Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 2
I C ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ Croatia Norð- menn Bengt Johansson, þjálfari heimsmeistara Svía, um EM í Króatíu ísland ekki áfram BENGT Johansson, þjálfari sænska lands- liðsins í handknattleik, hefur ekki trú á að íslenska liðið komist áfram úr riðlakeppni Evrópumótsins, sem hefst 1 Króatíu á föstu- dag. Johansson, sem fylgdist með íslenska landsliðinu í tveimur leikjum gegn Frökk- um í Frakklandi fyrir rúmri viku, sagði í samtali við dagblaðið Dagens Nyheter að riðill sænska liðsins, sem leikur gegn Is- landi í fyrsta leik, væri gríðarlega erfiður. Hann sagði mikilvægt að hefja keppnina vel gegn Islendingum en hann taldi að Svíar og Rússar mundu berjast um efsta sæti riðilsins. Hann taldi jafnframt að Dan- ir og jafnvel Slóvenar yrðu ofarlega í riðl- inum. Hann spáir að Króatar og Spánveij- ar verði í efstu sætum í hinum riðlinum en nefnir íslendinga ekki til sögunnar. Evrópukeppnin hefst á föstudaginn kem- ur - tólf þjóðir leika í tveimur riðlum: A-RIÐILL: Króatia, Úkraína, Spánn, Frakkland, Þýskaland og Noregur. B-RIÐILL: Rússland, Svíþjóð, ísland, Danmörk, Slóvenía, Portúgal. lögðu Porlúgali íLaGoa Norska landsliðið hefur ekki leikið jafn vel í langan tíma og það gerði gegn Portúgölum í La Goa. Liðið virðist því komið á skrið þegar nokkrir dagar eru fram að fyrsta leik þess gegn franska liðinu á Evrópumótinu í handknattleik," segir norska dagblaðiðið Verdens Gangum frammistöðu Norðmanna, sem lögðu Portúgali 25:23 í æfinga- leik í La Goa í Portúgal á laugar- dag. Norska liðið lék 6-0-vörn sem Leif Gautestad, aðstoðarþjálfari Norðmanna, var ánægður með frammistöðu liðsins og sagði að flest allt hefði gengið upp gegn Portúgölum. „Þegar upp er staðið er liðið í mikilli framför," sagði Gautestad um norska liðið. Gunnar Fossengs, markvörður Norðmanna, fór mikinn í leiknum og þótti eiga stóran þátt í sigri Norðmanna. Christian Berge var markahæstur Norðmanna með sex mörk en Carlos Resende skoraði átta fyrir Portúgali, sem eru með íslendingum í riðli á EM. Norska landsliðið hélt frá Portúgal á sunnu- dag og heldur til Króatíu á miðviku- dag. Það mætir Frökkum, sem urðu heimsmeistarar 1995, í fyrsta leik á Evrópumótinu í Króatiu. Tomaz Tomsic, leikmaður Slóvena, brýst í gegnum varnarmúr Portúgala á æfingamóti á Kan- aríeyjum til undirbúnings fyrir ENI. Slóvenar eru taldir líklegri en íslendingar til þess að komast áfram í Króatíu. Ægishjálmur Dana og Svía Svíar og Danir, mótherjar íslendinga á Evrópumótinu í hand- knattleik í Króatíu, báru höfuð og herðar yfir andstæðinga sína á fjögurra landa móti, sem lauk í Svíþjóð um helgina. Sviar unnu mótið eftir spennandi úrslitaleik gegn Dönum, sem þóttu leika sterkan varnarleik og höfðu tveggja marka forystu í háifleik. Svíar, sem höfðu unnið Dani 27:23 með talsverðum yfir- burðum nokkrum mánuðum fyrr, mættu öflugi-i andspymu Leif Mikkelsens og lærisveina hans í Baltiska-höllinni í Malmö á sunnu- dag. Danir höfðu lengstum forystu í fyrri hálfleik og voru yfir, 13:11, í hálfleik. Afram héldu Danir og voru komnir í 15:11 í síðari hálfleik og Svíar í mestu vandræðum með 6-0-vörn Dana. En Svíar, sem voru ákaft hvattir af rúmlega þrjú þús- und áhorfendum, gerðu bragarbót á leik sínum. Segir í Dagens Ny- heter að Peter Gentzel hafi loks fundið sig í markinu en hann ásamt Magnus Andersson hafi fært Svíum forystu um miðjan síðari hálfleik. Níu mínútum fyrir leiks- lok voru Svíar komnir með örugga forystu, 26:22. Danir náðu að minnka muninn undir lokin en Svíar fögnuðú sigri á mótinu. Magnus Andersson og Magnus Wislander voru markahæstir í liði Svía með sjö mörk hvor. Nikolaj Jacobsen var markahæstur hjá Dönum með sex mörk. Svíar mættu Egyptum í fjórt- ánda sinn er liðin áttust við í Ystad á laugadag. Svíar unnu 31:25 en áttu lengstum í erfíðleikum með að hrista Egypta af sér. í hálfleik voru Svíar yfir 14:11 en Egyptar náðu að jafna 16:16. Þá tóku heimamenn loks til sinna ráða og röðuðu inn mörkum og unnu 31:25. Johan Pettersson var markahætur í liði Svía með sex mörk. Peter Gentzel varði 22 skot í marki Svía. Svíar að ná tökum á leik sínum „Eg segi aldrei mikið í leikhléi en við höfum ákveðið að leikmenn ræði fremur saman um hvað aflaga fer og hvað gerist í síðari hálfleik," sagði Bengt Johansson, þjálfari sænska liðsins, í samtali við Dag- ens Nyheter. Hann sagði að sænska liðið hefði greinilega leikið betur í síðari hálfleik og taldi að leikmenn væru að ná betri tökum á þeim kerfum sem liðið hygðist