Morgunblaðið - 24.02.2000, Qupperneq 8
Lothar Mattháus fékk blómvönd fyrir landsleik Þjóðverja gegn
Hollendingum en hann iék sínn 144. landsleik, sem er heims-
met. Leikmaðurinn hafði hins vegar litla ástæðu til þess að
fagna í leikslok því Hollendingar unnu leikinn 2:1.
Hollending-
ar rákuaf
sér ámælið
Hollendingar ráku af sér
slyðruorðið er þeir unnu Þjóð-
verja 2:1 í Amsterdam í gær-
kvöld. Englendingar og Arg-
entínumenn gerðu markalaust
jafntefli á Wembley en leikur-
inn þótti fremur daufur.
Hollendingar unnu loks sigur í
landsleik er þeir lögðu Pjóð-
verja 2:1 en þeim hefur gengið afleit-
lega í undanfömum leikjum og höfðu
aðeins unnið einn leik undir stjóm
Frank Rijkaard þegar kom að leikn-
um í gær. Byrjun leiksins lofaði góðu
fyrir Hollendinga en Patrick Kluiv-
ert náði forystunni á 15. mínútu
leiksins. Christian Ziege náði að
jafna sjö mínútum síðar en Boud-
ewijn Zenden skoraði sigurmarkið á
28. mínútu fyrri hálfleiks.
Edgar Davis, fyrirliði hollenska
liðsins, og Clarence Seedorf vora
óstöðvandi á miðjunni og höfðu oft
betur gegn Jens Jeremies og Diet-
mar Hamann, miðjumönnum Þjóð-
verja. Hollendingar vora mun betri í
fyrri hálfleik og gátu gert út um leik-
inn en leikurinn var jafnari í þeim
síðari, þrátt fyrir að hvorugu liði
tækist að bæta við marki. Rijkaard
sagðist ánægður með leik sinna
manna, einkum fyrri hálfleikinn.
„Það var ánægjulegt að ná að komast
yflr á ný eftir að Þjóðverjar höfðu
náð að jafna leikinn. Við létum bolt-
ann ganga vel á milli okkar og gerð-
um einfalda hluti vel,“ sagði vígreifur
Rijkaard í leikslok. Erich Ribbeck,
þjálfari Þjóðverja, var ekki sáttur við
úrslitin og sagði að leikmenn sínir
þyrftu að gera mun betur í næsta leik
sem væri gegn Króötum í Zagreb.
„Við áttum varla tækifæri í fyrri hálf-
leik og voram yfirspilaðir. En við
náðum að leika betur í síðari hálfleik
og áttum nokkur góð tækifæri,"
sagði Ribbeck.
Heskey sprækur
í liði Englendinga
Englendingar og Argentínumenn
gerðu markalaust jafntefli í tilþrifa-
litlum leik á Wembley-leikvanginum.
Emelie Heskey, sem var í fyrsta
skipti í byrjunarliði Englendinga, var
einn besti leikmaður enska liðsins, en
hann fékk tvö tækifæri til þess að
skora, annað eftir sex mínútur en það
síðara kom undir lok fyrri hálfleiks.
Þá tókst Heskey að komst inn fyrir
vamarmenn Argentínumanna. Hann
hafði tækifæri til þess að skjóta að
marki en ákvað að gefa boltann fyrir.
Samherjar hans voru seinir til og
Argentínumenn komu boltanum í
burtu. Alan Shearer, fyrirliði Eng-
lendinga, átti hins vegar besta tæki-
færi liðsins en skallaði naumlega yfir
eftir fyrirgjöf frá Heskey. Shearer
Reuters
Jason Wilcox, leikmaður Englendinga, reynir að halda
Gabriel Batitstuta, leikmanni Argentínu, í skefjum.
fékk annað tækifæri eftir hom-
spymu frá David Beckham en bolt-
inn fór yfir markið. Beckham, sem
rekinn var af velli á HM í Frakklandi
fyrir að brjóta á Diego Simeone, lenti
á ný í baráttu við Argentínumanninn
og fékk fyrir vikið gult spjald. Kily
Gonzales átti besta færi gestanna en
David Seaman varði skot hans frá
marki. Argentínumenn áttu annað
tækifæri er Nelson Vivas fékk bolt-
ann frá Heman Crespo fyrir utan
vítateig en náði ekki að nýta tækifær-
ið. Bæði lið vora með sorgarbönd
vegna láts Stanley Matthews. Alan
Shearer, fyrirliði Englendinga, sagði
að liðið hefði átt sigur skilið, einkum
hefði það staðið sig vel í fyrri hálfleik
og fengið nokkur góð tækifæri.
Shearer sagði að hann hefði átt að fá
dæmda vítaspymu er brotið var á
honum inni í vítateig Argentínu, en
dómarinn var á annarri skoðun. Kev-
in Keegan, þjálfari Englendinga, var
á sömu skoðun og fyrirliðinn, Eng-
lendingar hefðu átt að vinna leikinn.
