Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 B 7
HANDKNATTLEIKUR
+
Afturelding
varði deildar-
meistaratitilinn
Hart barist að Varmá er Afturelding og Fram mættust. Oleg Titov og Robertaz Pauzoulis reyna að
stöðva leikstjórnanda Aftureldingar, Savukynas Gintaras, sem er að reyna að koma knettinum
inn á línuna til Magnúsar Más Þórðarsonar.
AFTURELDING tryggði sér deildarmeistaratitilinn annað árið í
röð er liðið lagði Fram, 23:21 í uppgjöri tveggja bestu liða lands-
ins um þessar mundir að Varmá á sunnudag. Þetta er í þriðja sinn
á sl. fjórum árum sem Afturelding verður deildarmeistari, þar af
annað árið í röð undir stjórn Skúla Gunnsteinssonar, þjálfara.
Tapið þýðir hins vegar fyrir Fram að nú tekur við harður slagur
hjá liðinu við að tryggja sér annað sæti í deildinni í keppni við KA,
eins og staða mála er nú þegar einungis tvær umferðir eru eftir.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Eins og oft áður á leiktíðinni var
það sterk vörn Mosfellinga og
traust markvarsla Bergsveins
Bergsveinssonar
sem lagði grunninn
að sigrinum á
ákveðnum leik-
mönnum Fram,
sem lögðu sig alla í leikinn. Þá
fögnuðu heimamenn einnig endur-
komu Bjarka Sigurðssonar í lið
Aftureldingar, en hann hefur nær
ekkert verið með síðan fyrir
tveggja mánaða vetrarleyfið.
I leikhléi munaði einu marki á
liðunum, 11:10, heimamönnum í vil.
Afturelding hóf leikinn í sókn
gegn 5-1 vörn Fram-liðsins þar
sem Björgvin Björgvinsson lék
fremstur og reyndi eftir megni að
slá Savukynas Gintaras út af lag-
inu. Það tókst nú ekki betur en svo
að Gintaras skoraði fyrsta mark
leiksins. Að vanda lék UMFA 6-0
vörn frá upphafi til enda með ör-
litlum undantekningum. Sama var
með Fram-liðið, það hélt sig nærri
því við sömu vörn frá upphafi til
enda.
Greinilegt var að Fram ætlaði að
koma Aftureldingu á óvart með því
að byrja með Vilhelm Sigurðsson í
hlutverki leikstjórnanda og nafna
hans Bergsveinsson í skyttuhlut-
verki hægra megin. Þessi uppstill-
ing lánaðist hins vegar ekki sem
skyldi og fljótlega var Guðmundur
Helgi Pálsson kominn í stað Vil-
helms Sigurðssonar og Fram-liðið
farið að leika 4-2 í sókninni, þ.e.
Guðmundur fór inn í línuhlutverkið
með Róberti Gunnarssyni og fjórir
leikmenn létu knöttinn ganga fyrir
utan. Þá kom um líkt leyti Rober-
tas Pauozoulis til sögunnar í stað
Vilhelms Bergsveinssonar. Þannig
var Fram-liðið mun öflugra og
mætti mótspyrnu Aftureldingar af
fullum þunga, enda þráðu bæði lið
sigur.
Varnir beggja liða voru sterkar í
fyrri hálfleik og markverðirnir,
Bergsveinn hjá UMFA og Sebast-
ian Alexandersson í marki Fram
voru með á nótunum. Mikið mæddi
á Gintaras og Gaulkaskas Gintas í
sóknarleik UMFA en þegar tæpar
sex mínútur voru til leikhlés kom
Bjarki til sögunnar og færðist þá
meiri ógn yfir sóknarleik heima-
manna.
Annars þróaðist leikurinn í fyrri
hálfleik eins við mátti búast. Það
var nærri jafnt á öllum tölum, en
frumkvæðið var frekar hjá heima-
mönnum sem fjórum sinnum náðu
tveggja marka forskoti, en meiri
varð munurinn aldrei. Fram jafn-
aði jafnharðan og úr varð hörku-
leikur tveggja skemmtilegra liða,
leikur sem var heiðarlega leikinn
þrátt fyrir nokkur átök, enda ekki
að undra því deildarmeistaratitil-
inn var í húfi. Staðan í leikhléi var
11:10, lIMFAívil.
