Morgunblaðið - 18.01.2000, Page 12
Fyrirliði
Cuckaricki
til ÍBV
EYJAMENN hafa ákveðið
Þróttur Nes.
deildarmeist-
ari kvenna
ÞRÓTTUR frá Neskaupstað
innsiglaði deildarmeistaratilinn í
blaki kvenna með tveimur sigr-
um á ÍS á föstudag og laugar-
dag í Hagaskóla. Fyrri leikinn
vann Þróttur, 3:0 (25:10, 25:19,
25:19) og þann síðari 3:1 (25:11,
25:11, 22:25, 25:14). Sýndi ÍS
heldur meiri mótspyrnu í þeim
leik. gp
Þróttar-stúlkur
hafa haft gífurlega
yfirburði í 1. deild kvenna á
leiktiðinni, hafa fullt hús, 36
stig, þ.e. unnið allar tólf viður-
eignir sinar til þessa og aðeins
tapað þremur lotum. ÍS og KA
eru í öðru og þriðja sæti með 20
stig. Enn eru fjórar umferðir
eftir óleiknar i deildinni áður en
úrslitakeppnin hefst.
Á myndinni verjast leikmenn
Þróttar Nes., Anna Pavliouk og
Sæunn Svana Ríkharðsdóttir af
ákveðni sóknarlotu ÍS í leiknum
á laugardag.
Enskur
bakvörð-
urtil KFÍ
ÚRVALSDEILDARLIÐ
KFÍ í körfuknattleik hefur
fengið til sín enskan bak-
vörð, Mark Burton að nafni,
til að styrkja sig fyrir loka-
sprett Islandsmótsins.
Hann kom til landsins á
sunnudag og verður lögleg-
ur gegn Tindastóli 30. jan-
úar og nær síðustu sjö leikj-
um ísfirðinga í úrvalsdeild-
inni.
Burton er 21 árs, 1,84 m á
hæð, og kemur frá Derby
Storm sem leikur í bresku
úrvalsdeildinni. Hann kom
ekki mikið við sögu hjá lið-
inu í vetur, lék aðeins 8 leiki
af 16 og samtals 141 múi-
útu, eða í rúmar 5 mínútur í
leik. Meðalskor Burtons er
2,57 stig í leik. Hann kom til
Derby fyrir þetta tímabil
frá bandarísku háskólaliði
en var áður þjá unglingaliði
London Towers. Þar lék
hann undir stjórn Tonys
Garbalotto, núverandi
þjálfara ísfirðinga.
Góð meðmæli
„Burton kemur inn sem
leikstjómandi fyrir Hrafn
Kristjánsson, sem hefur
þurft að fara í tvær aðgerð-
ir á nára og leikur ekki
meira í vetur. Tony þekkir
Burton, og við fengum góð
meðmæli með honum frá
Laszlo Nemeth, fyrrver-
andi landsliðsþjálfara, sem
þjálfar enska landsliðið. Nú
emm við tilbúnir að gera
betur en hingað til í vetur
og við ætlum okkur í úr-
slitakeppnina til að byija
með. Okkar túni er að
koma,“ sagði Guðjón Þor-
steinsson, framkvæmda-
stióri KFÍ, við Morgunblað-
ið í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
að fá til sín 28 ára júgó-
slavneskan knattspymu-
mann, Momir Mileta að
nafni.
Mileta, sem er miðju-
maður, er fyrirliði úrvals-
deildarliðsins Cuckaricki
Belgrad, en með því leikur
annar Eyjamaður, Goran
Aleksic. fev leigir þá báða
frá júgóslavneska félaginu
í sumar.
Þá hafa Eyjamenn feng-
ið til sín tvo unga Vestfirð-
inga úr liði KIB sem vann
sig upp í' 2. deildina síðasta
haust. Þeir heita Pétur
Runólfsson og Tómas
Reynisson.
Matthaus
í vandræðum
LOTHAR Mattháus, leikmaður
Bayern Múnchen og þýska lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur komið
sér í mikil vandræði með yfirlýs-
ingum sínum undanfarið. Hann
hefur m.a. lýst því yfir að hann
fari ekki til New York í mars, eins
og hann hafði gert samning um og
jafnframt verið með afar nei-
kvæðar yfirlýsingar um forráða-
menn knattspyrnuliðsins Metro
Stars sem hann hefur gert samn-
ing við. Nú skjóta þeir föstum
skotum til baka og segja að Matt-
háus verði settur í leikbann í
Evrópu mæti hann ekki og upp-
fylli samning sinn. Ástæður
sinnaskipta Lothar eru sagðar
nokkrar, meðal annars að hin
unga kærasta hans, Maren
Wohlfart, dóttir læknis Bayern
Múnchen, vilji ekki lengur fara
með honum. Mattháus ber hins
vegar fyrir sig að þjálfari liðsins
og framkvæmdastjóri hafi verið
reknir rétt fyrir áramót. Lothar
Mattháus hefur rekið umboðs-
mann sinn til tuttuga ára, Nor-
bert Pflippen, og segja kunnugir
að það hafi sett allt úr skorðum
hjá kappanum.
