Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 2
*2 % i( REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVROPU MORGUNBLAÐIÐ Ljóð í vindinn og skúffuskáld í Þjóðmenningarhúsinu veröur opnuö forvitnileg sýning 20. maí.Yfirskrift hennar er íslands 1000 Ijóð og er markmið hennar að hylla íslenska Ijóðlist og vekja áhuga á Ijóöum, fornum og nýjum SÝNINGUNNI er ekki ætlað að vera bókmenntasöguleg úttekt, en lögð verður áhersla á að sýna fjöl- breytni íslenskra Ijóða, eins og hún endurspeglast í formi og efnistök- um. Ljóðunum verður skipað saman eftir efni og innihaldi og myndræn umgjörð sýningarinnar byggð upp í kringum þau þemu. Ljóðin verða á borð borin fyrir gesti og til aflestr- ar á ýmsa lund, en auk þess má hlýða á upptökur með upplestri höf- unda og leita ljóða á slóðum Ljóða- vefjar Listahátíðar. Fjölbreyttar ljóðadagskrár með upplestri verða haldnar í tengslum við sýninguna. Ljóðavefur og skúffuskáld Á Ljóðavef Listahátíðar, sem verður opnaður samhliða sýning- unni, verða birt sýnishorn ljóða af sýningunni, en þar verður einnig að fínna álitlegt safn ljóðaslóða. Ljóð og ljóðskáld á vefnum verða þannig kynnt í tengslum við sýninguna. A sýningunni sjálfri gefst „skúffu- skáldum" kostur á að rita ljóð sín á sýningunni eða koma ljóði sínu fyrir í sérstakri skrifborðsskúffu þar sem þau eru öllum heimil til aflestrar. Við opnun ljóðasýningarinnar verður sérstakur fáni dreginn að húni. Á fána sýningarinnar verður letrað ljóð sem er „ort í vindinn" og ber yfirskriftina: „Til“. Öllum nem- endum íslenskra grunnskóla er heimilt að senda inn tillögu að fána- ljóði, en Listahátíð í Reykjavík mun veita viðurkenningu fyrir bestu til- löguna. Ljóðinu er ætlað að vera kveðja sem send er með vindi áleið- is til móttakanda í víðri veröld. Ljóðið mun einnig birtast á Ljóða- vefnum ásamt fleiri tillögum skóla- nema, á sérstakri vefsíðu tileinkaðri þemanu. í undirbúningsnefnd sýningar- innar sitja Kristín Bragadóttir frá Landsbókasafni-Háskólabókasafni, Kristján Árnason frá Bókmennta- stofnun Háskóla íslands og Andri Snær Magnason fyrir hönd Lista- hátíðar. Hönnuður sýningarinnar er Áslaug Jónsdóttir. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarborg- arinnar og Listahátíðar í Reykja- vík. FYRIR ALLA FJOLSKYLDUNNA 01.05 Opinn háskóli hefst Boðið verður upp á 17 námskeið í sex greinum ætluð börnum og 13 námskeið fyrir fullorðna. Nám- skeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu og fjalla um allt á milli himins og jarðar. Opinn há- skóli stendur til loka júní. www.opinnhaskoli2000.hi.is 06.05 Opið hús Allir velkomnir í bæinn hjá leik- skólum Reykjavíkur þar sem list- sköpun barna í tengslum við verk- efnið 2000 böm í Reykjavík verður til sýnis. Sex ára böm vinna verk- efni um náttúruöflin vatn, eld, loft, jörð og útfærslur á þemanu „borg og náttúra" verða til sýnis í alls kyns uppákomum og listviðburð- um víða um bæinn. 2000 böm er unnið í samvinnu Leikskóla Reykjavíkur og Kramhússins. 06.05 fþróttadagur haldinn í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Á dagskránni, sem er hluti af Ljósbroti, em hópíþróttir, fræðsla, glíma og gönguferðir auk þess sem þátttakendur geta leikið sér í ýmsum íþróttum undir dynj- andi tónlist fram eftir kvöldi á íþróttanótt. 