Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 B 13
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Golli
Keflavíkurstúlkur fagna sigri á bikarmeisturum KR. Keflavík mætir ÍS í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ.
Keflavik reytir
fiaðriraf KR
KEFLAVÍKURSTÚLKUR halda áfram að reita fjaðrirnar af meist-
urum KR - hafa tekið af þeim efsta sæti deildarinnar og á sunnu-
daginn slógu þær Vesturbæjarliðið út úr bikarkeppninni með
44:43 sigri í Vesturbænum í spennuþrungnum leik. í hinum und-
anúrslitaleiknum áttust við ÍS og KFI og sigruðu stúdínur, 60:43,
og leika því til úrslita við Keflavík. Þau lið hafa tvívegis keppt í
vetur og sigraði Suðurnesjaliðið báða leikina.
Talsverðrar taugaspennu gætti á
upphafsmínútum leiksins í
Vesturbænum á sunnudaginn og
eftir 8 mínútur var
Stefán St8ðan 4:3 Sestun'
Stefánsson um 1 Vl1 enda 011
skrifar áhersla lögð á vam-
arleikinn. En það
bráði af stúlkunum og liðin skiptust
á um að hafa forystuna. Þegar
rúmar sex mínútur voru til leiks-
loka náðu KR-stúlkur þriggja stiga
forystu, 41:38, en þá náðu gestimir
frábæmm tökum á vamarleik sín-
um, skoruðu næstu sex stig, sem
skilaði 44:41 forystu. Þá hófst mik-
ill darraðardans og að duga eða
drepast fyrir KR-stúlkumar. Þær
minnkuðu muninn í 44:43 þegar 50
sekúndur vom eftir og dæmdur var
ruðningur á Keflvíkinga þegar 37
sekúndur vora eftir. KR fékk því
boltann en tókst ekki að skjóta og
missti boltann þegar 7 sekúndur
lifðu leiks og Keflvíkingar héldu
boltanum út leiktímann og fögnuðu
ærlega þegar lokaflautið gall við.
„Þær voru betri í þessum leik og
vildu frekar vinna en við,“ sagði
Guðbjörg Norðfjörð fyrirliði KR
eftir leikinn en hún verður nú að
sjá á eftir bikarmeistaratitlinum -
enn er deildarkeppnin og deildar-
bikarinn, sem hún vann einnig á
síðustu leiktíð. „Nú verður allt sett
í deildina og deildarbikarkeppnina
og það munum við ekki gefa frá
okkur baráttulaust."
„Ég var búin að segja að það lið
sem ynni þennan leik yrði meistari
og ef við höldum áfram að leika
svona er það víst,“ sagði Anna
María Sveinsdóttir fyrirliði Kefl-
víkinga og var öllu léttara yfir
henni.
„Við börðumst allar sem ein og
unnum þetta á vörninni. Við gátum
ekki fengið erfiðari mótherja og
þetta var mjög erfiður leikur en ef
við ætlum að verða bikarmeistarar
þurfum við að vinna alla leiki svo
það var ágætt að byrja á þessu. Svo
töpuðum við líka illa fyrir þeim í
síðasta deildarleik héma í Vestur-
bænum enda erfitt að koma hingað
og fannst við niðurlægðar þegar við
spiluðum eins og vitleysingar svo
að það var ekkert annað að gera en
að koma hingað og vinna þær.“
SKÍÐI
Hermann Maier
jafnaði ekki metið
Ekki tókst Austurríkismannin-
um Hermann Maier að bera
sigur úr býtum í bruni karla í
Kitzbuehel á laugardag og jafna
þar með met landa síns, Franz
Klammers, þ.e. að tryggja sér 26.
sigurinn í heimsbikarkeppninni á
skíðum. Maier, sem kom fyrstur í
mark í risasvigi á sama stað á
föstudag, varð nú að gera sér
fjórða sætið að góði. Landi hans,
Fritz Strobl, fékk besta tímann og
Jozef Strobl varð annar.
