Morgunblaðið - 11.04.2000, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR11. APRÍL 2000 B 5
________________ÍÞRÓTTIR____
Teitur byrjar með
látum í Noregi
Þjálfari
AGF
hættur
DANSKA úrvalsdeildarfé-
lagið AGF í Árdsuni, sem
Ólafur Kristjánsson og
Tdrnas Ingi Tdmasson leika
með, hefur vikið Peter Rud-
bœk, þjálfara þess, frá störf-
um. Rudbæk tdk við þjálfun
liðsins 1993 og var valinn
þjálfari ársins árið 1996 en
þá varð liðið bikarmeistari
og einu stigi á eftir Brönd-
by, sem varð Danmerkur-
meistari. Síðan hefur hallað
undan fæti hjá liðinu og það
hafnaði í 10 sæt.i af 12 liðum
í deildinni. Nú er liðið á ný í
fallhættu og mætti Vejle,
sem er í fallsæti í gær, en
þolinmæði stjdrnar liðsins á
þrotum og lét Rudbæk fara.
Ove Christensen, þjálfari 18
ára landsliðsins, tekur við
þjálfun liðsins. Rudbæk
verður ekki atvinnulaus
lengi því hann tekur við
þjálfun hjá AaB á næsta ári.
Jovanovic
fráEssen
JÚGÓSLAVINN Jovanovic sem
leikið hefur með liandknattleiksliði
Essen undanfarin tvö ár, mun leika
með Hameln næstu tvö tímabil.
Jovanovic hefur samning við Essen
til næstu tveggja ára, en samkomu-
lag varð um að hami hætti hjá lið-
inu. Hameln vantar nú aðeins 2 stig
í norðurriðli annarrar deildar til
að endurheimta sæti sitt í 1. deild.
Jovanovic sem er miðjumaður
hefur leikið 155 landsieiki fyrir
Júgdslavíu og er jafnvígur sem
sdknar- og vamarmaður. Hann
kemur til með að styrkja lið Ham-
eln mikið en liðið hefur nú náð í
nokkra snjalla leikmenn og ljdst að
liðið ætlar sér ekki fall í aðra deild
áný.
TEITUR Þórðarson, þjálfari Brann, byrjaði keppnistímabilið í Nor-
egi vel en liðið hans vann 4:1 -sigur gegn Viking í fyrstu umferð
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um helgina. Teitur segir að liðið,
sem hefur tekið talsverðum breytingum frá síðasta tímabili,
stefni á sigur í deildinni.
Sigurður
Elvar Þórólfsson
skrifarfrá
Noregi
rann, sem hefur þurft að selja
marga af betri leikmönnum
liðsins vegna fjár-
hagserfiðleika, hafði
mikla yfirburði í
leiknum og fékk 10
markskot gegn einu
frá Viking. íslensku
leikmennirnir hjá Viking, Ríkharður
Daðason og Auðun Helgason, voru á
varamannabekknum en fengu að
spreyta sig í síðari hálfleik. Ríkharð-
ur sýndi ágæt tilþrif og virðist vera á
réttri leið eftir meiðsli og Auðun
Helgason komst vel frá sínu og
stoppaði í götin hjá hriplekri vöm
Vikings. Segir í Iioguhinds Avis að
Benny Lennartsson, sem stjórnaði
Viking í sínum fyrsta leik í deildinni,
hafi tekist illa upp í þessum leik,
framganga liðsins hafí verið út og
suður og það spilað sundur og sam-
an. Öðru máli gegnir um Teit og
Brann. Segir í Nettavisen að Teitur
hafí verið vinsæll meðal stuðnings-
manna Brann í Bergen er hann
þjálfaði liðið fyi-ir 10 árum og sigur-
inn í gær hafi aukið enn á vinsældir
hans, en 12 þúsund manns fylgdust
með leiknum í Bergen. Teitur er eini
þjálfarinn í deildinni sem hefur látið
í ljós þá skoðun sína að liðið ætli sér
sigur í deildinni. „Við ætlum okkur
sigur í ár, en það verður erfitt. Það
þýðir ekkert að sætta sig við annað
eða þriðja sæti deildarinnar því það
sýnir lítinn metnað."
Tromso beið skipbrot er liðið tap-
aði fyrir Válerenga 4:1. Tryggvi
Guðmundsson lék í 74 mínútur með
Tromso en var þá tekinn út af og
fékk fjóra í einkunn hjá Nettavisen.
Það er búist við erfiðum róðri hjá
Trornso í deildinni, sérstaklega í
ljósi þess að hinn 21 árs gamli
markaskorari liðsins, Rune Lange,
ér á leið til Rosenborg í sumar. Rune
Lange er ætlað að fylla það skarð
sem John Carew skilur eftir sig þeg-
ar hann fer til spænska félagsins Va-
lencia fyrir 700 milljónir ísl. kr.
Kjetil Rekdal, fyrrverandi samherji
Eyjólfs Sverrissonar í Herthu Berl-
in, lék sinn fyrsta leik með Váler-
enga og skoraði eitt marka liðsins.
Rekdal vill komast aftur í gamla
hlutverkið sitt sem leikstjórnandi
norska landsliðsins, en sterkir leik-
menn á borð við Bent Skammelsrud
frá Rosenborg hafa haldið honum
fyrir utan byrjunarliðið.