I síðari hálfleik hélt sama bar-
áttan áfram. Liðin léku líkt og í
þeim fyrri og svo virtist sem
Fram-liðið hefði komið aðeins
sprækara til leiks. Það náði forystu
13:12, og síðar 16:15 og 17:16. Þá
fóru veikleikar Fram að gera vart
við sig, UMFA lék af þolinmæði í
sókninni eftir nokkurn flumbrug-
ang á kafla. Með bættum sóknar-
leik var komið í veg fyrir hraða-
upphlaup Fram og þar með helsta
vopn þess gert óvirkt. Sebastian
markvörður komst heldur ekki á
sama skrið í síðari hálfleik og í
þeim fyrri og munar um minna.
Ákveðin kaflaskipti urðu í leikn-
um þegar Oleg Titiov var rekinn af
leikvelli í 2 mínútur þegar þegar
10,18 mínútur voru eftir og Aftur-
elding var marki yfir. Þegar Fram-
arar voru með fullskipað lið að
nýju hafði UMFA lánast að bæta
við tveimur mörkum og ná þriggja
marka forskoti, 21:18. Slíkt forskot
missti leikreynt lið Mosfellinga
ekki niður. Fram minnkaði muninn
í eitt mark, 21:20, en lengra komst
það ekki og heimamenn juku kraft-
inn á lokakaflanum.
Sem fyrr segir var sterk vörn og
framúrskarandi frammistaða
Bergsveins í markinu aðal Mosfell-
inga. Vörnin er lítt árennileg með
Alexei Trúfan, Gintas, Einar
Gunnar Sigurðsson og Magnús Má
Þórðarson, allt hávaxna og sterka
leikmenn og Bergsvein í feikna-
stuði á bak við. Liðið lék vel sem
heild bæði í vörn og sókn, þótt
ekki megi gleyma góðum leik Gint-
aras í sókninni. Hann er maður
sem aldrei má líta af, hann hefur
fjölbreyttan og skemmtilegan skot-
stíl og einstakt auga fyrir sending-
um á línuna í horninu. Þá gerði
hann sjö mörk, hvert öðru fallegra.
Lengst af leik virtist sem Fram
væri heldur skrefinu á eftir, vant-
aði meiri trú og vilja. Sterkir leik-
menn, s.s. Björgvin Þór Björgvins-
son og Njörður Arnason voru lítt
áberandi í sókninni, Njörður þó
sýnu minna en Björgvin. Gunnar
Berg átti góðar rispur og Pauzoul-
is byrjaði vel, en þegar á leið hafði
Bergsveinn náð á honum taki.
Víkingar fallnir
VÍKINGAR skoruðu fimm síðustu mörkin í leik sínum við
Stjörnuna í Víkinni á sunnudagskvöld og fengu meira að segja
færi á að knýja fram sigur sex sekúndum fyrir leikslok, en
Birkir ívar Guðmundsson varði frá Sigurbirni Narfasyni. Nið-
urstaðan varð jafntefli, 22:22, og Víkingar féllu í 2. deild. Sig-
ur hefði engu breytt um þá staðreynd, því ÍR-ingar, keppi-
nautar Víkinga í fallbaráttunni, tryggðu sér áframhaldandi
þátttöku í efstu deild með naumum sigri á Val.
Við kláruðum ekki dæmið. Við
höfum tekið stig í níu leikjum af
tuttugu. Með smáheppni hefðum við
enn getað verið með.
En þetta er niður-
staðan og það er ekk-
ert við henni að
gera,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, þjálfari Vík-
Edwin
Rögnvaldsson
skrífar
Þorbergur leggur til
fjölgun í efstu deild
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, þjálfari Víkinga sem féllu í 2.
deild eftir jafntefli við Stjörnuna á sunnudagskvöld, lagði í
leikslok til að fjölgað yrði í efstu deild. Máli sínu til stuðnings
benti hann á litla keppni f 2. deild og að liðin, sem þar tækju
þátt í fyllstu alvöru, væru sárafá. „Það hlýtur að boða nafla-
skoðun fyrir Handknattleikssambandið að það verða nær eng-
in lið í annarri deild á næsta ári, í mesta lagi þijú eða fjögur.
