Morgunblaðið - 28.04.2000, Qupperneq 4
4 C FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍOBLAÐIÐ
Frás
irbanaarísks fangelsis
Karl Júlíusson hefur um árabil veriö einn eftirsóttasti og virtasti
leikmynda- og búningahönnuöur á Noröurlöndum. Eftir átta ára
dvöl í Noregi veöur hann í spennandi verkefnum. Hann segir
Árna Þórarinssyni aö þráttfyrir allar bókanirnar hefði hann ekk-
ert á móti því aö starfa viö íslenska bíómynd.
Við tökurnar í Kanada: / efri röð f.v.: Adrian Biddle framleiðandi, Kathryn
Bigelow leikstjóri, Karl Júlíusson. Neðri röð f.v.: Sigurjón Sighvatsson fram-
leiðandi ogJanet Yang.
ÍSLENSKIR listamenn í kvik-
myndafaginu létu heldur betur að sér
kveða við afhendingu Robert-verð-
launanna svokölluðu fyrir skömmu,
en danska kvikmyndaakademían út-
hlutar þeim árlega. Bíóblaðið hefur
áður sagt frá því að Valdís Óskars-
dóttir hafi verið valin klippari ársins
fyrir verk sitt við dogmamyndina Síð-
asti söngur Mifunes og þá var þess
ógetið að Karl Júlíusson hreppti leik-
mynda-Robertinn fyrir sinn hlut í
Fimmti vetur dávaldsins (Magneti-
sprens femte vinter). Myndin, sem er
eftir Morten Henriksen, varð hlut-
skörpust á norrænu kvikmyndahátíð-
inni í Rúðuborg fyrir tæpum tveimur
vikum.
Fimmti vetur dávaldsins er byggð
á samnefndri skáldsögu Pers Olov
Enquist. Aðalpersónan, þýskur kukl-
ari sem kemur í norður-sænskan
smábæ snemma á 19. öld og fer að
lækna bæjarbúa með dáleiðslu,
handayfirlagningu og „segulmagni",
á sér sannsögulega fyrirmynd í Ant-
on Mesmer, sem gaf sögninni „to
mesmerize“ eða „að dáleiða" nafn
sitt.
„Engin timburþorp eru til í Svíþjóð
frá þessum tíma,“ segir Karl í samtali
við Bíóblaðið, „og því var myndin tek-
in hér í Rorás í Noregi. Eg virðist
lenda í því að önnur hvor mynd sem
ég vinn við gerist í fortíðinni, er svo-
kölluð „períódumynd“, sem er svo-
semalvegágætt.“
Fyrsta bíómyndin sem Karl Júlíus-
son vann fyrir var einmitt víkinga-
vestri Hrafns Gunnlaugssonar
Hrafninn flýgur fyrir 18 árum. Hann
starfaði þá sem leðursmiður við
Skólavörðustíg í Reykjavík. Hrafn
hafði fengið augastað á frumlegum
leðurflíkum Karls og fékk hann til að
hanna og sauma búninga fyrir mynd
sína en þeir vöktu mikla athygli. Karl
vann svo áfram fyrir Hrafn að mynd-
unum I skugga hrafnsins, Böðlinum
og skækjunni og Hvíta víkingnum en
með þeirri mynd urðu til sambönd við
ráðamenn í norskum kvikmyndaiðn-
aði sem gerðu Karli kleift að flytjast
til Óslóar og starfa ytra. Fyrir utan
íslensku leikstjórana Hrafn, Guðnýju
Halldórsdóttur og Lárus Ymi
Óskarsson hefur Karl nú hannað bún-
inga og leikmyndir fyrir fremstu leik-
stjóra Norðurlanda, eins og Jan
Troell (Hamsun), Liv Ullmann
(Kristin Lavransdotter) og Lars von
Trier (Breaking the Waves).
Von Trier sjálfsöruggur séntilmaður
Á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
maí verður frumsýnd nýjasta mynd
von Triers, Dancer in the Dark, sem
gerist í nálægri fortíð, á tímabilinu
1960-70. Karl vann, sem fyrr segir,
með von Trier að myndinni Brimbrot
eða Breaking the Waves. Er Lars von
Trier jafn galinn og sagt er?
