Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 B 5
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Ásdís
Stálin stinn mættust að Hlíðarenda á sunnudagskvöld, þar sem Valsstúlkur knúðu f ram oddaleik við FH. Hér gætir Eivor Pála Blöndal þess að Sigrún Gilsdóttir nái ekki
skoti að marki Vals. Þær mætast aftur I Kaplakrika i kvöld.
Fáheyrðar
sviptingar
BIKARMEISTARAR Vals knúðu
fram oddaleik við FH í átta liða
úrslitum íslandsmóts kvenna
með fræknum sigri á Hafnfirð-
ingunum, 24:20, að Hlíðarenda
á sunnudagskvöld.
Edwin
Rögnvaldsson
skrífar
Framan af benti fátt, ef eitthvað, til
þess að liðin þyrftu að há loka-
uppgjör í Kaplakrika um sæti í und-
anúrslitum, því FH
hafði fímm marka
forystu, 16:11, er um
þriðjungur var lið-
inn af síðari hálfleik.
En gestimir lærðu að aldrei skal van-
meta bikarmeistara, jafnvel þótt þeir
hafi verið í sjöunda sæti deildar-
keppninnar er úrslitakeppnin hófst.
Fátt annað virtist í spilunum en að
þær rauðklæddu færu snemma í
sumarfrí, en það var nokkuð sem þær
sættu sig ekki við. Þær neituðu að
leggja upp laupana, breyttu um
vamaraðferð, sem ásamt öðru átti
þátt í að snúa taflinu við - svo um
munaði. Eftir að hafa verið fimm
mörkum undir lögðu Valsstúlkur
FH-inga að velli með fjögurra marka
mun. Ahorfendur að Hlíðarenda urðu
vitni að fáheyrðum sviptingum.
Leikmenn Vals vom ekki ýkja
sannfærandi í fyrri hálfleik, gerðu sig
eins og áður segir ekki líklega til að
fara með sigur af hólmi. Vaisstúlkur
vom í erfiðleikum með framliggjandi
vöm FH og sumar skottilraunir
þeirra vom ekki líkar tilburðum ríkj-
andi bikarmeistara. Um tíma leit út
fyrir að FH styngi af.
Þegar Drífa Skúladóttir gerði
sextánda mark FH og jók forskot
Hafnfirðinga í fimm mörk snemma í
síðari hálfleik ákvað Ágúst Jóhanns-
son, þjálfari Vals, að skipta um
varnaraðferð. Heimamenn fóm í
svokallaða 5+1-vörn. Fát kom á þær
hafnfirsku, sem lentu tvívegis í því að
vera einum leikmanni færri er Vals-
stúlkur gerðu áhlaup sitt. Fyrirliðinn
Brynja Steinsen skoraði með gegn-
umbroti og í kjölfarið fylgdu tvö
mörk Vals úr skyndiupphlaupum.
Hið síðara, sem Árna Grímsdóttir
skoraði, varð til með mikilli útsjónar-
semi Biynju. Hún var síðan enn á
ferðinni er hún fékk dæmt vítakast á
FH er tæpar tólf mínútur voru eftii-.
Ur því skoraði Sigurlaug Rúna Rún-
arsdóttir og jafnaði metin, 18:18.
Mark Sigurlaugar var hið fyrsta í
fimm marka hrinu hennar, en hún
gerði sex af síðustu sjö mörkum liðs-
ins - alls níu mörk í leiknum.
Sóknarleikur FH var hraninn og
til að bæta gráu ofan á svart vora
tveir lykilmenn FH teknir úr umferð,
þær Hrafnhildur Skúladóttir og Þór-
dís Brynjólfsdóttir, er gestirnir vora
leikmanni færri. Hrafnhildi auðnað-
ist þó að jafna aftur, 19:19, en hljóp
síðan á vegg í viðleitni sinni að halda
liði sínu á floti - Berglind íris Hans-
dóttir varði frá henni í dauðafærí á
tilkomumikinn hátt. Hefði Hrafn-
hildur komist á bragðið þar skal
ósagt látið hver framvinda mála hefði
orðið. En uppúr stendur að FH gerði
tvö mörk úr síðustu tólf sóknum sín-
um.
