Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 B 3 HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Þorkell Gunnar Berg Viktorsson Framari var tekinn föstum tökum eftir frammistöðu sína í bikarúrslitunum. Hér er það félagi hans frá Vestmannaeyjum, Arnar Pétursson, sem stöðvar hann og Eduardo Moskalenko er viðbúinn í vörninni. Endurtekið efni í Garðabænum FRAMARAR sýndu það ótvírætt í Garðabænum í gærkvöldi að þeir ætla að halda áfram baráttunni í vetur þótt einn bikar sé kominn í Safamýrina. Þeir unnu sannfærandi baráttusigur á Stjörnumönnum, 21:26, í leik sem var nánast endurtekið efni frá bikarúrslitaleik liðanna í Laugardalshöllinni síðasta laugardag. „Vorum ákveðnir í að afsanna kenninguna" „VIÐ vorum ákveðnir í að afsanna kenninguna um að sigur í bikar þýði tap í deild, eins og við höfum þrisvar gengið í gegnum í vetur,“ sagði Björgvin Þór Björgvinsson, hornamaðurinn ðflugi hjá Fram, við Morgunblaðið eftir sigurinu á Stjörnunni í gœrkvöld. „Ég er mjög sáttur við okkar leik, allir spáðu spennufalli hjá okk- ur og tapi, en við sýndum góðan karakter. Það hefur orðið mikil breyting á liðinu, það er komin sigurtilfínning í alla leikmenn og við höfum trú á sigri þótt það blási aðeins á móti. Einbeitingin hjá öllum er mikil. Við erum búnir að þróa okkar leik, við virkuðum frekar hægir fyrst í vetur og með öðruvísi hreyfíngar, en nú eru menn búnir að læra inn á þetta.“ Með sigrinum styrktu Framarar stöðuna í baráttunni um efstu sætin. „Já, þessi sigur var okkur mikilvægur í toppbaráttunni og við ætlum að halda okkur meðal Qögurra efstu út tímabilið,11 sagði Björgvin Þór Björgvinsson að lokum. Pýrmæt stig hjá Dormagen Já, mynstrið var ótrúlega svipað, þvert ofan í hefðina sem segir að lið vinni sinn leikinn hvort þegar þau mætast með víðjr stuttu millibili í deild Sigurðsson °S bikar. ÚrsUtin skrifar réðust á nákvæm- lega sama kafla og í bikarúrslitunum því eftir góða byrj- un Stjörnunnar í síðari hálfleik skor- uðu Framarar sex mörk í röð og náðu undirtökum sem þeir létu ekki af hendi. Liðin skiptust á um forystuna all- an fyrri hálfleikinn. Framan af virt- ust Garðbæingar hafa meiri kraft og gerðu sig líklega til að snúa blaðinu við frá laugardeginum. Handboltinn sem liðin sýndu var ekki áferðarfal- legur en baráttan mikil og varnar- leikur beggja liða í góðu lagi. Framarar enduðu fyrri hálfleikinn betur, á tveimur mörkum Björgvins Björgvinssonar, sem þar með komst loksins á blað eftir tæpar 90 mínútur í baráttu liðanna tveggja en hann skoraði ekki mark í bikarúrslitunum. Staðan var því 10:12 í hálfleik en Stjarnan sneri því sér í hag í upphafi síðari hálfleiks með góðum kafla. Konráð Olavsson fór þá í skyttu- stöðu og hafði góð áhrif á sína menn í 10 mínútur. En þá kom sex marka kaflinn umræddi. Fram komst fimm mörkum yfir, 14:19, og þrátt fyrir góða viðleitni Stjömumanna um tíma þegar þeir minnkuðu muninn í 19:20 var meðbyrinn Framara. Þeir létu framsækna vöm Garðbæinga á lokakaflanum ekki slá sig út af lag- inu, óðu í gegnum hana hvað eftir annað og uppskám mjög verðskuld- aðan fimm marka sigur. Framarar virðast vera að ná sér á strik á réttum tíma og leikur þeirra lofar góðu fyrir átökin á lokaspretti deildarinnar og úrslitakeppnina. Þeir