Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐ JUDAGUR 25. JANÚAR 2000 B 11
Heiðar fylgdi eft
ir góðri byrjun
Heiðar Helguson er þegar orðinn hetja í augum stuðningsmanna
Watford. Dalvíkingurinn ungi skoraði sitt annað mark í jafnmörg-
um leikjum þegar Watford mætti Bradford í fallslag á laugardag-
inn, og lagði auk þess upp hitt markið í 3:2-ósigri með glæsilegri
sendingu. En þrátt fyrir þetta f ramlag Heiðars er Watford komið í
botnsæti úrvalsdeildarinnar og útlitið er ekki bjart.
Heiðar fékk lítið að gera framan
af fyrri hálfleiknum. En eftir
að Bradford náði forystunni úr um-
deildri vítaspyrnu tók Watford við
sér og eftir glæsilega sókn sem
Heiðar átti drjúgan þátt í fékk
hann sendingu inn í vítateiginn
vinstra megin og lagði boltann lag-
lega inn á markteig þar sem Micah
Hyde var mættur og jafnaði, 1:1.
Bradford komst í 3:1 með mörk-
um rétt fyrir og eftir hlé. Watford
barðist þó af krafti út leikinn og
það var Heiðar sem minnkaði mun-
inn rétt fyrir leikslok með við-
stöðulausu skoti rétt utan mark-
teigs eftir fyrirgjöf frá vinstri. Tvö
mörk í tveimur fyrstu leikjunum -
byrjunin lofar svo sanriarlega góðu
fyrir feril Heiðars Helgusonar í
ensku knattspyrnunni.
Leeds áfram í efsta sætinu
Leeds er áfram í efsta sætinu
eftir mikilvægan útisigur á Sund-
erland, 1:2, á sunnudaginn. Jason
Wilcox var í aðalhlutverki hjá
Leeds, skoraði fyrra markið og
lagði það síðara upp fyrir Michael
Bridges, fyrrverandi leikmann
Sunderland. Kevin Phillips svaraði
strax fyrir Sunderland sem sótti
stíft mestallan seinni hálfleikinn en
náði ekki að jafna.
Wanchope þakkaði traustið
Paolo Wanchope þakkaði Harry
Redknapp, stjóra West Ham,
traustið og skoraði tvívegis í 3:1-
útisigri á Leicester. Wanchope
hafði ekki skorað síðan í nóvember
og stuðningsmenn West Ham létu
hann heyra það óþvegið eftir síð-
asta leik, gegn Aston Villa, þar sem
hann fór illa með dauðafæri. Red-
knapp tók Wanchope á aukaæfing-
ar í vikunni og þær skiluðu sér því
Kosta Ríkabúinn skreflangi
tryggði West Ham sinn fyrsta sig-
ur í tíu leikjum. Hjá Leicester
vantaði átta fastamenn og liðið síg-
ur áfram niður töfluna.
Gregory í stúkunni að
beiðni leikmanna
Aston Villa var nær sigri í
markalausum leik gegn Chelsea og
hefur ekki tapað í síðustu níu leikj-
um sínum. Markvörðurinn David
James bjargaði þó Villa þegar
hann varði í tvígang glæsilega frá
George Weah. John Gregory, stjóri
Villa, sat uppi í stúku, samkvæmt
áskorun leikmanna, þótt hann sé
laus úr mánaðarbanni. Leikmenn
Villa óskuðu eftir því að hann væri
áfram í stúkunni vegna þess hve
góðum árangri það hefur skilað.
Owen út af og
Liverpool bitlaust
Liverpool missti af tækifæri til
að draga á efstu liðin með 0:0-jafn-
tefli gegn Middlesbrough á An-
field. Bryan Robson, stjóri Middl-
esborough, var ánægður með þau
úrslit eftir skellinn heima gegn
Derby í síðasta leik. „Þetta var það
sem við þurftum á að halda. Við
héldum Liverpool fullkomlega í
skefjum og vorum hættulegir í
skyndisóknum,“ sagði Robson.
Liverpool missti Michael Owen
meiddan af velli eftir hálftíma og
sókn liðsins var bitlaus eftir það.
Jones heldur starfinu
David Jones heldur velli sem
stjóri Southampton eftir 2:0-sigur
á Everton en miklar vangaveltur
voru í gangi um að hann yrði látinn
fara ef leikurinn tapaðist. Norð-
maðurinn Jo Tessem skoraði sitt
fyrsta mark fyrir félagið og Matth-
ew Oakley innsiglaði sigurinn í sín-
um fyrsta leik í langan tíma.
„Stuðningsmenn okkar áttu stóran
þátt í sigrinum, þeir studdu vel við
bakið á okkur þrátt fyrir skell í síð-
asta leik. Liðið sýnti þann baráttu-
viija sem þurfti til að sigra,“ sagði
Jones.
