Morgunblaðið - 28.04.2000, Page 8
Leikritið Draumur á Jónsmessunótt undir
leikstjórn Baltasars Kormáks
verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 20. apríl
á 50 ára afmælisdegi Þjóðleikhússins.
Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Danshöfundur: Aletta Collins.
Þýðing: Helgi Hálfdanarson. Lýsing: Páll Ragnarsson.
Leikmynd: Vytautas Narbutas. Búningar: Vytautas Narbutas
og FHippía I. Elísdóttir.
ý§>mbl.is
-^KLLTA^ errTH\/A£) A/K/ /
8 C FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
í tilefni af frumsýningu leikritsins
Draumur á Jónsmessunótt stendur mbl.is
fyrir léttum spurningaleik.
Svaraðu spurningum
á mbl.is ogdraumurþinn gæti ræst.
Vinningar
• Miðar fyrir tvo á leikritið
Draumur á Jónsmessunótt
• Hádegisverður frá
veitingastaðnum SOlHIÍielÍGr
8 r a s s e r I c
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐ
Hinn bandaríski
Hitcncock
Það hafa alltaf verið skiptar skoðanir um bandaríska leikstjór-
ann Brian De Palma, en nýjasta mynd hans, „Mission to Mars“
er nú sýnd hérlendis. Sumir hafa sagt hann herma full augljós-
lega eftir goði sínu, Alfred Hitchcock, en aðrir segja hann frum-
legan hryllingsmyndasmið sem hafi viðurkennt og auðgað list
hrollvekjumeistarans, enda hefur hann verið kallaður „hinn
bandaríski Hitchcock", skrifar Arnaldur Indrióason.
Fyrsta geimferðamynd De Palma, "Mission to Mars" eða "Ferðin til Mars",
með Tim Robbins og Gary Sinise í aðalhlutverkum.
Hann var alltaf í miklu uppáhaldi hjá
gagnrýnandanum tannhvassa, Paul-
ine Kael, sem sá í honum einn af
efnilegri leikstjórum vestanhafs en
hefur hin síðari ár ekki gert neinar
myndir á borð við Hina vammlausu
eða meistaraverkið Casualties of
War, einhverja bestu stríðsmynd
sem gerð hefur verið.
Hann er kannski þekktastur fyrir
hrollvekjur sínar eins og Carríe og
Dressed to Kill, en hefur alltaf verið
opinn fyrir nýjungum, bæði kvik-
myndatæknilegum og ekki síður efn-
islegum, og þess vegna sjáum við
núna fyrsta geimferðatrylli Brians
De Palma. Ferðinni til Mars eða
Mission to Mars hefði, miðað við
hvernig Hollywood-kerfið virkar, átt
að vera leikstýrt af einhverjum
hinna nýju hasarleikstjóra sem
spennandi geimævintýri. De Palma
hefur aldrei áður gert geimævintýri,
en var sannarlega tilbúinn að prófa
og tilhugsunin um hann í geimnum
.er talsvert heillandi.
De Palma verður sextugur í sept-
ember en hann hefur verið að búa til
bíómyndir frá því snemma á sjöunda
áratugnum. Hann gerði fyrst tvær
myndir með Robert De Niro; The
Wedding Party og Greetings, en
þegar hann hafði komið undir sig fót-
unum fór hann að gera hryllings-
myndir mjög í ætt við myndir Hitch-
cock. Sú fyrsta í röðinni var Systur
árið 1973 og þremur árum síðar
gerði hann Obsession, sem byggði al-
gjörlega á Vertigo. Carríe gerði
hann eftir sögu Stephens King (síð-
an hann skaut hendinni upp úr gröf-
inni hafa margföld endalok orðið
helsta vörumerki hrollvekja) og
Dressed to Kill var ekki að ósekju
líkt við Geggjun, eða Psycho. Á
eftir fylgdi samsæristryllirinn
Blow Out og svo Body Double,
sem kom inn á klámmyndaiðnað-
inn á einstaklega kaldhæðinn hátt
(í myndinni var kona bókstaflega
boruð niður í gólfið og leggi hver
sína merkingu í það).
De Palma var þó aldrei blóðugri
en í endurgerðinni Scarface þar
sem AI Pacino fór á kostum (hei,
Doní, dón foggmí) sem kúbanskur
eiturlyfjabarón með verulega
slæma kókaínfíkn. Sagt er að De
Palma hafi viljað nota alvöru kúlur í
útblásnu lokaatriðinu og myndin er
nógu villt til þess að maður gefi
þeirri kjaftasögu séns.
De Palma virtist róast nokkuð eft-
ir gerð Scarface. Á eftir henni gerði
hann hreinlega gamanmynd, Wise
Guys, og loks metsölumyndina Hinir
vammlausu, þar sem hann lék sér
með ýmsar klisjur glæpamyndanna,
fékk sinn gamla vin De Niro í hlut-
verk A1 C'apone og „stal“ með glæsi-
legum hætti Odessa-atriði Eisen-
stein úr Beitiskipinu Potemkin.
Fórnarlömb stríðsins, eða Casu-
a/ties of War er líklega besta mynd
De Palma, en þar veltir hann fyrir
sér spurningum um stríð og sam-
visku og hin saklausu fórnarlömb
styrjalda. Hún gerist í Víetnam-
stríðinu, en gæti verið úr hvaða stríði
sem er og segir frá því þegar lítill
herflokkur nauðgar víetnamskri
stúlku, en einn hermannanna vill
ekki taka þátt og samviskan nagar
hann alla tíð. Meira að segja Michael
J. Fox lék vel undir stjórn De Palma
og Sean Penn vann leiksigur. í öllu
því flóði Víetnam-mynda sem komið
hefur frá Hollywood hefur þessi orð-
ið útundan og á það síst allra skilið.
De Palma er samt líka fær um að
gera hræðilega vondar myndir og
segja má að hann hafi gersamlega
klúðrað glæsilegri háðsádeilu
Toms Wolfe, Bálkesti hégómans.
Raising Cain var forvitnileg til-
raun til að nálgast aftur Hitch-
coek-myndirnar og í Carlito’s
Way má sjá stórkostlegan leik
Pacino og Penn, á meðan Snáka-
augu er verulega misheppnuð
skemmtun. Vinsælasta mynd De
Palmas seinni árin er hasarmynd-
in Mission Impossible. Nú veðjar
De Palma á nýtt „Mission“, kom-
inn út í geiminn á leið til stjarn-
anna og álitamál hvort hann skín
eða skellur.
Brian De Palma
er fæddur í Newark í New Jersey og
hefur aldrei gert geimævintýri áöur.
Hann las vísindatímarit, kynnti sér
tölvugerö og rannsóknir á geimnum.
Hann hefuralltaf verið mikill geimá-
hugamaöur og man Ijóslifandi eftir
gamalli tunglmynd sem hét Destinat-
ion Moon eöa Ákvörðunarstaður tungl-
iö og hafói mikil áhrif á hann ungan.