Morgunblaðið - 28.04.2000, Side 1

Morgunblaðið - 28.04.2000, Side 1
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 ÁFÖSTUDÖGUM Englar og átrúnaðargoð Itnoglitnii og BiMÍugiiiilð NYJASTA mynd bandaríska leikstjórans Kevins Smith, Dogma, hefur vakið jafnt deilur sem hrifningu, einnig hér- lendis, þar sem hún er nú sýnd. Dogma skopast með ýmis hugtök, tákn og helga dóma kristinnar trúar, en leikstjór- inn heldur því fram að undir niðri sé djúp trúarleg alvara. Pétur Blöndal ræðir í Bíóblaðinu í dag við tvo af aðal- leikurum Dogma, nútíma kynbombur hvora af sínu kyni, Ben Affieck og Salma Hayek. Karl hannar leikmyndirnar ISLENSKI leikmynda- og búningahönnuðurinn Karl Júlíusson, sem búsettur er í Noregi, er orð- inn einn sá eftirsóttasti í norrænni kvikmynda- gerð. í Bíóblaðinu í dag ræðir Árni Æti Þórarinsson við Karl. # 8 New Media Artists ÍSLENSKA umboðsskrifstofan New Media Artists hefur starfað að því í u.þ.b. eitt ár að koma íslenskum leikurum og leikstjórum á framfæri erlendis. Nokkur árangur hefur þegar orðið, eins og fram kemur í samtali Páls Kristins Pálssonar við Mark Devine, forstöðumann skrifstofunnar. Devine annast jafnframt þróun kvikmynda á ensku fyrir Pegasus Films og fer fyrsta myndin væntanlega í framleiðslu á þessu ári, m.a. með íslenskum leikurum. Nýtt í bíó Stórleikur í smábæ %Sagabíó frumsýnir gamanmyndina „Mystery Ataska" meö Russell Crowe og HankAzaria. Myndin segir frá því þegar stórlið frá New York kemur í smábæ í Alaska og keppir í þjóðaríþróttinni, íshokkí. Leikstjóri er Jay Roach en Burt Reynolds fer meö eitt hlutverkanna í myndinni. Aska Angelu í Háskólabíói •Nýjasta mynd breska leikstjórans Alan Parkers, Aska Angelu eða „Angelás Ashes “ er frumsýnd í Há- skólabíóií dag. Með aðalhlutverkin fara Emlly Watson og Robert Carlyle en myndin er byggð á metsölubók Franks McCourts sem fjallar um uppvaxtarár hans í bænum Limerick álrlandi. Affleck í Sambíóunum %Ben Affleck og Charlize Theron fara með aöalhlutverkin í spennu- tryllinum „Reindeer Games“sem Sambíóln við Álfabakka frumsýna í dag. Leikstjóri er John Frankenheim- eren myndin segirfrá erfiðleiknum sem ungur maöur lendir f þegar hann losnar úrfangelsi og ætlar að byrja nýtt líf. Bretinn i Sambíóunum %Sambíóin frumsýna um helgina eina af nýjustu myndum bandaríska leikstjór- ans Steve Soder- berghs. Hún heitir Bretinn eöa „The Limey“ og er með kempunni Terence Stamp í aðalhlut- verki. Hann leik- ur afbrota- mann sem hleypt er úrfangelsi í Bretlandi og heldur til Los Angeles aðgera þarupp sakirnarviðóvini sína. Skordýra- heimurinn %Háskólabíó frumsýnir í dag franska heimildarmynd sem heitir „Microcosmos" og lýsir meö smá- sjártækni lífi skordýra. Höfundareru Claude Nuridsany og Marie Perenn- ou en það tók þau tvö ár aö hanna kvikmyndatæknina sem gerði þeim kleift að mynda skordýrin og önnur þrjú aöfilma þau. Julia leikur Erin •Nýjasta mynd Julia Roberts, „Erin Brockovich", er frumsýnd í dag. Þetta er nýjasta mynd Steven Soder- berghs en með önnur hlutverk fara Albert Finney og Aaron Eckhart. Myndin er byggö á sönnum atburð- um og segir frá því sem geröist þegar bæjarbúar í dæmigerðum banda- rískum smábæ höfðuðu mál gegn iðnfyrirtæki í nágrenninu vegna mengunarvandamála. á