Ólíklegt er að hið sama verði uppi á
teningnum í Kaplakrika í kvöld, þeg-
ar liðin leika til þrautar um sæti í
undanúrslitum. Þar verður barist til
síðasta blóðdropa. Hvort lið um sig
hefur haldið sínu á heimavelli, þótt
bæði hafi þau farið óhefðbundnar
leiðir til þess. Ljóst er að eitthvað
verður undan að láta, en það verður
ekki baráttulaust.
Brynja Steinsen gefurtóninn fyrir oddaleik FH og Vals
Barátta uppálíf og
dauða í Kaplakrika
BRYNJA Steinsen, fyrirliði Vals, kvaðst hafa verið þess fullviss að
liði sínu tækist að fara með sigur af hólmi að Hlíðarenda á sunnu-
dag - jafnvel þótt það hefði lengstum átt við ramman reip að
draga og munurinn hefði verið mikiil.
Mér leið bara þannig allan tím-
ann. í hálfleik var talað um
að við væram of æstar og eitthvað
því um líkt, en ég hef aldrei verið
afslöppuð um ævina. Eg vissi bara
að við áttum að vinna þennan leik,“
sagði Brynja.
„Við breyttum um vörn og það
sló þær bara út af laginu. Þær
höfðu líka á bak við eyrað að þær
áttu einn aukaleik inni. Það var
annaðhvort að standa sig þessar
síðustu þrjátíu mínútur, annars
hefði tímabilið verið á enda. Við
ætlum að taka þennan titil,“ sagði
fyrirliðinn.
Brynja sagði að liðið hefði einsett
sér að gera ekki sömu mistökin og
það gerði í fyrri leik liðanna í
SÚKNARNÝTING
Annar leikur liðanna í 8 liða úrslitum,
leikinn í Reykjavík 12. mars 2000
Valur FH
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
8 16 24 21 26 47 38 F.h 11 62 S.h 9 51 Alls 20 21 52 27 33 48 42
3 Langskot 2
5 Gegnumbrot 4
4 Hraðaupphlaup 2
4 Horn 4
3 Lína 1
5 Víti 7
Kaplakrika á föstudagskvöld, þegar
Valur glataði tvegga marka forystu
undir lok hefðbundins leiktíma og
tapaði síðan í framlengingu.
„Við klúðruðum þessu í síðasta
leik og við vissum alveg hvað við
áttum ekki að gera í þessum leik.
Enda sást það í lokin að við reynd-
um að skjóta í mjög öruggum fær-
um og komast hægt og bítandi inn í
leikinn.“
Brynja átti einnig erfitt með að
lýsa hugsanlegum viðbrögðum sín-
um ef liðið hefði tapað fyrir FH á
sunnudag, datt einna helst í hug að
allt liðið færi hreinlega yfir um á
vitsmunum. „Það var eins gott að
þetta hafðist,“ sagði hún.
Um oddaleikinn, sem fram fer í
kvöld, sagði Brynja: „Þetta verður
bara upp á líf og dauða. Það kæmi
mér ekkert á óvart þótt nokkrar
færa þaðan með sjúkrabíl.“
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka
Heppnin var
með Víkingum
„HEPPNIN var með Víkingum í
þessum leik því allt féll þeim í
skaut. Þær tóku okkur mikið úr
umferð og við náðum ekki að
vinna okkur úr vandanum. Það
er heldur ekki möguleiki að
vinna leik með þeirri dómgæslu
sem við urðum vitni að í dag,“
sagði Harpa Melsted fyrirliði
Hauka.
„Ég er mjög ósátt við dómar-
ana. Það að láta unga dómara
dæma jafn mikilvægan leik og
þennan gengur ekki upp. Þeir
höfðu engin tök á leiknum. Það
var nóg fyrir Víkinga að kvarta
til þess að fá sínu framgengt.
Sem dæmi fengu Víkingar ara-
grúa af vítum en við fengum að-
eins eitt víti og fórum oftar út
af. Þá dæmdu þeir fjórum sinn-
um af okkur mark.“ Harpa sagði
að Haukum hefði ekki gengið
nægilega vel í vetur en að liðið
hefði náð sér lítillega á strik eft-
ir þjálfaraskipti. „Við fundum að
liðið gat vel unnið deildarmeist-
ara Víkinga, sem era ekki með
besta liðið í deildinni að mínu
mati. Mér finnst mörg önnur lið
geta unnið Víkinga enda sýnd-
um við að þrátt fyrir að lenda í
áttunda sæti vorum við nálægt
sigri.“