Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 2
I B ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Valur Sigurðsson og Reynir Þór
Reynisson upp úr liðsheildinni.
Guðjón Valur skoraði ellefu mörk í
öllum regnbogans litum og Reynir
Þór varði 25 skot.
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur iiðanna í undanúrslitum,
leikinn i Mosfellsbæ 8. aprfl 2000
KA
Mörk Sóknir %
Fram
Mörk Sóknir %
12 18 67 F.h 11 19 58
14 23 61 S.h 10 23 43
26 41 63 Alls 21 42 50
13 Langskot 8
1 Gegnumbrot 0
4 Hraðaupphlaup 2
4 Horn 2
1 Lína 6
3 Víti 3
Baráttan
heldur áfram
„ÞAÐ er orðið svo algengt hjá
okkur að tapa niður að því er
virðist unnum leikjum að við
erum hættir að kippa okkur
upp við það,“ sagði alsæll
markvörður og fyrirliði Fram,
Sebastían Alexandersson, að
leik loknum.
EftirSkúla
Unnar
Sveinsson
Það er talsverður munur á
stemmningunni í liði Fram og
KA en Sebastían segir einbeiting-
.una koma innan frá.
Það var mikil
stemmning í liðinu í
kvöld þó svo það sjá-
ist ef til vill ekki vel.
Þetta er eitt af því sem þjálfarinn
er að koma á hjá okkur, að vera
með „kaldan haus“ og stemmning-
in getur verið til staðar þó menn
séu ekki með læti. Það var
stemmning í dag en ekki á laugar-
daginn en samt sést voða lítill
munur á liðinu. Það er hins vegar
erfitt að spila við KA því það er
brjáluð stemmning í strákunum.
Það var samt óþarfi í lokin að
klúðra forystunni og ég tek það
mest megnis á mig því ég fékk
fullt af ódýrum mörkum á mig en
félagarnir björguðu mér fyrir
horn. í aukakastinu ákvað ég að
treysta hávörninni og taka það
horn þar sem veggurinn var lægst-
ur, en þessi drengur er með ótrú-
legan stökkkraft eins og ég fékk
að sjá á laugardaginn. Ég mun
ekki vanmeta stökkkraft hans aft-
ur, það er alveg á hreinu.
Baráttan heldur áfram á mið-
vikudaginn og ég á von á miklum
leik. Vonandi vinnur annað liðið
bara með einu marki, og ég vona
auðvitað að það verðum við,“ sagði
Sebastían.
Enginn
tilbúinn í sumarfrí
Vilhelm G. Bergsveinsson skor-
aði níu mörk fyrir Fram í gær og
fann sig vel. „Eg fékk fullt af fær-
um í síðasta leik en var of ragur
þá þannig að ég ákvað að láta bara
vaða þegar ég kæmi inná og
þjálfarinn myndi þá bara kippa
mér útaf ef mér gengi illa. í sjálfu
sér höfðum við engu að tapa, ann-
aðhvort var að vinna eða tapa og
fara í sumarfrí og það var enginn í
liðinu tilbúinn að fara alveg strax í
frí,“. sagði hin tvítuga skytta.
„Ég held að úr þessu verðum við
að standa við það sem Njörður
Arnason sagði fyrir framlenging-
una en hann sagði að ef við mynd-
um vinna hana þá færum við alla
leið.“
Hann sagði aðspurður að það
hefði ekki verið neitt mál að fara
inn í klefa eftir ótrúlegt jöfnunar-
mark KA. „Við gleymdum því
strax og einbeittum okkur að
framlengingunni. Þetta voru bara
tíu mínútur í viðbót, eins og hverj-
ar aðrar mínútur."
Gengur erfiðlega
í framlengingu
„Það var náttúrlega skandall að
láta Framara ná sex marka for-
ystu en á sama hátt gott hjá okkur
að ná að vinna það upp og vonandi
verður það gott veganesti í síðasta
leikinn. Við vitum í það minnsta að
við getum tekið á því“ sagði Jó-
hann G. Jóhannsson hornaður KA
eftir leikinn.
