Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 12
■ HELGI Jónas Guðfínnsson, leik- maður belgíska körfuknattleiksfé- lagsins RB Antwerpen, skoraði fjögur stig er félagið vann Wevel- gem 78:56 um helgina. RB An- twerpen er í öðru sæti úrvalsdeild- ar. ■ KÁRI Jónsson, markahæsti leik- maður Víðis í 1. deildinni í knatt- spymu í fyrra, sem gekk til liðs við Stjörnuna í vetur, er hættur hjá Garðabæjarliðinu. Kári hefúr æft með ÍA en sagði við Morgunblaðið að allt væri enn opið hjá sér með hvaða liði hann léki í sumar. ■ SIGURÐUR Jónsson lék á ný með Dundee United í skosku úrvals- deildinni á laugardaginn eftir að hafa misst úr síðustu leiki vegna veildnda og meiðsla. Sigurður fór af velli á 57. mínútu en lið hans fékk á sig sjálfsmark undir lokin gegn Kilmamock og tapaði, 1:0. ■ T/t/kylfingar luku leik undir pari á Masters að þessu sinni. ■ FLESTIR náðu að leika undir pari annan dag keppnixmar, en þá voru 34 undir pari vaJlarins, sem er 72. ■ ENGINN náði að leika undir pari alla dagana, sigurvegarinn, Vijay Singh, komst næst því en hann lék fyrsta hringinn á pari en hina þrjá álla undir pari. mALLS voru leikinir 75 hringir undir pari að þessu sinni. Fyrsta daginn náðu níu þeim árangri, 34 annan daginn, 11 þriðja daginn og 21 síðasta daginn. ■ DAVID Duval náði bestum hring á mótinu, lék 18 holumar á 65 högg- um eða 7 undir pari á öðmm degi mótsins. ■ SINGH fékk einn örn í mótinu, það var á 13. holu á fyrsta degi. Hann fékk 18 fugla, 43 pör og 10 sinnum varð hann að sætta sig við skolla. ■ HANN hitti 41 af 56 brautum í upphafshöggum og lék 58 af 72, eða 80,56%, á regulation, eða réttum höggafjölda miðað við par holu. Fem brons- verðlaun í Svíþjóð ÍSLENDINGAR fengu fern bronsverðlaun á sænska Grand Prix-mótinu í sundi, sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð um helgina. Hjalti Guðmundsson hafnaði í þriðja sæti í 50 m bringusundi, á 30,17 sek. Elín Sigurðardóttir hafnað í þriðja sæti í 50 m skrið- sundi á 27,37 sek. og 50 m flugsundi á 28,99 sek. Þá náði Friðfmnur Kristins- son náði þriðja sæti í 50 m flugsundi á 25,88 sek. Sex íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu og komust * allir í úrslit. Lára Bjargar- dóttir lenti í fjórða sæti í 200 m skriðsundi og Kol- brún Kristjánsdóttir hafn- aði í fimmta sæti í 50 m skriðsundi. Rúnar þrefaldur Norðurlandameistari VIJAY Singh frá Fijieyjum sigraði á Bandaríska meistaramótinu í golfi sem lauk á Augusta-vellinum i Georgíu á sunnudag. Hann klæddist því 46. græna jakkanum sem veittur erfyrir sigur í mótinu. Singh var með forystu eftir þrjá daga og hélt henni til loka, lék af miklu öryggi allan tímann og lauk leik á 10 höggum undir pari vall- arins, þremur höggum minna en Ernie Els sem varð annar. Fijibúinn byrjaði ekkert sérstak- lega vel fyrsta daginn, lék þó á pari sem þótti þokkalega gott miðað við hversu hátt skor sáust þann daginn. Annan daginn lék hann á 67 höggum, fimm undir pari, og skaust í annað sætið ásamt Ernie Els, sem lék á jafn mörgum höggum og meistarinn fyrstu tvo dagana. A laugardaginn lék Singh á 70 högg- um og hafði þriggja högga forystu á David Duval fyrir síðasta daginn. Sunnudagurinn var besti dagur mótsins og meistarinn lét spennuna ekki ná tökum á sér, lék af yfir- vegun og var í fullkomnu jafnvægi, alltaf þegar illa gekk náði hann því til baka á næstu eða þar næstu holu. „Þetta er eitthvað sem ekki er hægt að jafna nokkru við,“ sagði Singh eftir að hann var kominn í græna jakkann og hafði tekið við verðlaunafénu, tæplega 60 milljón- um króna. Þetta er annar sigur hans á einu af hinum fjóru stóru, en hann sigraði í Meistarakeppninni 