Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
FOLK
■ BJARNI Frostason markvörður
var með Haukum í fyrsta sinn á
leiktíðinni gegn Víkingi í gær, en
Bjarni byrjaði nýlega að æfa til
þess að vera Magnúsi Sigmunds-
syni og Jónasi Stefánssyni til
halds og trausts. Bjarni er flug-
stjóri hjá Flugleiðum og hefur
ekki tök á að æfa og leika með af
fullum krafti af þeim sökum.
■ BJARNI kom ekki mikið við
sögu í leiknum, kom inn á í tví-
gang til þess að freista þess að
verja vítakast frá Ingimundi
Helgasyni en hafði ekki erindi
sem erfiði.
■ GUÐMUNDUR Helgi Pálsson
lék ekki með Fram gegn Stjörn-
unni í gær. Guðmundur er
meiddur í öxl og var sprautaður
fyrir bikarúrslitaleikinn á dögun-
um og var ekki leikfær eftir átök-
in þar.
■ EDUARDO Moskalenko, línu-
maðurinn snjalli í Stjörnunni,
sýndi óvænt tilþrif sem skytta í
gær. Hann skoraði glæsimark ut-
an af velli sem flestar örvhentar
skyttur hefðu verið stoltar af.
■ BJARKI Sigurðsson var ekki á
leikskýrslu hjá Aftureldingu í
gærkvöldi. Þrálát meiðsli hafa
hrjáð leikmanninn í vetur uns
hann fór í uppskurð og verður frá
í nokkrar vikur.
■ SIGURÐUR Sveinsson kom inn
á hjá Aftureldingu undir lokin á
móti ÍR í gærkvöldi. Hann náði
þó ekki að skora.
■ ÓLAFUR Sigurjónsson úr ÍR
horfði á félaga sína úr áhorfend-
astúkunni í gærkvöldi. Hann
meiddist í baki í vikunni og reikn-
ar með að ná næsta leik.
■ ÞRETTÁN mín. tafir urðu_ á
leik Stjörnunnar og Fram í Ás-
garði í gærkvöldi, þar sem tíma-
taflan og markaklukkan sló út. Þá
voru eftir sex mín. af fyrri hálf-
leik. Eftir það varð að nota gömlu
góðu skeiðklukkuna til tímatöku
og markatalan var sýnd á borð-
tennisspjöldum. Gárungarnir
sögðu að þrettán hefði ekki verið
happatala heimamanna þetta
kvöld í Garðabæ.
Bergsveinn
sagði hingað
ogekki
lengra
Stefán
Stefánsson
skrifar
Mosfellingar voru staðráðnir í
að láta staðar numið eftir tvo
tapleiki í röð og fengu ÍR-ingar,
sem héldu í Mosfellbæinn í
gærkvöldi, að kenna á því. Eftir
brösótta byrjun tóku Mosfell-
ingar á sig rögg, Bergsveinn
Bergsveinsson fyrirliði og
markvörður hrökk í gang svo
að eftirieikurinn var efsta liði
deildarinnar auðveldur með
26:19 sigri.
Gestirnir úr Breiðholtinu voru
sprækir til að bvrja með og
Ragnar Óskarsson lék lausum hala
svo að ÍR hafði for-
ystuna, 2:3, þegar 7
mínútur voru liðnar
af leiknum. Þá small
vörn Aftureldingar
saman og varnaði IR-ingum leiðina
að markinu en á sama tíma léku þeir
á als oddi í sókninni og sneru leikn-
um sér í hag með fimm mörkum í röð
án þess að ÍR fengi rönd við reist.
