Morgunblaðið - 18.12.1999, Síða 3

Morgunblaðið - 18.12.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR18. DESEMBER1999 B 3 ÍÞRÓTTIR Pabio Capello hjá Roma og Giovanni Trapattoni, þjálfari Fiorentina, ;velli i Róm, eftir að Rómverjar höfðu fagnað sigri, 3:1. stáltaugar unni,“ sagði Mouming um skot Al- lens. „Ray Allen hitti úr erfiðu skoti, mjög erfiðu.“ Pat Riley, þjálfari Miami, var sama sinnis. Forráðamenn Miami höfðu vonað að Tim Hardaway, helsti leikstjórn- andi liðsins, yi’ði leikfær eftir meiðsli, en af því varð ekki. O’Neal vart svipur hjá sjón Shaquille O’Neal var vart svipur hjá sjón er lið hans, Los Angeles Lakers, vann sigur á Atlanta Hawks í Georgíuríki, 95:88. Þess í stað dró Kobe Bryant vagninn og skoraði þrjátíu stig. „Ég verð að komast aftur á sporið í næsta leik. Ég vil ekki eiga tvq slaka leiki í röð,“ sagði O’Neal. „Ég hef ekki leikið svona illa í langan tíma. Það hlaut að koma að því,“ bætti hann við. O’Neal, sem er stigahæstur allra leikmanna NBA-deiIdarinnar, skor- aði aðeins níu stig í leiknum, en hann var utan vallar í tuttugu mínútur sök- um villuvandræða. „Það var sama hvað hann gerði. Alltaf var dæmd villa á hann,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Los Angeles. „Eitt leiddi af öðru og er allt kom til alls gafst hon- um ekki kostur á að leika síðustu mínúturnar.“ O’Neal hitti úr fjórum af fimmtán skotum og þar að auki úr einu af fimm vítaskotum sínum. Los Angeles hefur unnið ellefu af síðustu tólf leikj- um sínum, þar af fjóra leiki í röð. Isaiah Rider vai’ stigahæstur At- lanta með 33 stig. Þetta var í sjöunda sinn á keppnistímabilinu sem hann gerir þrjátíu stig eða meira. HANDKNATTLEIKUR Slæm byrjun í síðari hálfleik kostaði tap PÓLVERJAR unnu íslendinga með tveimur mörkum, 23:21, á sex þjóða handknattieiksmótinu í Haarlem í Hollandi í gærkvöldi. ís- lendingar hófu leikinn betur og jafnt var í leikhléi en slæmur leikkafli íslenska liðsins í upphafi síðari hálfleiks reyndist dýr- keyptur. Islendingarnir, sem gerðu jafn- tefli við ítali í fyrsta leik mótsins og sigruðu svo Rúmena, hófu leik- inn gegn Pólverjum með látum og náðu snemma þriggja marka for- ystu, 5:2. Smám saman tókst Pól- verjum hins vegar að rétta úr kútn- um og í leikhléi var jafnt komið á með liðunum, 10:10. „Þeir náðu að saxa á forskot okk- ar eftir því sem leið á fyrri hálfleik- inn, en í upphafi þess síðari skildi í sundur með liðunum. Við lékum þá ferlega illa og höfðum heppnina alls ekki með okkur í sókninni- nýttum dauðafærin sérlega illa. A skömm- um tíma náðu Pólverjamir afger- andi forystu, þremur til fjórum KARFA Lang- þráður sigur KFÍ Lið KFÍ náði að knýja fram lang- þráðan sigur á heimavelli sín- um á ísafirði í gærkveldi gegn Haukum, 82:77. ■■■■^H Eftir jafnan fyrri Magnús Gísla- hálfleik mættu sonskrifar heimamenn grimm- ir til leiks í upphafi seinni hálfleiks og náðu að byggja upp gott forskot á fyrstu mínútunum, náðu mest 16 stiga forystu og munaði þar mest um stórieik Clifton Bush. Haukarn- ir vora frekar lánlausir í sóknai’leik sínum á þessum tíma, þrátt fyrir al- gjöra yfirburði í fráköstum. I stöð- unni 68:52 kom eitthvert hik í leik heimamanna þar sem menn voru eitthvað ragir að taka af skarið í sókninni. Þetta tókst Hafnfirðing- um að nýta sér og skoruðu þeir 18 stig gegn 4 á kafla og klóruðu