Jóhanni fannst sóknarleikur síns
liðs ekki nægilega góður. „Sóknin
var mjög klaufaleg svo ekki sé
meira sagt. Við sóttum allt of mik-
ið maður á móti manni. Það er
ekki nógu gott því við þurfum að
spila saman sem lið, ef við gerum
það þá kemur vörnin og mark-
varslan. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem við töpum hér með þessum
mun og það er ekkert annað að
gera en að bíta á jaxlinn, halda
heim og búa sig undir næsta leik.“
Jóhann sagði aðspurður að það
hafi verið ljúft að fara inn í klefa
fyrir framlenginguna enda hefði
þeim tekist að jafna undir lokin.
„Við erum ekki vanir að vinna í
þessum framlengingum, lentum í
tvöfaldri á móti FH og gullmarki,
klúðruðum því og hér fáum við
tækifæri, komumst yfir í fram-
lengingunni en tókst að klúðra því.
Við verðum greinilega að klára
þetta í venjulegum leiktíma, það er
ekkert flóknara en það.“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Framarar fögnuðu sigri á KA og tryggðu sér oddaleik á Akureyri. Fremstur er Róbert Gunnarsson.
Fram hafði styrk
enda orðið fyrir hverju áfallinu á
fætur öðru. Enn einu sinni komu
þeir á óvart; þeim tókst að jafna
metin með ótrúlegri seiglu, og
höfðu einnig heilladísirnar með sér
þar sem Framarar fengu á sig tvo
brottrekstra á lokakaflanum. Þrjú
mörk á síðustu 90 sekúndunum
tryggðu KA framlengingu og
Framarar virtust niðurbrotnir eft-
ir að hafa glutrað niður unnum
leik.
Eftir að KA komst yfir í fram-
lengingunni var útlitið orðið enn
dekkra hjá Safamýrarpiltum. Þeir
sýndu hinsvegar mikinn karakter
þegar mest á reyndi og það var
hin örugga vítaskytta frá Noregi,
Kenneth Ellertsen, sem skoraði
þrjú síðustu mörk Fram af vítalín-
unni, það síðasta 12 sekúndum fyr-
ir leikslok og þar með var sigurinn
í höfn.
Auk Vilhelms voru Guðmundur
Helgi Pálsson og Róbert Gunnars-
son fremstir í flokki Framara og
Sebastian Alexandersson varði
markið vel að vanda. Hjá KA voru
hornamennirnir Sævar Árnason og
Jóhann Gunnar Jóhannsson skæð-
ir og Guðjón Valur óx eftir því sem
á leikinn leið.
FRAMARAR eiga eftir að hugsa með hryllingi til síðustu 5 mínútnanna í venjulegum leiktíma gegn KA í
Safamýrinni í gærkvöld, en þar voru þeir rétt búnir að senda sjálfa sig í sumarfríið frá og með deginum í
dag. Þeir höfðu tögl og hagldir gegn norðanmönnum lengst af og virtust búnir að tryggja sér oddaleik-
inn, 24:19 yfir. En á þessum lokakafla hrundi leikur Framara eins og spilaborg. KA skoraði fimm mörk
og jafnaði metin, 24:24, og gerði Guðjón Valur Sigurðsson jöfnunarmarkið með miklum þrumufleyg eft-
ir aukakast 2 sekúndum fyrir leikslok. í framlengingunni náðu hinsvegar Framarar sér á strik á ný og
knúðu fram sigur, 29:27 - verðskuldaðan miðað við gang leiksins í heild - og þar með leika liðin odda-
leik um sæti í úrslitum íslandsmótsins á Akureyri annað kvöld.
Fyrri hálfleikurinn einkenndist
af sterkum varnarleik beggja
liða. Framarar voru heldur beitt-
ari í sókninni en
norðanmenn áttu þar
erfitt uppdráttar og
skoruðu ekki mark
með langskoti fyrr
en 10 mínútur voru eftir af venju-
legum leiktíma. Hittni Framara
var hinsvegar afar slæm því þeir
Vlðir
Sigurðsson
skrifar
skutu framhjá marki KA í gríð og
erg. Framarar urðu fyrir áfalli,
sérstaklega í varnarleiknum, þeg-
ar Robertas Pauzuolis meiddist
illa á hné eftir 18 mínútna leik. KA
gekk á lagið og jafnaði með þrem-
ur mörkum í röð en þá reyndist
Anatoli Fedioukine, þjálfari Fram,
luma á trompi. Hann sendi hinn
tvítuga Vilhelm Gauta Bergsveins-
son inn á í skyttustöðuna vinstra
megin, og það hreif. Vilhelm fór á
kostum, skoraði 8 af næstu 10
mörkum Fram og 9 mörk alls úr
fyrstu 9 skotum sínum. Mögnuð
innkoma, og það leit ekki út fyrir
annað en að Vilhelm hefði gert út-
slagið fyrir Framara og tryggt
þeim oddaleikinn löngu fyrir leiks-
lok.