20.05 Setning Listahátíðar í Reykjavfk Listahátíð hefst með tónleika- dagskránni Hvert örstutt spor í Þjóðleikhúsinu. Listahátíð stend- ur í tvær vikur og lýkur hinn 8. júní. www.artfest.is 24.05 Prinsessan í hörpunni Unima á íslandi - Leikbrúðu- land fmmsýnir brúðuleikrit eftir Böðvar Guðmundsson. í sýning- unni koma fram leikbrúður, grím- ur og leikarar og byggist verkið á gömlu ævintýri og fomum sögn- um. Sagan segir af dóttur Sigurð- ar Fáfnisbana, sem flýr ásamt fóstra sínum undan óvildarmönn- um, falin í hörpu. Prinsessan verð- ur sýnd í Tjamarbíói dagana 24. og 25. maí og er jafnframt liður í dagskrá Listahátíðar. 25.05-28.05 Lífíborg Fjölskrúðug fræðæ og menn- ingarhátíð Háskóla íslands hefst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem speglar borgarlífíð í sínum margvíslegustu myndum - allt frá huliðsheimum Reykjavík- ur til líkamsburðar og heilsufars borgarbúa. Dagskráin fer ffarn í Háskóla íslands og víða um borg- ina. www.hi.is 27.05 Lokahátíð 2000 barna 5 ára böm úr öllum leikskólum borgarinnar koma saman á Arnar- hóli kl. 14. Börnin syngja og dansa við sérsamið tónverk og fara í rat- leik með foreldrum sínum um mið- borgina þar sem búið verður að koma fyrir listaverkum bamanna í helstu sýningasölum borgarinnar. 2000 böm er unnið í samvinnu Leikskóla Reykjavíkur og Kram- hússins. 27.05 Völuspá Möguleikhúsið fmmsýnir barnaleikrit eftir Þórarin Eldjárn sem byggist á hinu foma kvæði Völuspá. Sýningin er leikin af ein- um leikara og tónlistarmanni og er ætluð bömum á aldrinum 9-15 ára. Völuspá verður sýnd þrisvar í Möguleikhúsinu við Hlemm 27. og 28. maí og 1. júní og er jafnframt á dagskrá Listahátíðar. 28.05 Stangaveiðimót unglinga 16 ára og yngri verður haldið við Helluvatn í Heiðmörk og hefst kl. 13:30. Mótið er hluti af afmælis- dagskránni Heiðmörk 50 ára og þátttaka er ókeypis. www.heid- mork.is 03.06 Leikbrúðusýningin Don Giovanni Heimsfræg uppfærsla frá Þjóð- arbrúðuleikhúsi Tékklands í Prag. Hér leika skrautlegar leikbrúður þessa dáðu óperu Mozarts sem sett verður upp í íslensku óper- unni og er ætluð allri fjölskyld- unni. Fjórar sýningar 3. og 4. júní sem jafnframt em liður í dagskrá Listahátíðar. 04.06 Furalundur Fjölskyldurjóður vígt í Heið- mörk. Skemmtiatriði, veitingar og frábær ný leikaðstaða fyrir böm. Dagskráin hefst kl. 13:30. Rútu- ferðir frá Mjódd. www.heidmork.is 05.06-07.08 Sagan í landslag- inu, náttúra, búseta, miiyar og list Námskeið og fræðsla fyrir böm og unglinga á aldrinum 12-14 ára. Hvert námskeið stendur í 5 daga og markmiðið er að miðla fræðslu um samspil náttúm og manns. Skráning hjá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar s. 553 2906, en fjöl- mörg söfn standa saman að nám- skeiðunum. Brúðurnar eru verk Tékkans Petr Matasek. Þau standa að Prinsessunni í hörpunni, brúöuleikararnir Helga Steffensen, Margrét Kolka, Sigrún Erla Sigurðardóttir, leikstjórinn Þórhallur Sigurðsson og leikmynda- og brúðuhönnuðurinn Petr Matasek. Prins- essaní hörp- unni Úr einni af hinum gömlu sögnum Völsungasögu hefur Böðvar Guð- mundsson smíðað brúðuleikrit fyrir alla fjölskylduna SAGAN segir af dóttur Sigurðar Fáfnisbana, sem flýr ásamt fóstra sínum undan óvildarmönnum, falin í hörpu. Þar kemur að Danakonungur kemur auga á stúlkuna, fellir hug til hennai’ en kastar fram þremur gát- um til að ganga úr skugga um and- legt atgervi hennar. Það er brúðu- leikhúsið Unima sem setur upp Prinsessuna í hörpunni. Um tónlist- ina sér Vilhjálmur Guðjónsson, leik- mynd er eftir Tékkann Petr Mat- asek en leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Prinsessan verður sýnd í Tjarnarbíói á Listahátíð í vor, 24. og 25 maí. Síðan er gert ráð fyrir að sýningar verði á Hofsósi snemma í júlí í tengslum við opnun sýningar þar, sem er í samvinnu við Menning- arborgina. Einnig eru ráðgerðar sýningar á Akureyri um líkt leyti. í haust er brúðuleikhúsið svo aftur væntanlegt til Reykjavíkur. 