Morgunblaðið - 18.12.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.1999, Blaðsíða 4
H i KNATTSPYRNA Bergkamp kannast við kauða HERMANN Hreiðarsson leikur á ný með Wimbledon í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu er liðið sækir Arsenai, nágranna sinn úr Lundúnaborg, heim að Highbury í dag. Leikmenn Manchester United fara á ferðina á ný eftir ellefu daga hlé er þeir sækja West Ham heim, en halda síðan til Brasilíu til þátttöku í heimsmeist- aramóti félagsliða. Hermann Hreiðarsson í leik með Wimbledon. Hermann, sem var ekki gjald- gengur í leik Wimbledon við Bolton í deildabikarkeppninni á þriðjudag, mun því að öllum líkind- um kljást aftur við Hollendinginn „fljúgandi", Dennis Bergkamp, en barátta þeirra tveggja hlaut tals- verða athygli er Hermann lék áður í efstu deild með Crystal Palace. Feginn losnaði Bergkamp tíma- bundið við Hermann er Crystal Palace féll í 1. deild, en þaðan hélt varnarmaðurinn til Brentford í 3. deild. Þá var hann seldur til Wim- bledon í haust. Bergkamp hefur verið frá vegna meiðsla að undan- förnu, en er sagður klár í slaginn á ný og fróðlegt verður að fylgjast með hvort Arsene Wenger, fransk- ur knattspyrnustjóri Arsenal, tefli honum fram gegn erkifjanda sín- um. Hugsast getur að þetta sé ekki beinlínis óskabyrjun Hollendings- ins eftir að hafa loks náð sér af meiðslunum - að ganga inn á völl- inn og sjá þar kunnuglegu andliti bregða fyrir. Hermann styrkir eflaust vörn Wimbledon frá því í átta liða úrslit- um deildabikarkeppninnar, en þá tapaði liðið fyrir Eiði Smára Guð- johnsen, Guðna Bergssyni og félög- um í Bolton. Vörn Lundúnaliðsins var þá grátt leikin af Eiði Smára, sem gerði glæsilegt einleiksmark, og því er ekki að undra þótt Egil „Drillo“ Olsen, norskur knatt- spyrnustjóri Wimbledon, fagni endurkomu Hennanns, sem þykir hafa varist vel í leikjum liðsins. Ekki veitir af gegn stórskotaliði Arsenal. A hinn bóginn er allsendis óvíst hvort þeir Ben Thatcher og Dean Blackwell verði í ástandi til að taka þátt í leiknum. Evrópumeistarar Manchester United eru nú komnir til Lundúna, þar sem þeir heimsækja West Ham á Upton Park. Leikmenn Ma- nchester hafa ekki háð kappleik í ellefu daga, en svo langt hlé fá þeir ekki aftur til vors. Að viðureigninni lokinni stíga þeir upp í flugvél áleið- is til Brasilíu, til þátttöku í heims- meistarakeppni félagsliða, sem hefst annan dag nýs árs. Búist er við að Hollendingurinn Raymond van der Gouw, standi í marki meistaranna í stað Ástralans Mark Bosnich, sem er enn meiddur á hnésbótarsin. A meðan leikmenn Manchester hvíldust lék West Ham gegn Tran- mere í ensku bikarkeppninni og Aston Villa í deildabikarkeppninni, en sá leikur var framlengdur. „Leikmenn United verða mun frískari, því þeir hafa fengið góða hvíld,“ segir Harry Redknapp, stjóri West Ham. Joe Cole, táningurinn snjalli í liði heimamanna, er meiddur á ökkla, en óljóst er hvort Paul Kitson eða Marc-Vivien Foe taki stöðu hans í byrjunarliðinu. Búist er við að Arnar Gunnlaugs- son verði á varamannabekk Leicester, sem tekur á móti Derby, en hann gerði fyrsta mark liðsins í vítaspyrnukeppni gegn Leeds í vik- unni, sem Leicester vann og komst þannig áfram í undanúrslit deilda- bikarkeppninnar. Neil Lennon meiddist á hnésbótarsin í leiknum og mun ekki klæðast búningi fé- lagsins í dag. Þá er líklegt að Dar- ren Eadie, sem Leicester keypti nýlega fyrir þrjár milljónir sterl- ingspunda, verði í byrjunarliðinu. Talið er að þýski