Morgunblaðið - 28.04.2000, Side 5
/^Ufeyrir ^^^Sameinaði lífeyrissjóSurinn sími 510 5000 lifeyrir.is Séreignarsparnaður
Enn fleiri valkostir í séreignarsparnaði á árinu 2000
■ ^JANU8
Á árinu 1999 var boðið upp á 5 fjárfestingaleiðir í séreignardeiLdum Sameinaða Lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðn. Tvær leiðir sem byggja að mestu á innlendum verðbréfum og þrjár erlendar hLutabréfaleióir. Erlendu hlutabréfaleiðirnar eru boðnarí samvinnu vió Verðbréfastofuna, löggilt verðbréfafyrirtæki, og bandariska sjóðafyrirtækið Vanguard, sem er annað stærsta fýrir- tækið á þessu sviði í Bandaríkjunum.
Á árinu 2000 ætlar Sameinaði lifeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn að bjóða sjóðfélögum sem leggja inn í séreignardeild upp á þijár nýjar fjárfestingaLeióir þar sem fjárfest er í hlutabréfa- sjóðum hjá bandaríska sjóðafyrirtækinu Janus. Um þessar mundir nýtur Janus mikilLar velgengni vestra og sem dæmi má nefna að rúmur heLmingur alLra greiðslna í verðbréfasjóði í Bandaríkjunum, sem af er árinu 2000, runnu í sjóði fyrirtækisins. Fjárfestar hafa þvi mikLa trú á fyrirtækinu enda hafa sjóðir þess sýnt afburða góða ávöxtun.
Janus var stofnað árið 1969 og er staðsett í Denver, Colorado, í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta í sjóðum Janus er 2 millj. og nema heildareignir fyrirtækisins 273 bilLj. doLLara. FjöLdi starfsmanna
er um 2000.
Þrír nýir valkostir í séreignarsparnaði
— Leið 6 - Twenty Fund Sjóðurinn leitast við að halda langtíma ávöxtun með fjárfestingum í 20-30 fyrir-
tækjum sem mynda einskonar kjarna. Flest fyrirtækin í sjóðnum eru tæknifyrirtæki eða rúm 70%.
Þannig eru stærstu eignir sjóðsins hlutir í tæknifyrirtækjum eins og Nokia, America OnLine Inc.
og Cisco Systems Inc. Sjóðurinn er uppbyggður á þann hátt að til skamms tíma getur ávöxtun
sveiflast mikið, bæði upp og niður, en líta verður á sjóðinn sem langtíma ijárfestingu.
Ávöxtunartölur sjóðsins hafa verið mjög góðar. Má þar nefna að árleg meðaltals ávöxtun sjóðsins
sl. 10 ár hefur verið 27.6% á ári en 43.1% sl. 5 ár. Ávöxtun ársins 1999 var 73.1%.
— Leið 7 - Global Technology Fund Global Technology Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem ijárfestir í
hLutabréfum fyrirtækja hvaðan að úr heiminum. Leitast er við að kaupa hLuti i fyrirtækjum sem
eiga eftir að hagnast á þróun og framförum í tækniiðnaði, tiL að mynda hugbúnaði, síma-, fjar-
skipta- og töLvufyrirtækjum. Ávöxtun sjóðsins fyrir árið 1999 var afburða góð, eða 211.5%, og
er tiL vitnis um sterka stöðu hans.
— Leið 8 - Global Life Science Fund GLobal Life Science Fund er sérhæfður vaxtasjóður sem fjárfestir
líkt og Global Technology Fund í hlutabréfum fyrirtækja hvaðanæva að úr heiminum. Keypt er í
fyrirtækjum með dreifðum hætti, sem tilheyra Líftækniiðnaði. Má þar nefna sjúkrahús, rannsókna-
fyrirtæki, sjúkraheimiLi, fyrirtæki sem framLeiða hugbúnað fyrir heiLbrigðisstofnanir og mörg
önnur fyrirtæki. Ávöxtun sjóðsins árið 1999 var 61.0%.
Allar framangreindar ávöxtunartölur eru reiknaðar í BandarikjadöLum. Rétt er að minna á að hægt
er að skipta um fjárfestingarleið hvenær sem er á sparnaðartímanum án aukakostnaðar. Einnig
er unnt að nýta sér eina fjárfestingarLeið eða fleiri og byggja þannig upp sitt eigið verðbréfasafn.
Frekari upplýsingar veita starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðn.
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Lífiðn
Sími: 568 1438
www.lifidn.is