75 listsýningar sam- tímis í Reykjavík Morgunblaðið/Kristinn Öll leikskólaböm sem verða sex ára á árinu taka þátt í verkefninu 2000 börn. Ámorgun, laugardaginn 6. maí, eropið hús hjá öllum leikskólum Reykjavíkur þar sem borgarbúar hafa tæki- færi á að skyggnast inn í hugarheim og veröld barnsins. Afraksturvinn- unnarverður þartil sýnis svo í raun má segja að þann dag verði listsýn- ingará 75 stöðum í Reykjavík TILGANGUR þessa verkefnis er að fá börn í einum aldurshópi, börn sem verða 6 ára árið 2000, til að vinna að sameiginlegu markmiði undir leiðsögn starfsfólks leikskóla og listgreinakennara Kramhússins. Unnið verður með náttúruöflin vatn, eld, loft, jörð og verður leitast við að opna augu barnanna fyrir borg og náttúru og veita þeim tæki- færi til að virða fyrir sér hvað borg- in þeirra hefur að geyma og fá þau til að bera virðingu fyrir því um- hverfí sem þau alast upp í. Börnin fá tækifæri til að upplifa, leika sér, þróa, rannsaka, horfa, hlusta og finna og nýta sér þá reynslu til að vinna skapandi að þessu verkefni. í gegnum þessa vinnu, undir leið- sögn sérhæfðra leiðbeinenda, koma börnin til með að skynja og skilja náttúruöflin, tengsl þeirra við hversdagsleikann og samhengi þeirra. Bömin munu flytja verk sín út fyrir veggi leikskólanna í formi mismunandi uppákoma og listvið- burða sem gerir vinnu þeirra sýni- lega borgarbúum. Hinn 27. maí koma börnin saman á Arnarhóli kl. 14.00, í fylgd leik- skólakennara, og taka þátt í sam- eiginlegri uppákomu. Þau syngja og dansa tónverkið Þúsaldarljóð sem var samið sérstaklega fyrir þennan viðburð. Tónverkið er sam- ið af Tryggva M. Baldvinssyni við texta Sveinbjörns I. Baldvinssonar, dansinn samdi Ólöf Ingólfsdóttir. Þá munu foreldrar taka við börnun- um og halda í ratleik um miðborg- ina eftir ákveðnu ferðaplani þar sem búið verður að koma fyrir listaverkum barnanna í helstu sýn- ingarsölum borgarinnar, Listasafni Reykjavíkur, Ráðhúsi Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Kramhúsinu, Tjarnarbíói og mögulega fleiri stöð- um. Þannig er takmarkið að fylla miðbæinn af fimm ára börnum og foreldrum þeirra. Ef vel tekst til gæti þetta orðið eins konar Dagur fimm ára barna í Reykjavík, með þáttöku hinna ýmsu staða og fyrir- tækja í miðborginni. Það má því búast við miklum mannfjölda í mið- bænum þessar 2-3 klukkustundir sem þetta stendur yfir en jafnframt er þetta kynning á listastöðum borgarinnar fyrir börnunum. Verkefnið er skipulagt af list- greinakennurum Kramhússins, en þar starfa skapandi kennarar í hverri listgrein fyrir sig. Þeir hafa á síðustu árum leitast við að tengja saman listgreinar og með þá reynslu að baki munu þeir fá börn- in til að upplifa tónlist, myndlist, hreyfingu, dans og leiklist sem eina heild. Meðal kennara Kramhússins sem sjá um hugmyndavinnu og hönnun verkefnisins eru Ólöf Ingólfsdóttir dansari, Harpa Arnardóttir leik- kona, Ósk Vilhjálmsdóttir mynd- listarkona, Hafdís Árnadóttir kenn- ari og Kristín Valsdóttir og Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennarar. Verkefnið er samstarf Kram- hússins, Leikskóla Reykjavíkur og Menningarborgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.