Breiðhyltingar voru ekki tilbúnir að
leggja upp laupana og börðust fyrir
sínum hlut. Það gekk bærilega og á
sama tíma var sóknarleikur Mosfell-
inga afar daufur svo að Gintas
Galkauskas og Gintaras Savukynas
þurftu að taka af skarið í öllum sókn-
um. Það dugði til að halda forystunni
en á síðustu mínútu leiksins fóru
gestirnir afar illa að ráði sínu þegar
þeir misstu boltann á síðustu sek-
úndu fyrri hálfleiks eftir tveggja
mínútna sókn og Afturelding skoraði
úr hraðaupphlaupi svo að í stað þess
að vera tveimur mörkum undir voru
mörkin fjögur í hálfleik, 13:9.
Eftir leikhlé lét Bergsveinn mark-
vörður til sín taka og varði án afláts
þar til m'u mörk skildu liðin að, 22:13,
HK-menn
ífimmta
Fylkismenn stóðu lengi vel í HK, sem sóttu þá heim í Hraun-
bæinn í gærkvöldi en urðu að játa sig sigraða áður en yfir
lauk, 24:31. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og nánast
upplausn til að byrja með. Þar skaust HK upp í 5. sæti deild-
arinnar en Fylkir situr eftir sem áður á botninum með einn
sigur úr 16 leikjum.
Heldur gekk brösuglega að skora
framan af þegar HK sótti Fylki
heim í Hraunbæinn í gærkvöldi því
eftir 8 mínútur hafði
hvort lið aðeins skor-
Arnarson að eitt mark- Ástæð-
skrifar an var eflaust áhuga-
leysi og virtust
Kópavogsbúar ekki með hugann að
fullu við leikinn en heimamenn gáfu
þeim ekkert eftir og héldu jöfnu þar
til um tæpar sex mínútur voru til
leiksloka, 8:8. Þá hófu gestirnir að
bæta við mörkum og náðu eftir hlé
fjögurra marka forystu, sem þeir
héldu þar til tíu mínútur voru til
leiksloka. Þá hófu þeir lokasprett en
það gerðu heimamenn líka því á síð-
ustu fimm mínútum leiksins voru
skoruð 11 mörk en sigur HK var
aldrei í hættu, 24:31.
Fylkismenn léku án Þorvarðar
Tjörva Ólafssonar og munar um
minna en liðið fær samt hrós fyrir að
standa uppi í hárinu á gestum sínum.
Eymar Kniger var atkvæðamikill.
HK-menn hafa oft leikið betur en
gekk illa að ná upp baráttunni sem
er þeirra aðalsmerki. Óskar Elvar
Óskarsson var þeirra bestur.
og tæpar 15 mínútur til leiksloka en
það kom sér mjög vel fyrir Mosfell-
inga því sóknarleikurinn gekk ekki
sem best á þeim tíma. Eftir það slök-
uðu Mosfellingar aðeins á klónni svo
að IR-ingar náðu að saxa á forskotið
en það dugði ekki til.
„Við sættum okkur ekki við að
tapa tveimur leikjum í röð svo að það
kom ekki annað til greina en að vinna
hér í kvöld,“ sagði Bergsveinn mark-
vörður eftir leikinn en Mosfellingar
lutu í lægra haldi fyrir KA og IBV í
síðustu leikjum sínum. „Baráttan
var í lagi og þetta var sigur liðsheild-
arinnar. Það er engin tilviljun að við
erum á toppi deildarinnar. Við unn-
um þrefalt í fyrra en nú er búið að
taka einn bikar af okkur - það er al-
veg nóg svo að við verðum að taka
hina tvo. Við töpuðum reyndar líka
fyrir KA og ÍBV í fýrra en stóðum
samt uppi sem sigurvegarar," bætti
fyrirliðinn við en hann hafði mikil
áhrif á aðra leikmenn þegar hann
hrökk í gang. Gintaras var lykilmað-
ur í sókninni og Magnús Már Þórð-
arson var sterkur í vöminni en fyrst
og fremst vannst sigurinn á baráttu
leikmanna fyrir hverjum bolta.