„Við eram vonsviknir að vinna ekki
leikinn því Argentínumenn sköpuðu
sér fá tækifæri." Keegan sagði að
Heskey hefði leikið best í enska lið-
inu og sagði að sér þætti leiðinlegt að
hann hefði þurft að hefja leikinn
vegna þess að leikmaðurinn þarf að
leika úrslitaleik með Leicester gegn
Tranmere í deildabikarkeppninni á
laugardag. „En Heskey sýndi að
hann á heima í þessu liði enda var
hann feikilega sterkur og er greini-
lega framtíðar landsliðsmaður."
■ LOTHAR Matthaus, leikmaður
þýska landsliðsins í knattspymu,
setti heimsmet í fjölda landsleikja er
hann lék sinn 144. landsleik þegar
Þjóðveijar mættu Hollendingum í
vináttulandsleik. Leikmaðurinn lék
sinn fyrsta landsleik gegn Hollend-
ingum á EM árið 1980 en þá var
hann 19 ára.
■ MATTHAUS átti einnig fyn-a
metið ásamt Thomasi Ravelli, fyrr-
verandi markverði Svíþjóðar. Maj-
ed Abdullah, Sádi-Arabíu, og Hoss-
am Hassan hjá Egyptum hafa leikið
140 landsleiki hvor og era í þriðja og
fjórða sæti. Þeir era báðir hættir
keppni en Suarez hjá Mexíkó, sem
hefui’ leikið 136 landsleiki, er enn að.
■ RICHARD Möller Nielsen hóf
feril sinn sem þjálfari ísraela vel er
lærisveinar hans mættu Rússum í
Haifa í gær. Heimamenn unnu 4:1
en þeir vora komnir í 3:0 eftir 35
mínútna leik.
■ JOHN Rohinson, leikmaður
Charlton, skoraði sigurmark Wales
í l:0-sigri gegn Qatar í Doha. Mark-
ið kom á 10. mínútu leiksins.
■ BRASILÍUMENN tóku Taílend-
inga í kennslustund í landsleik í
Bangkok í gær. Brasilíumenn unnu
7:0 en Rivaldo og Emerson Fer-
reira gerðu tvö hvor og Ronaldinho,
Roque Junior og Jardel gerðu eitt
mark hver.
■ NORÐMENN unnu Tyrki 2:0 í
vináttulandsleik í Istanbúl. John
Ame Riise og Roar Strand skoruðu
mörk Norðmanna.
■ ÍRAR gerðu sér lítið fyrir og unnu
Tékka 3:2 í Dublin. Ian Harte og
Robbie Keane gerðu mörk íra en
þriðja markið var sjálfsmark.
■ ALESSANDRO Del Piero skor-
aði úr vítaspymu 10 mínútum fyrir
leikslok er Italir unnu Svía 1:0 í Pal-
ermo. Gestirnir voru betri í fyrri
hálfleik en heimamenn náðu tökum
á leiknum í þeim síðari. Sigurinn á
Svíum hafði mikla þýðingu fyrir ít-
ala því þjóðimar eru í sama riðli í
EM í sumar.
■ FRANZ Wohlfahrt, markvörður
austurríska landsliðsins, varði víta-
spymu gegn Grikklandi en það kom
að litlum notum því Grikkir gerðu
tvö mörk undir lok leiksins og unnu
4:1.
■ ZINEDLNE Zidane skoraði eina
markið í leik Frakka og Pólveija í
París í gær. Zidane skoraði markið
er hann fylgdi eftir aukaspymu sem
hann tók sjálfur.
■ LÚXEMBORG náði að jafna leik-
inn, 1:1, gegn Norður-Irum með
marki frá Manuel Cardoni á 41.
mínútu en David Healy skoraði sitt
annað mark sjö mínútum síðar og
James Quinn gulltryggði sigur
Norður-íra.
■ BELGAR og PORTÚGALAR
skildu jafnir, 1:1, í tilþrifalitlum leik
í Charleroi með mörkum frá
Branko Strupar og Ricardo Sa
Pinto.
Sir Stanley Matthews allur
SIR STANLEY Matthews, einn merkasti knattspyrnumaður
sem Englendingar hafa alið, lést í gær, 85 ára að aldri. Matth-
ews, sem lék 54 landsieiki fyrir Englendinga, gekk til liðs við
Stoke 14 ára að aldri og skrifaði undir atvinnumannasamning
við félagið þremur árum síðar. Matthews lék 710 leiki í deilda-
keppninni fyrii’ Stoke og Blackpool, en hann gekk til liðs við
liðið árið 1947. Hann lék sinn síðasta landsleik 41 árs að aldri
en var goðsögn í knattspyrnuheiminum og eitt sinn valinn
knattspyrnumaður Evrópu. Matthews, sem þótti skæður á
hægri vængnum og sagður töframaður í að rekja knöttinn, var
aðlaður árið 1965 en þá lék hann sitt síðasta keppnistímabil, 50
ára að aldri. Matthews náði þrívegis að leika til úrslita í ensku
bikarkeppninni, var tvisvar í tapliði en í sigurliði Blackpool ár-
ið 1953. Reyndar benti fátt til þess að liðinu tækist að vinna
leikinn því það var 3:1 undir gegn Bolton þegar 20 mínútur
voru eftir. En þá tók Matthews til sinna ráða og átti þátt í
næstu þremur mörkum Blackpool sem tryggðu félaginu sigur.