Það er því spuming hvort það þurfi að fjölga í fyrstu deild-
inni. Það er fyrirsjáanlegt að það verði kannski aðeins fjögnr
lið sem taka þátt. Þetta stefnir í það sama og í kvennaboltan-
um, að það verði bara ein deild. Eg held að menn vilji halda í
þessi fáu lið, sem vilja gera þetta af alvöru, sem verða í ann-
arri deild á næsta ári. Nú er lag að taka skrefíð strax og hafa
bara eina störa úrvalsdeild. Hún verður hvort eð er að vera-
leika ári síðar eða árið þar á eftir,“ segir Þorbergur.
inga. „Við ætluðum bara að hanga í
deildinni. Það var ekkert öðruvísi.
Það er í sjálfu sér ekki hægt að
taka neitt eitt út. Það er kannski
fyrst og fremst reynsluleysi liðsins.
Við fórum fullseint í gang. Eins og
ég sagði áðan erum við búnir að taka
stig í níu leikjum, þar af eru sex
jafntefli. Hefðu einhver þeirra fallið
okkar megin er aldrei að vita hvern-
ig staðan væri nú, en til þess hefði
þurft smáheppni," sagði Þorbergur.
Stjarnan hafði lengstum yfir-
höndina í Víkinni á sunnudag. Þótt
mjótt væri á mununum á stundum
virtust Víkingar ávallt þurfa að hafa
meira fyrir hlutunum en gestir
þeirra úr Garðabæ. Eftir að hafa
jafnað metin, 10:10, seint í fyrri hálf-
leik, náði Stjarnan góðum leikkafla
og hafði náð fimm marka forskoti í
leikhléi, 15:10.
Styrkleikamunur liðanna var
áberandi í fyrri hálfleik. Víkingum
stóð ógn af fjölbreyttum vopnum
andstæðinga sinna. Sérstaklega var
Rússinn Eduard Moskalenko virkur
í sóknarleik Stjörnunnar, var sann-
kölluð þungamiðja sóknarinnar.
Hann aðstoðaði samherja sína um
leið og hann opnaði sjálfum sér
skotfæri með krafti sínum, útsjón-
arsemi og þrautseigju.
Ekki er ólíklegt að Stjörnumenn
eigi eftir að naga sig í handabökin
vegna þessa leiks er lokastaðan
verður kunngjörð. Þeim tókst engan
veginn að mæta aukinni löngun Vík-
inga í sigur er á leið. Heimamönnum
var mikið í mun að knýja fram sigur,
héldu í vonina um að þeir gætu enn
tryggt sér úrslitaleik við ÍR-inga
um áframhaldandi þátttöku í deild-
inni.
Eftir að Þröstur Helgason, öflug-
ur sóknarmaður Víkinga, hafði
minnkað muninn í fjögur mörk,
22:18, tókst heimamönnum í tvígang
að vinna boltann - manni færri - og
skora jafnharðan úr hraðaupp-
hlaupi. Stjömumenn gerðust þar
sekir um afdrifarík mistök... og ekki
tókst þeim að bæta fyrir næstu
skipti sem þeir fengu boltann.
Raunar staðnæmdust síðbúnar
skottilraunir gestanna á útlimum
Hlyns Morthens, markvarðar Vík-
ings, sem lék ljómandi vel og varði
nítján skot - þar af þrjú vítaköst.
Þröstur gerði síðan síðustu tvö
mörk Víkinga og jafnaði metin,
22:22, þegar um fjörutíu sekúndur
lifðu leiks. Einar Einarsson braust
síðan í gegnum vörn Víkinga, en
hitti þar fyrir Hlyn, sem varði. Það
var áður en Birkir ívar lék sama
leikinn í marki Stjörnunnar og Sig-
urbjörn Narfason sat eftir með sárt
ennið, en skömmu síðar bárust upp-
lýsingar þess efnis að ÍR-ingar
hefðu hvort eð er sigrað í Austur-
bergi. Lokatölur þessa leiks voru
því ekki jafn örlagaríkar og talið var
í fyrstu, heldur lyktir allra leikjanna
til samans sem Þorbergur vísar til -
sex jafntefli í þeim níu leikjum sem
Víkingar hafa fengið stig úr.
daginn fyrir leik
BJARKI Sigurðsson kom inn á í fyrsta
sinn þegar 23,30 mínútur voru liðnar
af leiknum við Fram og var þetta svo
gott sem í fyrsta skipti sem hann leik-
ur með UMFA eftir áramót. Að vísu
kom hann aðeins við sögu gegn ÍBV
snemma í febrúar, en það var meira að
nafninu til að sögn Bjarka og þá aðal-
lega til þess að taka vítaköst.
