Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 ■ ÞRIÐJUDAGUR18. JANÚAR BLAÐ Tvöfalt Morgunblaðið/Þorkell hjá Blik- umá afmæl- isárí BREIÐABLIK fagnaði 50 ára afmæli sínu í næsta mánuði með því að vinna tvöfaldan sig- ur á Islandsmótinu í innanhússknattspyrnu um helgina. í karla- flokki vann Breiðablik sigur á meisturum síð- astaárs, Fylki, 3-1, í úrslitaleik og í kvennaflokki vann Breiðablik sigur á KR, 2-1, eftir framleng- ingu og vítaspymu- keppni. Fyrirliðar Breiðabliks, Sigrún Óttarsdóttir og Hákon Sverrisson, tóku við bikumnum tveimur. ■ tírslit... /B10 Heiðar Helguson, sem skoraði í frumraun sinni fyrir Watford Aldrei fengið svona viðtökur Heiðar Helguson skoraði fyrir enska úrvalsdeildarliðið Watford í fyrsta leik sínum með félaginu eftir að hafa verið keypt- ur frá norska liðinu Lilleström fyrir metfé, um 180 milljónir króna. Hann jafnaði metin gegn Liverpool á Vicarage Road, heimavelli Watford, 2:2, áður en Tékkinn Vladimir Smicer tryggði gestunum sigur. Heiðar sagði að honum væri vissulega létt eftir að hafa skorað fyrsta mark sitt fyrir Watford, komast á blað. „Það var rosalegt að skora þetta mark, því þá er ég alltént kominn með fyrsta markið og þarf ekki að spila einhverja sjö, átta eða níu leiki án þess að gera mark,“ sagði Heiðar í sam- tali við Morgunblaðið. í viðtölum við breska fjölmiðla fyrir leikinn kvaðst Heiðar taugaóstyrkur. Hann sagði að það hefði lítið breyst er nær dró viðureigninni. „Ég fékk aðeins fíðring í mag- ann fyrir leikinn, en hann var ekki svo miklu meiri en fyrir hvern annan leik. Ég var þó að spila við leikmenn, sem ég hef horft á í sjónvarpinu. Þess vegna kitlaði þessi leikur svolítið, en ekki svo mikið að mér liði eitthvað illa.“ Heiðar sagði að mestur sviðs- skrekkurinn hefði horfíð um miðj- an fyrri hálfleik, að þá hefði hann fundið taktinn. „Þá fór ég að venj- ast hraðanum aðeins. Hann er mun meiri hérna en ég er vanur. Ég hef heldur ekki spilað leik síð- an í lok október," sagði Heiðar. Heiðar gladdist mjög yfír við- brögðum áhorfenda á Vicarage Road, sérstaklega er hann fór af velli er um tíu mínútur lifðu leiks. „Þetta var alveg meiriháttar, ótrúlega gaman. Ég verð að við- urkenna að ég hef aldrei fengið svona viðtökur áður.“ Fréttaflutningur af Heiðari í Englandi var allur á þá leið að hann væri dýrasti leikmaður Wat- ford frá upphafi og gæti verið svarið við markaleysi liðsins, sem veldur því að liðið er í næstneðsta sæti úrvalsdeildar og berst við fall í 1. deild. VALA EINIÍSLENDINGURINN Á AFREKALISTA/C3 INTER sponr INTER INTER INTER INTER INTER i 1 i t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.