Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 5

Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 B 5 EM í KRÓATÍU Draumurinn um Ólympíu- sæti í Sydney á enda ÍSENSKA landsliðið verður ekki verða í sviðsljósinu á Ólympíuleik- unum í Sydney í haust. Það var ljóst eftir að liðið tapaði fyrir Rússum og Slóvenar unnu Dani í B-riðli Evrópumótsins á sunnu- daginn. Þá getur ísland heldur ekki tryggt sér rétt til að leika í HM í Frakklandi í Króatíu, verður að taka þátt í undankeppni. Dreg- ið verður á sunnudaginn í Zagreb hveijir mótheijar Islands verða í undankeppninni. Til að öðlast þátttökurétt á Ól- ympíuleikana þurfti íslenska liðið í það minnsta að ná þriðja sæti í riðlinum og leika um fimmta sæt- ið. Eina von íslands um þriðja sæt- ið eftir að hafa tapað fyrir Rússum var að Danir myndu vinna Slóv- ena. Það gerðist hins vegar ekki og þá rann sá möguleiki fslands út í sandinn. Danir og Slóvenar eiga eftir að spila við Svía og íslendinga. Port- úgal hefur fjögur stigí þriðja sæti riðilsins og þó svo að fsland næði íjórum stigum eins og Portúgal með því að vinna bæði Dani og Slóvena, er Portúgal fyrir ofan á töflunni þar sem úrslit í innbyrðis- leik gilda ef lið eru jöfn að stigum. Valdimar Grímsson er þriðji markahæsti leikmaður Evrópu- keppninnar í handknattleik í Króatíu eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Vald- imar hefur skorað 19 mörk, þar af 12 úr vítaköstum, og er með 73,08% skotnýtingu. Úkraínska markamaskínan Oleg Velykyy hefur skorað 30 mörk, að- eins fimm þeirra úr vítum, og Stefan Lövgren frá Svíþjóð er annar. Valdimar er eini íslendingurinn í hópi 25 efstu en þessir hafa skorað mest: Oleg Velykyy, Úkraínu...................30/5 Stefan Lövgren, Svíþjóð.................23/8 Valdimar Grímsson, Islandi.............19/12 Ales Pajovic, Slóveníu..................18/2 Carlos Resende, Portúgal................18/8 Patrick Cazal, Frakklandi...............17/0 Nikolaj Jacobsen, Danmörku..............17/7 Talant Dujshebaev, Spáni................16/0 Zoran Lubej, Slóveníu...................16/0 Næstir íslendinga á markalistan- um eru þeir Patrekur Jóhannesson, Gústaf Bjarnason og Ólafur Stefáns- son, sem hafa skorað 11 mörk hver. Patrekur grófastur Patrekur Jóhannesson virðist vera grófasti leikmaður keppninnar því hann er með flest refsistig allra leikmanna. Stigin eru gefin sam- kvæmt brottvísunum og spjöldum. Þessir hafa brotið mest af sér: Patrekur Jóhannesson, íslandi............15 Carlos Resende, Portúgal.................14 Preben Vildalen, Noregi..................13 Bozidar Jovic, Króatíu...................13 Mike Bezdicek, Þýskalandi................11 Rui Almeida, Portúgal....................10 Ian Marko Fog, Danmörku..................10 íslenska liðið er samanlagt með næstflest refsistig, 51, en Portúgalir eru mestu syndaselirnir með 52. Svíar eru með fæst refsistig, 27, og Rússar og Úkraínumenn eru með 29. Þriðji í vörðum skotum Patrekur er síðan þríðji yfir þá leikmenn sem varið hafa flest skot í vörn. Hann hefur varið 3 skot en fyr- ir ofan eru Lars Troels Jörgensen, Danmörku, með 6 og Magnus Wis- lander, Svíþjóð, með 4 varin skot. Ólafur annar í stoðsendingum Ólafur Stefánsson er í 2.-3. sæti yf- ir þá leikmenn sem hafa átt flestar stoðsendingar, 7 talsins, ásamt Magnusi Andersson frá Svíþjóð. Það er Staffan Olsson frá Svíþjóð sem hefur lagt upp flest mörkin í keppn- inni, 9 talsins. Guðmundur í níunda sæti Guðmundur Hrafnkelsson er í 9. sæti yfir þá markverði sem hafa var- ið flest skot. Hann hefur varið 19 skot en bestir eru þeir Tomas Svens- son frá Svíþjóð og Andrei Lavrov frá Rússlandi sem hafa varið 33 skot hvor og síðan kemur David Bofill frá Spáni með 30 varin skot. Bruno Mai-tini frá Frakklandi er hinsvegar með besta hlutfallið, hefur varið 28 skot af 57, sem er 49,12%. Svensson kemur næstur með 42,86% en Guðmundur er í 13. sæti með 19 varin skot af 64, eða 29,69%. Morgunblaðið/Ásdís Gústaf Bjarnason og samherjar urðu að játa sig sigraða í viðureign gegn Portúgal og þar með var Ólympíudraumurinn úti. Fullt hús Frakka og Spánverja Frakkar og Spánverjar eru með fullt hús stiga í A-riðlinum eftir þrjár umferðir og berjast um undanúrslitasætin tvö ásamt Króöt- um sem eru þriðju með fjögur stig. Frammistaða Þjóðverja hefur hinsvegar valdið miklum vonbrigðum en