Réttum þremur mínútum eftir að
Bjarki kom fyrst inn á gegn Fram átti
hann sitt fyrsta markskot, en Sebast-
ían Alexandersson, markvörður Fram,
varði það. Bjarki náði þó að skora úr
vítakasti áður en flautað var til leik-
hlés.
„Það er gaman að vera kominn á
fullt á ný,“ sagði Bjarki. „Ég er ekki
orðinn jafn sterkur og áður, til dæmis
stökk ég í fyrsta sinn á æfingu í gær
(laugardag), daginn fyrir leik. Það er
kannski þess vegna sem ég stökk ekki
mikið upp í leiknum. Þess í stað reyndi
ég að leika félaga mína uppi, það er jú
það sem gildir í hópíþrótt. Það kemur
alltaf maður í manns stað, eins og þeg-
ar ég meiddist kom Þorkell Guðbran-
dsson í minn stað og hefur staðið sig
með prýði.“
Bjarki Sigurðsson eftir sigurinn á Fram
Betra liðið vann
„BETRA liðið vann, ég held að
enginn vafi hafi leikið á því,“
sagði Bjarki Sigurðsson, fyrir-
liði Aftureldingar, eftir sigur á
Fram að Varmá.
Jjarki lék nú með Aftureldingu
á nýjan leik eftir langvarandi
meiðsli. „Vörnin var mjög góð og
Bergsveinn Bergsveinsson var að
verja í samræmi við það. Megin-
munurinn á liðunum held ég að
hafí legið í þessu atriði.
Annars fannst mér strax í upp-
hafi leiks sem við myndum vinna,
við vorum einbeittari og ákveðnari.
Fram-liðið er hins vegar mjög
gott, gegn því má aldrei slaka á.
Vörn þess hefur verið sterk í vetur
og hún hefur lagt grunninn að
mörgum sigrum liðsins í vetur.
Sterk vörn og hraðaupphlaup og
því lögðum við höfuðáherslu á að
leika agað í sókninni og gefa þeim
engin óþarfa hraðaupphaup. Ég tel
að við höfum náð að slá vopnin
verulega úr höndum þeirra. Fyrst
og fremst var þetta leikur tveggja
sterkra liða.“
Bjarki segir það vera kærkomið
að tryggja sér deildarmeistaratitil-
inn tveimur umferðum áður en
mótinu lýkur og þurfa ekki að vera
í einhverju basli í lokaleikjunum.
Framundan sé erfiður leikur í
næstu umferð gegn Stjörnunni
sem ekki hafi gengið alltof vel upp
á síðkastið og loks sé heimaleikur
við Fylki. „Við vorum staðráðnir í
að innsigla deildarmeistaratitilinn
að þessu sinni,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson, fyrirliði UMFA.
Mosfellingar vinna
ekki fleiri titla
„Við lékum fyrst og fremst
óskynsamlega í þessum leik, á því
féllum við,“ sagði Sebastian Al-
Fram var synjað um frestun
Fram óskaði eftir því við mótanefnd
HSÍ að leik liðsins við Aftureld-
ingu yrði frestað um að minnsta kosti
einn dag. Astæðan var sú að þrír leik-
menn liðsins komu síðdegis á laugar-
daginn til landsins frá Svíþjóð þar sem
þeir léku með íslenska landsliðinu í
tveimur vináttulandsleikjum.
„Okkur var synjað um frestunina á
þeim forsendum að allir leikir í þrem-
ur síðustu umferðunum yrðu að fara
fram á sama tíma,“ sagði Sebastían
Alexandersson, fyrirliði Fram. „Síðan
var einum leik í kvöld frestað vegna
veðurs en aðrir leikir voru spilaðir.
Þar með virtist engin þörf vera á að
allir leikirnir færu fram á sama tíma.
Af hverju fengum við synjun á þessum
forsendum úr því að það er ekki heil-
agra en raun ber vitni að öll umferðin
sé leikin á sama tíma? Það skil ég
ekki,“ sagði Sebastian ennfremur og
var heldur þungur á brún.
exandersson, markvörður og fyrir-
liði Fram. „Okkur tókst aldrei að
ná upp okkar rétta Fram-spili. Þá
var vörn UMFA firnasterk og
Bergsveinn varði þar af leiðandi
mjög vel.