„Þeir voru grimmari og við vorum
ekki nægilega tilbúnir í slaginn,“
sagði Jón Kristjánsson þjálfari ÍR
eftir leikinn en lið hans er nú í 8. sæti
deildarinnar. „Við erum áfram með
öðrum liðum í einum hnapp í deild-
inni þar sem hver leikur er úrslita-
leikur." Sem fyrr var Ragnar Ósk-
arsson lykilmaður hjá ÍR og voru
aðrir leikmenn sífellt að færa honum
boltann til að ljúka sóknunum. Einar
Hólmgeirsson átti nokkur góð skot
þegar hann kom inná undir lokin og
Hrafn Margeirsson vai'ði ágætlega
þann stutta tíma sem hann var inná.
Markús Michaelsson var besti leikmaður Vals og skoraði átta mörk. Hér sendir hann boltann yfir FH-
inginn Sigurstein Arndal og inn á línuna til Geirs Sveinssonar.
Spennuþrungnar
lokasekúndur
GUÐMUNUR Petersen jafnaði fyrir FH-inga, 21:21, úr vítakasti á móti
Val þegar ein sekúnda var eftir af leik liðanna í íþróttahúsinu í Kapla-
krika í gærkvöldi. Upp úr sauð á lokasekúndunni og fengu þá þrír leik-
menn að sjá rauða spjaldið fyrir slagsmál og mótmæli, þeir Geir
Sveinsson og Július Jónasson úr Val og Hálfdán Þórðarson úr FH.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
Þær voru spennuþrungnar lokasek-
úndumar í Kaplakrikanum. FH-
ingar virtust hafa leik-
inn í hendi sér þegar
fjórar mínútur voru eft-
ir - höfðu eitt mark yf-
ir, 20:19, og einum leik-
manni fleiri. Þeir nýttu sér liðsmuninn
illa, Sigurgeir Ægisson hitti ekki mark-
ið og Davíð Ólafsson þakkaði fyrir og
jafnaði fyrir Val, 20:20, þegar innan við
tvær mínútur vom eftir. FH missti bolt-
ann í næstu sókn og Daníel Ragnarsson
skoraði af miklu harðfylgi þegar 11 sek-
úndur vom eftir, 20:21. FH-ingar gerðu
vel í að nýta sér þessar fáu sekúndur.
Sverrir Þórðarson fór inn af línunni
þegar ein sekúnda var eftir og það var
brotið á honum og dæmt réttilega víta-
kast. Þá varð allt vitlaust í leikmanna-
hópi Vals og leikurinn stöðvaður meðan
verið var að róa leikmenn. Eftir að búið
vai' að reka þrjá leikmenn út af tók Guð-
mundur Petersen vítakastið og brást
ekki bogalistin, var öryggið uppmálað,
skoraði og tryggði liði sínu annað stigið.
Leikurinn vai' ekki góður, en hann
var spennandi. FH-ingar vom oftar
með fmmkvæðið í fyrri hálfleik og geta
þakkað það Brynjari Geirssyni sem
gerði sex af sjö fyrstu mörkum FH-
inga. Valsmenn settu þá Júlíus Jónas-
son inn á til að þétta vörnina og verjast
áhlaupi Biynjars og það gaf góða raun.
FH skoraði ekki nema eitt mark síðustu
níu mínútur hálfleiksins og Válur náði
að minnka muninn niður í eitt mark íyr-
ii' hlé, 10:9. Sóknarleikur FH-inga batn-
aði ekki mikið fyrstu tíu mínútur síðari
hálfleiks og gerðu þá aðeins eitt mark á
móti fjómm frá Val. Knútur kom þá inn
á í skyttustöðuna hægra megin fyrir
Brynjar, sem fór í vinstra hornið. Þessi
breyting varð til þess að FH náði aftur
að jafna og komast yfii', 20:19, þegai'
fjórar mínútur voru eftir. Lokamínút-
unum er áður lýst hér að ofan.
Urslit leiksins verða að teljast nokk-
uð sanngjörn þó svo að bæði liðin hafi
fengið tækifæri til að næla í bæði stigin.