Mun ekki sakna
Heiðars Helgusonar
Lillestrom og Molde gerðu 1:1-
jafntefli í fyi-sta leik liðanna í norsku
úrvalsdeildinni. Rúnar Kristinsson
lék með Lillestrom og fékk fjóra í
einkunn hjá Netmiðlinum Nettavis-
en og Verdcns Gang. Grétar Hjart-
arson, Einar Þór Daníelsson, Ar-
mann Björnsson og Indriði
Sigurðsson léku ekki með Lillest-
r0m. Bæði lið hafa misst sína marka-
hæstu menn frá síðasta tímabili,
Heiðar Helguson fór frá Lillestrom
til Watford í Englandi og Andreas
Lund fór frá Molde til Wimbledon.
Segir í Nettavisen að framlínum-
önnum liðsins hafi ekki tekist að
setja mark sitt á leikinn. Rune Erl-
Bergensavisen (BA)
Teitur Þórðarson á heimavelli Brann í Bergen.
andsen, þjálfari Lillestrpm, segir
hins vegar að Lillestrom muni ekki
sakna Heiðars. „Heiðar er ungur og
efnilegur leikmaður og skoraði mik-
ið af mörkum fyrir okkur í fyrra, en
hann var sveiflukenndur í leik sín-
um. Eg hef fulla trú á að þeir leik-
menn sem leika í framlínu liðsins nú
muni standa undir nafni.“
Árni Gautur Arason lék í marki
meistaraliðsins Rosenborg, sem
vann Stabæk 2:0. Arni stóð sig með
ágætum í markinu og fékk sex í ein-
kunn hjá Nettavisen en fimm hjá
Verdens Gang. Pétur Marteinsson
lék með Stabæk og fékk fimm hjá
Nettavisen en sex í einkunn hjá Ver-
dens Gang. Pétur fékk dæmt á sig
víti í seinni hálfleik fyrir að hand-
leika knöttinn og þótti leikmönnum
Stabæk það harður dómur. Ur vít-
inu skoraði Bent Skammelsrud af
öryggi og Erik Hoftun skoraði
seinna mark liðsins.
Tíu Is-
lendingar
í Noregi
ÍSLENSKIR knattspyniu-
menn eru næst fjölmenn-
astir erlendra Ieikmanna í
norsku úrvalsdeildinni.
Svfar eru fjölmennastir,
eða 23, en tíu íslenskir leik-
menn leika í úrvalsdeild-
inni: Árni Gautur Arason,
Rosenborg, Ármann Smári
Bjömsson, Rúnar Kristins-
son, Indriði Sigurðsson,
Grétar Hjartarson og Ein-
ar Þér Daníelsson, sem er í
láni frá KR, Ieika með Lil-
Iestrom. Tryggvi Guðmun-
dsson leikur með Tromso,
Auðun Helgason og Rík-
harður Daðason með Vik-
ing, og Pétur Marteinsson
með Stabæk. Athygli fjöl-
miðla í Noregi hefur aðal-
lega beinst að því lága
verði sem norsku liðin hafa
greitt fyrir efnilega leik-
menn frá Islandi. Ekki
spillir fyrir áhuga liðanna
að Lillestrom þénaði 180
miHjónir fsl. króna þegar
liðið seldi Heiðar Helguson
til enska liðsins Watford og
Helgi Sigurðsson skilaði
127 milljónum í hirslur
Stabæk er hann var seidur
til gríska félagsins OI-
ympiakos. Finnar eiga níu
leikmenn í deildinni. Er-
lendu leikmennimir í
norsku úrvalsdeildinni
koma frá 14 löndum, þar af
frá fimm Afríkuríkjum.
BORÐTENNIS
Lilja Rós og Guð-
mundur sterkust
ÍSLANDSMEISTARARNIR Lilja
Rós Jóhannesdóttir og Guðmund-
ur E. Stephensen úr Víkingi fögn-
uðu sigri á síðasta stigamóti Borð-
tennissambands íslands í TBR-
húsinu á sunnudag. Þau eru stiga-
meistarar ársins. Lilja Rós vann
Ingibjörgu Árnadóttur, Víkingi, í
úrslitum 3:0 - 21:12, 21:19, 21:8.
Guðmundur E. vann Magnús
Árnason, Víkingi, í úrslitum 3:1 -
19:21, 21:14, 21:10, 22:20.
Stórsigur hjá O’Sullivan
RONNIE O’Sullivan frá Englandi burstaði Mark J. Williams frá
Wales, 9:1, í úrslitaleik opna skoska meistaramótsins í snóker í Aber-
deen á sunnudaginn. Stórsigurinn kom á óvart, degi eftir að staðfest
var að Wiliiams væri orðinn efstur á heimslista snókermanna en
hann er stigahæstur á yfírstandandi tfmabili. O’Sullivan sýndi oft
snilldartakta á mótinu, fékk tvisvar 147, en var þess á milli hepplnn
að komast áfram. Williams, sem sigraði Krisfján Helgason, 5:3, í 32
manna úrslitum mótsins, var heillum horfinn í úrslitaleiknum.