Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 10

Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 MORGUNELAÐIÐ KNATTSPYRNA ■ ARNAR Grétarsson og félagar í AEK unnu nauman útisigur á Trik- ala, 1:0, í grísku knattspyrnunni á sunnudag. Arnar fór meiddur af velli 10 mínútum fyrir leikslok en Ciric skoraði sigurmark AEK úr vítaspyi'nu þegar tvær mínútur voru eftir. ■ HELGI Sigurðsson var veikur og • missti af leik Panathinaikos sem vann Apollon, 3:0, á útivelli á laug- ardaginn. ■ KRISTJÁN Brooks lék 1 70 mín- útur með Agios Nikolais sem vann góðan útisigur á Pierikos, 2:0, í grísku 2. deildinni. Kristján og fé- lagar komust þar með upp í 8. sæti deildarinnar. ■ SIGURÐUR Jónsson lék allan leikinn með Dundee United sem gerði 0:0-jafntefli við Hibernian í skosku úrvalsdeildinni. Ólafur Gottskálksson fékk ekki tækifæri í marlri Hibernian frekar en undan- famar vikur. ■ L4JV Wright er kominn í vand- ræði eina ferðina enn vegna fram- ' komu sinnar, nú eftir leik Celtic gegn Kilmamock í skosku úrvals- deildinni á sunnudag. Wright var æfur vegna þess að illa var brotið á honum rétt fyrir leikslok og lét dómarann og mótherjana fá það óþvegið. ■ DINO Baggio, leikmaður Parma, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann í ítölsku knattspymunni fyrir að hrækja í áttina að dómara í leik gegn Juventus um fyrri helgi, og gefa í skyn að dómaranum hefði verið 'mútað. Baggio má heldur ekki spila næsta landsleik ítala. MKLAUS Scheer var rekinn úr starf! sem þjálfari Lustenau í aust- urrísku knattspymunni um helg- ina. Birkir Kristinsson lék í marki Lustenau í sjö síðustu umferðunum fyrir vetrarfríið en liðið er næst- neðst í úrvalsdeildinni. MDAVID O’Leary, stjóri Leeds, sagði að aldrei hefði annað komið til greina en að láta þá spila leikinn. Peter Ridsdale, stjómarformaður Leeds, sagði að félagið stæði við bakið á þeim og trúði á sakleysi þeirra. En kæmi annað í Ijós væri ljóst að þeir yrðu látnir fara frá fé- laginu, sama þótt það yrði Leeds dýrkeypt í baráttunni um meistara- titilinn. ■ Morgunblaðið/Peter Cork Heiðar Helguson hefur skorað mark í tveimur fyrstu leikjum sínum með Watford - fyrst á móti Liverpool og síðan gegn Brentford. Á Reuters Leikmenn Juventus fagna Zinedine Zidane, sem er annar frá vinstri, eftir að hann hafði skorað glæsilegt mark gegn Reggina. Glæsimark Zidanes JUVENTUS náði þriggja stiga forystu í ítölsku knattspyrn- unni á sunnudaginn með því að sigra Reggina á útivelli, 2:0. Þetta var fjórtándi leikur Juv- entus í röð án taps en liðið hef- ur aðeins beðið einu sinni lægri hlut á tímabilinu til þessa. Darko Kovacevic skoraði fyrra markið og Zinedine Zidane innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki þar sem hann lék á þrjá vamarmenn og þramaði boltanum í netið. Kovacevic fékk loks tækifæri í byrjunarliðinu eftir að hafa skorað 15 sinnum í deild og bikar sem varamaður. „Það er mikið eftir af baráttunni um meistaratitilinn en ég er ánægður með frammistöðu okkar til þessa,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálfari Juventus. Lazio sótti Cagliari heim til Sardiníu og mátti sætta sig við 0:0- jafntefli. Alessio Scarpi, markvörð- ur Cagliari, var í aðalhlutverki og tryggði liði sínu stig sem kom því úr botnsætinu. Roma er í þriðja sætinu en mátti taka á öllu sínu til að sigra neðsta liðið, Piacenza, 2:1. Francesco Totti skoraði sigurmark Roma korteri fyrir leikslok en tveimur mínútum áður var félagi hans, Vincent Cand- ela, rekinn af velli. AC Milan lenti óvænt 0:2 undir gegn Lecce á heimavelli en bjarg- aði andlitinu og stigi með mörkum frá Paolo Maldini og Oliver Bier- hoff. Inter Milano vann sinn fyrsta útisigur síðan í nóvember, 2:1, í Verona. Það var sjálfur Roberto Baggio sem kom inn á sem vara- maður og skoraði sigurmarkið. Parma tapaði óvænt á heimavelli fyiir Perugia, 1:2, og hrapaði niður í sjötta sætið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.