Morgunblaðið - 17.03.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 17.03.2000, Qupperneq 6
6 D FÖSTUDAGUR17. MARS 2000 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ ELDRI KONA MEÐ ÞUNGLYNDI Við sjálf verstu dómaramir ekki síður mikilvæe en líkamsræKt Skilningsleysi á geðsjúk- dómum veldur fordómum en stundum eru sjúklingarnir sjálfír verstu dómararnir. Hrönn Marinósdóttir ræddi við tvo þunglyndissjúklinga og iðjuþjálfa sem segir geð- rækt ekki síður mikilvæga en líkamsrækt. MorgunblaðWÁsdís Elín Ebba Ásmundsdóttir segir fordóma og skort á um- burðarlyndi gagnvart geðsjúku fólki vera algenga. VEEKINDI mín eru mikið feimnis- mál,“ segir kona um fimmtugt. Hún hefir verið þunglynd í mörg ár en horfðist fyrst í augu við sjúkdóminn fyrir tveimur árum og var þá lögð inn á geðdeild. „Þá fannst mér ég vera komin á endastöðina, algjör aumingi sem ekki var viðbjargandi. Þvilíkur ósigur. Ég var í stjómunar- stöðu í vinnunni en talaði aldrei um þunglyndi við neinn því ég var viss um að falla í áliti ef fólk frétti af þessu. Þegar ég fór fyrst á spítala bað ég börnin mín tvö í fyrsta skipti á ævinni um að ljúga fyrir mig, ekki mátti segja neinum að ég væri veik á geði. Skömmin er svo mikil. Ennþá er ég að beijast við þá ranghugmynd að þunglyndi sé aum- ingjaskapur. Ég veit þetta er sjúkdómur en ég Iít samt sem áður svo á málin. Bömin mín sem komin era á fullorðins- aldur hafa hins vegar enga fordóma og tala opinskátt um þunglyndi. Það sýnir kannski kyn- slóðabilið en sjúklingamir sjálfir eru oft verstu dómaramir." Streita og svartsýni allt lífið Konan segist aldrei hafa talað um tilfinningar sínar. „Ég er er eins og karlamir, vil helst ekki ræða slík mál enda alin þannig upp.“ Líf sitt segpr hún hafa einkennst af stöðugri streitu alveg frá bamæsku og hún hefur lengi verið svartsýn. „ Vinnan var mitt deyfilyf, þar hamaðist ég daglangt, svo tók sjónvarpið við á kvöldin og siðan svefninn. Ég gaf mér aldrei ráðrúm til þess að hugsa nema í fríum en þá lagðist ég oftast upp í rúm. Uppeldi á börnunum varð að skyldurækni, ég hef verið í nokkram samböndum en flosnað hefur uppúr þeim öllum vegna ranghugmynda. Ég var góð í að ímynda mér alltaf það versta. Einn daginn fór ég heim úr vinn- unni og fann að ég gat ekki meira, heimurinn bókstaflega hrandi. Ég fór til læknis sem sendi mig á geð- deild Landspítalans og þar lá ég í tvo mánuði án þess að segja orð. Mér líður betur núna en fer aldrei aftur í vinnuna, jafnvel þótt ég viti að þeir vilja fá mig aftur. Niðurlæg- ingin er of mikil.“ Þunglyndi herjar misjafnlega á fólk en einkennin geta verið m.a. kvíði, framtaksleysi, svartsýni, lík- amlegir sjúkdómar eða verkir og svefntraflanir. Algengt er meðal þunglyndra að treysta sér ekki til að gera hlutina. Flestir úr hópi þunglyndra þekkja hve mikið átak það getur verið að þrífa sig, að fara í bað eða sturtu. Margir láta það einfaldlega ógert. „ Að koma sér fram úr rúminu á morgnana getur einnig verið hrein- asta helvíti og hversdagslegir hlutir eins og að ryksuga og setja í þvotta- vélina getur verið kvöl og pína. Ég þori stundum ekki á fætur, get ekki horft í augu við allt sem ég þarf að gera þann daginn jafnvel þótt lít- iðsé. Mikilvægt er því að setja sér markmið, til dæmis að koma í iðju- þjálfun dag hvem, sem stundum getur verið mikið átak, en ef maður mætir ekki fær rnaður sektarkennd og h'ður ennþáverr. Við eramþó ekki „skömmuð" ef við mætum ekki. Þannig læram við að taka ábyrgð á okkur sjálfum." Konan hefur sótt iðjuþjálfun í nokkurn tíma og er fyrst núna