KA-menn hafa margoft verið af-
skrifaðir á undanförnum vikum,
Valur
Sæmundsson
skrifar
KA-menn sýndu það og sönnuðu
svo um munaði gegn Fram í
fyrsta leik liðanna í undanúrslitum
um Islandsmeist-
aratitlinn að þótt
leikmannahópurinn
hafi þynnst er ár-
angur liðsins engin
tilviljun. Þeir lögðu Framara sann-
færandi að velli á Akureyri á laug-
ardaginn, 26:21. Það virkaði sem
vítamínsprauta á liðið að fá Guðjón
Val Sigurðsson inn í hópinn aftur
og ekki skemmdi fyrir að hann átti
stórleik.
í fyrri hálfleik var nánast jafnt á
öllum tölum, Fram þó oftar yfir,
og þegar þrjár mínútur voru til
leikhlés höfðu Framarar yfir 11:9.
En KA-menn skoruðu þrjú síðustu
mörk hálfleiksins og leiddu í hléi
með einu marki, 12:11.
Heimamenn voru skrefinu á
undan framan af seinni hálfleik en
eftir að Framarar náðu að jafna í
16:16 settu KA-menn á fullt og við
því áttu Framarar ekkert svar. KA
skoraði þrjú mörk í röð og alls átta
af næstu tíu mörkum leiksins.
Seinni hluta hálfleiksins fór liðið
hreinlega á kostum með Reyni Þór
markvörð fremstan í flokki og
Framarar voru ráðþrota. Lokatöl-
urnar urðu 26:21 KA í vil eins og
áður sagði.
Framarar náðu sér ekki á strik í
þessum leik. Þeir áttu ekki svar
við hreyfanlegri 3-2-1 vörn heima-
manna og Reyni Þór og skorti ár-
æði og leikgleði heimamanna. Þó
ber að hrósa línumanninum sterka
Róbert Gunnarssyni, sem aldrei
gefst upp.
KA-liðið sýndi það og sannaði að
ekkert kemur í stað baráttuviljans.
Menn láta ekki á sig fá þótt hópur-
inn hafi þynnst heldur þjappa sér
saman, berjast allan leikinn af full-
um krafti og leikgleði og metnaður
drífur menn áfram. Sálræna hliðin
virðist hafa breyst mikið til hins
betra síðan í vetur og það skilar
sér í leik liðsins. Allir léku vel í
þessum leik en þó stóðu Guðjón
Pauzuolis tognaði illa
ROBERTAS Pauzuolis, leikmaður Fram, er líklega illa tognaður á
hné og telja forráðamenn félagsins engar líkur á að hann leiki með
á móti KA í þriðja og síðasta leik liðanna á Akureyri annað kvöld.
Hann fór á slysavarðstofuna á meðan á leiknum stóð, meiddist er
18 mínútur voru liðnar. Forráðamenn Fram höfðu ekki fengið nið-
urstöður úr myndatöku sem Pauzuolis fór í en sögðu hann líklega
illa tognaðan, sem er mun betur sloppið en búist var við í fyrstu.
SOKNARNYTING
Annar leikur liðanna í undanúrslitum,
leikinn i Reykjavík 10. apríl 2000
Fram
Mörk Sóknir %
KA
Mörk Sóknir %
11 23 48 F.h 9 23 39
13 25 52 S.h 15 25 60
5 7 71 Frl. 3 7 43
29 55 53 Alls 27 55 49
11 Langskot 5
6 Gegnumbrot 0
3 Hraðaupphlaup 5
0 Hom 11
1 Lína 4
8 Vfti 2
Guðjón Valur með stórleik