varnarmaður- inn Stefan Shnoor verði í liði Der- by, en hann hefur misst af þremur síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla í nára. „Við erum í erfíðri stöðu og ég verð að spila. Ef stjór- inn velur mig í liðið verð ég að gefa allt sem ég á í leikinn," sagði Shnoor. Forráðamenn Derby voru vongóðir um að ganga frá kaupun- um á belgíska sóknarmanninum Branko Strupar frá Genk og að hann verði gjaldgengur í leikinn. Coventry hefur enn ekki sigi’að á útivelli á keppnistímabilinu. Fimm varnarmenn liðsins eru meiddir; Richard Shaw, Mo Konjic, Marc Edworthy, David Burrows og Marcus Hall. Þó er miðvörðurinn Paul Williams aftur orðinn leikfær og Strachan ætti að hafa not fyrir Thomas Gustafsson, sem gekk ný- lega til liðs við Coventry. Irinn Kevin Kilbane gæti þurft að sætta sig við að verma vara- mannabekk Sunderland, a.m.k. um stundarsakir. Sunderland, sem mætir Southampton í dag, en liðið keypti Kilbane frá West Bromwich Albion, liði Lárusar OiTa Sigurðs- sonar, í vikunni eftir að landi hans Niall Quinn hafði mælt með honum við Peter Reid knattspymustjóra. Gerard Houllier og lærisveinar hans í Liverpool hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum - eru komnir í fimmta sæti úrvals- deildar. Þeir fá Coventry í heim- sókn á Anfield í dag. Frammistaða liðsins að undanförnu minnir um margt á stórveldistíð félagsins, þá er Bill Shankly hóf er hann gerðist framkvæmdastjóri Liverpool fyrir fjörutíu árum. Haldið verður upp á að síðastlið- Enn er allsendis óvíst hvort mið- vörðurinn Claus Lundekvam geti leikið með Southampton, en hann meiddist í leik gegn Ipswich í bikar- keppninni á mánudagskvöld. Svip- uð óvissa ríkir um ástand Marokkó- mannsins Hassan Kachloul, sem hvíldist er leikið var gegn Ipswich. Bryan Robson, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, hefur staðið í ströngu í samskiptum sínum við fjölmiðla og stuðningsmenn síðustu daga, en í síðustu viku féll lið hans úr leik í bikarkeppni enska knatt- spyrnusambandsins og deildabik- arkeppninni. Báðum leikjunum tapaði liðið fyrir félögum í neðri deild. í dag mætir Middlesbrough loks keppinautum sínum úr sömu deild er Tottenham Hotspur kemur í heimsókn og spennandi verður að fylgjast með hvernig það bregst við. „Eg hef orðið var við gagnrýnina frá áhorfendunum og hef lesið blöð- inn mánudag voru nákvæmlega fjörutíu ár liðin síðan Shankly tók við liðinu í annarri deild og gerði fé- lagið að því stórveldi, sem það varð síðar meir. Hann hætti árið 1973 eftir að Liverpool varð Evrópu- meistari. Fyrir leikinn á Anfield í dag koma gamlar stjörnur félagsins fram á vellinum, skömmu áður en leikmennirnir koma út úr búnings- herbergjum sínum. Auk þess er in, en stundum held ég að nafnið Bryan Robson hljómi einungis vel í fyrirsögnum," sagði Robson. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum eftir þessi úrslit, en við erum í tíunda sæti í deildinni. Vissulega vildi ég vera ofar, en ég tel okkur ekki illa stadda. Ef við vinnum næstu þrjá leiki eigum við raunhæfa mögu- leika á Evrópusæti, sem ég sagði að hefði forgang á þessu keppnistíma- bili,“ sagði stjórinn. Fyrirliði liðsins, Paul Ince, og Curtis Fleming verða ekki með lið- inu í dag, verða raunar ekki leik- færir fyrr en eftir jól. Auk þess eru Gary Pallister og Colin Cooper meiddir og geta ekki leikið gegn Tottenham í dag. Staðan er öllu betri hjá Totten- ham. Tim Sherwood og Mauricio Taricco leika með á ný eftir leikb- ann, en Norðmaðurinn Oyvind Leonhardsen er meiddur á nára og verður ekki með. fyrirhugað að opna sýningu í nýju safni félagsins á Anfield. Sýningin ber yfirskriftina „Hjarta á stærð við Liverpool-borg!