farin að blanda geði við fólkið. „í upphafi leit ég niður á hina, fannst allir svo vonlausir. Ég sat bara og gerði ekki neitt. Nú hef ég meiri áhuga á þvf sem hér fer fram og er farin að tala við ann- aðfólk." Sálfræðiaðstoð ekki niðurgreidd Talið berst að örorkubótum og í Ijós kemur að konan fær um 80.000 krónur á mánuði í bætur. „Ég fylli þann flokk Davíðs sem er hvað verst settur. Bæturnar era svo lágar að ég hef ekki eftii á meðferð hjá sál- fræðingi. Kerfið er þannig að Tryggingastofnun greiðir fyrir að hluta geðlæknisþjónustu en ekki sálfræðiþjónustu. Þunglyndislyfin hjálpa okkur upp að vissu marki en mikilvægt er einn- ig að eiga þess kost að hitta sálfræð- ing. Að eiga góða að er líka afar mikilvægl ," segir konan. „Skiln- ingsrík fjölskykla eða félagar era nauðsynlegir þegar svona bjátar á. Þetta hafa verið erfið tvö ár en ég er rólegriog sáttari en ég hef áður verið. Ég upplifi mig eins og lítið barn scm þarf að læra að ganga. Ég þarf virkilega að læra að lifa upp á nýtt, taka eitt skref í einu.“ FORDÓMA gagnvart geð- sjúkum má kannski rekja allt til sautjándu aldar, til hinnar svoköll- uðu skynsemisaldar þegar sturlun var talin andstæða skynsemi. Á Vesturlöndum urðu þá til tveir hópar manna: skynsamir og óskynsamir. Geðsjúklingamir höfðu áður verið hluti af samfélaginu en voru nú fyrst innilokaðir á hælum sem byggð voru fyrir holdsveika en sá sjúkdómur var þá í rénun. Ætli tímamir hafi breyst eða er fólk með geðræn vandamál enn útilokað frá samfélaginu? Elín Ebba Ásmundsdóttir, for- stöðumaður iðjuþjálfunar á geðdeild Landspítalans og lektor við Háskól- ann á Akureyri, segir fordóma og skort á umburðarlyndi gagnvart fólki sem þjáist af geðrænum kvillum vera algenga hér á landi. „Það er hluti af geðvemd að láta í sér heyra og reyna að hafa áhrif á umhverfi sitt,“ segir Eh'n Ebba. ,Áf ótta við fordæmingu em fáh' hins vegar nægilega Iqarkað- ir til þess að koma fram undir nafni, þeir em hræddir um að eyðileggja fyrir sér framtíðina." Erfitt er að mati Elínar Ebbu að skilja hvers vegna fremur sé htið nið- ur á fólk sem á í vandræðum með til- finningar sínar en þá sem þjást af hjartasjúkdómum svo dæmi sé tekið. „Álmenningsálitið er að geðsjúkir séu ofbeldishneigðir, fjölmiðlar láta það oft fylgja fréttinni ef geðsjúkur mað- ur ræðst á annan en aldrei er tekið fram ef afbrotamaðurinn er með syk- ursýki! Staðreyndin er sú að ofbeldi er síst algengara hjá geðsjúkum en öðm fólki. Ég gæti til dæmis verið í mehi hættu á Laugaveginum en hér inni á geðdeild. Geðsjúkir em upp til hópa mjög ljúft fólk, traustsins verðir og ekkert öðravísi í útliti en aðrir, eins og oft er haldið fram í kvikmynd- um.“ Margt hefur þó breyst til batnaðar í þjóðfélaginu, að mati Elínar Ebbu, umræðan er orðin meiri og átak Landlæknisembættisins hefur skilað árangri. „Fleiri leita sér aðstoðar áð- ur en í algjört óefni er komið. Þeir koma meðal annars á göngudeild geð- deildar við Hringbraut og fá hjálp í stað þess að bíða of lengi og þurfa kannski að leggjast inn á spítala. Aukning hefur einkum orðið meðal yngra fólks. Hluti af göngudeildar- sjúklingum er beint í iðþjuþjálfun til frekari greiningar og mats.“ Kvíin hans Keikós Daglega sækja um 40 manns iðju- þjálfun á geðdeild Landspítalans við Hringbraut en þar fer fram þjálfim, mat, greining og ráðgjöf. Líta má á iðjuþjálfunina eins og kvína hans Keikós," segir Elín Ebba. „Margir em hér tímabundið áður en það tekur þátt í lífsins ólgu sjó á ný.