þeireru aðeins með eitt stig eftir þrjá leiki. Frakkar fóru ótrúlega létt með Þjóðverja á sunnudaginn, 25:19, eftir 15:9 í hálfleik. Jackson Richardson fór á kostum með Frökkum, skoraði 8 mörk og var lykilmaður í vörn þeirra að vanda. Bertrand Gille skoraði 5 mörk og Bruno Martini varði 13 skot. Hjá Þjóðverjum var flest í molum en fyrir þá skoraði Stefan Kretzschmar 6 mörk og Markus Baur 4. Þetta var fyrsti sigur Frakka á Þjóðverjum í fjögur ár. Kæra frá Norðmönnum eftir tap gegn Króatíu Króatar sigruðu Norðmenn, 27:23, eftir að hafa komist í 14:5 í fyrri hálfleiknum. Staðan var 15:10 í hálfleik og Norðmenn minnkuðu muninn í tvö mörk en komust ekki nær. Eftir leikinn lögðu þeir inn kæru vegna þess að þeir töldu að leikmönnum Króata hefði verið hleypt of snemma inn á eftir brottvísanir í seinni hálf- leiknum. „Við eigum ekki að líða fyrir mistök annarra,“ sagði Christer Magnusson, þjálfari Norðmanna. Zvonimir Bilic skoraði 8 mörk fyrir Króata og Goran Perkovac 7 en Geir Oustorp og Stig Penne gerðu 5 mörk hvor fyrir Norð- menn. , Spánn var í nokkru basli með Úkraínu en sigraði, 27:24, Rafael Guijosa skoraði 7 mörk fyrir Spán og Antonio Ortega 6. Oleg Velyky skoraði 10 mörk fyrir Úkraínu og Vyacheslav Lochman 7. Króatar lögðu Þjóðverja, 21:20, í hörkuleik á laugardaginn og skoraði Zoran Mikulic sigurmark- ið á lokasekúndunum. Þjóðverjar voru yfir mest allan leikinn en heimamenn, vel studdir af 7.500 áhorfendum, gáfust aldrei upp og uppskáru eftir því. Zlatko Saracevic skoraði 7 mörk fyrir Króata og Venio Los- ert varði 14 skot, þar af fjögur vítaköst, en alls fóru fimm slík í súginn hjá Þjóðverjum. Kretzsch- mar skoraði 7 mörk fyrir Þjóð- verja og Jan Holpert varði 15 skot. Spánverjar unnu Norðmenn ör- ugglega, 25:21, eftir 13:9 í hálfleik. Talant Duhsjebaev og Andrej Tsjepkin skoruðu 7 mörk hvor fyrir Spánverja en Eivind Elling- sen og Stig Penne gerðu 5 hvor fyrir Norðmenn. Frakkar sigruðu Úkraínu, 24:22, eftir að hafa verið 12:13 undir í hálfleik. Patrick Cazal skoraði 8 mörk fyrir Frakka og Oleg Velyky 8 fyrir Úkraínumenn. j íslendingar með eitt slakasta liðið MATS Olsson, fram- kvæmdastjóri spænska liðsins TEKA Santander og fyrrverandi landsliðs- markvörður Svía, er í Króatíu til að aðstoða við : lýsingar í sænska útvarp- inu. Hann var spurður hvað hefði komið honum mest á óvart í keppninni að lokn- um tveimur fyrstu umferð- unum. „Ég held að það sé slakur árangur íslenska liðsins. Það er langt síðan ég hef séð það jafnslakt og í fyrstu leikjunum hér. Það er eitthvert andleysi yfir leikmönnum og baráttan sem hefur yfirleitt eink- ennt leik liðsins er ekki fyr- ir hendi. Þá tel ég langt síð- an Rússar hafa verið með • eins slakt lið og núna. Svíar eru með langbesta liðið í B- riðlinuin og hefur það lík- lega aldrei verið betra,“ sagði Olsson. Bengt undr- aðist að sjá ekki Ragnar BENGT Johansson, þjálfari Svía, sagðist undrast að j Þorbjörn skyldi ekki taka ÍR-inginn Ragnar Óskars- son með á Evrópumótið. „Ég fylgdist með íslenska Iiðinu í æíingaleikjunum gegn Frökkum og fannst þessi stákur koma með nýtt blóð inn í liðið. Hann sýndi skemmtilega takta þær mínútur sem hann fékk að spiía. Ég undraðist því mjög þegar ég sá að Ragn- ar var ekki í íslenska hópn- . um hér í Króatfu," sagði þjálfari Svía. Maximov mætti ekki á blaða- mannafund EFTIR leik Rússa og Slóv- ena á laugardag mætti Vla- dimir Maximov, þjálfari Rússa, ekki á blaðamanna- fundinn. Ástæðan var sú að hann var að messa yfir leik- mönnum sínum eftir leik- inn. Hann var ekki ánægð- ur með frammistöðu sinna manna, sem máttu þakka fyrir að vinna Slóvena 27:23. Þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum var staðan jöfn, 23:23. Þá koin Pavel Soukossian mark- vörður inn á fyrir Andrei Lavrov og hreinlega lokaði markinu og bjargaði heiðri Rússa. Slóvenar skoruðu ekki mark eftir að hann kom inn á. Staðan í hálfleik var 16:12 fyrir Rússa. Svíar halda uppi merki Norðurland- anna SVÍAR halda uppi merki Norðurlandaþjóðanna á Evrópumótinu í Króatíu, hafa unnið alla sína leiki með nokkrum yfírburðum. Þeir verða að teljast líkleg- ir til að verja Evrópu- meistaratitilinn. Hinar Norðurlandaþjóðirnar, ís- land, Noregur og Dan- mörk, eru enn án stiga í keppninni. Islendingar og Danir mætast í Zagreb í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.