Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
KR-ingar slógu út
bi karmeistarana
Leika til úrslita við Grindvíkinga í Laugardalshöll
ÞETTA var tilfinningaríkur leik-
ur. Fyrri hálfleikur var villtur og
mikið skorað, en góður varnar-
leikur hjá okkur í síðari hálfleik
var lykill að sigrinum og ég er í
sjöunda himni, sagði Jónatan
Bow, sem í gærkvöld stýrði
vesturbæjarliðinu KR til sigurs
gegn Njarðvík í undanúrslitum
bikarkeppni KKÍ í miklum bar-
áttuleik í Ljónagryfjunni í Njarð-
vík. Lokatölur urðu 84:80 fyrir
KR, sem mætir Grindavík í úr-
slitaleiknum. í hálfleik var stað-
an 49:43 fyrirUMFN.
Njarðvíkingar, vel studdir af
áhorfendum, byrjuðu mun bet-
ur og náðu 10 stiga forskoti, 44:34,
þegar langt var liðið
á íyrri hálfleikinn.
i Un skjótt skipast
Blonaal , ,v, f r
skrífar veður í lofti. I upp-
hafí síðari hálfleiks
hvorki gekk né rak hjá Njarðvfldng-
um, sem settu ekki stig fyrstu sex
mínúturnar á meðan KR-ingar settu
12 stig og komust þar með yfir,
49:55. Þessi afleiti kafli hafði slæm
áhrif á Njarðvíkinga, sem gekk ákaf-
lega illa að finna taktinn að nýju.
Þeim tókst þó með harðfylgi að
jafna, 78:78, þegar nokkrar mínútur
voru til leiksloka. En heilladísimar
voru ekki með Njarðvíkingum að
þessu sinni, þeir misstu Teit Örlygs-
son, sinn besta mann, út af með 5
villur og það voru KR-ingar sem
reyndust sterkari á lokasprettinum
og tryggðu sér sanngjaman sigur.
Ólafur Ormsson, Keith Vassel og
Jesper Sörensen vom bestu menn
KR í leiknum, en í liðinu em ungir og
efnilegir leikmenn sem gerðu góða
hluti. Teitur Örlygsson, Hermann
Hauksson og Friðrik Stefánsson
vom bestu menn Njarðvíkinga.
Bandaríkjamaðurinn Keith Veney
gerði margt laglegt en var alltof mis-
tækur.
l appsuout »<wa
C W K . U A I! O .\ K
'
Morgunblaðið/Björn Blöndal
1 f ; §■§ k ^ fJ' * MT í \ s M w* I " jO iœ
flng A V HE mB 1 i fSql # .
KR-ingar fögnuðu vel og innilega eftir að hafa slegið bikarmeistara Njarðvíkur út úr bikarkeppn'
inni í undanúrslitum í Ljónagryfjunni í gærkvöldi.
__ Minningabók um
Öriyg Aron Sturiuson
MINNINGABÓK um Örlyg Aron Sturluson, leikmann körfuknatt-
leiksliðs Njarðvíkur og íslenska landsliðsins, sem lést af slysförum
um þarsiðustu helgi, hefiir verið komið fyrir í anddyri fþréttahúss-
ins í Njarðvík. Þeim, sem vilja minnast Örlygs, er velkomið að láta
það í ljós í bókinni.
HK-ingar til Þýskalands
TVEIR handknattleiksmenn úr HK, markvörðurinn Hlynur Jó-
hannesson og línumaðurinn Alexander Amarson, fara til þýska 3.
dcildarliðsins Regensburg í vikunni. Þeir verða þar í fjóra daga, æfa
með liðinu og spila æfingaleik, og væntanlega verður gengið frá því
að þeir semji við félagið eftir þetta tfmabil. Þjálfari liðsins er Tékk-
inn Rudolf Havlik, sem þjálfaði hjá HK um árabil, og með liðinu spil-
ar örvhenta skyttan Michal Tonar, sem lék með HK fyrir nokkmm
ámm, ásamt öðrum tékkneskum landsliðsmanni, Roman Sedlik.
Unnar
sló í gegn
UNNAR Sigurðsson, knatt-
spyrnumaður sem lék með
Tindastóli siðasta sumar, sló
í gegn með norska félaginu
Strömsgodset á innan-
hússmóti um helgina. Unnar
skoraði þrjú mörk í tvcimur
leikjum, þrátt fyrir að leika í
vörn liðsins, og þar af gerði
hann tvö í 3:1 sigri á úrvals-
deildarliði Start f leik um
bronsverðlaunin á sunnu-
dag.
Unnar, sem er 24 ára Kefl-
víkingur og hefur gengið frá
þriggja ára samningi við
Strömsgodset, skoraði mark
liðsins í 1:4 tapi gegn Moss í
undanúrslitum mótsins. Ste-
fán Gfslason lék einnig með
Strömsgodset f mótinu.
Brann, undir stjórn Teits
Þórðarsonar, sigraði Sta-
bæk, 3:1, í úrslitum á öðru
innanhússmóti á sunnudag-
inn. Pétur Marteinsson lék
með Stabæk.
Lilleström vann Molde,
2:1, f leik um þriðja sætið á
sama móti og léku Rúnar
Kristinsson og Indriði Sig-
urðsson með Lilleström.
