Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
Norræn
veisla í
Cannes
„Það veröur norræn veisla í
Cannes, “ sagði Daninn Peter
Aaibæk Jensen, framkvæmda-
stjóri Zentropa á btaðamanna-
fundi nýlega og sagðist hafa
áhyggjur afað mynd Lars von
Trier með Björk í aðalhlutverki
ætti eftirað lúta í iægra haldi
fyrir nýjustu mynd Svíans Roy
Andersson, sem ekki hefurgert
kvikmynd um árabil.
Því miður er mynd hans
meistaraverk," sagði
Aalbæk brosandi út í
annaö og með risavind-
ilinní hinu.
Hátíðin stendur 10.-21. maí
og þar verða sýndar 1.397 kvik-
myndir, þar af
681 leikin
mynd. Fjórar
norrænar
myndirveröa
á aðaldagskrá
hátíðarinnar,
en heimafyrir
verða þær
ekki sýndar
fyrreníhaust.
t ár keppa í
fýrsta skipti tvær sænskar
myndirtil aöalverðlaunanna í
Cannes. Auk myndar And-
ersson, „Sángarfrán andra ván-
ingen “ er nýjasta mynd Liv Ull-
mann, „ Trolös “ með í keppn-
inni.
Mynd Ullmann er gerð eftir
handriti fyrrum eiginmanns
hennar, Ingmars Bergman,
byggð á ævisögu hans. Meistar-
inn gamli er því enn viðloöandi
kvikmyndagerö þótt hann sé
hættur að búa til kvikmyndir.
Myndar Andersson er beðiö
með mikilli eftirvæntingu í Sví-
þjóð. Andersson er fæddur árið
1943 og þessi nýja mynd er að-
eins þriðja leikna myndin hans.
Fyrsta myndin, „En kárlekshist-
oria“, þótti hið mesta meistara-
verk. Aðra mynd hans, „GiUap“,
sem varfrumsýnd 1975 hökk-
uðu gagnrýnendur hins vegar í
sig.
Einn þeirra sem á þeim tíma
fór óblíðum orðum um hana var
meistari Bergman. Hann hefur
sagt frá því að hann hafi séö
myndina aftur nýlega og heldur
ekki hrifist af í það skiptið. Það
breyti þvf ekki að hann hafi hið
mesta álit á Andersson og nefn-
ir hann til auglýsingamyndir
hans, en fyrir þær hefur hann
uppskorið mikið lof undanfarin
ár.
Hin danska myndin á hátíð-
inni ereinnigframleidd afZent-
ropa rétt eins og mynd Trler. Hér
er um aö ræöa nýja mynd eftir
Kristian Levring, „ The King Is
Alive“, sem erjafnframt fjóröa
Dogma-myndin. Hún ertekin í
Namibíu ogfjallar um ellefu
ferðalanga sem verða stranda-
glópar í eyóimörk. Meöan þeir
bíða björgunar stytta þeir sér
stundir við að setja á svið leikrit
Shakespeare um Lé konung.
Mynd í.ewfng'erekki sýnd í
aöalkeppninni heldurívöldum
flokki sem kallast „Un certain
regard". í þann flokk þykireínnig
mikill heiðurað komast, því sá
flokkur er hluti af hinni opinberu
dagskrá hátíðarinnar. Innan
hans verða sýndar 22 myndir.
Uv Ullmann:
Filmar handrit
Bergmans.
Strákurinn
lendir í
myndinni
Fyrirskömmu varfjallað um endur-
minningar Roberts Evans, The Kid
Stays in the Picture, á síöum Bíó-
blaösins. Þar
fjallar þessi
kunni framleiö-
andi ogfyrrum
æðsti maður
Paramount Pict-
ures um ferð
sína á toppinn í
Hollywood-og
niðurleiðina,
sem var ekki síð-
urdramatísk. Við
sögu koma
helstu persónurkvikmyndaheimsins
ogfrásögnin öll hin æsilegasta svo
hún gefurgóðri spennumynd ekkert
eftir. Þaó kemur því ekki á óvart að
veriö er að selja kvikmyndaréttinn að
bókinni og verðprúttið stendur sem
hæst þessa dagana. Það eru kunnir
heimildarmyndagerðarmenn, Brett
Mogen og Nanette Burstein, sem
vilja kaupa, en þau hlutu m.a. verð-
laun DGA (Félags bandarískra kvik-
myndaleikstjóra) á þessu ári fyrir On
the Ropes.