„Neineineinei," svarar Karl að
bragði. „Pað er mjög gott að vinna
með honum. Hann er einn mesti sént-
ilmaður sem ég hef hitt. Hann hefur
mjög skýrar hugmyndir um það sem
hann vill og ræðir þær almennt, en
það er til marks um sjálfsöryggi hans
sem listamanns að hann knýr þær
ekki fram í smáatriðum strax í upp-
hafi, heldur vill fá tillögur frá mér
fyrst. Eins og hann segir sjálfur velur
hann samstarfsmenn eftir getu
þeirra og gengur út frá því að þeir
skili sínu verki. Mikilvægast í sam-
starfi af þessu tagi er ævinlega að
vinna traust leikstjórans. Þetta var
tröllvaxið leikmyndaverkefni, það
stærsta sem ég hef unnið. Myndin
gerist í Bandaríkjunum og við byggð-
um amerískt umhveifi frá þessum
tíma í dönsku tökuveri, á bilinu 50-60
leikmyndir. Við byggðum til dæmis
heila verksmiðju með vélarkost upp á
70 tonn, risastórt fangelsi og réttar-
sal, svo dæmi séu tekin.“
Dancer in the Dark, er með öðrum
íslenskum listamanni, Björk Guð-
mundsdóttur, í einu aðalhlutverkinu,
auk þess sem hún semur tónlistina,
og fyrirtæki Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Islenska kvikmyndasamsteyp-
an, er meðframleiðandi. „Þetta er
stórmynd á evrópskan mælikvarða,“
segir Karl. „Þeir sem séð hafa telja
hana afar vel heppnaða og að Björk
brilleri bæði í leik og tónlist."
Senn er væntanleg til sýninga á
Islandi ný norsk mynd með listrænni
hönnun Karls, Misery Harbour eftir
Nils Gaup, eins og fram kom í síðasta
Bíóblaði. „Það var gaman að starfa
við hana,“ segir Karl, „að því leyti að
ég varð að skapa fyrir hana fiski-
mannaþorp og þá kom sér vel að hafa
unnið í saltfiski á Islandi. Hún var
tekin í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð.“
Bigelow, Slethaune og Bornedal
Nýlega hannaði Karl leikmyndir
fyrir bandaríska bíómynd á vegum
Sigurjóns Sighvatssonar sem tekin
var í Kanada undir stjóm leikstjór-
ans Kathryn Bigelow, en hún er kunn
af spennumyndum á borð við Strange
Days, Point Break og Near Dark. Að-
alhlutverkið í þeirri mynd er leikið af
Sean Penn. „Þetta var mjög
skemmtileg reynsla," segir Karl,
„ekki síst vegna þess að bandarískar
myndir eru mannaðar og fjármagn-
aðar eftir þörfum og eru því auðveld-
ari í framkvæmd en evrópskar mynd-
h* yfirleitt. Ég er vanur að teikna
leikmyndimar sjálfur en í þessu til-
felli hafði ég með mér útlitsstjórn-
anda og tvo leikmyndahönnuði, arkí-
tekta og tvo hlaupagutta, sem ég hef
aldrei haft áður. Svona batterí getur
tekist á við hvaða breytingar sem er
með skömmum fyrirvara. Þar fyrir
utan gerist myndin á tveimur tíma-
plönum, sem fléttast saman, og það
var einnig töluvert ögrandi.“
Um þessar mundir er Karl Júlíus-
son að vinna með gömlum samstarfs-
manni sínum, norska leikstjóranum
PSl Slethaune, sem áður hefur m.a.
gert hina bráðglúrnu mynd Junkmail
eða Ruslpóstur. „Nýja myndin er í
ekki ósvipuðum dúr og Ruslpóstur,
gerist í stílfærðum samtíma í Ósló.
Slethaune er frábærlega skemmti-
legur náungi. Hann á að vísu dálítið
erfitt með að ákveða sig, en óákveðni
er bara hans leið að markinu, því hver
hefur sína aðferð við að nálgast það
sem stefnt er að. Handritið er mjög
gott og ég hef trú á að þetta verði
hans besta mynd.“
í haust hefur Karl vinnu við viða-
mikla samevrópska stórmynd,
byggða á skáldsögu eftir Herbjorgu
Wassmo. Leikstjóri verður Ole
Bomedal, sem kunnur er af spennu-
smellinum Næturverðinum.