léku án leikstjómandans, Guð- mundar Helga Pálssonar, sem er meiddur, en fjarvera hans virtist ekki skipta máli. Gunnar Berg Vikt- orsson, 11 marka maðurinn úr bikar- úrslitaleiknum, náði sér engan veg- inn á strik. Það sýnir hins vegar breiddina og sveigjanleikann sem Framliðið hefur öðlast að þótt þessir máttarstólpar væra ekki til staðar fylltu aðrir í skörðin og vel það. Nú vora það línu- og hornamennirnir sem blómstraðu. Hinn ungi Róbert Gunnarsson átti stórleik á línunni og Björgvin og Njörður Ámason vora geysilega drjúgir í homunum. Robertas Pauzuolis kom betur inn í sóknarleikinn með góðar línusend- ingar og mörk. Það er augljóst að Anatolí Fedjúkín þjálfari hefur lagt mikið upp úr liðsheildinni. Hann var búinn að nota 11 leikmenn eftir að- eins 20 mínútur, var ófeiminn við að skipta og gera breytingar, og það skilaði sér án efa þegar leið á leikinn. Stjörnumenn era aftur á móti komnir í einhvem öldudal sem þeir þurfa að rífa sig fljótlega upp úr ef tímabilið á ekki að fjara út hjá þeim. Fjórða leikinn í röð vora þeir langt frá sínu besta og rétt eins og í bikar- úrslitunum og í undanúrslitunum gegn Víkingi hrandi leikur þeirra eins og spilaborg á mikilvægum kafla. Garðbæingar eiga við agaleysi og andleysi að stríða sem þeir þurfa að finna lausn á ef ekki á illa að fara. Mannskapurinn er fyrir hendi, en kannski era ákveðnir menn of öraggir með sínar stöður. Það er að minnsta kosti keyrt á lítið breyttu liði út leikina. Hilmar Þórlindsson var öflugur en einhvem veginn vill maður alltaf fá meira út úr leikmanni með slíka skyttuhæfileika. Eduardo Moskalenko var besti leikmaður liðsins, fiskaði fimm vítaköst og var „turnunum" í miðri vöm Fram erfið- ur allan tímann. Arnar Pétursson átti góða kafla en lét mótlætið í seinni hálfleik fara of mikið í taug- arnar á sér. Ingvar Ragnarsson varði ágætlega í seinni hálfleiknum. Vítaköstin voru sérstakur kapítuli í leiknum. Stjömumenn nýttu aðeins tvö af átta vítaköstum sínum og þar af skutu þeir fjóram sinnum í tré- verkið eða framhjá. Framarar nýttu ekki tvö af fjóram vítaköstum sínum, og í hvoragt skiptið komu markverð- ir Stjömunnar við sögu. Islendingaliðið Bayer Dormagen vann einkar mikilvægan sigur, 25:20, á heimavelli á liðsmönnum Frankfurt í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í gær. Þrátt fyrir sigurinn er Dormagen enn í 15. sæti af 18 lið- um í deildinni, hefur 13 stig en er nú með þriggja stiga forskot á Wupper- tal sem er í 16. sæti. Héðinn Gilsson skoraði 4 mörk fyrir Dormagen, Róbert Sighvatsson 3, og Daði Hafþórsson 1. Frankfurt lék vel í fyrri hálfleik og var þremur mörkum yfir í hálfleik, 12:9. í síðari hálfleik fór hinn reyndi markvörður Dormagen, Andreas Thiel, í gang. Hann varði einstaklega vel og lagði granninn að sigri. Flens- burg treysti stöðu sína í efsta sæti með 33:27-sigri á Gummersbach á heimavelli. Lemgo fylgir Flensburg eftir og er í öðra sæti eftir að hafa lagt GWD Minden, 25:21, á heima- velli. Essen, lið Patreks Jóhannessonar og Páls Þórólfssonar, gerði jafntefli, 27:27, við Grosswallstadt á útivelli. Patrekur skoraði 3 mörk fyrir Ess- en, þar vora tvö úr vítakasti. Essen var 16:14 undir í hálfleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.