Morgunblaðið - 14.12.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.12.1999, Blaðsíða 8
-H KNATTSPYRNA Middlesbrough, West Ham, Watford og Derby úr leik AP Michael Owen fagnar Matteo, sem skoraði annað mark Liverpool gegn Huddersfield, 2:0. FJÖGUR úrvalsdeildarlið féllu úr leik í ensku bikarkeppninni I knattspyrnu um helgina er 3. umferð fór fram. Middles- brough, West Ham, Watford og Derby eru öil úr leik og fjöl- mörg smálið sýndu helstu töfra bikarkeppninnar með frækilegri frammistöðu gegn stórliðunum. . W Urvalsdeildarliðin fjögur féllu öll úr leik á laugardag, en þá fóru flestar viðureignir umferðar- innar fram. Wrexham, sem leikur í 2. deild, lenti undir snemma gegn Middles- brough en náði að skora tvö mörk í síðari hálfleik og tryggja sér þar með sæti í 4. umferð. Darren Ferguson, sonur Alex Fergusons, stjóra Man. Utd., skoraði sigur- markið að viðstöddum föður sínum, sem naut þess að sitja sem áhorf- andi að bikarkeppninni aldrei þessu vant, enda Man. Utd., sjálfir bikarmeistararnir, ekki þátttak- endur í henni að þessu sinni. Burnley, sem einnig leikur í 2. deiid, bar sigurorð af Derby Coun- ty, 1:0, á útivelli. Lið úr 1. deild áttu einnig góðan dag; Tranmere Ro- vers yfirspilaði West Ham langtím- um saman og sigraði 1:0 og Birm- ingam átti í litlum erfiðleikum með Watford og sigraði með sömu markatölu. Petta er í sjötta sinn á aðeins átta árum sem leikmenn West Ham verða að bíta í það súra epli að tapa í bikamum fyrir neðri deildar liði. Harry Redknapp, stjóri liðsins, var enda myrkur í máli eftir leikinn. „Leikmenn Tranmere voru hreint frábærir og áttu sigurinn skilinn. Við náðum einfaldlega ekki að brjóta þá á bak aftur - skorti hug- myndir í leik okkar,“ sagði hann. Leicester mátti teljast heppið að sleppa með markalaust jafntefli og þar með aukaleik gegn utandeild- arliðinu Hereford United og Ever- ton slapp einnig með skrekkinn í markalausu jafntefli við Exeter, eitt af botnliðum 3. deildar. Á hinn bóginn voru leikmenn hafnarborg- arinnar Hull eins og smér í höndun- um á útlendingahersveitinni í Chelsea og töpuðu 6:1 í afar ójöfn- um leik. Bakke kom sterkur inn Önnur úrvalsdeildarlið sem kom- ust áfram voru Aston Villa, Covent- ry, Sheffield Wednesday, Leeds og Liverpool. Tottenham og Newcast- le verða að eigast við aftur í Newcastle, en liðin gerðu l:l-jafn- tefli á White Hart Lane í Lundún- um í einu innbyrðis viðureign úr- valsdeildarliða. Norðmaðurinn Erik Bakke kom sterkur inn í framlínu Leeds gegn Port Vale; skoraði bæði mörk liðs- ins í lítt sannfærandi 2:0-sigri. Bak- ke, sem var keyptur á ríflega hundrað milljónir króna frá Sogn- dal í sumar, hefir lítið fengið að spreyta sig til þessa en fékk tæki- færið í bikarnum og endurgalt traustið með stórgóðri frammi- stöðu. „Hann er geysilega skemmtileg- ur leikmaður sem að öllum líkind- um á eftir að ná langt,“ sagði David O’Leary, stjóri Leeds, er hann var spurður um Norðmanninn unga. „Eg tel að hann sé nú tilbúinn í átökin með okkur,“ bætti O’Leary við. Norwich tapaði á heimavelli fyrir Coventry, 1:3, en Aston Villa náði að sigra neðstu deildar liðið Darl- ington með minnsta mun, 2:1. Beni- to Carbone og Dion Dublin skoruðu mörk Villa og lyftist brúnin á John Gregory, stjóra liðsins, nokkuð við sigurinn. Þrírframherjar Titi Camara og Dominic Matteo skorðu mörk Liverpool í 2:0-sigri á Huddersfíeld. Gestirnir frá Liver- pool lentu oft í kröppum dansi gegn lærisveinum Steve Bruce úr 1. deildinni, en héldu þó haus og báru sigur úr býtum. Stórleikur umferðarinnar fór hins vegar fram í Lundúnum milli Tottenham og Newcastle. Heima- menn í Tottenham sóttu stíft fram- an af leik og þurfti Harper, mark- vörður Newcastle, oft að hafa verulega fyrir hlutunum. Norð- maðurinn Steffen Iverssen kom Tottenham yfir í upphafi seinni hálfleiks með skallamarki eftir frá- bæra fyrirgjöf Davids Ginola, en Gary Speed jafnaði metin þrettán mínútum fyrir leikslok og þar við sat. Eftir mark Iverssens benti flest til þess að Newcastle væri á leið út úr keppninni, en liðið hefur leikið tO úrslita í henni á Wembley undan- farin tvö ár. Bobby Robson, hinn gamalreyndi knattspymustjóri liðsins, var hins vegar ekki á þeim buxunum; skipti inn á þremur vara- mönnum undir lokin, bætti þriðja manninum í sóknina og það bar árangur. „Það er mikill baráttuandi ríkj- andi í herbúðum okkar nú,“ sagði Robson eftir leikinn. „Við tefldum ctor Salas skoraði sigurmark Sevilla á 89. mínútu, Louie van Gaal, þjálfara Barcelona, til ómældrar hrellingar, en hann hafði séð lið sitt lenda snemma undir en náð svo að skora tvö mörk og komast yfir. Skelfileg varnarmistök undir lokin reyndust hins vegar dýr og Börsungar virð- ast alls ekki ná sömu dýpt í leik sinn í deildinni og í MeistaradeOd- inni. „Við höfum ekki þann aga sem fram þremur framherjum og vissu- lega veikti það vörnina, en engu að síður var þetta hetjuleg og rétt ráð- stöfun sem gekk upp.