Morgunblaðið - 03.05.2000, Qupperneq 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÍA að vinna
kapphlaupið
um Sigurð
SVO virðist vera að Skagamenn ætli að hafa betur í
kapphlaupinu við KR-inga uni að fá knattspyrnumann-
inn Sigurð Jónsson í sínar raðir.
Bæði félög hafa verið í viðræðum við Sigurð eftir að
fregnir bárust um að hann hefði náð samkomulagi við
Dundee United um að ljúka samningi sínum við félagið.
„Það hefur ekki verið gengið frá neinum samningi
við Sigurð en eigum við ekki að segja að þetta sé allt á
réttri leið,“ sagði Smári Guðjónsson formaður knatt-
spyrnudeildar IA í samtali við Morgunblaðið í gær.
Sigurður er væntanlegur til landsins síðar í vikunni
og þá er búist við því að hann gangi frá samningi við
sitt gamla félag.
■ JÓN Þ. Stefánsson er hættur hjá
íyrstudeildarliði Vals í knattspymu.
Hann hefur æft með FH síðustu
daga en ekki er ljóst hvort hann
gengur til liðs við Hafnarfjarðarlið-
ið.
■ ARNAR Hrafn Jóhannsson er
hins vegar kominn í raðir Vals-
manna frá Víkingum. Amar lék 10
leiki með Víkingi í úrvalsdeildinni í
fyrra en spilaði þar 17 leiki með Val
tímabilið 1997.
■ EYSTEINN Hauksson og Snorri
Már Jónsson léku ekki með Keflavík
gegn Stjömunni í fyrradag vegna
meiðsla og Rútur Snorrason var.
nýstiginn upp úr veildndum.
■ BREIDABLIK mun ekki fá til sín
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorvaldur Örlygsson, sem er byrjaður að leika á ný á íslandi eftir að hafa leikið með Nottingham Forest, Stoke og Oldham í Englandi,
átti góðan leik í vöminni hjá KA. Hér sækir Nökkvi Gunnarsson að honum.
KR-ingar og Skaga-
menn eru úr leik
Bandaríkjamennina tvo sem ráð var
fyrir gert og áttu að koma til reynslu
um miðjan maí. Blikar telja sig vera
komna með þann leikmannahóp sem
þeir þurfi fyrir sumarið.
■ SVÍINN Patrik Feltendahl lék
sinn fyrsta leik með KA-mönnum á
þessu tímabili en hann er nýkominn
til landsins. Feltendel þekkir vel til
hjá Akureyrarliðinu því hann hóf
með því tímabilið 1998 en slasaðist
illa eftir aðeins tvo leiki. Þá er Eng-
lendingurinn Dean Martin væntan-
legur til KA í næstu viku.
■ HREINN Hringsson, einn helsti
markaskorari Þróttar R. undanfarin
ár, er kominn aftur til félagsins en
hann hefur leikið með Dumbarton í
skosku 3. deildinni frá því í desem-
ber.
■ LEIFTUR lék án fimm sterkra
leikmanna gegn Breiðabliki en náði
þó að innbyrða sigur. Hörður Már
Magnússon, Hlynur Birgisson og
Július Tryggvason hafa allir átt í
meiðslum og Steinn Viðar Gunnars-
son og Þorvaldur Guðbjörnsson
voru í próflestri.
■ VEGNA manneklunnar brugðu
Leiftursmenn á það ráð að fá tvo
fyrrverandi leikmenn sína, Matthías
Sigvaldason og Steinar Ingimund-
arson, lánaða frá Fjölni í leikinn
gegn Breiðabliki.
■ VALDIMAR Kristófersson lék
sinn fyrsta leik með Stjörnunni í vor
en hann hefur verið búsettur í Lond-
on í vetur og æft með Brentford.
Genk í bik-
arúrslit
GENK er komið í úrslit belgísku bik-
arkeppninnar í knattspyrnu í annað
skiptið á tveimur árum. Genk lagði
St. Truiden, 1:0, á útivelli, í síðari leik
liðanna á sunnudagskvöldið en þau
höfðu áður gert markalaust jafntefli á
heimavelli Genk. Þórður Guðjónsson
lék allan leikinn með Genk, sem mæt-
ir Standard Liege í úrslitaleiknum.
KR og ÍA féllu bæði úr keppni í
16 liða úrslitum deildarbikars-
ins í knattspyrnu á mánudaginn.