“ í iðjuþjálfun er stuðlað að upp- byggingu sjálfsmats og sjálfsbjargar- viðleitni fólks en margir með geðsjúk- dóma þurfa meira en lyf og viðtalsmeðferð, að sögn Elínar Ebbu. „Vandamálin em mjög einstaklings- bundin og oft flókin. Greind er fæmi fólks til iðju sem flestum þykir sjálf- sögð svo sem að mæta dag hvem í vinnu eða skóla, sinna foreldrahlut- verki, tómstundum og þar fram eftir götunum. Margir geðsjúkir eiga erfitt með að koma sér upp dagskipulagi, þeir þurfa aðstoð og stuðning til þess að koma sér af stað.“ Aðstaðan í iðjuþjálfuninni er góð en þar getur fólk sinnt vinnu eða tóm- stundum, fengið starfsþjálfun, félags- lega þjálfun og aukið samskipta- hæfni. Lestraraðstaða með tölvum er fyrir fólk sem stundar nám. Eh'n Ebba segir markmiðið að ná til fólks áður en það flosnar uppúr vinnu eða skóla. „Það skiptir svo miklu máh að ná til fólks áður en sjálfsímyndin hefur beðið hnekki. Erfittað sinna hvers- dagslegri iðju Drykkjuskapur unglinga Hin dapurlega niðurstaða að danskir unglingar drekka meira en jafnaldrar í Evrópu hefur leitt til átaks gegn ung- lingadrykkju, segir Signin Davíðsddttir. Höfuðáherslan er á að virkja foreldrana. TÖLURNAR tala sínu skýra máli. Danskir unghngar drekka mun.meira og oftar en jafnaldrar þeirra í Evrópu. Af krökkum á því skólastigi, sem samsvarar íslenskum 10. bekk hafa 82 prósent danskra krakka verið drakkin á undanfarandi ári, en ann- ars staðar í Evrópu em þetta 48 prósent. í Danmörku hafa 34 prós- ent strákanna og 30 prósent stelpn- anna verið dmkkin tíu sinnum eða oftar á undanfarandi ári. í Frakk- landi era sambærilegar tölur fjögur prósent og eitt prósent. En tölur sýna einnig að neyslan fer vaxandi, því könnun 1995 sýndi að sex prósent danskra krakka í 10. bekk höfðu verið full sex sinnum eða oftar á undanfarandi ári, en í fyrra var þessi tala komin upp í tíu prós- ent. Og í þessum aldurshópi em líka þeir sem neyta meira af áfengi á viku en dönsk heilbrigðisyfirvöld HVAÐ ERTIL IRiAÐA nota sem viðmiðun fyrir fullorðna. Viðmiðunin er að ekki sé hollt að neyta sem samsvarar 14 bjóram á viku fyrir konur, 21 bjórs á viku fyr- ir karla. Sautján prósent af strákum í 10. bekk neyta meira en þessa og tólf prósent af stelpunum gera það. Með þessar tölur í höndunum hef- ur danska heilbrigðismálaráðuneyt- ið því hafið herferð til að draga úr drykkjunni. Hugmyndin er að reyna að ná til foreldranna í gegnum skólasamstarfið og fá þá til að taka á vandanum, en einnig að fá skólana til að huga að áfengisneyslunni. Foreldramir era mikilvæg fyrirmynd Séð í stærra samhengi er það ekki undarlegt að danskir unglingar drekki mikið, því áfengisneysla er almennt mikil í Danmörku og sú langmesta á Norðurlöndum. Það ber í vaxandi mæli á að Danir neyti áfengis eins og aðrar þjóðir, sem að meðaltali drekka mikið, til dæmis Frakkar, það er drekki með mat og ekki til að verða dmkknir. Samt sem áður virðist enn mjög mikið af áfengisneyslunni vera til að komast undir áhrif. Það er þessi fyrirmynd, sem blasir við unghngunum og hér sýna rannsóknir að áhrif foreldr- anna era mikil. Venjur þeirra em ki’ökkunum fyrirmynd og um leið er ábyrgð foreldi-anna mikil. Bandarísk könnun, sem dönsk heilbrigðisyfirvöld styðjast við, sýn- ir að ef foreldrunum fannst í lagi að krakkarnir drykkju þá dmkku þeir krakkai- tífalt á við krakka, sem áttu foreldra er beittu sér gegn því að þeir drykkju áfengi. Og því betra sem samband foreldra og barna er því frekar fara krakkamir eftir því sem foreldrarnir segja þeim. í viðbót við mikla neyslu danskra unglinga er áberandi að þeir byrja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.