Karl Júlíusson, sem einnig skýtur
auglýsingaverkefnum inn á milli bíó-
myndanna, þarf því ekki að kvarta yf-
ir verkefnaskorti. „Það er ekki vanda-
málið. Það er yfrið nóg að gera.“
Og stendur nokkuð til að vinna við
íslenska bíómynd? „Ekki hefði ég á
móti því,“ svarar hann. „En þá þarf
einhver að bjóða mér rétta verkefn-
ið.“
M° ns v •»
GGeS§°rlíf
sásvegi 16
portinu)
Sprenghlægilegt verð!
Enn meiri verðlækkun
Öll föt á kr. 1.000.
Opið alla daga frá kl. 12-18
Sigurbjorn
Aöalsteinsson
Refur
fyrir
rass
„ What Ever Happened to
Tully?“ stóð uppi sem sigurveg-
ari ð nýafstaðinni óhððri kvik-
myndahátíð hér í Los Angeles.
(LA Independent Film Festival.)
Tully þessi, sem spurt er um í
titlinum, er myndarlegur ung-
lingsdrengur í Nebraska sem
dregurjafnöldrursínará tálar,
en lendir í vandræðum með
brothætt hjarta sitt þegarhann
verður ástfanginn
Tully" erfrumraun Hilary
Birminghami leik-
stjórn, en það má segja
að hún hafi unnið hátíð-
ina því hún var einnig kosinn
besti leikstjórinn. Þarmeð
skaut hún tveimur frægum leik-
urum, sem voru að frumsýna
fyrstu leikstjórnarverk sín hér,
ref fyrir rass (er einhver til í aö
segia mér hvaöan þetta oröatil-
tæki kemur?).
Þetta eru Joe Mantegna
(The Ususal Suspects) og
Shirley MacLaine (Terms of
Endear-
ment). Mynd
Mantegna,
„Lakeboat",
er byggð á
gamansömu
leikriti (og
handriti) eftir
David Ma-
met(The
Spanish Pris-
onet). Mantegna ætti aö
þekkja stykkiö, því hann leik-
stýrði því á sviði hér í Los Ang-
eles fyrir nokkrum árum. Meðal
leikara í myndinni eru Charles
Durning(One Fine Daý), Peter
Falk (Himmel uber Berlin) og
bróðir skáldsins, Tony Mamet.
Frumraun MacLaine sem
leikstjóra heitir „Bruno“. Bruno
þessi er átta ára drengur sem
getur stafað hvaða orð sem er,
en vill helst gera það klæddur í
kjól eða pils. Þetta fer fyrir
brjóstið á nunnum sem reka
skólann sem drengurinn erí.
Hann (og mamma hans og
amma, sem MacLaine leikur)
neita aö láta undan þrýstingi
frá brúðum Krists. í lokin skýt-
ur drengurinn öðrum keppend-
um ref fyrir rass og sigrar staf-
setningakeppni kaþólskra í
pilsi. Og verðlaunin? Jú, hann
fær að hitta páfann sem, eins
og allir vita, gengur um í kjól á
hverjum degi (og fær ekki bágt
fyrirhjá neinni nunnu).
Meðal gesta á hátíðinni var
Jim Stark, framleiðandi og
annar handritshöfundur mynd-
ar Friðriks Þórs Friðrikssonar,
„A köldum klaka".
Hann var hérna með mynd
sem heitir „/ 'II takeyou there",
glettilega mynd um mann sem
beitir öllum brögðum til þess
að ná aftur ástum konu sinnar.
Um 30.000 gestir komu á
hátíðina, sem telst gott fyrir
hátíð sem aðeins er haldin í
sjötta skipti.
Jim Stark vara.m.k. nokkuð
hrifinn af því sem hann sá.
„Sundance er sprungin. Þeir fá
2.000 umsóknir árlega en geta
ekki sýnt nema brot af þeim
fjölda. Þessi hátíð erein af
þeim sem taka við myndunum
sem komast ekki á Sundance
að ósekju."
MacLaine