Morgunblaðið - 11.04.2000, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 B t 9
Chelsea
mætir Ast-
on Villa á
Wembley
GUSTAVO Poyet tryggði Chels-
ea þátttökurétt í úrslitaleik bik-
arkeppninnar er hann gerði
bæði mörk liðsins í 2:l-sigri á
Newcastle í undanúrslitum
keppninnar. Poyet, sem hafði
setið á bekknum hjá Chelsea, var
staðráðinn í að sanna tilverurétt
sinn í liðinu og gerði fyrra
markið á 17. mínútu leiksins. Al-
an Shearer jafnaði metin fyrir
Newcastle en Poyet skoraði sig-
urmarkið á 72. minútu. Gianluca
Vialli, knattspyrnustjóri Chels-
ea, lofaði leikmanninn í hástert
að leik loknum og sagði að Poyet
hefði verið staðráðinn að sýna
hvað í honum bjó. Dennis Wise,
fyrirliði Chelesa, sagði að
Newcastle hefði staðið sig betur
í Ieiknum en mörkin hjá Poyet
hefðu gert útslagið. „Við lékum
illa en við getum þakkað Poyet
fyrir að koma okkur í úrslitin.“
Wise sagðist eiga von á erfiðum
úrslitaleik gegn Aston Villa, sem
hefur aðeins tapað einu sinni af
síðustu 12 leikjum. Aston Villa
vann Bolton í vítaspyrnukeppni í
undanúrslitum keppninnar. Ur-
slitaleikur bikarkeppninnar fer
fram á Wembley-leikvanginum
20. maí.
Amar var
óheppinn
ARNAR Gunnlaugsson
hafði ekki heppnina með
sér í leik Stoke gegn
Brentford í ensku 2. deild-
inni á laugardaginn. Á
lokamínútu Ieiksins átti
hann glæsilegt skot úr
aukaspyrnu, í þverslána og
niður, og samkvæmt ensk-
um fjölmiðlum var engin
spurning um að boitinn var
fyrir innan marklínuna.
Áðstoðardómarinn var illa
staðsettur og sagðist ekki
hafa séð atvikið nógu vel,
samkvæmt The Sentinel.
AP
Gleði og sorg á Wembley: Hlutskipti leikmanna Newcastle og Chelsea var ólíkt í undanúrslitaieik
ensku bikarkeppninnar. Gustavo Poyet og Marcel Desailly fagna 2:0-sigri en Temuri Ketsbaia,
leikmaður Newcastle, gengur níðurlútur af velli.
Jean Tigana tekur við Fulham
FRAKKINN Jean Tigana verður
næsti knattspymustjóri enska 1.
deildarfélaginu Fulham. Tigana
tekur við starfinu 1. júlí en hann
gerði fimm ára samning við félagið.
Karlheinz Riedle og Roy Evans
munu stýra liðinu út leiktíðina, en
þeir tóku við stjórn liðsins er Paul
Bracewell var sagt upp störfum.
Tigana er fyrrverandi landsliðs-
maður í franska landsliðinu en
hann lék frá 1975 til 1991 í frönsku
1. deildinni, lengst af með Bor-
deaux. Hann tók við þjálfun
Lyonnais 1993 og Monaco árið
1995 og gerði liðið að frönskum
meisturum árið 1997. Hann hætti
hjá liðinu tveimur árum síðar.
Liverpool á sigurbraut
Liverpool komst í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar er liðið vann
Tottenham 2:0 með mörkum frá Patrik Berger og Michael Owen.
Stuðningsmenn Tottenham voru óánægðir með frammistöðu liðs-
ins í leiknum og gerðu hróp að George Graham, knattspyrnustjóra
liðsins, undir lok leiksins. Leeds féll í þriðja sæti deildarinnar, tap-
aði sínum fimmta leik í röð í deild og Evrópukeppni, nú 1:0 fyrir Ast-
on Villa.