“ Houllier er þó staðráðinn í að halda leikmönnum við efnið; að leika til sigurs. Michael Owen, framherji Liverpool og enska landsliðsins, segir að liðið megi ekki ofmetnast, þótt vel hafi gengið að undanfömu. „Leikmenn Covent- ry sigruðu okkur hérna fyrir réttu ■ JASON Wilcox, fyrirliði Black- burn í ensku 1. deildinni í knatt- spyrnu, er á leið til Leeds, efsta liðs úrvalsdeildar. Leeds keypti hann í gær á þrjár milljónir sterl- ingspunda, 350 milljónir króna. Wilcox er 28 ára miðvallarleikmað- ur og var í lykilhlutverki er Black- bum varð enskur meistari 1995. ■ GIANLUCA Vialli, knattspyrnu- stjóri Chelsea í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu, hefur verið úr- skurðaður í eins leiks bann af knattspyrnusambandi Evrópu í kjölfar leiks liðs hans við Lazio í Róm fyrir ellefu dögum. ■ VIALLI missti stjórn á skapi sínu við þýska dómarann Helrnut Kmg og sparaði síst stóm orðin. Vialli, sem baðst síðar afsökunar, var rekinn úr varamannaskýlinu á 54. mínútu leiksins. ■ MARTIN Edwards, stjórnarfor- maður Manchester United, vísar getgátum um ósætti á milli hans og knattspyrnustjórans Alex Fergu- son á bug. _ ■ DAGBLÖÐ í Bretlandi birtu í gær útdrátt úr bók Mihir Bose um Manchester United. Þar stóð að Edwards hefði sagt Ferguson skapa tóm vandræði og að hann kynni ekki að fara með peninga. ■ MARK Hughes er gert að koma landsliði Wales í knattspyrnu í úr- slitakeppni stórmóts, annaðhvort heimsmeistaramótsins árið 2002 eða Evrópumótsins 2004. Knatt- spyrnusamband Wales skýrði frá þessu í gær. ■ HUGHES hafði gert fjögurra og hálfs árs samning við sambandið og var hann staðfestur á fimmtu- dag. Þá kom einnig fram að Hug- hes mundi ljúka þeim átján mánuð- um, sem hann á eftir af samningi sínum sem leikmaður enska úr- valsdeildarliðsins Southampton og gegna stöðu landsliðsþjálfara í hlutastarfi fyrst um sinn. ■ NORSKIR eigendur enska knattspyrnufélagsins Wimbledon hafa viðurkennt að þeir eigi í erfið- leikum með að afla sér þriggja milljóna sterlingspunda til að standa í skilum á síðari greiðslunni fyrir John Hartson, sem félagið keypti af West Ham í janúar sl. ■ HARTSON kostaði Wimbledon 7,5 milljónir punda, eða tæpar 900 milljónir króna. Félögin tvö sætt- ust á að þrjár milljónir yrðu greiddar við „afhendingu" og að aðrar þrjár milljónir yrðu greiddar að ári loknu. Þessar þrjár milljónir þarf Wimbledon að greiða hinn 6. janúar nk. ■ BRIAN DEANE, framherji Middlesbrough í ensku úrvals- deildinni, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann af enska knatt- spyrnusambandinu. ■ DEANE sló til Paul Butlers, leikmanns Sunderland, er boltinn var fjarri og dómari leiksins, Gra- ham Barber, sá ekki til. Atvikið sást aftur á móti greinilega í sjón- varpi og fyrir vikið fékk Deane bannið. ári í bikarkeppninni. Þeir eru ávallt erfiðir viðureignar,“ sagði Owen. Robbie Fowler leikur ekki með Liverpool, eins og oft áður, vegna ökklameiðsla. Tékkinn Patrik Berger verður þó með, en hann hef- ur náð sér af eymslum í hné. Þá má reikna með að David Thompson verði í byrjunarliði Liverpool, en hann tók síðast út leikbann auk þess sem hann hefur átt við smá- vægileg meiðsl að stríða. Fjorutíu ár síðan Bill Shankly tók við/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.