Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
EM í KRÓATÍU
Croatia
■ SVLAR voru sem á heimavelli gegn
Dönum í Rijeka á laugardaginn.
Ekki bara vegna þess að gólfið í höll-
inni er í sænsku heimalitunum, gult
og blátt, heldur dundu lög með Abba
yfir áhorfendum í hálfleik.
■ SVÍARNIR lentu í vandræðum á
hóteli sínu fyrir leikinn við Dani. Sjö
þeirra fóru saman í hótellyftuna, ein-
um of margir, og lyftan stoppaði á
milli hæða. Eftir nokkra bið var þeim
bjargað og óhappið virtist ekki hafa
nein áhrif á Svíana í leiknum.
■ KASPAR Hvidt, markvörður
Dana, varði tvö vítaköst á upphafs-
mínútunum gegn Svíum og kom í
veg fyrir að heimsmeistararnir næðu
yfirburðastöðu strax í byrjun.
■ STEINAR Ege, besti markvörður
Norðmanna undanfarin ár, neitaði
að spila með þeim í Króatíu en er þó
þar á meðal áhorfenda. Ege, sem ver
mark Þýskalandsmeistara Kiel, var
settur út úr liði Noregs fyrir HM í
Egyptalandi í fyrra og hefur síðan
verið óspar á að gagnrýna landsliðs-
forystuna.
Morgunblaðið/Ásdís
Félagarnir hjá Wuppertal - Rússinn Dmitri Filippov og Dagur
Sigurðsson - féllust í faðma eftir leikinn.
ÞORBJÖRN Jensson landsliðsþjálfari sagðist vera nokkuð ánægð-
ur með leikinn á móti Rússum. „Við höfum verið að taka okkur í
gegn og gagnrýna hver annan og það hefur nú skilað sér í betri leik.
Við höfum farið í gegnum þau atriði sem við eigum að ráða við.
Varnarleikurinn var búinn að vera akkilesarhæll hjá okkur.
ValurB.
Jónatansson
skrífar
Þorbjörn sagði að ástæðan fyrir
því að varnarleikurinn væri
ekki nægilega sannfærandi, er að
ákveðnir póstar hafi dottnir út ,
eins og Geir Sveins-
son og Júlíus Jónas-
son, og nýir leik-
menn væru að taka
við. „Þetta þarf bara
þennan tíma. Við vorum ákveðnir í
því að nota þennan leik gegn Rúss-
um til að bæta leik okkar í vörn og
sókn og reyna að spila mjög agað.
Það verður að gera það á móti
Rússum því þeir eru með það öflugt
lið. Þetta er maskína sem getur
hikstað eins og sýndi sig á síðustu
mínútunum. Við hefðum getað náð
einu stigi og það hefði verið mjög
gott í framhaldinu, en því miður
töpuðum við,“ sagði Þorbjörn í
samtali við Morgunblaðið.
Hvað varstu ánægðastur með í
þessum leik?
Svíar aldrei
verið sterkarí
SVÍAR hafa löngum verið sterkir, en hið gamalreynda lið þeirra
virðist aldrei hafa verið öflugra en einmitt nú, á EM í Króatíu. Þeir
fylgdu eftir stórsigrinum á íslandi með því að fara jafn létt með
Dani og Portúgali um helgina, unnu leikina með 7 og 8 marka
mun og voru ekki í minnstu vandræðum. Rússar hafa verið í
meira basli en eru þó jafnir Svíum á toppi B-riðilsins með 6 stig.
Svíar unnu Dani, 29:22, á laug-
ardaginn, en staðan í hálfleik
var 16:10, Svíum í hag. „Nú geta
menn hætt þessum vangaveltum
um gamla og unga leikmenn.
Þessir ungu Danir áttu aldrei
möguleika," sagði Bengt Johans-
son, þjálfari Svía.
Það var þó „unglingurinn“ 1
sænska liðinu sem vakti mesta
athygli, hinn 25 ára gamli Mat-
hias Franzen skoraði 7 mörk úr
jafnmörgum tilraunum í vinstra
horninu. Stefan Lövgren skoraði
11 mörk fyrir Svía, 6 úr vítaköst-
um. Lars Krogh Jeppesen og
Lars Christiansen skoruðu 3
mörk hvor fyrir Dani.