“ David Ginola, sem lagði upp mark Tottenham, var hins vegar súr og svekktur með úrslitin. „Við hófum leikinn af krafti en síðustu fimmtán mínútumar voru mjög slakar. Við vörðumst allt of aftar- lega. Nú verðum við að laga leik okkar fyrir aukaleikinn - hann verður mjög erfiður." er nauðsynlegur. Ekki aðeins í vörninni, heldur líka í sókninni. Við- misstum knöttinn of oft frá okkur, settum þar með vörnina í vandræði og færðum SevOla svo færi á silfurfati," sagði van Gaal. Real Madrid gengur jafnvel enn verr en Barcelona og mátti stórlið- ið frá Madrid sætta sig við 1:1- jafntefli við Racing frá Santander. Er Real nú í 15. sæti úrvalsdeild- arinnar á Spáni - 16 stigum frá toppsætinu. ■ LOTHAR Matthaus yfirgefur herbúðir Bayern Miinchen í mars á næsta ári og gengur þá til liðs við bandaríska knattspyrnuliðið Metr- oStars. Frá þessu greindi UIi Hön- ess, einn forsvarsmaður þýska liðs- ins um helgina. ■ MATTHÁUS ætlaði upphaflega að fara tO MetroStars um næstu áramót en frestaði því síðan tO loka leiktíðarinnar í Þýskalandi í vor. Höness sagði hins vegar að Matt- haus myndi leika tvo leOd með Bayern í Meistaradeildinni á nýju ári og fimm leiki í þýsku deildinni. ■ HVAÐ sem þessu líður þá stefnir Mattháus að því að leika með þýska landsliðinu í lokakeppni EM í Belg- íu og Hollandi á næsta ári og binda þar með enda á langan feril með landsliðinu, en hann hefur leikið 143 landsleiki. ■ ÓLAFUR Gottskálksson var ekki í marki Hibemian þegar liðið gerði 2:2 jafntefii við Motherwell á heimavelli í skosku úrvalsdeOdinni um helgina. ■ SIGURÐUR Jónsson kom heldur ekki við sögu í liði Dundee United sem lagði Dundee 1:0 á heimvelli í skosku úrvaldsdeildinni. ■ BJARKI Gunnlaugsson var í byrjunarliði Preston sem lagði Old- ham, 2:1, í þriðju umferð ensku bik- arkeppninnar um helgina. Hann skoraði ekki að þessu sinni og fór af leikvelli á 84. mínútu. ■ BJARKI fékk upplagt marktæki- færi á 69. mínútu en varnarmaður Oldham felldi Bjarka, var rekinn af leikvelli og vítaspyrna dæmd. Fé- lagi Bjarka skoraði úr spyrnunni. Auk þessa færis skoraði Bjarki fyrr í leiknum en markið var dæmt af sökum rangstöðu. ■ JÓHANN B. Guðmundsson kom inn á sem varamaður hjá Watford, sem tapaði 1:0 á heimavelli fyrir Birmingham. Jóhann var nærri því að skora er markvörður Birming- ham varði með því að slá knöttinn rétt yfir markið. ■ LARUS Orri Sigurðsson lék a0- an leikinn fyrir WBA í 2:2 jafntefli gegn Blackburn í bikarkeppninni. ■ HERMANN Hreiðarsson var að venju í leikmannahópi Wimbledon er liðið lagði Bamsley, 1:0. Her- mann var með frá upphafi til enda. ■ BJARNÓLFUR Lámsson var í byrjunarliði Walsall, sem gerði 1:1 jafntefli við Gillingham í bikar- keppninni. Bjamólfur lék allan leikinn en samherji hans og landi, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kom inn á sem varamaður og lék síðustu 19_mínúturnar. ■ ÍVAR Ingimarsson kom inn á sem varamaður hjá Brentford átta mínútum fyrir leikslok þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, á móti Chester- field í bikarkeppninni í Englandi. Þar situr enn sem fyrr Deporti- vo la Coruna, sem um helgina lagði Real Sociedad, 1:0. Sigurmarkið var sjálfsmark, en staða Coruna- liðsins er engu að síður afar sterk um þessar mundir og aðeins Celta Vigo og Real Zaragoza virðast um þessar mundir líkleg til að veita því keppni á toppi deildarinnar. Það kann þó auðvitað að breyt- ast og er skemmst að minnast frækilegs sigurs Börsunga í deild- inni í fyrra með fáheyrðum yfir- burðum - 11 stiga forskoti. Um mitt mót gekk hins vegar hvorki né rak og í jólamánuðinum í fyrra sat Barcelona í 10. sæti, rétt eins ognú. Börsungar tapa enn BARCELONA mátti sætta sig við 3:2-ósigur gegn Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni á laugardag. Þetta var fimmta tap Börs- unga í sex síðustu leikjum og munar nú tíu stigum á Barcelona og toppliði deildarinnar, Deportivo la Coruna. 4-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.