Stórveldin tvö sem unnið hafa
keppnina tvö undanfarin ár voru
bæði slegin út á heimavelli. KR
lá fyrir 1. deildar liði KA á gervi-
grasinu í Laugardal, 0:1, og ÍA
beið lægri hlut fyrir Fylki á mal-
arvellinum á Akranesi, 1:3.
að var lítill meistarabragur á leik
KR-inga á gervigrasinu í Laug-
ardal. Pétur Pétursson, þjálfari KR,
tefldi fram liði með blöndu af eldri
leikmönnum og yngri strákum og
þessi blanda virkaði alls ekki gegn
baráttuglöðum KA-mönnum. KR-
ingar, sem voru án Kristjáns Finn-
bogasonar, Þórhalls Hinrikssonar,
Einars Þórs Daníelssonar, Guðmund-
ar Benediktssonar og Andra Sigþórs-
sonar, voru slakir og töpuðu verð-
skuldað fyrir baráttuglöðum KA-
mönnum sem sýndu að þeir gætu
blandað sér í baráttu um úrvalsdeild-
arsæti í haust.
Norðanmenn skoruðu sigurmarkið
á 35. mínútu leiksins og verður það að
skrifast á reikning Bjarka Guð-
mundssonar, markvarðar KR. Hann
fékk dæmda á sig klaufalega auka-
spymu utan teigs og úr henni skoraði
KA sigurmarkið. Það gerði Þorvaldur
Makan Sigbjömsson með skalla úr
markteignum eftir fyrirgjöf. Og til að
bæta gráu ofan á svart misstu KR-
ingar mann útaf á 40. mínútu þegar
Logi Jónsson fékk að líta sitt annað
gula spjald. KR-ingar sóttu meira í
síðari hálfleik en tókst sjaldan að
finna glufur á vamarmúr KA sem
Þorvaldur Örlygsson stjómaði af ör-
yggi-
Sigurganga ÍA stöðvuð
Skagamenn, sem eru núverandi
deildarbikarmeistarar og höfðu ekki
tapað tíu deildarbikarieikjum í röð,
máttu þola brotlendingu á Akranesi er
Fylkir kom í heimsókn, 3:1. Gunnar
Þór Pétursson, Amaldur Schram og
Sturla Guðlaugsson skoruðu fyrir gest-
ina, en Baldur Aðalsteinsson fyrir LA
Góður endahnútur
hjá Gesti
Keflvíkingar unnu nokkuð verð-
skuldaðan sigur á Stjömunni, 2:0, í
Reykjaneshöll. Þeir vom sterkari að-
ilinn lengst af og náðu forystunni í
upphafi síðari hálfleiks þegar Guð-
mundur Steinarsson skoraði með
glæsilegu skoti af 20 metra færi.
Stjaman pressaði talsvert á lokakafl-
anum og var næst því að jafna þegar
Boban Ristic slapp í gegnum vöm
heimamanna en Gunnleifur Gunn-
leifsson varði vel. Mínútu fyrir leiks-
lok braut Gestur Gylfason niður sókn
Stjömunnar á eigin vítateig og hóf
skyndisókn, og batt sjálfur endahnút-
inn á hana með góðu skoti frá vítateig
eftir sendingu Haralds Guðmunds-
sonar, 2:0.
Vladimir Sandulovic, nýi Júgóslav-
inn, lék sinn fyrsta leik með Stjöm-
unni og styrkir vöm liðsins greinilega
talsvert.
Sjálfsmark felldi Skallagrím
Grindavík lenti í miklu basli með 1.
deildarlið Skallagríms í Reykjanes-
höll en sigraði að lokum, 2:1. Borg-
nesingar náðu óvænt forystunni í
byrjun leiks þegar Valdimar K. Sig-
urðsson skoraði beint úr aukaspymu
utan af vinstra kanti. Eftir það sóttu
Grindvíkingar stíft en gekk illa að
bijóta niður sterkan vamarleik Borg-
nesinga. Sinisa Kekic náði að jafna
metin með hörkuskoti rétt fyrir hlé,
1:1. Það var svo 10 mínútum fyrir
leikslok sem úrslitin réðust en þá
skoraði Borgnesingurinn Hilmar
Hilmarsson slysalegt sjálfsmark.