Yfirburðir gegn
Portúgölum
A sunnudag var síðan það
sama uppi á teningnum gegn
Portúgölum. Svíar gerðu út um
leikinn strax í fyrri hálfleik en þá
náðu þeir mest átta marka for-
ystu, voru 15:9 yfir í hléi og 20:10
á tímabili í seinni hálfleik. Loka-
tölur urðu síðan 29:21. Stefan
Lövgren og Johan Pettersson
Tomas Svensson er sigursæll
TOMAS Svensson, markvörður
Svía, er án efa sigursælasti
handknattleiksmaður heims um
þessar mundir. Svensson, sem
ver mark Evrópumeistaranna í
Barcelona, hefúr ekki verið í
tapliði í heila átta mánuði, eða
siðan i maí á síðasta ári. Á þeim
tíma hefur Svensson lcikið 42
leiki með Barcelona og sænska
landsliðinu. Hann var í miklum
ham gegn Portúgal á sunnudag-
inn og varði 15 skot. Svensson
sagði eftir leikinn að það erfið-
asta væri að einbeita sér að fullu
þegar yfirburðir sænska liðsins í
leikjunum væru eins miklir og
raun ber vitni.
skoruðu 7 mörk hvor og Tomas
Svensson átti stórleik í markinu.
Ellefu mörk Jacobsens
dugðu skammt
Slóvenar unnu Dani nokkuð ör-
ugglega á sunnudagskvöld, 28:24,
eftir 14:9 í hálfleik. Slóvenar
náðu mest sjö marka forskoti í
fyrri hálfleiknum. Nikolaj
Jacobsen skoraði 11 mörk fyrir
Dani úr 12 tilraunum en það
dugði skammt. Michael Knudsen
skoraði 5 mörk. Uros Serbec
skoraði 6 mörk fyrir Slóvena og
þeir Iztok Puc og Zoran Lubej 5
hvor.
Rússar sigruðu
Slóvena
Rússar unnu nokkuð öruggan
sigur á Slóvenum á laugardaginn,
27:23, eftir að hafa verið 16:12 yf-
ir í hálfleik.
Eduard Kokcharov skoraði 7
mörk fyrir Rússa og þeir Denis
Krivochlykov og Oleg Khodkov 5
hvor en Eduardo Moskalenko,
línumaður úr Stjörnunni, kom
næstur með 3 mörk. Hinn gamal-
kunni Andrei Lavrov varði 13
skot.
Ales Pajovic skoraði 11 mörk
fyrir Slóvena og Roman Pungar-
tnik 4.
„Ég er ánægður með hvað við
spiluðum agaðan sóknarleik. Þá
fengum við ekki á okkur óþarfa
hraðaupphlaup eins og á móti
Svíunum. Við getum spilað agaðan
sóknarleik og Rússar áttu í fullu
fangi með að verjast okkur. Þeir
gátu alls ekki tekið því rólega því
við vorum alltaf að narta í hælana
áþeim og hefðum alveg getað kom-
ist framfyrir tærnar á þeim í lokin.“
Þið voruð alltaf skrefinu á eftir
þeim allan leikinn og það vantaði
þennan herslumun?
„Já, já. Það er alveg vitað mál að
annaðhvort er maður að jafna eða
vera einum tveimur mörkum á eftir
þeim. Þetta er spurning um það að
gefast ekki upp fyrr en leikurinn er
flautaður af. Við sýndum baráttu
allan leikinn og hefðum alveg getað
náð einu stigi. í stöðunni 23:17 og
rúmar tíu mínútur eftir gáfumst við
ekki upp, ég er ánægður með það.“
Svona eftir á að hyggja, hefði
ekki verið betra að setja Guðmund
Hrafnkelsson fyrr inn á?
„Við fórum aðeins 1 gegnum
þetta ég og Einar Þorðvarðarson í
leiknum, en mörkin sem við vorum
að fá á okkur voru annaðhvort úr
vítum eða af línu. Það er alltaf
spurning hvað markmaðurinn get-
ur í þeirri stöðu. Að vísu stóð Guð-
mundur sig mjög vel þegar hann
kom inn á. Jú, maður getur auð-
vitað spurt sig að því eftir leikinn
og verið vitur eftir á. Atti ég að
setja hann inn á tíu mínútum fyrr
og þá hefðum við kannski unnið
með einu? En þetta er spurning
sem ekki er hægt að fá svör við eft-
ir á. Ef ég hefði sett hann inn á
snemma í leiknum og hann ekkert
varið þá hefði getað komið spurn-
ing um það hvort ekki hefði verið
betra að hafa Sebastian inn á allan
tímann. Það er eitt sem ég geri allt-
af, þegar mér dettur eitthvað í hug
í sambandivið breytingar á leiknum
þá framkvæmi ég þær strax. Ef ég
geri það ekki þá er það of seint.
Lavrov
til Shur?
ANDREJ Lavrov, lands-
liðsmarkvörður Rússa,
hefur fengið tilboð frá
svissneska liðinu Shur um
að leika með því næsta
tímabil. Hann liefur leikið
með Badel Zagreb í vetur
og er ekki ánægður. Hann
sagðist vera ákveðinn í að
fara frá króatiska félaginu
vegna þess að það hefur
ekki staðið við gerða
samninga. Lavrov er 33
ára og hefur leikið 170
landsleiki fyrir Rússa.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari
eftir leikinn gegn Rússum í Rijeka
Náðum
að leika
agaðan
sóknarleik