Kaupmannahöfn. Morgunbladið. „Dancer in the Dark“, nýj- asta kvikmynd Lars von Trier, þar sem Björk Guð- mundsdóttir fer með ann- að aðalhlutverkið og semur tónlistina, keppir við 22 aðr- ar kvikmyndir um Gull- pálmann í Cannes, en ís- lenska kvikmyndasam- steypan er meðframleið- andi myndarinnar. Ein af keppnismyndun- um, „0 Brother Were Art Thou“, er söngvamynd rétt eins og mynd Triers, gerð af bræðrunum Joel og Eth- an Coen, sem Trier man vel að hann tapaði fyrir 1991. Þetta kom fram á blaða- mannafundi í Kaupmanna- höfn, þar sem Trier kynnti mynd sína. Hitt aðalhlut- verkið í myndinni er leikið af frönsku kvikmynda- Fá orð höfð um samstarfid: Björk og Lars von Trier stjörnunni Catharine Den- við æfingar á Dancer In the Dark. euve. Trier slefnir Orðrómur um stirt samstarf Triers og Bjarkar Það hefur spurst út að samstarf þeirra Triers og Bjarkar hafí ekki gengið áfallalaust íyrir sig. A blaðamannafundinum var hann spurður hvort eitthvað væri hæft í þeim orðrómi að þau Björk hefðu átt mjög erfitt með að starfa saman, en þá var Trier snöggur að slá botninn í blaðamannafundinn með því að segja að fólk vildi víst bara heyra eitthvert rugl um slæmt samstarf þeirra tveggja. „Eg hef svo ári mikið að gera. Við ræðum þetta seinna," sagði hann og þar með var fundurinn búinn. Best að vera ekki of sigurviss „Alltaf þegar ég hef verið viss um að vinna, hef ég tapað,“ sagði Trier dapur á blaðamannafundin- um. „Ég verð örugglega fyrir von- brigðum ... Nei, ég er þegar von- svikinn. Lífið eru ein allsherjar vonbrigði," bætti hann við af allfunnri bjartsýni sinni. Trier hefur elcki dregið fjöður yfir að hon- um er illa við ferðalög. Hann hefur áður afboðað komu sína á síðustu stundu, en í þetta skiptið ætlar hann að leggja ferðalagið til Cannes á sig, þó hann segi að hátíð- in hafi ekki sömu þýðingu fyrir sig og þegar hann var með í fyrsta skiptið. Trier hefur ekki vegn- að alilla í Cannes hingað til. Hann mátti reyndar horfa á eftir verðlaunun- um til Coen-bræðranna 1991, þegar hann keppti þar með mynd sína „Éur- opa“, en sú mynd hlaut tækniverðlaun. Öllu bet- ur gekk Trier 1996 með „Breaking the Waves“ því sú mynd hlaut æðstu verðlaun dómnefndarinnar, „Grand Prix“. Nýjasta mynd Triers verður ekki frumsýnd í Danmörku fyrr en í haust og því ætlar hann ekki að breyta þó myndin hafni nú í Cann- es-keppninni. Sem stendur leggur hann nótt við dag að leggja síðustu hönd á myndina. • í Kaupmannahafnarpistli fjallar Sigrún Davíðsdóttir um þátt norrænna mynda í Cannes./2 Fyrstu Bíóblaðsdagar hefjast um næstu helgi Óskarsverðlaunamyndin Boys Don’t Cry verður fyrsta myndin á svokölluðum Bíóblaðsdögum, sem haldnir verða nokkrum sinnum á ári í samstarfi kvikmyndahúsanna og Bíóblaðsins. A Bíóblaðsdögum verða sýndar vandaðar úrvals- myndir af ýmsum toga og munu lesendur blaðsins njóta sérkjara á sýningarnar. Boys Don’t Cry verð- ur sýnd í Regnboganum og hefjast sýningar á föstudag í næstu viku, 5. maí. I Bíóblaðinu í dag segir Sæbjörn Valdimarsson frá mynd- inni en lítt þekkt leikkona, Hllary Swank, hreppti Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á stúlkunni Teena Brandon sem vildi verða strákur- inn Brandon Teena./7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.