Keflavík og ÍR
ríða á vaðið
GOLF
Fyrsti sigur
Azingers
ísexár
Paul Azinger sigraði á móti helg-
arinnar á aðalmótaröð Banda-
ríkjanna í golfi um helgina. Hann
lék Waialae-völlinn á eyjunni
Honolulu á 261 höggi, nítján undir
pari, og lauk leik sjö höggum á und-
an Ástralanum Stuart Appleby,
sem varð annar. Azinger lék best
allra á lokadegi mótsins, sunnu-
degi, eða á 65 höggum, fimm högg-
um undir pari.
Azinger hafði ekki sigrað á móta-
röðinni síðan 1993, en þá vann hann
sigur á Greg Norman í bráðabana á
PGA-meistaramóti Bandaríkjanna,
einu af fjórum stærstu móta hvers
árs. Skömmu síðar greindist Azing-
er með eitlakrabbamein og var frá
keppni í heilt ár.
„Ég veit ekki hvað ég á að segja,
sérstaklega í ljósi atburða síðustu
mánaða,“ sagði Azinger og átti þá
við fráfall vinar síns, kylfingsins
Payne Stewarts, sem lést í flugslysi
ásamt viðskiptafélögum Azingers,
þeim Robert Fraley og Van Ardan.
„Ég hafði algerlega afskrifað að
ég myndi nokkru sinni bera sigur
úr býtum á ný,“ sagði Azinger um
árin eftir læknismeðferð sína. „Það
var ekki fyrr en á miðju síðasta ári
sem ég fann fyrir stöðugleika. I lok
ársins spurði ég ekki sjálfan mig
hvort ég myndi sigra, heldur hve-
nær. Það eru liðin rúmlega sex ár
síðan ég fagnaði síðast sigri. I fjög-
ur ár sá ég ekki vonarglætu,“ sagði
Paul Azinger.
að verða Keflavík og ÍR sem
leika fyrsta opinbera knatt-
spyrnuleik 11 manna liða innan-
húss fostudaginn 3. mars. Það er
opnunarleikur deildabikarkeppni
KSI í ár og hann verður háður í
hinni nýju og glæsilegu Reykja-
neshöll í Reykjanesbæ.
Sömu helgi, 4.-5. mars, fara fram
12 leildr til viðbótar í Reykjanes-
höllinni sem verður aðalvettvangur
deildabikarsins í ár. Alls fara þar
fram 52 leikir af 90 í riðlakeppni
karla og 15 leikir af 20 í riðlakeppni
kvenna.
í deildabikar karla leika 36 lið í 6
riðlum, eins og undanfarin ár. Tvö
lið komast áfram úr hverjum riðli
og auk þess fjögur af þeim sex lið-
um sem enda í þriðja sæti, miðað
við árangur.
Riðlaskipting í karlaflokki:
A-riðill: Leiftur, Fylkir, Dalvík,
Víðir, Léttir, Haukar.
B-riðill: Grindavík, Víkingur R.,
Þróttur R., Sindri, Afturelding,
Huginn/Höttur.
C-riðill: KR, Fram, FH, Tinda-
stóll, KS, Njarðvík.
D-riðiíl: ÍA, Stjarnan, Skalla-
grímur, Selfoss, KÍB, Fjölnir.
E-riðiIl: Breiðablik, Valur, KA,
Þór Ak., HK, Hamar/Ægir.
F-riðill: ÍBV, Keflavík, ÍR,
Leiknir R., KFS, Bruni.
Rétt til þátttöku hafa liðin í efstu
þremur deildunum ásamt sex efstu
liðum 3. deildar.
KVA er eina liðið úr 2. deild sem
ekki nýtti keppnisréttinn.
Konurnar
byrja 3. apríl
Keppni í kvennaflokki hefst mán-
uði síðar, 3. apiTl. Þar leika 10 lið í
tveimur riðlum sem eru þannig
skipaðir:
Á-riðilI: Breiðablik, Stjarnan,
ÍBV, Þór/KA, Grindavík.
B-riðill: KR, Valur, ÍA, FH,
RKV.
í deildabikar kvenna leika úr-
valsdeildarliðin átta ásamt tveimur
liðum úr 1. deild.