Vonbrigði Meiers með fjórða
sætið voru mikil og kastaði hann af
sér skíðunum þegar í mark var
komið og ljóst var að hann ynni
ekki gullverðlaun að þessu sinni
fyrir framan landa sína og stuðn-
ingsmenn.
Sigur Fritz Strobls var óvæntur,
en þetta var í fjórða sinn á ferlinum
sem hann vinnur heimsbikarmót.
„Þetta var nú ekki það sem ég
reiknaði með eftir að hafa gert
nokkrar skyssur á leið minni nið-
ur,“ sagði glaðbeittur Strobls eftir
að hafa tekið við verðlaunum sín-
um. „Ég var beinlínis óánægður
með ferð mína, en hún dugði. Þá
var skyggnið mjög slæmt og setti
nokkurt strik í reikning minn og
annarra."
FRJALSIÞROTTIR
íslands-
met hjá
Vilborgu
VILBORG Jóhanndóttir úr
Tindastóli setti nýtt Islan-
dsmet kvenna í fjöiþraut inn-
anhúss á innanhússmeistara-
móti fslands fjölþrautum sem
fram fór í Baldurshaga og
Laugardalshöll um helgina.
Viiborg hlaut 4.128 stig og
bætti met Þuríðar Ingvars-
dóttur, Selfossi, um 37 stig.
Met Þuríðar var átta ára
gamalt.
Viiborg, sem er 25 ára, setti
persónuiegt met í öllum sex
greinum þrautarinnar nema
langstökki.
A fyrri keppnisdegi þraut-
arinnar hljóp Vilborg 60
metra á 8,33 sekúndum, stökk
1,60 metra í hástökki og 5,13
metra í langstökki.
Á síðari keppnisdegi hljóp
Vilborg 60 metra grindahlaup
á 9,40 sekúndum, varpaði
kúlu 12,06 mctra og hljóp 800
metra á 2:41,6 mínútum.
Ágústa Tryggvadóttir, HSK,
varð í öðru sæti með 3.795
stig og í þriðja sæti Gunnhild-
ur Hinriksdóttir HSK með
3.644 stig. Þess má geta að
Vilborg æfir undir stjórn
Gisla Sigurðssonar, sem m.a.
hefur þjálfað Jón Arnar
Magnússon síðustu ár og ger-
ir enn.
Jón Arnar lauk 5 greinum
Ólafur Guðmundsson, HSK,
varð íslandsmeistari í
sjöþraut karia, fékk 5.382 stig
og hafði nokkra yfirburði.
Annar varð Hafnfirðingurinn
Jónas Hlynur Hallgrímsson
með 4.551 stig og setti um
leið drengjamet. Sverrir Guð-
mundsson, IR, hlaut brons-
verðlaun, önglaði saman 4.162
stigum.
Arangur Ólafs í einstökum
greinum þrautarinnar var sá
að hann hljóp 60 metrana á
7,13 sekúndum, stökk 7,19
metra í iangstökki, varpaði
kúlu 14,74 metra, stökk yfir
1,89 metra í hástökki, hljóp
60 metra grindahiaup á 8,39
sekúndum, stökk 4,40 metra í
stangarstökki og hljóp loks
1.000 metra á 3.07,8 mínútum.
Isiands- og Norðurlanda-
methafinn í sjöþraut, Jón
Arnar Magnússon, Tindastóli,
notaði mótið sem æfingu og
tók aðeins þátt í fimm grein-
um að sjö. Fyrir liggur hjá
honum að keppa í sterku
sjöþrautarmóti um næstu
helgi í Tallinn í Eistlandi, ár-
legu móti sem tugþrautar-
kappninn Erki Nool stendur
fyrir. Þar mun Jón Arnar
ætla að leggja meiri alvöru í
keppnina en að þessu sinni.
Sem fyrr segir lauk Jón
keppni í fimm greinum, hann
hljóp 60 metrana á 7,04 sek-
úndum, stökk 7,36 metra í
langstökki, varpaði kúlu 15,82
metra, stökk 1,95 metra í há-
stökki og hljóp 60 metra
grindahlaup á 8,37 sekúndum.