Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 7
MORtíÚNIlíÍAÐÍÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 % °7 REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000 List í orkustöðvum Morgunblaðið/Kristinn Hjónin Jón Jónsson Borgfirðingur og Anna Guðrún Eiríksdóttir og börn þeirra eru meðal viðfangsefna sýningarinnar Reykjavík í bréfum og dagbókum. Reykjavík í bréfum og dagbókum Ljósmynd/Marisa Arason Verk eftir Magdalenu Margréti Kjartansdóttur. Á sumarsýningu Lands- bókasafnsins, Reykjavík í bréfum og dagbókum, verðurvarpaó Ijósi á líf alþýóufólks í Reykjavík á 19. öld ogfyrri hluta 20. aldar Á SÝNINGUNNI verður lögð sér- stök áhersla á hlutskipti íslenskra alþýðukvenna og um leið verða kynntar á nýstárlegan hátt þær heimildir sem varðveittar eru á handritadeild Landsbókasafns ís- lands - Háskólabókasafns. Markmið sýningarinnar er að veita almenningi innsýn í hugar- heim alþýðu- og yfirstéttarkvenna í gegnum bréf þeirra og skyggnast ennfremur í dagbækur alþýðu- fólks. Sýningin verður að hluta til sett upp í tvær stofur. Annars veg- ar stofu alþýðufólks frá síðari hluta 19. aldar og hins vegar stofu yfir- stéttarfólks frá sama tíma. I báð- um tilvikum verður gengið út frá heimili Jóns Borgfirðings og fjöl- skyldu hans en um það heimili eru til fjölmargar heimildir. Hugmynd- in er að leggja sérstaka áherslu á líf fjögurra kvenna sem allar tengj- ast ættarböndum (alþýðustofa) og tveggja karla sem tengjast konun- um sem bræður og synir (yfirstétt- arstofa). Konurnar eru: Anna Guð- rún Eiríksdóttir (f. 1828), kona Jóns Borgfirðings, dætur þeirra, Guðrún Borgfjörð Jónsdóttir (f. 1856), Guðný Jónsdóttir (f. 1865) og Sigurjóna Jónsdóttir (f. 1865) laundóttir Jóns Borgfirðings og hálfsystir þeirra Guðrúnar og Guð- nýjar (alþýðustofa). Karlmennirnir eru synir Jóns Borgfirðings og Önnu Guðrúnar, þeir Finnur Jóns- son prófessor og Klemens Jónsson landritari og ráðherra (yfirstéttar- stofa). Dagbækur fimm ólíkra ein- staklinga í Reykjavík verða dregn- ar fram og fjallað um þær í máli og myndum. Aukinn áhugi ungra fræðimanna á bréfum og dagbókum sem eru varðveitt í handritadeild safnsins er kveikjan að þessari sýningu. Þessi áhugi hefur tengst breyttum áherslum innan fræðigreina á borð við sagnfræði, þjóðfræði, mann- fræði, bókmennta og íslenskra fræða, þar sem leitast hefur verið við að nálgast viðfangsefnið út frá persónulegri reynsiu einstaklings- ins á hverjum tíma. Dagbókaritar- ar eru: Elka Björnsdóttir (1881- 1924) verkakona í Reykjavík. Tímabil 1915-1920. Magnús Hj. Magnússon (1873-1916} skáld og kennari. Tímabil 1911. Ólafur Dav- íðsson (1862-1903) námsmaður. Tímabil 1881-1882. Torfhildur Þor- steindóttir Hólm (1845-1918) rit- höfundur og kennari. Tímabil 1887-1890. Jón Borgfirðingur Jónsson (1826-1912) lögreglu- og fræðimaður. Tímabil 1860-1907. Auk innanstokksmuna og ljós- mynda sem verða í sýningarbásum verður hægt að hlusta á upplestur úr bréfum og dagbókum með þar til gerðri tækni, auk þess verður búin til kynningarmynd um bréf og dagbækur í eigu Landsbókasafns. Félag íslenskra mynd- listarmanna (FÍM) og Landsvirkjun hafa tekiö saman höndum og ákveðið að setja upp myndlistarsýningar í stöðvum Landsvirkjunar við Laxá og Sogið MANNVIRKI þessara stöðva eru sérstæð og merkileg út frá verk- fræði- og