Erkifjend-
ur skildu
jafnir á Old
Trafford
ENGLANDSMEISTARAR Ma-
nchester United gerðu jafntefli við
erkifjendur sína úr Lundúnum,
Arsenal, 1:1, á Old Trafford í Ma-
nchester í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Svíinn
Fredrik Ljungberg kom gestunum
yfir á tólftu mínútu er hann vann
boltann af hollenska varnarjaxlin-
um Jaap Stam, en varamaðurinn
Teddy Sheringham jafnaði metin
fyrir Evrópumeistarana með
marki af stuttu færi er rúmar tutt-
ugu mínútur lifðu leiks eftir að
David Seaman, markverði Arsenal,
mistókst að slá boltann af hættus-
væðinu. Heimamenn gerðu harða
hríð að marki Arsenal í kjölfarið
og áttu þeir síðarnefndu oft í vök
að verjast. Þeir héldu velli, en það
kann að duga skammt því Ma-
nehester United stendur mun bet-
ur að vígi í keppninni um enska
meistaratitilinn. Liðin tvö eru jöfn
að stigum, en meistararnir hafa
leikið þremur leikjum færra en
Arsenal og tveimur færra en
Leeds, sem hefur þriggja stiga
forystu í deildarkeppninni.
Bakverðir Portland sáu um Lakers
PORTLAND TrailBlazers vann góðan útisigur á Los Angeies Lakers í
stórleik helgarinnar í NBA-deildinni í körfuknattleik. Með sigrinum
er Portland nú einungis með tvo fleiri tapleiki en Lakers og svo virð-
ist sem þessi lið muni koma til með að berjast um besta árangurinn
í deildarkeppninni í ár.
Lakers hafði tíu stiga forystu í
leikhléi, 57:47, og virtist hafa
leikinn í hendi sér með átta stiga
forystu þegar tæpar
fímm mínútur voru
Gunnar til leiksloka. Leik-
skrifarfrá menn hðsms gafu
Bandaríkjunum hins vegar eftir á
endasprettinum á
sama tíma og Portland lék frábæra
vörn. Lokatölurnar urðu 95:91 fyr-
ir Portland. Sanngjarn sigur vegna
góðs endaspretts gestanna.
Bakverðir Portland áttu stórleik
í sókninni. Steve Smith skoraði 27
stig og Damon Stoudamire skoraði
22. Hjá Lakers var Kobe Bryant
sprækastur í sókninni með 28 stig,
en Shaquille O’Neal átti óvenjus-
lakan dag á „skrifstofunni" með að-
eins sautján stig. Lakers hefur nú
tapað þremur af síðustu fimm
leikjum sínum eftir sextán sigur-
leiki í röð þar á undan.
Lakers er enn með besta árang-
urinn í deildinni þegar riðlakeppn-
in er rétt hálfnuð. Liðið er með 33
sigurleiki og átta töp. Phil Jackson
hefur gersamlega snúið leik liðsins
við í vetur og er allt annað að sjá
til stórstjarnanna í liðinu nú en
undanfarin keppnistímabil. Leik-
menn leika mun betri vörn og eru
óeigingjarnir í sókn, sem er mikil
breyting hjá leikmönnum eins og
Kobe Bryant. Veikleiki Lakers er
enn að nokkuð vantar í breiddina á
varamannabekknum þannig að
ekki má mikið útaf bera hjá liðinu
þar sem lifir af keppnistímabilinu.
Portland byrjaði keppnistímabil-
ið með miklum látum en átti síðan
erfitt uppdráttar í kringum ára-
mótin. Blazers virðist hins vegar í
þann mund að ná sér á strik að
nýju og verður eflaust með í bar-
áttunni um meistaratitilinn í lokin.
í austurdeildinni hefur Miami
besta árangurinn, en New York
hefur skriðið upp töfluna eftir að
Patrick Ewing hóf leik að nýju.
Liðið hafði unnið þrettán af átján
leikjum sínum fyrir viðureignina
gegn meisturum San Antonio í
Texas. Fyrsti leikur liðanna frá
lokaúrslitunum í fyrra á laugardag
var jafn allan fyrri hálfleikinn, en
Spurs gerðu 25 stig gegn ellefu
stigum New York í þriðja og
næstsíðasta leikhlutanum og vann
örugglega, 96:83. Tim Duncan átti
enn einn stjörnuleikinn með 33
stig, en hjá New York var Allan
Houston stigahæstur með 17 stig.
Allt virðist opið í austurdeildinni.
Miami hefur átt við erfiðleika með
meiðsl hjá leikmönnum sínum allt
keppnistímabilið og hefur Pat Ri-
ley reynt mikið undanfarnar vikur
að bæta úr því með leikmanna-
skiptum, en það hefur ekki gengið
upp enn. Indiana Pacers siglir
lygnan sjó í miðriðlinum, en erfitt
er að sjá nógu mikla breytingu til
batnaðar hjá liði Larrys Birds til
að spá því mikilli velgengni í úr-
slitakeppninni. Portland hefur
staðið undir væntingum frá upp-
hafi keppnistímabilsins, en Lakers
hefur komið langmest á óvart sem
af er. Meistarar San Antonio,
Seattle og Sacramento, hafa öll
staðið sig vel, en það lið sem komið
hefur undirrituðum mest á óvart er
Utah Jazz. Utah hefur nú foryst-
una í miðvesturriðlinum og á
sunnudag vann liðið enn einn góð-
an sigurinn. í þetta sinn á Sacra-
mento, 104:101. Leikurinn var jafn
og skemmtilegur eins og viðureign-
ir þessara liða voru í úrslitakeppn-
inni í fyrra, en John Stockton inns-
iglaði sigurinn með þremur
vítaskotum á síðustu tuttugu sek-
úndunum. Þeir Bryon Russell og
Karl Malone skoruðu 24 stig og
John Stockton gerði tuttugu og tvö
stig.