Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 12
■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i mm Bræður á verðlaunapalli í Melbourne - Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello og bræðumir Michael og Ralf Schumacher. Líkja vélarhljóðum Ferrari við hljóm- kviðu eftir Verdi ' Óhætt er að segja að upphaf keppnistíðarinnar í Formúlu 1 hafi verið tíðindasamt og Ferrari-liðið fagnaði tvöföldum sigri í upp- hafsmóti ársins í fyrsta sinn í 37 ár, eða frá því Alberto Ascari og Luigi Villoresi komu fyrstir í mark í Argentínukappakstrinum 1953. Silfurgráir bílar McLaren hófu keppni fremstir á rásmarki og brugðu mun betur við en skarlatsrauðir Ferrari-bílarnir. Mika Hákkinen og David Coulthard virtust ætla að sýna yfirburði en ekki leið á löngu þar til vélarbilanir bundu enda á þátttöku þeirra. Og þegar „þriðja aflið, bílar Jordan, féllu einnig úr leik var gatan Ferrari-bílunum greið. Fagnaði Michael Schumacher sínum fyrsta sigri á ástralskri foldu en þetta var 10. mót hans í Formúlu 1 þar í landi. Italskir fjölmiðlar, sem ýmist hampa Ferrari eða hraksmána, allt eftir því hvernig gengur, fóru hamförum af fögnuði Efíjr í dag og sögðu óm- Ágúst fagra tóna Ferrari- Ásgeirsson vélarinnar hafa hljómað eins og tón- verk eftir Verdi í loftinu yfir Mel- boume. Ekki fæst úr því skorið fyrr en í fyrsta lagi í næsta móti hvort nýi Ferrari-bíllinn sé jafnsterkur McLaren-bflunum þar sem Coult- hard féll úr leik eftir 11 hringi vegna vélarbilunar og bíll Hákkinens entist aðeins 18 hringi af 58. Coulthard taldi að hitinn sem myndast við takmarkaða kælingu mótorsins er ökuþórarnir urðu að fylgja öryggis- 'oíl í þrjá hringi hefði átt sinn þátt í vandræðum þeirra Hákkinens. Schumacher var í hálfgerðu upp- námi eftir sigurinn svo ákaft fagnaði hann og faðmaði yngri bróður sinn, Ralf, sem varð óvænt þriðji á BMW- knúnum Williams-bfl sem ekki var búist við miklu af framan af vertíð- inni. Og ekki vantaði yfirlýsingarnar af hálfu sigurvegarans. „Ég leyfði Mika [Hákkinen] að hrósa sigri yfir því að hafa unnið ráspól því ég vissi að ég myndi hrósa sigri í kappakstr- inum,“ sagði hann. „Bíllinn er hrað- skreiður og traustur, það höfum við sannað og það er bjart framundan hjá Ferrari. Um leið og ég settist í bílinn í fyrsta sinn var ég viss um að ég bæti barist um heimsmeistaratit- ilinn frá fyrsta móti. Ég var nokkuð vonsvikinn með að McLaren-bflarnir urðu að hætta því ég hefði kosið að keppa við þá til loka svo ég gæti sýnt þeim hvers við erum megnugir," bætti Schumacher við. Schumacher kom af stað nokkurs konar sálfræðistríði við McLaren. Sagðist hafa haft kappaksturinn í hendi sér þótt hann hefði verið á eft- ir McLaren-bflunum framan af og einungis beðið þjónustuhléanna til að skjótast fram úr. Ron Dennis, að- alstjórnandi McLaren, svaraði þessu og sagði að Schumacher væri í leiðslu ef hann teldi sigur sinn að þakka frábærum akstri. McLaren- bflarnir hefðu ráðið ferðinni og verið byrjaðir að slá af og gera áætlanir um leiðir til að spara eldsneyti en samt haldið áfram að breikka bilið sem var í Schumacher. „Við vitum vel að það varð honum mikið áfall að vinna ekki ráspól og allt sem hann segir er algjört þvaður, sagði Dennis og bætti við að ljóst væri hvers eðlis vélarbilunin væri og myndi liðið mæta fullt sjálfstrausts til leiks í Brasiliu eftir tvær vikur. Heinz-Harald Frentzen og Jarno Trulli sýndu með góðum akstri að þeir geta ógnað bæði McLaren og Fen-ari á árinu, svo miklu betri virð- ist Jordan-bfllinn í ár og á ugglaust eftir að batna. Frentzen leiddi keppnina nokkra hringi áður en þrýstivökvakerfi gírkassans gaf sig. Tapaði hann reyndar forystunni er eldsneytisslanga festist í tankopinu í eina ráðgerða bensínstoppi hans. Hætti hann keppni á 39. hring og Trulli var í fremstu röð er vélarbilun stöðvaði framrás