Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 16
V. KNATTSPYRNA „Hermann hræðilegi" hrelldi Newcastle Fékk 9 í einkunn hjá The Mirror ENSKA dagblaðið The Mirror fór heldur betur lofsamlegum orðum um Hermann Hreiðarsson, íslenska knattspyrnumanninn hjá Wimbledon, í umsögn sinni um leik liðsins við Newcastle í ensku úrvalsdeildinni síðasta laugardag. Wimbledon sigraði, 2:0, og stöðvaði með því sigurgöngu Newcastle sem ekki hafði tapað í sex leikjum í röð. Hermann fær hæstu einkunn allra leikmanna beggja liða, 9 af 10 mögulegum, en hann hélt hin- um hættulegu framherjum Newcastle, Alan Shearer og Duncan Ferguson, í skefjum. Sérstaklega þeim síðarnefnda. Þessi númer 30 Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle, hældi Hermanni sér- staklega. Hann var þó greinilega ekki viss á nafni Islendingsins því hann nefndi hann alltaf: „Númer 30.“ „Þessi númer 30 hjá Wimbledon var frábær. Hann skallaði frá, hreinsaði frá, og las leikinn á stór- kostlegan hátt,“ sagði Robson. „Hinn 25 ára gamli Hreiðarsson stal senunni því hann vann Fergu- son í skallaeinvígjunum, hafði Shearer í vasanum og átti meira að segja nokkra langa einleiksspretti upp völlinn," sagði blaðamaður The Mirror. Rætt var við Hermann sem sagði að það væri gaman að fá slík ummæli frá toppmanni á borð við Robson. „Eg var óstyrkur fyrir leikinn vegna Shearers og Fergusons, en við lögð- um okkur alla fram við að halda þeim niðri og ég held að Ferguson hafí aðeins unnið mig í einu skalla- einvígi," sagði Hermann við blaðið. Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Hermann Hreiðarsson í barátfu við Harry Kewell, miðherja Leeds. Romario með 700. markið ROMARIO, sá góðkunni brasilíski knattspyrnumað- ur, náði um helgina því tak- marki sínu að skora 700 mörk á ferlinum. Það tókst honum, og einu betur, með því að skora tvö mörk þegar lið hans, Vasco da Gama, gerði jafntefli, 3:3, við Pal- meiras í brasilísku deilda- keppninni. Romario lýsti því yfir fyrr í vetur að hann ætl- aði að ná þessu marki á tímabilinu, og stóð við það. ■ HERBERT Amarson skoraði 13 stig íyrir Donar Groningen sem tapaði, 52:60, á heimavelli fyrir Gunco Rotterdam í hollensku úr- valsdeildinni í körfuknattleik á sunnudag. Þrátt fyrir tapið er Donar komið í úrslitakeppni sex liða um hollenska meistaratitilinn. ■ HELGI Jónas Guðfinnsson spil- aði í 18 mínútur og skoraði 3 stig fyrir RB Antwerpen sem tapaði, 97:81, fyrir Aalst í belgísku úrvals- deildinni. Antwerpen er áfram í öðru sæti með 11 sigra í 15 leikjum í vetur. ■ PENNY Hardaway er kominn í leikmannahóp Phoenix Suns á ný eftir að hafa misst af 21 leik liðsins í NBA-deildinni í körfuknattleik vegna meiðsla. ■ KEFLVÍKINGAR hafa gert samkomulag við enska 1. deildar- liðið Stockport um samvinnu á næstu árum og verður skrifað undir samstarfssamning milli fé- laganna innan skamms. ■ RÚNAR Amarson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, og Birgir Runólfsson, stjórnarmaður, komu frá Englandi á sunnudag eftir þriggja daga dvöl hjá félag- inu og viðræður við forráðamenn þess. Stefnt er að leikmannaskipt- um milli félaganna í framtíðinni og samvinnu á ýmsum sviðum. Hermann er fyrimnynd FOLK ■ HARALDUR Hinriksson er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið IA í knattspymu eftir að hafa leikið undanfarin ár með Skallagrími. Haraldur er Skagamaður og hefur leikið með þeim 57 leiki í efstu deild. ■ STEINAR Ingimundarson, íyrr- verandi KR-ingur og Leiftursmað- ur með meiru, er kominn í 