Brynjar var allt í öllu hjá FH og eins lék
Sigursteinn Amdal vel sem leikstjórn-
andi. Vamarleikurinn var ágætur
lengst af, en markvarslan var slök bæði
hjá Petkevicius og Magnúsi, sem lék
reyndar aðeins síðasta stundaríjórð-
unginn. Sóknin gekk vel meðan Brynjar
fékk að leika lausum hala.
Hjá Val var sóknarleikurinn mjög
stirður og tilviljanakenndur. Markús
Michaelsson var langbestur Vals-
manna. Hann var með sjálfstraustið í
lagi þótt ungur sé og skoraði grimmt,
eða alls 8 mörk. Hægri vængurinn í
sókninni var máttlaus og komu aðeins
tvö mörk þaðan allan leikinn. Ingimar
Jónsson kom inn á seint í leiknum og
gerði laglega hluti. Axel stóð sig einnig
ágætlega í markinu. Júlíus var sterkur í
vörninni þó svo hann gangi ekki heill til
skógar. Geir Sveinsson lék í sókn og
vöm allan leikinn og stóð sig vel, en
hegðun hans í lokin eftir að hann var
rekinn af velli er honum ekki sæmandi.
Brynjar skoraði sex mörk í röð
BRYNJAR Geirsson skoraði sex mörk í röð fyrir FH gegn Val í
gærkvöldi. Sigurgeir Ægisson gerði fyrsta mark FH í leiknum og
síðan komu sex mörk í röð frá Brynjari úr jafn mðrgum skottil-
raunum. Eftir að Júlíus Jónasson kom inn í vörnina hjá Val bar
minna á Brynjari. Hann lék fyrir utan hægra megin í fyrri hálfleik,
en fór í vinstra hornið í síðari hálfleik og gerði þá tvö mörk og fisk-
aði eitt vítakast. Hann var markahæstur FH-inga með átta mörk.
HANDKNATTLEIKUR
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 B 5
Skjem er
úr leik
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Þröstur Helgason og Halldór Ingólfsson háöu marga hildi í leiknum í gær. Halldóri gekk ágætlega að
halda Þresti niðri þrátt fyrir að hann hafi misst hann framhjá sér að þessu sinni.
DÖNSKU bikarmeistar-
arnir Skjern, sem Aron
Kristjánsson leikur með,
eru fallnir úr keppni. Liðið
tapaði á útiveili fyrir 1.
deildar-Iiðinu Skovbakken,
25:24 í fyrrakvöld. Skjern
virtist hafa sigurinn í
hendi sér þegar tíu mínút-
ur voru eftir, enda hafði
liðið sex marka forskot,
24:18. Þá datt allm-botn úr *•
leik þess. Skjern varð einn-
ig danskur ineistari á síð-
ustu leiktíð og sagði And-
ers Dahl Nielsen, þjálfari,
eftir ieikinn að nú gætu
menn snúið sér að því að
veija meistaraitilinn en
liðið er nú í 4. sæti.
Kapp og
fljótfæmi
KAPPIÐ bar leikmenn Víkings og Hauka oft ofurliði í viðureign
þeirra í gær - kappið að sækja stig. Úr varð því nokkuð mistækur
leikur þar sem Víkingar náðu að vinna annað stigið með mikilli
baráttu eftir að hafa verið undir nær allan leikinn. Lokatölur
27:27, eftirað Haukar höfðu verið marki yfir í hálfleik, 14:13.
Við vorum staðráðnir í að vinna
bæði stigin, okkur veitti ekki
af,“ sagði Valgarð Thoroddsen,
markahæsti leik-
lvar maður Víkings, eftir
Benediktsson leikinn en hann
skrifar gerði sjö mörk. „Það
kom hins vegar í
bakið á okkur hversu illa við lékum í
vörninni í fyrri hálfleik á sama tíma
og við vorum oft afar klaufalegir í
sókninni. En það þýðir ekkert annað
en að herða upp hugann. Það eru
ekki nema fjögur stig upp í næstu lið
og í hóp þeirra ætlum við okkur,“
sagði Valgarð ennfremur og lét þess
getið að ekkert annað en sigur kæmi
til greina þegar hann sækir sína
gömlu félaga í Val heim á föstudag-
inn ásamt Víkingsliðinu.
