Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 1
Þín fristund - Okkar fag Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is ptarðunfijatiiti 2000 m ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR BLAÐ INTER INTER SPORT INTER INTER' Sigurður byijar aftur meðHK SIGURÐUR Valur Sveinsson, þjálfari 1. deildarliðs HK í hand- knattleik, hefur tekið fram skóna að nýju og hyggst leika með Kópa- vogsliðinu út keppnistímabilið. Hann hefur leikið á fullu með HK í öllum æfingaleikjum að undan- förnu og æft sjálfur með liðinu af krafti. Sigurður hætti eftir síðasta tímabil, fertugur að aldri og með 24 ára feril að baki í meistara- flokki, en þetta er fimmta tímabil hans sem þjálfari HK. Endurkoma Sigurðar ætti að efla sóknarleik HK sem er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Reuters Brasiiíski knattspyrnumaðurinn Rivaldo, sem leikur með Barcelona á Spáni, var kjörinn knatt- spyrnumaður síðasta árs af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, en úrslit kjörsins voru kunn- gjörð í gærkvöldi. David Beckham, leikmaður Evrópumeistara Manchester United, varð annar og Argentfnumaðurinn Gabriel Omar Batistuta varð þriðji. Viggó þjálfar Hauka Tveir sigrar hjá Guðrúnu í Boston GUÐRÚN Arnardóttir, hlaupakona úr Ármanni, bar sigur úr býtum í tveimur greinum á innanhússmóti í Boston á sunnudaginn. Guð- rún vann 55 metra grinda- hlaup á 7,77 sekúndum og hafði nokkra yfirburði því silfurverðlaun unnust á tím- anum 8,08 og bronsið á 8,13. Guðrún hljóp á 7,95 í undan- úrslitum. Þess má geta að íslandsmet hennar í grein- inni er 7,63 sett í mars 1996. Einnig kom Guðrún ör- ugglega fyrst í mark í 400 metra hlaupi á 54,90 sekúnd- um, 1,35 sekúndu á undan silfurverðlaunahafanum. f undanúrslitum hljóp Guðrún á 55,31. íslandsmet Guðrún- ar í greininni er 53,35 einnig frá því mars 1996, líkt og metið í 55 m grindahlaupi. Þetta eru fyrstu mótin sem Guðrún tekur þátt í á innanhússtímabilinu, en framundan er hjá henni að taka þátt í nokkrum mótum, vestanhafs og austan áður en kemur að Evrópumeist- aramótinu í Gent í lok næsta mánaðar. Viggó Sigurðsson handknatt- leiksþjálfari kemur heim frá Þýskalandi í sumar og tekur við þjálfun 1. deildar liðs Hauka á næstu leiktíð af Guðmundi Kar- lssyni, sem þjálfað hefur liðið und- anfarin þrjú ár. Fyrir liggur þriggja ára samningur milli Viggós og Hauka sem undirritaður verður á næstunni. „Það er svo gott sem frágengið að ég þjálfi Hauka næstu þrjú árin. Um það hefur verið gert heiðurs- mannasamkomulag," sagði Viggó í samtali við Morgunblaðið í gær en hann hefur ásamt fjölskyldu sinni búið í Wuppertal í Þýskalandi í nærri fjögur ár. Þar af þjálfaði Viggós samnefnt lið fyrstu þrjú ár- in. „Okkur hjónum fannst vera kom- inn tími til að halda heim. Við eig- um fjögur böm og við verðum að hafa framtíð þeirra og skólagöngu í huga.“ Viggó hvaðst vera fullur eftir- væntingar að koma heim og taka við þjálfun Hauka. „Eg þjálfaði Hauka fyrir um það bil áratug í þrjú keppnistímabil. Þá átti ég gott samstarft við félagsmenn og hlakka til að koma á ný til starfa fyrir fé- lagið. Framundan er auk þess skemmtilegur tími þar Haukar eru að flytja inn í nýtt íþróttahús næsta haust, svo dæmi sé tekið. Vissulega verður það mikil breyting að fara héðan út bestu deildarkeppni heims og í hand- knattleikinn heima, sem mér skilst að hafi farið nokkuð aftur síðustu ár.“ ALLT UM EM í KRÓATÍU/B4, B5, B6, B7, B8, B9, B14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.