byggingarsögulegu sjón- armiði. Sýningarrýmið að Ljósa- fossi er m.a. í stöðvarhúsinu, sem er einstaklega falleg bygging. Þar eru tveir stórir salir, sem áður hýstu rafspenna og aflrofa en sal- irnir munu í framtíðinni hýsa safn um sögu rafmagnsins og umhverfi Sogsins. Salirnir eru hráir en glæsilegir og minna einna helst á sali nútíma listasafna. Mjög fallegt útivistarsvæði er í kringum stöðv- arhúsið, en þess má geta að svæði þetta verður opnað almenningi sem lystigarður innan tíðar. Sýningin fyrir norðan fer fram í nýjustu stöðinni við Laxá en hún er í berggöngum inni í gljúfur- veggjum í farvegi Laxár. Þar eru stór og mjög tilkomumikil rými með höggnum klettaveggjum enda var einungis önnur af tveim véla- samstæðum, sem stöðin var byggð fyrir, sett niður. Stöðin stendur í grónu og fallegu gili og eru marg- ar gönguleiðir sem liggja þar um. Listfræðingarnir Aðalsteinn Ing- ólfsson og Jón Proppé völdu þátt- takendur úr stórum hópi umsækj- enda meðlina FÍM, einnig völdu þeir gesti sýningarinnar. Þátttakendur sýningarinnar eru 26 talsins; félagar FIM og gestir þeirra og munu þeir vinna verk sín sérstaklega inn í rými stöðvanna og umhverfi þeirra. Starfsfólk leið- segir gestum um sýningarnar. Sýningin að Ljósafossi verður opn- uð 3. júní en í Laxárvirkun 16. júní. Opnunartími á báðum stöðum er Hvít, blá og rauð er yfir- skriftin á þremur stórum sýningum sem eru fram- lag Nýlistasafnsins til Menningarborgarársins 2000 HVÍT, sú fyrsta, var i mars, önnur, Blá opnar 21. maí og stendur til 2. júh' og sú þriðja, Rauð, opnar í október. Blá er jafnframt framlag Nýlista- safnsins til Listahátiðar í Reykjavík. Listamennimir sem sýna á Blá eru Sarah Lucas, Gillian Wearing, Michael Landy og Angus Fairhurst. Þrjú þeirra áttu verk á sýningunni Sensation sem vakti mikla athygli og frá kl. 13-17 virka daga en frá kl. 13-18 um helgar. Sýningin stendur til 15. september árið 2000. Vönduð sýningarskrá verður gefin út í tilefni af sýningunni. I skránni verða ljósmyndir af verk- um allra þátttakenda ásamt öðrum upplýsingum. Listamennirnir sem sýna verk sín í Laxárvirkjun eru Eggert Ein- arsson, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Rristjánsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Ólöf Oddgeirs- dóttir, Sara Vilbergsdóttir og Sig- urður Örlygsson. Listamennirnir sem sýna verk sín að Ljósafossi eru Anna Jóa, Eyjólfur Einarsson, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Guðjón Bjarnason; Guðrún Gunnarsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Haf- steinn Austmann, Ilmur María Stefánsdóttir, Jóhanna Margrét Jóelsdóttir og Stephen Fairbairn, Steinunn Helgadóttir og Sveinn R. Lúðvíksson, Pjetur Stefánsson, Valgarður Gunnarsson. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar hefur að undanförnu verið unnið að umfangsmiklum endurbótum og breytingum á aðalhúsi Ljósafoss- stöðvarinnar við Sogið og hefur þar verið útbúið glæsilegt rými til sýningarhalds af ýmsu tagi. „Nátt- úruleg hringrás vatnsins nýtist í virkjunum Landsvirkjunar til þess að sjá samfélaginu fyrir hreinni orku. Menning og náttúra hafa þvi fléttast þar saman frá því fyrstu hverfilhjólin fóru að snúast. Það þarf því ekki myndlist til þess að gera stöðvarnar menningarlegar en á hinn bóginn þykir það vel við hæfi að styrkja þessa tengingu enn frekar með