Leiftur sneri blaðinu við
Leiftur lagði Breiðablik, 2:1, í
tvísýnum leik á gervigrasinu á Ásvöll-
um í Hafnarfirði. Hreiðar Bjamason
kom Blikum yfn- eftir hálftíma með
laglegu marki og þeir vora 1:0 yfir í
hálfleik. Strax eftir hlé jafnaði Alex-
andre Santos með skalla eftir fyrir-
gjöf frá Sámal Joensen og Örlygur
Helgason skoraði sigurmarkið 20
mínútu fyrir leikslok með fallegu
skoti eftir góða sókn. Skömmu síðar
átti Hreiðar þrumuskot í þverslá Ólafs-
firðinga. Mínútu fyrir leikslok fékk
Leiftur vítaspymu þegar Steinar Ingi-
mundarson var felldur en Alexandre
Santos skaut yfir mark Breiðabliks.
Matthías bjargaði Val
Varamaðurinn Matthías Guðmunds-
son kom Valsmönnum áfram þegar
hann skoraði sigurmark þeirra gegn
Tindastóli 2 mínútum íyrir leikslok,
2:1, í slag 1. deildar liðanna á gervi-
grasinu í Laugardal. Markið var slysa-
legt fyrir Sauðkrækinga því skot Matt>
híasar utan af kanti virtist ekki
hættulegt en markvörðurinn missti
boltann undir sig og í markið. Vals-
menn höfðu náð forystunni þegar 2
mlnútur vora eftir af fyrri hálfleik þeg-
ar Amar Hrafn Jóhannsson skoraði
með góðu skoti frá vítateig en vara-
maðurinn Sigurður Valur Amason
jafnaði fyrir Tindastól 13 mínútum fyr-
ir leikslok.
Ingi sá rautt
Eyjamaðurinn Ingi Sigurðsson fékk
að sjá rauða spjaldið þegar ÍBV lagði
Vfldng að velli á malarvellinum í Vík-
inni, 3:1. Ingi fékk reisupassann eftir
að hann og Valur Ulfarsson lentu sam-
an í seinni hálfleik, þegar staðan var
2:1 fyrir ÍBV. Þrátt fyrir það að leika
einum færri bættu Eyjamenn, Bjami
Geir Viðarsson, við marki og unnu ör-
uggan sigur. Hjalti Jónsson skoraði
fyrsta mark ÍBV, en Bjarni Hall jafn-
aði fyrir Vfldnga í seinni hálfleik.
Stuttu eftir að Bjarni jafnaði skoraði
Allan Mörköre fyrir ÍBV.
Stórsigur FH-inga
FH-ingar unnu stórsigur á Dalvík-
ingum, 5:1, en leikurinn var þó jaihari
en tölumar gefa til kynna. FH-ingar
skoraðu tvö mörk á sömu mínútunni í
fyrri hálfleik. Það fyrra gerði Jóhann
Tómas Sigurðsson utan af kanti og það
síðara skoraði markahrókurinn mikli,
Hörður Magnússon. Dalvfldngar
minnkuðu muninn með fallegu marki
Elmars Eiríkssonar fyrir leikhléið og
fyrsta stundarfjórðunginn í síðari hálf-
leik voru þeir líklegir til að jafna metin.
Þegar Davíð Ólafsson skoraði svo
þriðja mark FH úr skyndisókn játuðu
Dalvfldngar sig sigraða og hinn sprett-
harði Jón Gunnar Gunnarsson innsigl-
aði öruggan sigur FH með tveimur fal-
legum mörkum.
Átta liða úrslitin
Átta liða úrslitin verða leikin annað
kvöld, fimmtudagskvöld. Þar mætast
1. deildar lið FH og Vals, Suðumesja-
liðin Grindavík og Keflavík, Norður-
landsliðin KA og Leiftur og loks eigast
við Fylkir og ÍBV.
Kaupin á Ólafi áttu
ekki að fréttast
RON Noades, knattspyrnustjóri Brentford, er æfur yfir því að
kaup hans á Olafi Gottskálkssyni markverði frá Hibernian
skyldu spyrjast út áður en tímabiiinu lyki í Englandi. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu á dögunum hefur Olafur gert
þriggja ára samning við Brentford. Noades óttaðist slæm við-
brögð frá Andy Woodman, aðalmarkverði Brentford, og sú varð
raunin. Haft er eftir Woodman að hann ætli ekki að láta sinn
hlut gegn Ólafi og berjast fyrir stöðu sinni.