sig inn í leikinn á ný. Þegar þrjár mín- útur lifðu leiks var staðan orðin 72:70, en þá vöknuðu leikmenn KFÍ úr rotínu, hrukku í gang á ný og auk þess gerðu Haukarnir sig seka um klaufaleg mistök í lokin. Vó þar þungt tæknivilla sem Guðmundur Bragason fékk réttilega fyrir kjaft- brúk við dómara þegar tæp mínúta var eftir. Náðu því leikmenn KFI knýja fram langþráðan sigur á heimavelli 82:77. Bandaríkjamaðurinn Clifton Bush fór fyrir sínum mönnum í þessum leik sem oftar með áræði og krafti og góðri hittni en þarf helst að bæta hjá sér vítahittnina sem er ekki nema rétt yfir 50%. Haukarnir komust aldrei almenni- lega í gang í þessum leik og tókst þeim ekki að nýta sér algjöra yfir- burði í fráköstum. Virtist þá vanta sterkan mann til að klára sóknirn- ar, enda léku þeir án Chris Dade sem neitaði að spila leikinn vegna væntanlegrar uppsagnar. mörkum, og við náðum ekki að jafna það, nörtuðum aðeins í hæla þeirra. Við minnkuðum muninn í 21:20, en þeir skoruðu síðasta mark leiksins," sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari við Morgunblaðið í gærkvöldi. Vonbrigði að tapa Ragnar Oskarsson var marka- hæstur í íslenska liðinu, skoraði sjö mörk en Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með fimm mörk. Seb- astían Alexandersson lék allan leik- inn í marki Islands. „Ég var þokkalega sáttur við margt í okkar leik þótt alltaf séu ákveðin vonbrigði að tapa,“ sagði Þorbjöm. „Fyrst og fremst var ég ósáttur við nýtinguna í sókninni. Einnig verður að segjast alveg eins og er að heppnin var ekki með okk- ur. Þannig skoraði Magnús Már Þórðarson þrjú góð mörk sem öll voru dæmd af vegna línu. Það kem- ur ekki fyrir á hverjum degi,“ bætti hann við. Þrjú stig eru uppskeran eftir þrjár fyrstu viðureignir Islands á Hollandsmótinu og Þorbjöm kveðst vera þpkkalega sáttur við þá niðurstöðu. „Ég gerði mér ekki sér- stakar vonir fyrirfram; vissi í raun ekki við hverju mættu búast af mannskapnum. Fyrst og fremst tel ég að þátttaka í móti sem þessu sé geysidýrmæt reynsla fyrir dreng- ina, reynsla sem koma mun að góð- um notum seinna meir.“ Viljum ná góðu sæti íslendingar etja kappi við heima- menn, Hollendinga í kvöld og loka- umferð mótsins fer fram á morgun og þá em Egyptar mótherjamir. Þorbjörn segir ljóst að Islendingar stefni á að ná góðu sæti, leikirnir til þessa á mótinu hafi flestir verið jafnir og spennandi og því geti enn allt gerst. „Svona fyrirfram eigum við að sigra Hollendinga, jafnvel þótt þeir hafi sýnt ágæta takta á mótinu og séu á heimavelli. Hins vegar getur seinni leikurinn gegn Egyptum orðið erfiður, þeir eru hér með sama lið og náði sjötta sæti á HM í vor. Það segir okkur að hér er geysisterkt lið á ferð,“ sagði landsliðsþjálfarinn. ítalir em efstir á mótinu með fimm stig, háfa aðeins tapað stigi gegn Islendingum. Risamót í Þýska- landi FJÖGUR stórlið munu berjast um helgina á sann- kölluðu risamóti í Mag- deborg í Þýskalandi. Mætast þar sigurvegar- ar á Evrópumínútunum þremur á síðustu leiktíð og einnig topplið þýsku 1. deildarinnar, Flensborg. Spænska stórliðið Barcelona mætir sem sig- urvegari Meistarakeppn- innar, franska liðið Leon sem sigurvegari bikarhafa og heimamenn í Mag- deborg undir stjórn Al; freðs Gíslasonar með Ólaf Stefánsson í broddi fylk- ingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.