myndlistarsýning- um í stöðvarhúsunum,“ segir Þor- steinn. Bti er fersk og framaiidi umtal í London 1997. Sarah og Gill- ian eru með athyglisverðustu lista- mönnum af yngri kynslóðinni i Bret- landi en Gillian Wearing hlaut Turner verðlaunin árið 1997. Verk þessara listamanna eru á mörkum mannlegra kennda, mjög áreitin og aðgangshörð sálrænt sem sjónrænt. Hér er um að ræða stjörnur úr há- tískuheimi myndlistarinnar. Umsjón með sýningunni Blá hefur Pétur Arason. Sýningarnar Hvít, Blá og Rauð eru hver annarri ólík, sú hvíta knöpp og ljóðræn, sú bláa fersk og framandi, sú rauða eldfim og öfga- kennd. Hver um sig verðugur fulltrúi nútímalistarinnar. Sem heild gefa þær innsýn í stefnur og strauma samtímalistasögunnar. í bígerð er að fylgja þeim eftir með sýningar- Verk eftir Sarah Lucas, Bunny Gets Snookered 1997. skrám, umræðum og viðburðum af ýmsu tagi. Að sögn aðstandenda eru þetta veglegustu sýningar sem Nýlista- safnið hefur ráðist í til þessa. Samspil borgar og náttúru í byggingarlist Verkefnió Borg og náttúra hefur verið í vinnslu í eitt og hálft ár og fjallar það um samspil skipulags og arkitektúrs í borginni við náttúruna AÐALÞÆTTIR verkefnisins eru tveir; útgáfa bókar og sýning sem opnar á morgun 6. maí í Ráðhúsinu. Bókin, sem heitir Borg og náttúra ... ekki andstæður heldur samverkandi eining, er skrifuð af Trausta Vals- syni arkitekt og skipulagsfræðingi. Hún er nýlega komin út hjá Háskólaútgáfunni og ensk útgáfa hennar kemur út í febrúar. í bókinni er útskýrt, að tvenndar- pör eins og t.d. borg og náttúra og hús og garður, geta styrkt hvort annað, á hliðstæðan hátt og rautt og grænt í litafræðinni. Með því verður til samverkandi heild sem getur lyft skipulagi og arkitektúr borga á hærra stig. Bókin hefur verið kynnt á ýmsan hátt í vet- ur en sýningin mun styðja mjög efni hennar og er til- valið fyrir áhugasama að kynna sér hvorttveggja efni bókarinnar og sýningarinnar meðan tækifæri gefst. Sýningin Borg og náttúra verður í opin í Ráðhúsinu frá 6.-26. maí. Þá verða stutt námskeið haldin á sýningunni á veg- um hins Opna háskóla HÍ dagana 8. til 11. maí. Þá verða einnig skipulagðar ferðir skólabarna á sýning- una. MENNING OG NÁTTÚRA 05.06 Menning - náttúrlega Sýning á verkum leirlistamema og listamanna frá Listaháskóla ís- lands sem unnin hafa verið í Dala- byggð og verður í Stjóm- sýsluhúsinu á Búðardal. Sýningin fjallar annars vegar um tengsl manns og náttúra í viðtækri merk- ingu og hins vegar tengingu við ákveðinn stað og staðhætti. 06.05 -29.05 Sýningin Borg og náttúra verður opnuð í Ráðhúsi Reykja- víkur. Á sýningunni og í sam- nefndri bók, leitast skipulagsarki- tektinn Trausti Valsson við að sýna fram á hvemig borg og nátt- úra vinna saman. Reykjavík er skoðuð í nýju Ijósi þar sem virkni frumkraftanna fjögurra: elds, vatns, lofts og jarðar í myndun og mótun borgarsvæðisins er í brennidepli. 03.06-15.09 List í orkust öðvum Félag íslenskra myndlistar- manna og Landsvirkjun standa fyrir myndlistarsýningum í tveim- ur af virkjunum Landsvirkjunar - Ljósafossi við Sogið og Laxár- virkjun í Aðaldal. Um 30 mynd- listarmenn vinna verk sérstaklega inn í hin gríðarstóra rými - en náttúralegt umhverfi stöðvanna er einnig notað. Sýningin í Lax- árvirkjun opnar 16. júnf.www.lv.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.