hans. Frumraun Jagúar-liðsins í For- múlu 1 varði ekki nema í tæpt kortér þar sem bflanir héldu áfram að elta Johnny Herbert sem varð að hætta á fyrsta hring og Eddie Irvine snarsn- eri sínum bfl út af fimm hringjum seinna er hann var að reyna að kom- ast hjá árekstri við Arrows-bfl Pedro de la Rosa sem klesti á vegg. Mikill fögnuður var í herbúðum BAR eftir kappaksturinn í Mel- bourne yfir góðri frammistöðu Jacques Villeneuve sem varð fjórði og vann þar með fyrstu stig liðsins í Formúlu 1. Ánægja var og með sjöunda sæti Ricardo Zonta en ekki minnkaði' fögnuðurinn er hann var hækkaður upp í sjötta og síðasta stigasætið er Mika Salo hjá Sauber var dæmdur úr leik. ,A-ð vera eina liðið auk Ferrari til að koma báðum bílunum í mark er dásamleg niðurs- taða,“ sagði Craig Pollock, stjórn- andi BAR. „Og að vinna stig strax í fyrsta móti er frábært," bætti hann við. BAR var eina liðið sem vann ekki stig í fyrra, á jómfrúrári þess í Formúlu 1. Má segja að liðið hafí bætt fyrir það í Melbourne og all- avega eru vonbrigði síðasta árs gleymd í herbúðum BAR. Loks var almenn ánægja í herbúð- um Williams-liðsins þó svo að nýlið- anum Jenson Button tækist ekki að ljúka keppni. Vélarbilun kom í veg fyrir það eiy hann átti aðeins 10 hringi eftir. A því stigi var hann í sjött sæti en hafði um tíma verið fjórði meðan á bensínstoppum bíla á undan honum stóð. Náði Button betra viðbragði en margur ökuþór- inn og skaust strax á beina upphaf- skaflanum úr 21. sæti á rásmarki 1 15. sæti. Meira að segja gamla kappakst- urshetjan Jackie Stewart át hatt sinn en hann hafði fyrr í vetur sagt Button of reynslulítinn til að keppa í Formúlu 1; sagði að enginn stykki beint úr leikskóla upp í háskóla en þannig líkti hann komu hans beint úr Formúlu 3 í Formúlu 1. laniBiiwmÆT- \ i—i v -a—aMt—i ísland í fjórða sæti á EM í snóker ÍSLENSKA landsliðið í snóker hafnaði í fjórða sæti á Evrópumóti landsliða, sem lauk á Gíbraltar um helgina. íslenska liðið vann Holland 3:0 í átta liða úr- slitum. Bryiyar Valdimars- son, Jóhannes B. Jóhannes- son og Gunnar Hreiðarsson unnu sína andstæðinga. ís- lendingar mættu Möltu, sem var handhafi Evróputitilsins, í undan- úrslitum en töpuðu 2:1. Jó- hannes vann sinn and- stæðing en Brynjar og Gunnar töpuðu sínum leikj- um. Malta komst í úrslit og vann mótið. ísland mætti Belgíu um 3.-4. sætið en tapaði 2:1. Jó- hannes vann sinn and- stæðing en Gunnar og Brynjar töpuðu sínum leikjum. Kristján Helgason gat ekki tekið þátt í mótinu því hann er að keppa á HM atvinnumanna. íslenska lið- ið tók fyrst þátt í EM í fyrra og lenti þá í fimmta sæti. EMí snóker á íslandi 2002 EVRÓPUMÓTIÐ ísnóker verður haldið hér á landi í febrúar árið 2002. Það var ákveðið á fundi Evrópska snókersambandsins, sem haldinn var í Gíbraltar í tengslum við EM landsliða í snóker. Björgvin Hólm Jó- hannesson, formaður Bill- iard- og snókersambands Islands, sagði það mikla lyftistöng fyrir sambandið að fá að halda EM að tveim- ur árum liðnum. „Við verð- um með Norðurlandamótið í janúar á næsta ári og get- um þá undirbúið okkur hvað skipulagningu varðar fyrir EM árið 2002. Ég ætla rétt að vona að þessi mót veki áhuga fólks á snóker, því við höfum náð góðum árangri í alþjóðlegum mót- um að undanförnu.“ Þjóðveri- ar lögðu Júgó- slava ÞJÓÐVERJAR léku tvo æf- ingaleiki i handknattleik við Júgoslava um helgina í Dessau og Rotenburg. Þjóð- veijar, sem Iéku án margra fastamanna, sigruðu örugg- lega í báðum leikjunum - þeim fyrri 24:20 og unnu stórsigur í seinni leiknum 21:13, þar sem staðan í hálf- leik var 9:9. Heine Brandt, þjálfari Þjóðveija, sagði að með þessum sigri væri af- hroðið í Króatiu endanlega afskrifað og hann sæi fram á bjarta tíma með liðið. Júg- óslavar eru einmitt í riðli með Þjóðveijum á ÓL í Sydney í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.