Courtney Love
og Carpenter
Þau munu leiða saman hesta sfna í
sumar, leikstjórinn John Carpenter
og poppsöngkonan Courtney Love,
sem vakið hefur mikla athygli frá því
hún brá sér á hvíta tjaldiö í The Peop-
le vs Larry Flynt.
Vonandi veröur
útkoman for-
vitnileg, en
þessi gamal-
kunni hrollvekj-
umeistari hefur
ekki hitt nagl-
ann á höfuðið
um árabil. Verk-
efniö nefnist
John Carpenters Ghosts ofMars, að
sjálfsögðu hryllingsmynd. Ice Cube
og Jason Statharn fara einnig með
stór hlutverk, sem mun segja sögu
nokkurra nýbúa á Mars sem lenda í
útistöðum við geimdrauga.
Asía áberandi
á Cannes
53. alþjóölega kvikmyndahátíðin í
Cannes verður sett í næsta mánuði.
Hápunktarnir verða myndirfrá nokkr-
um viðurkenndum kvikmyndaleik-
stjórum eins og Joel Coen, Lars Von
Trier, Ken Loach og James Ivory.
Þærkeppa um aðalverðlaunin,
Gullpálmann. Öðru fremur verða það
þó myndir frá Asíu sem setja svip á
hátíðina, sem á að undirstrika grósk-
una í listgreininni í þeim heimshluta;
tvær frá Kína og Japan, önnur,
Gohatto, eftir hneykslunarhelluna
Nagisa Oshima (Veldi tilfmning-
anna). Hann svíkursjálfsagtengan,
en nýja myndin fjallar um ástir sam-
kynhneigðra karla. Frá Taiwan, Hong
Kong og Kóreu kemur sín hver mynd-
in ogtværfrá Austurlöndum nær.
REUTERS
John Travolta prufukeyrir leik-
fangavopn úr nýjustu mynd sinni: Er
að hugsa málið varðandi aðal-
hlutverkið í Be Cool.
Elmore er
eftirsóttur
„Heitasti rithöfundur samtímans í
kvikmyndageiranum ertvímælalaust
Elmore Leonard. Lengst af olli hann
litlu uppnámi í Hollywood sem ann-
ars staðar, en það er liðin tíð. Á dög-
unum var réttur Pagan Babies, sem
kemur út í sumar, seldur á 3 milljónir
dala. Kaupandinn er Jersey Films,
framleiðslufyrirtæki DannyDe Vito,
sem stóð að vel lukkuöum kvik-
myndageröum Out of Sightog Get
Shorty, öðrum snjöllum bókum
skáldsins. Fyrirtækið á einnig kvik-
myndarétt Be Cool, framhald þeirrar
síöarnefndu. John Travoltaerað
velta fyrir sér aðalhlutverkinu. Pagan
Babies er 36. ritsmíö Leonards, sem
fjallar að þessu sinni um raunir
Bandaríkjamanns, sem flýr land og
gerist kristniboði í landi forfeöranna,
meðal Tútsa í Rúanda. Þá eru Coen-
bræðurmeð tilboö frá Universal að
leikstýra Cuba Libre. Tarantinoer að
undirbúa tökur á Killshot og á að
auki kvikmyndarétttveggja annarra
Leonardbóka; Freaky Deakyog
Bandit.
Sjónarhorn
,7
nei,
Eftir Sæbjöm Valdimarsson KVIKMYNDAÁHUGI íslendinga, a.m.k. íbúa
_________________ á Stór-Reykjavíkursvæðinu, er lyginni lík-
astur, enda á hann sérekki hliðstæðu í veröldinni. Sjálfsagt verðurhann
þjóðháttafræðingum, jafnvel sálfræðingum, forvitnilegt rannsóknarefni í
framtíðinni. Hvað um það, þessi metáhugi stendur á gömtum merg og
hefur verið viðloðandi frá því á fyrstu tugum aldarinnar. Nálægð við
Bandaríkin, bæði landfræðileg og félagsleg, hefur sjálfsagt talsvert að
segja. Lengst afsátum við þó ekki við sama borð og nágrannaþjóðirnar
heidur urðum að láta okkur nægja að horfa á þriggja til fjögurra ára gaml-
ar myndir í kvikmyndahúsunum. Ekki nóg með það; þau tímdu ekki að
kaupa nýjar kópíur og ísiensk textasetning þekktist ekki nema á stór-
myndum. Ef einhver hló, jafnvel óforvarendis, íbíó á þessum steinaldar-
árum (sem lauk ekki fyrren á áttunda áratugnum) hlógu allir. Obbigest-
anna skildi nefnilega ekki múkk íensku og vildi hafa vaðið fyrirneðan
sig.