Bæði lið voru afar mistæk og eink-
um voru leikmenn Víkings iðnir við
að gera hverja vitleysuna á fætur
annarri framan af fyrri hálfleik. Á
þeim tíma voru Haukar með þriggja
til fjögurra marka forystu og virtist
sem þeir hefðu leikinn í hendi sér.
Víkingar voru ekki af baki dottnir
og aukin yfirvegun kom í sóknarleik
þeirra þegar Ingimundur Helgason
tók að stjórnar sóknaraðgerðum um
miðjan fyrri hálfleik. Fjögurra
marka forskot Hauka, 10:6, fór fyrir
lítið á skömmum tíma og heima-
menn jöfnuðu, 10:10, og nýttu sér vel
að gestirnir voru í tvígang á stuttum
tíma einum færri. Jafnræðið hélst
með liðunum fram að hálfleik.
í upphafi síð.ari hálfleiks virtist
leikurinn ætla að þróast líkt og síð-
ari hluti fyrri hálfleiks, þ.e. að liðin
héldust í hendur við markaskorun.
Þá datt botninn úr leik Víkings um
tíma, hver vitleysan rak aðra í sókn-
inni og þrátt fyrir að leikmenn
Hauka léku heldur ekki af yfirvegun
tókst þeim eigi að síður að ná í tví-
gang þriggja marka forskoti.
Haukar kunna hins vegar ekki vel
þá list að halda frumkvæði í leikjum
og flausturslegur leikur Hafnfirð-
inga var vatn á myllu Víkings sem
þrátt fyrir óvandaðan leik hafði bar-
áttuna að vopni. Leikmenn neituðu
að gefast upp og reyndu hvað af tók
að bæta fyrir mistök sin. Þröstur
Helgason jafnaði leikinn 26:26 af'
hörku þegar 1,55 mín. var eftir. Petr
Baumruk kom Haukum yfir á ný en
Víkingar sýndu í síðustu sókn sinni
að þeir hafa yfir yfirvegun að ráða
og 23 sekúndum fyrir leikslok jafn-
aði Hjörtur Arnarson metin. Þar við
stóð þótt Haukar reyndu að knýja
fram bæði stigin á lokasekúndunum.
í lokin má ekki gleyma góðri
frammistöðu ungs markvarðar Vík-
ings, Arnar Reynissonar.Hann varði
dýrmæt skot á mikilvægum augna-
blikum.
Þnr sáu rautt í Kaplakrika
ÞAÐ gekk mikið á undir lokin í leik FH og Vals í 1. deild karla í
handknattleik sem fram fór í íþróttahúsinu Kaplakrika í gær-
kvöldi. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið þegar upp úr
sauð á lokasekúndu leiksins. Valur hafði eins marks forskot,
20:21, þegar Sverrir Þórðarson fór inn af linunni og fiskaði víta-
kast fyrir FH. Júliusi Jónassyni og Hálfdáni Þórðarsyni lenti þá
saman og fengu báðir að líta rauða spjaldið í kjölfarið frá dóm-
urunum, Gunnlaugi Hjálmarssyni og Arnari Kristinssyni. Síðan
fékk Geir Sveinsson, þjálfari og leikmaður Vals, sömu útreið fyr-
ir kröftug mótmæli. Hann gekk síðan út af vellinum og lét reiði
sfna í Ijós með því að sparka niður auglýsingaskilti. Þessi fram-
koma þjálfarans var honum til skammar og ekki til eftirbreytni.
Guðmundur Petersen tók vítakastið á lokasekúndunni og
tryf-rgði FH-ingum annað stigið með því að skora úr því af
öryggi, 21:21.