Það var eins það vantaði meiri
ró yfir leik okkar og vörnin var
heldur ekki eins sterk í síðari hálf-
leik og í þeim fyrri, þaraf leiðandi
fengu leikmenn Aftureldingar
mörg þægileg marktækifæri. Þá
gekk mér illa að eiga við Bjarka,
hann skoraði úr sex vítaköstum,
þar af fimm í síðari hálfleik. Hann
er bara svo erfiður á vítapunktin-
um,“ sagði Sebastían og var allt
annað en sáttur enda þekktur fyrir
að verja mörg vítaköst á undan-
förnum árum. Hann sagði þó já-
kvætt hversu vel sér hefði gengið
að verjast skotum úr hornum og af
línu, en það hefði ekki dugað til.
„Ur því að þessi leikur tapaðist
þá þýðir ekkert annað en halda
áfram af krafti og tryggja sér ann-
að sætið í deildinni. Baráttan held-
ur áfram þótt vissulega hefði verið
gaman að vinna Aftureldingu að
þessu sinni og sjá þá undir pressu
í lokaumferðunum, en af því verð-
ur ekki að þessu sinni.
Afturelding hefur nú unnið einn
titil, en við ætlum ekki að slaka á,
heldur sjá til þess að Mosfellingar
vinni ekki fleiri titla á leiktíðinni,"
sagði Sebastian Alexandersson,
fyiárliði Fram.
+
Halldór ristarbrotnaði
HALLDÓR Sigfússon, leiksljórnandi KA í handknattleik, rist-
arbrotnaði á æfingu á laugardag og verður líklega ekki meira
með á leiktímabilinu. Halldór, sem er 22 ára, missteig sig illa á
æfingu og við rannsókn kom í (jós að hann er ristarbrotinn.
Halldót gat því ekki leikið með KA, sem lagði Hauka 30:24 á
sunnudag.
Haukar
steinlágu
KA-menn hafa nú sett í fluggírinn eftir nokkurn hiksta að undan-
förnu og hyggjast veita Frömurum keppni í baráttunni um 2. sæti
í deildinni. Þeirtóku Hauka í bakaríið i KA-heimilinu sl. sunnu-
dagskvöld og gerðu út um leikinn með ótrúlegum tilþrifum í fyrri
hálfleik þar sem niðurstaðan varð 17:10. Haukar hafa oftlega
spilað liða best í vetur en þeir komust ekkert áfram gegn sterkri
vörn KAog heimamenn sigruðu með yfirburðum, 20:24.
Leikur KA var nánast óaðfinnan-
legur í fyrri hálfleik. Góð mark-
varsla, sterk vörn, fjölbreyttur sókn-
mmUjl arleikur, enginn
Stefán Þór brottrekstur og smit-
Sæmundsson andi leikgleði. Já,
skrifar þeir norðanpiltar
hafa trauðla verið
jafn brosmildir um langt skeið og
skilaði það drjúgum árangri. Sér-
staklega var mikil kæti í kringum
hina nýju vítaskyttu liðsins, vamar-
tröllið Þorvald Þorvaldsson, sem
skoraði úr sínum 6 vítaskotum í leikn-
um og stóð uppi sem markahæsti
maður liðsins.
Sóknir Hauka strönduðu lengi vel
á vörn KA þar sem Jónatan Magnús-
son lék fremstur, óhemju duglegur
og sprækur án þess að vera grófur.
Magnús Magnússon og Heimir Áma-
son gengu vel út á móti skyttum
Hauka og KA-menn vom komnir
með fimm marka forystu eftir 11 mín-
útna leik, 7:2. Og sóknarleikurinn
gekk sömuleiðis vel hjá liðinu og kom
ekki að sök þótt Halldór Sigfússon
væri meiddur og Bo Stage farinn.
Erlingur Kristjánsson leysti Jónatan
af í vöminni þegar á leið og ekki stóð
sá gamli sig síður en pilturinn. Ungu
strákarnir, Jónatan, Heimir og Guð-
jón Valur, léku á als oddi í sókninni og
munurinn í hléi var sjö mörk, 17:10.
Nú vora góð ráð dýr hjá Haukum
og þau fundust ekki í seinni hálfleik.
Þeir prófuðu tvo markverði í fyrri
hálfeik og settu nú traust sitt á þann
þriðja. Þegar ekkert gekk að minnka
forskotið fóm þeir að taka Heimi
nánast úr umferð og síðan tvo menn í
lokin en munurinn á liðunum varð þó
aldrei minni en fimm mörk því allt
gekk upp hjá KA og sigur liðsins
aldrei í hættu.