Wednesday loks af botninum
Sheffield Wednesday komst af
botninum í fyrsta skipti í vetur
með óvæntum 0:l-sigri á Totten-
ham í London. Heimaliðið nýtti
ekki fjölda færa en Niclas Alexan-
derson skoraði markið dýrmæta
fyrir Wednesday.
„Ég er ánægður með strákana
en alls ekki hissa á úrslitunum.
Þeir voru staðráðnir í að standa sig
og hafa stöðugt verið að bæta sig
undanfama tvo mánuði,“ sagði
Danny Wilson, stjóri Wednesday.
Sá gamli spáði rétt og Her-
mann afgreiddi Ferguson
Charies Reep, 95 ára knatt-
spymutölfræðingur, skrifaði Egil
Olsen, stjóra Wimbledon, bréf fyr-
ir leik liðsins gegn Newcastle og
benti á að lið sem ynnu 5:0, eins og
Newcastle gegn Southampton á
dögunum, skoruðu aldrei meira en
eitt mark í næsta leik á eftir. Það
gekk eftir, og vel það, því Her-
mann Hreiðarsson og félagar í
Wimbledon stöðvuðu sigurgöngu
Newcastle með 2:0-sigri. Þrátt fyr-
ir nær stöðuga sókn Newcastle
lengst af voru það Robbie Earie og
Marcus Gayle sem skoruðu mörkin
í leiknum „Leikmenn Wimbledon
fóru eins að og svo oft áður. Þeir
stálu sigrinum, og gerðu það vel,“
sagði Bobby Robson, stjóri
Newcastle.
Hermann átti góðan leik í vöm
Wimbledon og hélt hinum hávaxna
og hættulega Duncan Ferguson vel
niðri en Ferguson hefur verið mjög
heitur í sókn Newcastle að undan-
fömu.
Fyrirsjáanleg úrslit
Markalaust jafntefli Derby og
Coventry voru fyrirsjáanleg úrslit.
Derby er með lakasta árangur all-
ra liða á heimavelli og Coventry á
útivelli. Enda kom á daginn að
stjórar beggja liða vom sáttir við
niðurstöðuna. Derby var þó nær
sigri, Georgi Kinkladze kom inn á
sem varamaður og var nálægt því
að brjóta ísinn.
Rival-
do hélt
uppá
daginn
Brasilíumaðurinn Rivaldo fékk
afhenta styttuna sem fylgir
kjöri knattspyrnumanns ársins í
Evrópu áður en flautað var til leiks
Barcelona og Racing Santander að
viðstöddum 63.000 áhorfendum á
Nou Camp á sunnudag. Og hann hélt
svo sannarlega upp á daginn og und-
irstrikaði snilld sína með því að
skora eina mark leiksins á 18. mín-
útu. Auk þess lék piltur vel, átti
snilldarsendingar á félaga sína og
skapaði að vanda usla í vörn and-
stæðinga sinna.
Markið skoraði Rivaldo með
skalla úr miðjum vítateig Santander
eftir sendingu Boudewijn Zenden
frá vinstri kanti nærri endalínu.
Skömmu áður en Rivaldo kom
Barcelona yfir höfðu gestirnir skor-
að mark sem hárfínt var dæmt ógilt.
í heildina voru leikmenn Santander
ekki síðri í leik sínum en heimamenn,
þeir sköpuðu fjölmörg færi en voru
afar mislagðir fætur upp við markið.
„Okkur tókst að halda velli, öðru
fremur vegna þess hve vörn okkar
var traust," sagði Louis van Gaal í
Reuters
Brasilíumaðurinn Rivaldo er hér búinn að leika á Espina, varnarleikmann Racing Santander.
leikslok. „Burt séð frá okkar leik þá
er ég einna ánægðastur með úrslit
annarra leikja, þau voru okkur hag-
stæð, einkum þá að Zaragoza skuli
hafa tapað og að Real Madrid tap-
aði.“
Sigurinn tryggði Katalóníumönn-
um annað sætið í spænsku deildinni,
liðið hefur 37, fjórum stigum færra
en Deportivo Coruna sem lagði Real
Betis 2:0 á heimavelli. Real Zara-
goza féll niður í þriðja sæti eftir tap
fyrir Real Oviedo. Hvorki gengur né
rekur hjá Real Madrid að rétta úr
kútnum og aðeins 9.000 áhorfendur
sáu liðið gera markalaust jafntefli
við Numancia á heimavelli hins síð-
arnefnda. Við jafnteflið er Real í 12.
sæti, 13 stigum á eftir Deportivo.