nota í næstu leikjum. Svíum, sem höfðu unnið Frakka í 25 skipti af 34 leikjum liðanna, urðu á engin mistök er þjóðirnar áttust við í Helsingborg á föstu- dagskvöld. Frakkar héldu í við sænska liðið fram undir hálfleik en jafnt var á með liðum 10:10, er kom að hálfleik. í síðari hálíleik tóku Stefan Lövgren og Magnus Wisl- ander til sinna ráða og Svíar gerðu fjögur mörk í röð og sigur liðsins var aldrei í hættu, Svíar unnu 27:22. Wislander og Lövgren voru markahæstir með sex mörk hvor. Jerome Fernandez og Stephane Joulin gerðu fimm mörk hvor fyrir Frakka, sem töpuðu sínum öðrum leik gegn Dönum 20:17 í Ystad á laugardag. Sigur liðsins gefur Yfirburðir Rússa RÚSSNESKA landsliðið, sem er í riðli með íslenska Iandsliðinu á Evrópumótinu í handknattleik í Króatíu, lók tvo æfingaleiki gegn Úkraínu i Moskvu um helgina. Rússar unnu báða leikina fremur örugglega, 25:19 og 31:20. Úkraína tryggði sér þátttökurétt á EM með aukaleikjum gegn Hvít-Rússum, vann fyrri leikinn 29:21 og gerði jafntefli 23:23 í þeim seinni. Rússar drógust gegn Tyrkjuin í undankeppninni og unnu báða leikina, 29:24 og 33:23. íslendingar mæta Rússum í EM næstkomandi sunnudag. Þjóðimar áttust síðast við í Víkinni árið 1996. Þá unnu Rússar 26:16. Dönum byr undir báða vængi og von um gott gengi í Króatíu, ef marka má Jyllands-Posten. Öflugur varnar- leikur Dana í blaðinu segir að Leif Mikkel- sen, þjálfari danska liðsins, hafi náð gríðarlega góðum árangri með danska liðið og það sé á uppleið. En blaðið veltir jafnframt fyrir sér hvernig hann fór að því að ná fyrr- greindum árangri á hálfu ári því enginn viti hvaða aðferðum hann hafi beitt. Segir að danska liðið hafi leikið 3-2-1-vörn, sem liðið hef- ur æft að undanförnu, gegn Frökk- um framan af leik en breytt um leikstíl og leikið 6-0-vörn í síðari hálfleik og sú aðferð hafi gefið góða raun og á blaðið ekki orð til að lýsa öflugum vamarleik sinna manna. Politiken tekur í svipaðan streng og segir að Danir hafi unnið leikinn með sterkum varnarleik og bendir á að franska liðið hafi að- eins skorað fimm mörk í síðari hálfleik. Þá hrósar blaðið mark- vörslu liðsins og telur að það einn af helstu kostum þess. Markahæst- ur í danska liðinu var Lars Christi- ansen með átta mörk en Bertrand Gille skoraði 7 fyrir Frakka. Danir unnu einnig fyrsta leik sinn á mót- inu er þeir kjöldrógu Egypta 33:19 en staðan var 16:10 í hálfleik. Christian Hjermind skoraði 10 fyr- ir Dani. Frakkar unnu Egypta í síðasta leik þjóðanna á mótinu. Mikk- elsen vill hætta þjálfun LEIF Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana, segist staðráðinn í að hætta með landsliðið eftir EM, hvernig sem árangur liðsins verður í keppninni. Samningur hans við danska handknattleiks- sambandið rennur út eftir EM en komið hefur fram að það vill gjarnan halda í Mikkelsen, ef ekki sem þjálfara þá að hann taki að sér einhverskonar aðstoðar- mannshlutverk. Mikkelsen sagði í samtali við danska fjölmiðla eftir mótið í Sví- þjóð um helgina að hann ætlaði sér að hætta allri handknattleiks- þjálfun. „Auðvitað getur maður aldrei sagt aldrei, en nærri þjálf- un ætla ég ekki að koma framar," segir Mikkel- sen. Þar með útilokar Mikkelsen ekki að hann taki að sér einhver störf tengd danska landslið- inu, en hann sagði ekk- ert slíkt hafa komið upp á borðið. „Ég krefst þess að leikmenn mínir leggi sig fullkomlega fram í hverjum leik á Evrópumótinu og auki þannig hróður danska landsliðsins. Um leið eykst virð- ingu annarra fyrir því, ekki er vanþörf á,“ sagði Mikkelsen eftir fund með leikmönnum sínum sl. laugardag. Ætlum að vinna síðasta leikinn „Það er samstaða innan okkar raða fyrir keppnina, þannig verð- ur það einnig í hverjum leik, burt séð frá því hvernig gengur. Já- kvæði og samstaða verður aðal liðsins. A vandamálum ætlum við að taka sameiginlega. Síðast en ekki síst ætlum við að vinna síð- asta leik keppninnar, hver sem úrslit fyrri leikjanna kunna að verða. Þetta segi ég vegna þess að það hefur stundum vilja loða við danska landsliðið að um leið og illa fer að ganga, þá hefur botninn dottið úr og síðustu leik- irnir verið slakir. Segja rná að leikmenn hafi oft farið með skott- ið á milli lappanna heim. Nú er markmiðið að koma hnarrreistir heim, hvernig sem gengur," segir Mikkelsen ákvcðinn um markmið danska landsliðsins í Króatiu. Fyrsti leikur Dana í keppninni verður við Rússa á föstudag, þá mæta þeir Svíum, þriðji leikurinn er við Slóveníu, síðan leika Danir við íslendinga og loks við Portú- gal. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.