1998. Hann er nú kominn á stall með þeim bestu, nokkuð sem hann lét sig varla dreyma um fyrir 15 ár- um þegar hann var golfkennari með 160 dollara á mánuði og reyndi að finna sér tíma til að æfa sig. Hann hafði keppt á tveimur mótaröðum áður en ekki náð að standa sig vel þar og varð því að hætta og gerðist golfkennari. „Þetta var erfitt en ég held ég vildi ekki skipta á þessari reynslu og einhverri annarri,“ segir hinn 37 ára gamli Singh af mikilli yfirvegun. AP Jose Maria Olazabal, sigurvegarinn á Masters í fyrra, aðstoðar Vijay Singh í græna jakkann. Qass, níu ára sonur Singh, og eig- inkona hans fylgdust með mótinu og var sonurinn með borða á húfu sinni þar sem stóð: „Pabbi, treystu sveiflunni þinni!“ Hann gerði það, sérstaklega var hann öruggur í púttunum og notaði aðeins 1,72 pútt að meðaltali á holunum 72. „Það er sérstaklega gaman að sigra hér og sigurinn eykur sjálfs- traustið þannig að nú er ég viss um að ég geti sigrað á miklu fleiri mót- um,“ sagði Singh. Hann fékk mesta keppni frá Dav- id Duval sem fylgdi honum eins og skugginn. Eftir fyrri níu á síðasta degi var Duval átta höggum undir pari en Singh níu. Þegar þeir komu á 13. holuna, par fimm, þriðju og síðustu holuna á hinu svonefnda Amen-horni, munaði enn einu höggi. Singh fékk fugl en Duval tók áhættu sem mistókst og fékk skolla á hana og þar með var draumur hans búinn. Raunar átti Singh stór- glæsilegt högg úr glompu á þeirri 12., ekki ósvipað höggi Olazabal í fyrra á sama stað, en þá sigraði Spánverjinn. „Ég held það sé eng- inn undrandi á að Singh skuli sigra hér, hann er dásamlegur kylfing- ur,“ sagði Duval eftir síðasta hring- inn og bætti því við að það hefði ver- ið alveg sama hvað hann hefði gert, Singh hefði alltaf náð að gera jafn vel eða betur. RÚNAR Alexandersson úr Gerplu í Kópavogi varð þrefaldur Norð- urlandameistari í fímieikum, en Norðurlandamótið fór fram í Helsinki f Finnlandi um Iiðna helgi. Rúnar tryggði sér sigur á bogahesti, á tvíslá og í fjölþraut, en þetta er besti árangur sem ís- lenskur keppandi hcfur náð á Norðurlandamóti í fimleikum. Rúnar hlaut 53.700 stig í fjöl- »■ þraut en næsti keppandi, Tor Ein- ar Refsnes, Noregi, var með 52.000 stig. Rúnar hlaut 9,6 í ein- kunn á tvíslá og 9,5 í einkunn á bogahesti. Zoltan Supola, Ung- verjalandi, fékk 9,6, en hann keppti sem gestur og því varð Rúnar Norðurlandameistari í greininni. Rúnar, sem býr og æfir í Álvsbyn í Norður-Svíþjóð, hafn- aði í þriðja sæti í æfíngum í hringjum og í öðru sæti á svifrá. „Þetta er besti árangur sem ég ^ hef náð og ég bjóst satt að segja ekki við því að þetta gengi svona vel. Eg hef ekki áður sigrað á tví- slá á stóru móti. Ég er í ágætri æf- ingu en á þó vonandi eftir að bæta mig talsvert fyrir Ólympíuleikana í haust, og mun æfa hér í Svíþjóð fram að þeim tíma, yfirleitt tvisv- ar á dag, auk þess sem ég keppi á mörgum mótum,“ sagði Rúnar í samtali við Morgunblaðið. Næsta verkefni hans er heimsbikarmót í Glasgow á fimmtudaginn kemur. Harpa Hlíf Bárðardóttir, Gróttu, og Lilja Erlendsdóttir, Gerplu, kepptu einnig á mótinu. Lilja hlaut 23.750 samanlagt í keppninni en henni mistókst í æf- ingum á stökki. Harpa Hlíf, sem k hefur átt við meiðsli að stríða frá þvi á íslandsmóti, fékk 17.600 en hún keppti ekki á gólfi. Bergþóra Einarsdóttir sem einnig var í lið- inu meiddist á sfðustu æfingu fyrir mót og gat þess vegna ekki farið á Norðurlandamótið. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Rúnar Alexandersson varð þrefaldur Norðurlandameistari; í fjölþraut, á bogahesti og á tvíslá. Singh sýndi mikla yfirvegun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.