Celta Vigo heldur fjórða sætinu,
hefur 35 stig eins og Zaragoza eftir
að hafa unnið verðskuldaðan 1:0 sig-
ur á Sevilla á heimavelli Andalúsíu-
manna. Frode Olsen, nýkominn í
mark Sevilla-liðsins, bjargaði því frá
háðulegri útreið með góðri frammi-
stöðu.
■ ARNAR Gunnlaugsson var í
byrjunarliði Leicester gegn West
Ham. Hann sýndi ágæta takta í
sókn liðsins framan af leiknum en
fór af velli á 56. mínútu.
■ JÓHANN B. Guðmundsson sat á
bekknum hjá Watford allan tímann
gegn Bradford.
■ EIÐUR Smári Guðjohnsen og
Guðni Bergsson léku báðir allan
leikinn með Bolton sem gerði 1:1-
jafntefli við Ipswich í 1. deild.
■ EIÐUR átti hættulegustu færi
Bolton í leiknum og skallaði meðal
annars yfir úr dauðafæri meðan
staðan var 0:0. Guðni stóðst
meiðslapróf rétt fyrir leikinn.
■ SAM Allardyce, stjóri Bolton,
sagðist ánægður með frammistöðu
liðsins en sagði að framherjamir
virtust aðeins geta skorað glæsi-
mörk, ekki mörk úr dauðafærum.
■ BJARNÓLFUR Lárusson var
ekki í leikmannahópi Walsall sem
vann sinn þriðja leik í röð, 3:2, úti
gegn Crewe.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson var í
leikbanni hjá WBA sem gerði 0:0-
jafntefli úti gegn Nottingham For-
est.
■ I VAR Ingimarsson lék allan leik-
inn með Brentford og Gunnar Ein-
arsson síðasta korterið þegar lið
þeirra vann Bury, 2:1, í 2. deild.
Litlu munaði að Ivar skoraði þriðja
mark Brentford en hann lék sem
framherji í leiknum og þótti hættu-
legur upp við markið.
■ BJARKI Gunnlaugsson lék allan
leikinn með Preston sem vann
Wycombe, 3:2, í 2. deild og er í 3.
sæti með 55 stig.
■ BRYNJAR Gunnarsson lék allan
leikinn með Stoke og Sigursteinn
Gíslason síðustu 10 mínútumar
þegar liðið tapaði, 1:0, fyrir Millwall
í London. Einar Þór Dam'elsson
var ekki í leikmannahópi Stoke.
■ STOKE tapaði þar með í fyrsta
skipti í 10 leikjum og fyrsta úti-
leiknum undir stjórn Guðjóns
Þórðarsonar. Stoke er í 5. sæti með
47 stig, níu stigum á eftir toppliðun-
um, Wigan og Bristol Rovers.
MSIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
lék í 67 mínútur með Chester sem
tapaði, 3:1, fyrir Northampton í 3.
deild.
■ BRADFORD freistar þess nú að
fá Stan Collymore lánaðan frá Ast-
on Villa út tímabilið. Collymore
hefur verið í tómum vandræðum
hjá Villa og fær engin tækifæri.
■ GERARD HouIIier, stjóri Liver-
pool, hefur áhyggjur af meiðslun-
um hjá Michael Owen, sem tognaði
á laugardag í fjórða skiptið á 9 mán-
uðum. Houllier íhugar að senda
Owen öðm sinni í meðferð hjá um-
deildum lækni í Miinchen en sá hef-
ur læknað marga knattspyrnumenn
með óhefðbundnum aðferðum.
■ NIGEL Winterburn vill yfirgefa
Arsenal þar sem hann hefur þurft
að sitja á varamannabekknum í
fjórar vikur. Silvinho hefur hirt
vinstri bakvarðarstöðuna af hinum
36 ára Winterbum, sem hefur verið
hjá Arsenal um langt árabil.
■ PAOLO Maldini, fyrirliði ítalska
landsliðsins, sagðist um helgina
hafa áhuga á að ljúka ferli sinum í
Englandi og fara þangað eftir þetta
tímabil. Hann fær þá að fara frá AC
Milan án greiðslu, þrátt fyrir að
eiga tvö ár eftir af samningi sínum
við félagið, vegna dyggrar þjónustu
í 17 ár.
■ CHELSEA er talið líklegast til að
hreppa þennan snjalla bakvörð en
hann og Gianluca Vialli, stjóri .
Chelsea, em miklir vinir. Maldini
segist hafa unnið allt á Italíu sem
hægt séaðvinna.
■ LEE Bowyer og Jonathan
Woodgate léku með Leeds gegn
Sunderland en báðir gætu þeir átt
þunga dóma yfir höfði sér vegna
meintrar líkamsárásar á náms-
mann frá Asíu.