Michael Owen hefur ekki setið
auðum höndum frá því hann
hóf að leika með liðinu á ný. Hann
skoraði sitt fjórða mark gegn Tott-
enham í þremur leikjum. Leikmað-
urinn, sem fór út af undir lokin, seg-
ist ná betri tökum á leik sínum eftir
erfið meiðsli en gerir sér vonir um
að verða enn betri, en hann hefur
enn ekki náð að leika heilan leik með
Liverpool. Félagið hefur ekki tapað í
síðustu ellefu leikjum og er með 62
stig, tveimur stigum meira en
Leeds, sem er í þriðja sæti. Gerard
Houllier, knattspyrnustjóri liðsins,
brosir breitt og segir að liðið hafi
náð 52 stigum frá því i október. „Ég
man hve mér ieið illa er liðið tapaði
fyrir Watford en ég var sannfærður
um að liðið mundi ná sér á strik þeg-
ar allir leikmenn væra orðnii’ heilir,“
sagði Houllier, sem kvaðst gera sér
vonh’ um að liðinu tækist að komast í
meistaradeild Evrópu, en þar hefur
liðið ekki leikið síðan 1985. Totten-
ham, sem er í áttunda sæti úrvals-
deildar, hefur tapað þremur af síð-
ustu fjórum leikjum liðsins og
stuðningsmenn liðsins gerðu hróp að
George Graham, knattspyrnustjóra
liðsins, undii- lok leiksins gegn Liver-
pool. Graham sagði að stuðnings-
menn liðsins hefðu allan rétt til þess
að mótmæla árangri liðsins enda væri
árangurinn ekki viðunandi. „Þegar
vel gengur óska stuðningsmenn liðs-
ins þér til hamingu en þú færð
skammir þegar illa árar. Við þurfum
nauðsynlega á nýjum leikmönnum að
halda og vonandi að ný andlit verði í
hópnum er mótið hefst á ný í haust.“
Bradford á hálum ís
Það syrtir í álinn hjá nýliðum
Bradford en liðið tapaði sínum
fimmta leik í röð, nú 2:1 fyrir South-
ampton. Paul Jewell, knattspyrnu-
stjóri Bradford, segir að liðið verði að
komast á sigurbraut undir lok tíma-
bilsins, þegar sex umferðir era eftir.
„Við getum enn bjargað okkur frá
falli en það verður erfiðara með
hverjum leik sem við töpum. Við
megum ekki gefa upp vonina um að
halda sæti okkar í deildinni og með
hagstæðum úrslitum gegn Wimble-
don og Derby gæti liðið bjargað sæti
sínu.“ Southampton er 11 stigum frá
fallsvæðinu og virðist hafa bjargað
sér enn eitt árið.
Hvorki gengur né rekur hjá
Wimbledon og er liðið í fjórða neðsta
sæti deildarinnar. Félagið tapaði
sínum fjórða leik í röð og ekki má
mikið út af bera í næstu leikjum því
fall blasir við að öðrum kosti. Egil
Olsen, knattspyrnustjóri Wimble-
don, sagðist ekki ánægður með
gengi liðsins í vetur og að honum
hefði fundist að það hefði að minnsta
kosti eitt stig skilið gegn Sunder-
land, en Kevin Kilbane skoraði sig-
urmark Sunderland átta minútum
fyrir leikslok. „Ég bjóst við betri leik
af okkur hálfu enda hefur okkur
gengið vel að undanförnu. En ég er
ánægður með að við erum ekki
komnh’ í fallsæti og höfum enn tök á
að bjarga andlitinu.“
Aston Villa er í sjötta sæti deildar-
innar og hefur góða möguleika á að
ná sæti í Evrópukeppni næsta vetur,
en liðið er einnig komið í úrslit bik-
arkeppninnar. Liðið vann Leeds 1:0
með marki frá Julian Joachim.
Leeds hefur ekki gengið sem skyldi í
undanfömum leikjum, tapaði fyrir
Galatasaray 2:0 í Tyrklandi í síðustu
viku og óvíst hvort liðið komist í úr-
slit UEFA-keppninnar. Þá virðist
liðið búið að missa af lestinni í bar-
áttunni við Manchester United um
enska meistaratitilinn. David
O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds,
hefm- gefið meistaratitilinn upp á
bátinn en hann óttast einnig að
Liverpool muni ná öðra sæti deildar-
innar og komast í meistaradeild
Evi’ópu næsta vetur.
Hann segir þátttöku í UEFA-
keppninni ástæðuna fyiir slöku
gengi liðsins í undanförnum leikjum.