Nýirtímargengu ígarð ogmeð þeim nýirmenn. Við búum við allt ann-
að bíóumhverfi í dag, fáum ný, textuð, stundum frábærlega vel talsett
eintök afglænýjum myndum sem verið er að frumsýna hér á sama tíma
og í nágrannalöndunum. Á dögunum sá ég t.d., mér til ánægju, að Lund-
únabúar voru ekki famir að berja augum gæðamyndina Magnolia, sem
þá hafði staðið Stór-Reykvíkingum til boða um hríð. Slíkt er ekkert eins-
dæmi ogenn algengara að við séum á undan hinum Norðurlandaþjóðun-
um íþessum efnum.
Bíóstjórar fylgjast vel með því sem er að gerast á öllum sviðum. Sal-
irnir nálgast þrjátíu, og von á nýju, margsaia kvikmyndahúsi til viðbótar í
nýju verslunarmiðstöðinni í Smáranum á næsta ári. Lengi vel var tugur
hefðbundinna eins salar kvikmyndahúsa á svæðinu; þau höfðu flest eig-
in umboö ogsýndu eingöngu sínar myndir. ídag erútbúnaðurinn eins og
best verður á kosið; THX-, Dts-, SDDS- og Dolby-hljóðkerfi. Sætin þægi-
leg. Bíóin hafa enn eigin umboð en dreifa myndum sínum á frumsýning-
ardegi, vítt og breitt í önnur kvikmyndahús á svæðin. Nýverið varð bylting
í sýningartímasetningu samkvæmt bandarískri forskrift og virðist hafa
fleiri kosti en galla. Mestu bíófíklarjarðar eru þvíí faglegri gjörgæslu og
allir una vel við sitt.
Þessi mikli sala- oggestafjöldi krefst óhemju framboðs afmyndefni.
Jafnan eru 35-40 myndir ígangi íbíóunum á venjulegum sýningardegi.
Þar fyrir utan hrópar áhuginn á hrikalega útieigu á myndbandaleigunum.
Við erum komin með rás sem sérhæfir sig í kvikmyndasýningum, Bíórás-
ina, sem frumsýnir tugi ágætra mynda mánaðariega og stendur sig vel í
samanburði við hliðstæðar stöðvar í nágrannalöndunum. Sjónvarpið,
Stöð 2, Sýn og Skjár einn, flestar bjóða þessar stöðvar upp á umtalsvert
úrval af kvikmyndum. Þá erógetið allra þeirra titla sem mönnum standa
daglega til boða efþeir hafa afnot afFjölvarpinu, Breiðbandi Landssím-
ans eða gervihnattasjónvarpi.
Persónulega er ég á móti hléunum. Þau eru ekki látin flakka, sem
stafar einfaldlega afþví að þau færa húsunum stórgróöa. Sem gerir það
að verkum að aðgöngumiðaverðið er lægra en ella, sem kemur öllum til
góða. Það á að banna hlé á örlagastundum íspennumyndum, annars
mega þau vera á sínum stað fyrirmér.
Höfum við þá ekki undan neinu að kvarta, eða hvað?
Jú, eitt skortirtilfinnanlega sem einssalarbíótugurinn lét ekki vanta;
evrópskar og listrænar myndir. Þveröfugt við það sem oft hefur verið
haldið fram stóð Stór-Reykvíkingum oftlega til boða athyglisvert framboð
afþessum toga. Úrþessu ættu kvikmyndahúsin að bæta, þótt þau séu
nú samstarfsaðilar Kvikmyndahátíðar í Reykjavík og komi þar á framfæri
slatta afþessum myndum. Við fáum alltoflítið aföðru efni en engilsax-
nesku, orðinn t.d. viðburðurað fá franskarog ítalskar myndir á frumsýn-
ingu. Vissulega erþetta ástand talsvert evrópsku kvikmyndaframleið-
endunum að kenna, en hér er aðgerða þörf. Vonandi verður einhver
breyting til batnaðar með samstarfi Bíóblaðsins og kvikmyndahúsanna
um Bíóblaðsdaga, sem sagt er frá í blaðinu í dag.