3. deild- arlið Fjölnis, sem hefur sankað að sér mörgum reyndum knatt- spyrnumönnum fyrir næsta tíma- bil. Steinar lék með Þrótti R. í 1. deildinni í fyrra. ■ ÞÓRSARAR á Akureyri hafa á síðustu dögum fengið talsverðan liðsauka fyrir 2. deildarkeppnina í knattspymu í sumar. Gamalkunnur Þórsari, Siguróli Krisljánsson, er kominn „heim“ en hann hefur þjálf- að í neðri deildum undanfarin ár, síðastlið Magna. ■ ÁSMUNDUR Gíslason, íyrrver- andi drengjalandsliðsmarkvörður úr Völsungi, er einnig kominn til Þórs, sem og Bjarki Már Hafþórs- son, sóknarmaður úr ÍR, og Hlynur Eiríksson, fyrrverandi FH-ingur, sem hefur þjálfað Þrótt í Neskaup- stað síðustu árin. RON Noades, knattspymustjóri og eigandi enska 2. deildar liðsins Brentford, sem Ivar Ingimarsson og Gunnar Einarsson leika með, bendir Tommy Black, tvítugum út- heija Arsenal, á að fylgja fordæmi Hermanns Hreiðarssonar ef hon- LOTHAR Mattháus kom skemmti- lega á óvart þegar hann tilkynnti um helgina að hann hafi boðið erkióvini sínum hjá Bayern og þýska landslið- inu Jurgen Klinsmann að spila með sér kveðjuleikinn sem verður 29. maí nk. Klinsmann og Mattháus áttu í ei- lífu stríði og hreinlega hötuðust þeg- ar þeir léku saman hjá Bayem Munchen. Þá héldu þeir þýsku fjöl miðlum uppi á skemmtiefni dag eftir dag með óhróðri hvor um annan. „Við höfum sett allar okkar deilur niður,“ segir Mattháus nú. Lothar Mattháus sem á að baki 20 ára atvinnuferil segist vilja ljúka um sé annt um framtíð sína sem knattspymumanns. Brentford hef- ur gert úrvalsdeildarliðinu tilboð í Black, sem leikið hefur með vara- liði Arsenal. Hefur Brentford boðið Arsenal hálfa miHjón sterlings- punda fyrir leikmanninn, sem er á ferlinum í sátt og samlyndi við alla. Hann segir að verst hafi sér þótt deilur sínar við Berti Vogts á sínum tíma sem leiddu til þess að Mattháus var settur út úr landsliðinu en hann hefur leikið ílesta landsleiki allra leikmanna í heiminum. Því meti náði hann í haust eftir að Erich Ribbeck kallaði í þennan 38 ára leikmann á nýjan leik í landsliðshópinn. Kveðju- leikur Mattháus í vor verður upphaf á undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópumótið. Hann segist alveg geta tekið við landsliðinu þegar Ribbeck hættir og mótmælir heldur ekki að hann muni í einni eða annarri mynd starfa hjá Bayern Múnchen. báðum áttum um hvort hann eigi að hætta á að skipta yfir í félag sem leikur í næstneðstu deild Englands. „Ég vona bara að drengurinn hugsi um framtíð sína sem knattspymu- manns, en ekki aðeins um peninga. Þetta er tímamótaákvörðun fyrir mann á þessum aldri, en hann þarf aðeins að íhuga sögu Hermanns Hreiðarssonar ef hann er í vafa,“ segir Noades, en hann keypti Her- mann til Brentford frá Crystal Palace og seldi hann síðan upp í úr- valsdeildina til Wimbledon í haust. Þórður lagði upp sigurmarkið ÞÓRÐUR Guðjónsson lagði upp sigurmark Genk gegn Geel, 1:0, í efstu deild belgísku knattspyrnunnar á laugardags- kvöldið. Finninn Juha Reini skoraði markið. Þórður lék allan leikinn með Genk en Bjarni bróðir hans var ekki með. Guð- mundur Benediktsson lék ekki með Geel en hann er nýkominn í gang eftir veikindi. Genk sýndi engan glansleik gegn botnliðinu en komst í ann- að sætið með sigrinum. Anderlecht er með örugga forystu í deildinni. Arnar Viðarsson lék allan leikinn með Lokeren sem vann St. Truiden, 3:0, og er komið upp í miðja deild. Arnar lagði upp þriðja mark liðsins fyrir Stefaan Staelens. Matthaus kom á óvart

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.