Haukar náðu aldrei sínu hraða og
markvissa spili og það vom helst
Óskar Armannsson og Halldór Ing-
ólfsson sem fundu glufur í KA-vöm-
inni. Markvarslan var höfuðverkur
og vörnin slök. Breiddin var til staðar
hjá KA að þessu sinni. Reynir var
þriggja manna maki í maridnu, a.m.k.
varði hann fleiri skot en þrír mark-
verðir Hauka. Vömin sérlega lifandi
og traust og sóknarleikurinn skæður;
Jónatan, Heimir, Guðjón Valur og
Magnús allir að sýna sitt besta að
ógleymdum Þorvaldi á vítalínunni.
„Já, þetta var frábært,“ sagði Þor-
valdur eftir leikinn. „Við fómm í vita-
keppni á laugardagsæfingunni og ég
vann og fékk þess vegna að taka vítin
í kvöld,“ sagði hann og geislaði af
sjálfstrausti og léttleika eins og aðrir
liðsmenn KA í þessum leik.
Breiðhyltingar
halda í vonina
að var að duga eða drepast fyrir
ÍR-inga í leik þeirra gegn Vals-
mönnum í Austurbergi á sunnudags-
kvöldið. Aðeins með
Stefán Sigri gátU heima-
Pálsson menn haldið í vonina
skrifar um að komast í úr-
slitakeppnina, en á
sama hátt hefðu Valsmenn með sigri
nánast tryggt sér sæti meðal hinna
átta efstu. Eftir hörkuspennandi
leik, þar sem jafnt var á flestum töl-
um, tókst Breiðhyltingum að stela
báðum stigunum eftir að Þórir Sig-
mundsson skoraði úrslitamarkið úr
afleitu færi þegar þrjár sekúndur
voru eftir á leikklukkunni; 21:20.
í fyrri hálfleik vom Valsmenn
sterkara liðið og náðu mest þriggja
marka forystu. Munaði þar mest um
Markús Mána Mikaelsson sem átti
góðan leik. Ekki tókst gestunum þó
að stinga heimamenn af á þessum
leikkafla og skildi aðeins eitt mark
liðin í leikhléi; 9:10.
I síðari hálfleik hresstust IR-ing-
ar til muna og þá sérstaklega Ragn-
ar Óskarsson og Hrafn Margeirsson,
sem að öðram ólöstuðum vora lang-
bestu menn vallarins. Hrafn varði
átján skot í leiknum, þar af tíu í síð-
ari hálfleik og Ragnar tók af skarið á
mikilvægum augnablikum í sókn-
inni. Var það þeim mun mikilvægara
þar sem mikið agaleysi var ríkjandi í
sóknarleik ÍR og allt of mikið um
ótímabær markskot. Þannig er und-
arlegt að sjá jafn reyndan hand-
knattleiksmann og Jón Kristjánsson
reyna fjögur misheppnuð skot í einni
og sömu sókninni. Á sama tíma virt-
ist nokkuð af hinum rauðklæddu
dregið. Skipti þar kannski máli að
þeir höfðu ekki nema tólf menn á
leikskýrslu og þurftu því að keyra
allan leikinn á einungis tíu útileik-
mönnum.
Þegar tæpar tvær mínútur voru til
leiksloka áttu Valsmenn kost á að ná
forystu, en þá dæmdu þeir Guðjón L.
Sigurðsson og Ólafur Örn Haralds-
son vítakast á varnarmann IR. Vítið
fór í súginn og heimamenn blésu til
sóknar. Það sem eftir leið leiks
reyndu Breiðhyltingar linnulaust að
brjóta sér leið í gegnum vörn Vals-
manna, en uppskára ekki annað en
aukaköst. Á lokasekúndunum misstu
varnarmenn gestanna hins vegar
einbeitinguna og Þórir Sigmundsson
náði að skjótast inn úr horninu og
tryggja liði sínu dýrmætan sigur.
Valsmenn brugðust ókvæða við -
úrslitunum og létu skammirnar
dynja á dómuranum í leikslok. Var
þar ekki aðeins um að ræða von-
svikna áhorfendur, heldur einnig
aðstandendur liðsins. Virðast slík
viðbrögð vera fastur liður í hvert
sinn er Hlíðarendaliðið tapar og er
framkoma þessi mikill ljóður á ráði
þeirra sem hlut eiga að máli.