Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 1

Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 JltofgtstiHta&ifr ■ FIMMTUDAGÍIR 6. APRÍL BLAD Úrslitaleikjum í körfu- knattleik frestað fýrir EM ungmenna LEIKJUM KR og Grindavíkur um fslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik karla verður frestað til 17. apríl vegna þátttöku þriggja leikmanna KR með unglingalandsliðinu, sem tekur þátt í undanúrslitariðli Evrópukeppninnar, sem fram fer í Saarlouis í Þýskalandi 11.-15. apríl. Leikmennirnir sem um ræðir eru Jakob Sig- urðsson, Jón Arnór Stefánsson og Helgi Magn- ússon. Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Körfuknattleikssambands Islands, sagði að öðru sinni hefði íslensku unglingaliði tekist að komst í undanúrslitariðil Evrópukeppninnar í körfuknattleik og því hefði ekki dugað annað en að senda sterkasta liðið í keppnina. Fyrsti leikur Grindavíkur og KR verður 17. apríl í Grindavík, annar leikur 19. aprfl og sá þriðji 22. apríl. Ef fleiri leiki þarf til verða þeir 25. og 27. aprfl. Chelsea sökkti Barcelona ENSKA liðið Chelsea og spánska liðið Valencia standa vel að vígi fyrir seinni leiki sína i átta liða úrslitum meistaradeildar Evrópu. Chelsea lagði Barcelona 3:1 og Valencia vann Lazio 5:2 en þar skoraði Gerard Lopez þrennu fyrir framan 50 þúsund áhorfendur. Chels- ea hafði tögl og hagldir í leiknum gegn spánska lið- inu Barcelona, en leikið var í Lundúnum í gær. Norðmaðurinn Tore Andre FIo, tvö, og ítalinn Gianfranco Zola skoruðu fyrir Chelsea á átta mín- útna kafla í fyrri hálfleik en Luis Figo minnkaði muninn fyrir Barcelona á 64. mi'nútu. Zola skoraði fyrsta markið úr auka- spyrnu og hann lagði upp annað markið fyrir FIo. Gianiuca Vialli, knatt- spyrnustjóri Chelsea, var glaðbeittur með sigur gegn Barcelona og sagði að leikmenn sínir hefðu verið framúrskarandi. Hann kvaðst ekki óttast að mark Figo gerði Chelsea erfitt fyrir í síðari leiknum á Spáni. Vialli sagði að Barcelona væri sýnd veiði en ekki gefln en kvaðst hlakka til að kljást við lið- ið á ný að tveimur vikum liðnum. Valencia óð í tækifærum gegn ítalska liðinu Lazio og uppskar flmm mörk. Gerard Lopez skoraði þrennu og hefur nú gert fimm mörk í meistara- deildinni. Leikmenn Lazio sáu aldrei til sólar fyrir ut- an fyrstu mínútur leiksins en þá tókst Simone Inzaghi að minnka muninn f 2:1. Leikir í undanúrslitum UEFA-keppninnar fara fram í kvöid en Chelsea mætir Galatazaray í Tyrklandi og Arsenal leik- ur gegn franska iiðinu Lens. Ólæti brutust út milli stuðningsmanna Leeds og tyrkneska liðsins í Istanbúl í gærkvöld og létust tveir stuðningsmenn enska liðsins f átökunum. Þá lágu nokkrir stuðnings- menn Leeds sárir eftir. Reuters Tore Andre Flo og Gianfranco Zola höfðu ástæðu til þess að fagna í gær er Chelsea vann Barcelona 3:1 í Lundúnum. Flo gerði tvð mörk en Zola skoraði fallegt mark úr aukaspyrnu. Brasilíumennirnir þrír hjá Keflavík sendir heim vegna þjófnaðar Stálu frá leikmönnum Brasilísku knattspymumennim- ir þrír sem gengu til liðs við Keflavík fyrir nokkrum vikum hafa verið reknir frá félaginu vegna þjófnaðar. Þeir halda af landi brott á næstu dögum, fá ekki að mæta á fleiri æfingar, og koma ekki einu sinni nálægt æfingasvæði Keflvík- inga, að sögn Rúnars Arnarsonar, formanns knattspymudeildar. Þre- menningamir stálu úmm og skart- gripum frá félögum sínum í Kefla- víkurliðinu og búningum og göllum frá félaginu. „Þetta kom okkur í opna skjöldu en við fómm að gmna þá á mánudaginn þegar nýtt 40 þúsund króna úr í eigu Gunnars Oddssonar hvarf. Við fengum sann- anir fyrir sekt þeirra í gær, sóttum góssið heim til þeirra og síðan var ákveðið á stjómarfundi í gærkvöld að senda þá heim. Þetta er að sjálf- sögðu mikið áfall fyrir okkur, við lögðum í talsverðan kostnað við að fá leikmennina hingað og þeir höfðu ákveðnum hlutverkum að gegna í okkar áætlunum fyrir sumarið. En brot þeirra var það alvarlegt að það var ekki hægt að líða það, og við hefðum tekið nákvæmlega eins á þessu máli þó aðrir leikmenn í okk- ar hópi hefðu átt í hlut,“ sagði Rún- ar við Morgunblaðið í gær. Hann sagði ennfremur að brotthvarf Brasilíumannanna skildi að sjálfsögðu eftir sig skarð í leik- mannahópnum. „Við höfum ekki teldð ákvörðun um hvemig við bregðumst við þessu en ég útiloka alls ekki að við leitum eftir liðsstyrk í staðinn erlendis frá áður en ís- landsmótið hefst,“ sagði Rúnar Amarson. Leikmennimir heita Antonio Marcos Ribeiro, Anderson Sena Gomes og Thiago Jose Soares De Sena og em allir um tvítugt. Þeir hafa leikið með Keflavík í deilda- bikamum en það er þó einungis Ribeiro sem hefur spilað alla leik- ina og fengið tækifæri í byrjunar- liðinu. EYJASTÚLKUR ÆTLA EKKIAÐ FAGNA OF SNEMMA/B4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.