„Við eram búnir að leika 12 leiki í
UEFA-keppninni og komnir lengra
en ég þorði að vona. Leikmenn
Liverpool geta einbeitt sér betur að
deildinni og því tel ég að liðið eigi
góða möguleika á öðru sætinu á und-
an Leeds. Ég vona hins vegar að
okkur takist að komast í meistara-
deild Evi’ópu miklu fremur en sigur
í UEFA-keppninni.“
■ GUÐNI Bergsson og Eiður
Smári Guðjohnsen léku með Bol-
ton sem vann Walsall 4:3 í ensku
1. deildinni. Sigurður Ragnar
Eyjélfsson og Bjarnólfur Lárus-
son léku ekki með Walsall. Bol-
ton er í áttunda sæti en Walsall
er við botn deildarinnar.
■ HERMANN Hreiðarsson lék
með Wimbledon sem tapaði 2:1
fyrir Sunderland. Wimbledon er í
fjórða neðsta sæti úrvalsdeildar.
■ HEIÐAR Helguson lék í 35
mínútur með Watford, sem gerði
markalaust jafntefli við Derby í
úrvalsdeildinni og átti skalla í
stöng með sinni fyrstu snertingu í
leiknum. Stefan Schnoor hjá
Derby brenndi af vítaspyrnu und-
ir lok leiksins.
■ BRYNJAR Björn Gunnarsson,
Arnar Gunnlaugsson og Bjarni
Guðjónsson léku með Stoke City
sem lagði Brentford 1:0 að velli í
2. deildinni í Englandi. Peter
Thorne gerði eina mark leiksins á
8. mínútu. Hann hefur gert. 22
mörk fyrir Stoke á leiktíðinni og
með markahæstu leikmönnum
deildarinnar. Stoke er í 7. sæti 2.
deildarinnar.
■ BJARKI Gunnlaugsson lék
með Preston sem gerði marka-
laust jafntefli við Cardiff í 2.
deildinni. Preston er í efsta sæti
2. deildar.
■ ARNAR Viðarsson lék með
Lokeren sem vann Standard 2:1 í
belgísku 1. deildinni. Lokeren er í
11. sæti.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson lék nreð
Racing Genk sem tapaði 3:0 fyrir
Germinal Beerschot. Genk er í 9
sæti deildarinnar.
■ GUÐMUNDUR Benediktsson
lék síðustu 19 mínúturnar með
Geel sem gerði 2:2-jafntefli við
Lierse SK. Geel er í þriðja neðsta
sæti deildarinnar.
■ EYJÓLFUR Sverrisson lék
með Herthu Berlín sem lagði
Frankfurt að velli 1:0, og lagði
upp sigurmarkið fyrir Michael
Preetz. Berlínarliðið er í sæti 5.
sæti 1. deildar.
■ CHARLTON, sem er í efsta
sæti 1. deildar í Englandi, var að-
eins níu mínútum frá því að
tryggja sér sæti í úrvalsdadd
þegar það mætti Nottingham
Forest um helgina. Charlton náði
forystu í leiknum með marki
Andy Hunt en Chris Bart-Willi-
ams jafnaði á 81. mínútu.
■ MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi
Líbýu, hefur boðið enska knatt-
spyrnufélaginu Middlesbrough að
leika gegn landsliði Libýu, að því
fram kom í The Sunday Times
um síðustu helgi. Sagði í blaðinu
að leiðtoginn væri reiðubúinn að
greiða enska liðinu um 800 mil-
ljónir ísl. króna fyrir að leika í
Líbýu.
■ FYRIRHUGUÐ sigurhátið
Anderlecht til þess að fagna 25
meistaratitli liðsins í Hollaudi
breyttist í hreina martröð fyrir
stuðningsmenn liðsins, leikmenn
og forsvarsmenn því liðið tapaði
5:0 fyrir Westerlo og þarf að bíða
að minnsta kosti í eina viku til
þess að hampa titlinum.
■ ANDERLECHT hefði með sigri
náð 13 stiga forystu í deildinni
þegar fjórar umferðir voru eftir
en eftir tapið er ljóst að Club
Brugge getur enn náð Ander-
lecht að stigum.
■ STUÐNINGSMENN enska úr-
valsdeildarliðsins Everton gerðu
hróp að Muzzy Izzet, leikm%ni
Leicester, í leik liðanna um helgi-
na. Izzet, sem á tyrkneskan föður
og hefur lýst yfir vilja til þess að
leika með tyrkneska landsliðinu,
var skotspónn áhorfenda vegna
þess að tveir stuðningsmenn
Leeds voru myrtir af st.uðnings-
mönnum Galatasaray í Tyrklandi
íliðinniviku. '