir var ég nokkuð viss um að geta unnið. Það var frá- bær tilfinning að koma í mark langt á undan hinum. Ég var ánægður með að hafa náð að verja Evrópumeistaratitilinn svona ör- ugglega." hann. Að verja hann sýnir líka að það var engin tilviljun að ég vann þessa grein í fyrra, nema þá að það hafi líka verið tilviljun núna!“ - Eftir sigurinn í 200 metra sundinu á föstudag ákvaðst þú að ræða ekki við fjölmiðla fyrr en á sunnudag svo þú gætir einbeitt þér betur að 100 metrunum. Þú hefur væntanlega viljað með því ýta öllu öðru frá þér til að einbeita þérsem best? „Já, ég og þjálfarinn minn tók- um þá ákvörðun að forðast utan- aðkomandi truflun. Þetta var gert til að ég gæti einbeitt mér fullkom- lega að öllu sem ég var að gera, en ekki brjóta upp einbeitinguna öðru hvoru með hinu og þessu. Við ákváðum því að einbeita okkur að verkefninu áður en ég gæfi kost á mér í viðtöl við fjölmiðla. Ég vona að fjölmiðlar virði það.“ Örn var með sjötta besta tímann í undanrásunum í 100 metra bak- sundinu á laugardag, synti á 54,66 sek. og náði síðan næstbesta tím- anum í undanúrslitum,_ 53,30 sek. sem jafnframt var Islandsmet. Hann bætti síðan Islandsmetið í úrslitasundinu, synti á 53,13 sek- úndum og sigraði. „Ég fór rólega í 25 mLAUG Dags.Sundgrein Tími Staður Staða 1999 24. jan. 200 m flugsund 2.03,44 Hafnarfjörður 13. feb. 100mfjórsund 56,58 Glasgow 20. mars 50 m flugsund 24,87 Vestmannaeyjar 9. des. 50 m skriðsund 22,85 Lissabon, EM 10. des. 200 m baksund 1.54,23 Lissabon, EM 11. des. 100mbaksund 53,30 Lissabon, EM 12. des. 100mbaksund 53,13 Lissabon, EM 12. des. 50 m baksund 25,35 Lissabon, EM 2. sæti á “==~| heimslista -=[ 5. sæti á heimslista 50 m LAUG Dags. Sundgrein Tími Staður Staða 19991 31. jan. 50 m skriðsund 15. júlí 200 m baksund 15. júlí 200 m baksund 16. júlí IQOmbaksund 23,84 Lúxemborg 2.01,21 Moskva 2.01,13 Moskva <{29. á heimslista 56,68 Moskva ^ S8 á heimsiista Besta árangri ársins í 200 m baksundi í25 m laug'' náði Lenny Krayzelburg frá Bandaríkjunum þegar hann setti heimsmet í nóvember, 1.52,47 Heimsmetið í 100 m baksundi í 25 m laug, 51,43 sek., setti JeffRouse frá Bandaríkjunum 1993L Heimsmetin í 50 m laug f 100 m og 200 m baksundi setti Lenny Krayzelburg frá . IBandaríkjunum í ágúst í ár,. 53,60 og 1.55,87 sínum tíma, er hún orðin gömul og alltof lítil." - Verður þú aldrei þreyttur á að æfa svona mikið eins og þú gerir? „Ó, jú. Það kemur oft fyrir. En þegar ég næ árangri og markmið- unum sem ég hef sett mér þá gleymist öll þreyta um leið.“ - Þú lagðist í fíensu rétt fyrir Evrópumótið, hafði það einhver áhrif á árangur þinn í Lissabon ? „Ég veit það ekki. Ég veiktist í vikunni eftir bikarkeppnina og synti eiginlega ekkert í heila viku. Æfði síðan í viku áður en ég fór á Evrópumótið. Það hefur greini- lega ekki verið alslæmt miðað við árangurinn. Það getur vel verið að ég hafi haft gott af því að hvfla þessa viku, en ég veit það bara ekki.“ - Hvað er svo framundan hjá þér? „Ég mun keppa næst á alþjóð- legu móti í 50 metra laug í Dan- mörku í lok janúar. Þar ætla ég að reyna við lágmörkin fyrir Ólymp- íuleikana. Ég á ekki von á því að lágmörkin verði einhver hindrun fyrir mig þar. Eftir mótið í Dan- mörku verður keyrt á fullu í undir- búning fyrir Ólympíuleikana. Ég tek ekki þátt í heimsmeistaramót- inu í 25 metra laug í aprfl því ég einbeiti mér algjörlega að 50 metra brautinni. Ég tek þátt í tveimur sterkum mótum í 50 metra laug fyrir Sydney-leikana. Fyrst í mjög sterku móti í Mónakó í maí og síðan Evrópumeistara- mótinu í 50 metra laug sem fram fer í Finnlandi í júní,“ sagði Evrópumeistarinn nýkrýndi, sem mun æfa meira og minna í Sund- laug Kópavogs til að undirbúa sig sem best fyrir Ólympíuleikana í Sydney. Fjögur met FJÖGUR íslandsmet féllu á loka- degi Evrópumótsins í sundi. Örn bætti metið í 100 metra baksundinu , synti á 53,13 sekúndum. Hann bætti metið sem hann setti í undanrásum á laugardag um 0,17 sekúndur, en gamla metið hans var 53,17 sek. og sett á EM í fyrra. Lára Hrund Bjargardóttir bætti metið í 200 metra skriðsundi á sunnudaginn. Hún synti á 2.02,87 mín. og bætti gamla metið um 0,46 sekúndur. Þá setti Örn Islandsmet í 50 metra baksundi, er hann tók fyrsta sprett- inn fyrir íslensku boðssundssveitina í 4x50 metra fjórsundi. Hann synti á 25,35 sekúndum og sveitin setti líka met, kom í mark á 1.44,44 mín. og bætti eldra metið um 2,69 sekúndur. I sveitinni auk Arnar voru Jakob Jó- hann Sveinsson, Friðfinnur Krist- insson og Ómar Snævar Friðriksson. Önnur úrslit á sunnudaginn voru þau að Friðfinnur varð í 22. sæti af 26 í 50 metra flugsundi, synti á 25,52 sek. Jakob Jóhann varð ellefti í 200 metra bringusundi er hann synti á 2.15,77 mín. og var um sekúndu frá sínu besta. Kolbrún Yr Kristjáns- dóttir hafnaði í 16. sæti í 200 metra baksundi á 2.19,38 mín. Þá synti Óm- ar Snævar 200 metra fjórsund á 2.09,89 og var nokkuð frá sínu besta. Á laugardag synti Ómar Sævar 100 metra baksund á 59,97 sek. og er fimmti Islendingurinn sem syndir þá vegalegnd undir einni mínútu. Hann hafnaði í 33. og næstsíðasta sæti. Friðfinnur bætti sig í 100 metra skriðsundi, synti á 56,43 sek. og hafnaði í 33. sæti af 34. Elín Sigurðardóttir og Kolbrún Yr Kristjánsdóttir syntu 50 metra skriðsund og voru báðar nálægt sín- um bestu tímum. Elín varð í 21. sæti á 26,49 sek. Kolbrún í 24. og síðasta sæti á 27,07 sek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.