Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 8
8 € ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
Mikið
íhúfi
Mikið gekk á í sölum TBR við
Gnoðarvog um helgina þegar
þar var haldið unglingameistara-
mót TBR. Rúmlega
Stefán 84 börn og ungling‘
Stefánsson ar víðsvegar að af
skrifar landinu - þar á með-
al frá Flúðum og
Þorlákshöfn - mættu til að spreyta
sig enda ekki bara í húfi verðlauna-
peningar með tilheyrandi stöðu á
verðlaunapallinum í lokin heldur á
eftir að velja þátttakendur á ung-
lingamót Wales í febrúar. Ekki var
verra að geta síðar státað sig af því
að vera fyrsti meistari árið 2000.
Allt besta badmintonfólk landsins
var líka mætt á staðinn því mótið er
nauðsynleg æfing fyrir ferð lands-
liðsins á Evrópumót unglinga en
þangað héldu útvaldir í gær.
Mótið um helgina er meira hugs-
að fyrir lengra komna í íþróttinni
þó að allir mættu vera með og það
gerðu margir enda snýst ekki allt
um íþróttina sjálfa heldur að vera
með. Það sýndi sig vel og gaman
varað sjá hvemig engu máli skipti
með hverjum væri hitað upp fyrir
leiki og í tvíliða- og tvenndarleik
lögðu þjálfarar allra liða mesta
áherslu á að láta allt sitt fólk spila
og þá skipti ekki máli hvaða bún-
ingi sá eða sú klæddist.
BRÆÐURNIR Brynjar og Hauk-
ur Stefán Gíslasynir kepptu á mót-
inu en voru þó ekki í sama flokki.
' „Eg er búinn að vera í badminton í
nokkur ár eftir að vinur minn plat-
aði mig á æfingu en ég sé ekki eftir
því,“ sagði Brynjar, sem er 14 ára
og keppir fyrir TBR. „Ég hef spilað
á nokkrum mótum en þau mættu
vera fleiri," bætti Brynjar við.
Haukur Stefán, sem er 8 ára og á
öðru ári sínu í badminton, hefur
mikla trú á eldri bróður sínum. „Ég
held alltaf með honum og hann er
mjög góður en ég ætla samt að
verða betri en hann.“
Held með stóra bróður
Bræðurnir Brynjar og Haukur Stefán Gíslasynir ásamt Kára
Friðrikssyni.
.. Katrín Stefánsdóttir frá TBR og Karen Sæmundsdóttir frá Þór í
* Þorlákshöfn hituðu saman upp fyrir ieiki sína.
Morgunblaðið/Jim Smart
Mikið fjör var á unglingameistaramóti TBR um helgina. Hér eru Þorbjörg Kristinsdóttir og Baldur
Gunnarsson í úrslitum í tvenndarleik.
Vann allar greinar sínar
Helgi Jóhannesson frá TBR var sigursæll i piltaflokki og sigr-
aði í öllum greinum sínum.
Best að keppa...
„MÉR finnst skemmtilegast að
keppa en þar samt allt í lagi að æfa
líka,“ sagði Katrín Stefánsdóttir,
10 ára í TBR. Hún byrjaði að æfa
badminton fyrir þremur árum eftir
að hafa fylgt Bjarka bróður smurn
á æfingar en hann var sjálfur sig-
ursæll á mótinu.
Hún hafði einnig félagsskap af
Daníel Thomsen frænda sínum og
ef þau voru ekki að keppa í tvennd-
arleik eða leika sér voru þau á rölt-
inu að spjalla saman. „Við ætluðum
að spila saman f tvenndarleiknum,
það kom ekkert annað til greina,“
bætti Katrín við en hún æfír tvisv-
ar í viku og langar ekkert til að
æfa aðrar íþróttagreinar.
Eg hafði það í þetta sinn,“ sagði
Helgi Jóhannesson, sem sigr-
aði örugglega í öllum þremur grein-
unum sínum - einliða-, tvíliða- og
tvenndarleik - en átti hann von á
því? „Maður er alltaf bjartsýnn en
lota í tvenndarleiknum var tæp
þegar við misstum einbeitinguna
því það situr alltaf í manni einhver
þreyta eftir langt mót. Annars
þekkir maður alla, sem maður er að
spila við á mótum á Islandi og veit
hvemig á spila við hvern og einn -
það er gallinn á mótum hér heima
en á erlendum mótum er maður oft
að spila við einhvern, sem maður
hefur aldrei séð áður.“
Helgi er í landsliðshópnum, sem í
morgun lagði af stað á Évrópumót í
Austurríki. „Það leggst bara vel í
mig. Ég er búinn að fara á sex mót
erlendis og gengið er misjafnt eftir
löndum en auðvitað ekki eins gott
og maður vildi,“ sagði Helgi, sem
æfir badminton fjórum sinnum í
viku og lyftir lóðum þess á milli.
„Það er nokkuð mikið og varla tími
í neitt annað, skólinn rétt sleppur
en svo fer maður beint á æfingu. Ég
ætla að ljúka stúdentsprófum hér
heima og athuga svo með að fara
utan að æfa og í skóla. En það er
gaman að spila badminton - sér-
staklega núna,“ bætti Helgi við
brosandi og lét hringla í öllum gull-
verðlaununum.