New Media Artists er umboðsskrifstofa fyrir leikara og
leikstjóra sem er í eigu Snorra Þórissonar. Skjólstæö-
ingarnir eru frá öllum Norðurlöndunum og markaðs-
svæðið er allur heimurinn. Páll Krístinn Pálsson ræddi
við Mark Devine, sem annast daglegan rekstur.
jr
Islenskir leikarar og
leikstjórar á alþjóðlegan marKað
„Ég kynntist Snorra fyrir nokkrum árum og hann
bauð mér að vinna með sér að þróun kvikmynda á
ensku fyrir fyrirtæki hans, Pegasus, og við að
setja á stofn NMA,“ segir Mark um tilurð New
Media Artists. „Ég sló til og fyrsta myndin okkar
fer væntanlega í tökur á þessu ári. Hún heitir East
of the Moon, leikstjóri verður Norðmaðurinn Erik
Gustavson (t.d. Telegrafísterí) og leikaramir ís-
lenskir, bandarískir og kanadískir."
Mark hafði ekki unnið lengi á Islandi er leikarar
tóku að leita til hans eftir aðstoð við að koma sér á
framfæri í útlöndum. „Hugmyndir íslendinga um
gang þessara mála eru stundum mjög óraunhæfar
og ég sagði þeim að þeir kæmust aldrei með stóru
tána yfir þröskuldinn ef þeir hringdu beint til ICM
í London eða New York eða umboðsskrifstofu
Willam Morris eða CAA. Þeir yrðu að hafa ein-
hvem umboðsmann sem þekkti til í bransanum."
New Media Artists var síðan ýtt úr vör á kvik-
myndahátíðinni í Berlín 1999 í tengslum við leik-
arakynninguna Shooting Stars, sem Ingvar E. Sig-
urðsson tók þátt í og á þessu ári Hilmir Snær
Guðnason. „En á þessum tíma hefur starfsemin
undið smátt og smátt upp á sig,“ segir Mark. „Við
emm með marga af helstu íslensku leikurunum á
skrá, einnig nokkra frá hinum Norðurlöndunum.
Einnig eram við komnir með leikstjóra á okkar
skrá, t.d. auglýsingaleikstjórann Ágúst Baldurs-
son, sem bráðlega mun leikstýra sinni fyrstu kvik-
mynd.“
Stór tilboð hafa ekki enn komið út úr starfi New
Media Artists fyrir íslenska leikara, en góður ár-
angur hefur náðst með danska og sænska. „ís-
lenskir leikarar hafa krækt í nokkrar auglýsingar
erlendis og svo hafa þeir í stöku tilfelli komið
sterklega til greina í stór verkefni. Pálína Jóns-
dóttlr var ein af fjóram leikkonum sem komu til
álita í aðalhlutverk á móti Robert de Niro í vænt-
Mark Devine
er 34 ára, fæddur í
London, en ólst að
mestu upp á heima-
vistarskólum í Eng-
landi, Wales ogír-
landi. Missti móður
sína 14 ára, for-
eldrarnir þá löngu
skildir, og lenti í um-
sjá frænda síns,
sem varvióskiptar-
áöherra í stjórn Mar-
grétarThatchers.
Eftir heföbundna skólagöngu og dvöl í Afríku
réðst Marktll Bob Geldofs og Band-Aid og
vann m.a. við uppsetningu Live-Aid tónleik-
anna ogSport-Aid hlaupsins. Hann vann um
tíma hjá ICM, stærstu umboösskrifstofu
heims, en stofnaði sfðan eigin um-
boðsskrifstofu þar sem hann var með 30
leikara á skrá frá ýmsum löndum, þar á með-
al Mariu Ellingsen og Baltasar Kormák.
anlegri mynd eftir Katherine Bigelow, en það var
Kate Winslet sem hreppti það að lokum. Við eram
núna að bíða eftir niðurstöðum varðandi franska
mynd þar sem Pálína, María Ellingsen og Móeiður
Júníusdóttir (Móa) koma til greina í stór hlutverk
og enska mynd þar sem María Ellingsen og Ragn-
hildur Gísladóttir gætu hreppt aðalkvenhlutverk-
in,“ segir Mark Devine, sem telur að nýjar áhersl-
ur og alþjóðlegri í íslenskri kvikmyndagerð eigi
eftir að létta honum róðurinn. „Það kemur að því
að einhver nær alla leið.“