Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU
TÓNLIST
14.05 Sinfóníuhljómsveit
Noröurlands
Eftir glæsilega tónleika á
Akureyri í apríl mun Sinfón-
íuhijómsveit Norðurlands nú
endurtaka ilutninginn í Lang-
holtskirkju kl. 17. Einleikari er
Helga Bryndís Magnúsdóttir
og stjórnandi Guðmundur Óli
Gunnarsson. Forsala aðgöngu-
miða er þegar hafin í verslun-
um Pennans/Eymundssonar.
14.05 Sólrún Bragadóttir og
Einar Steen-Nökleberg
Þetta er fyrsti þáttur í í tón-
leikaröðinni Nordvest Musik
sem er á dagskrá Menningar-
borgar og nær einnig til Fær-
eyja og Grænlands. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20:30 í
Islensku óperunni.
18.05 Immanúel
Sinfóníuhljómsveit Islands
og Söngsveitin Fílharmonía
flytja nýja oratoríu eftir Þorkel
Sigurbjörnsson sem samin er í
tilefni 40 ára afmælis Söng-
sveitarinnar. Einsöngvarar eru
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Bergþór Pálsson. Tónleikarnir
eru einnig á dagskrá Kristni-
hátíðar og hefjast í Háskólabíói
kl. 20.
20.05 íslensk tónlist á 20.
öld II. hluti.
Hátíð Tónskáldafélagsins
hefst með dagskránni Hvert
örstutt spor - tónlist og söngv-
um úr leikhúsinu. Tónleikarnir
marka einnig upphaf Listahá-
tíðar í Reykjavík og verða í
Þjóðleikhúsinu kl.13:30. Dag-
skráin verður endurtekin 23.
maí kl. 20:30.
II. hluti Tónskáldahátíðar-
innar tekur yfir íslenska tónlist
frá miðbiki aldarinnar og verð-
ur fjölbreytt tónleikadagskrá
víðs vegar um borgina í tengsl-
um við hátíðina sem lýkur um
miðbik júní.
25.05 Óvæntir bólfélagar
Hér er haldið áfram við að
krydda borgarlífíð svo um
munar. f þetta sinn er það
hljómsveitin Múm ogÁsgerður
Júníusdóttir sem flytja kamm-
eróperu eftir Sjón í Kaffileik-
húsinu í Hlaðvarpanum. Dag-
skráinhefst kl. 21.
29.05 CAPUT
Frumflutningur á tónverk-
um eftir núlifandi íslensk tón-
skáld.Tónleikarnir hefjast kl.
20:30 í Salnum í Kópavogi og
eru jafnframt hluti af Tón-
skáldahátíðinni og Listahátíð.
30.05 íslenska einsöngslag-
ið - Draumalandið
Jónas Ingimundarson og ís-
lenskir söngvarar af yngstu
kynslóðinni kl. 20 í Salnum í
Kópavogi. Tónleikarnir eru
jafnframt hluti af Tónskálda-
hátíðinni og Listahátíð.
31.05 Norrænt barnaköra-
mót
Tónmenntakennarafélag ís-
lands stendur fyrir fyrsta nor-
ræna barnakóramótinu sem
haldið hefur verið hér á landi.
Söngur nærfellt 1000 barna
mun hljóma á ólíklegustu stöð-
um í borginni, en íslensk tón-
skáid hafa samið ný verk og út-
sett eldri perlur af þessu
tilefni. Hápunktur mótsins er
lokatónleikar með Sinfón-
íuhljómsveit íslands í Laugar-
dalshöll 3. júní.
05.06 Kammersveit Reykja-
víkur
Flytur verk eftir Atla Heimi
Sveinsson, Þorkel Sigurbjörns-
son og ný verk eftir Jónas
Tómasson og Páll Pamplicher
Pálsson. Tónleikamir hefjast
kl. 20:30 í Salnum í Kópavogi
og eru jafnframt hluti af Tón-
skáldahátíðinni og Listahátíð.
08.06 Stórsöngvaraveisla
Hátíðartónleikar með Krist-
jáni Jóhannssyni, Kristni Sig-
mundssyni, Rannveigu Fríðu
Bragadóttur og Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur í Laugardals-
höll. Tónleikarnir marka jafn-
framt lok Listahátíðar í
Reykjavík.
stfltegund sem er, á þann hátt að
bæði gagnrýnendur og áhorfendur
hrífast. Bestu danshöfundar heims
semja fyrir dansflokkinn og helstu
menningarborgii- heims bjóða hon-
um að sýna.
Höfðar til hjartans
og sálarinnar
Helgi Tómasson, listrænn stjórn-
andi San Francisco-ballettsins, rit-
ar í afmælisrit ballettsins árið 1998:
„San Francisco-ballettinn var
settur á laggirnar árið 1933 með
einfalda draumsýn í huga: Að ná
hástigi listræns ágætis. Sextíu og
fimm árum síðar er þessi einfalda
en hvetjandi draumsýn enn okkar
leiðarljós. Ég hef ætíð verið sann-
færður um að ballett færi fegurð og
skáldskap í líf okkar. Hann vekur
ímyndunaraflið. Hann höfðar til
hjartans og nærir sálina. Hann
göfgar. Hann menntar og hvetur og
stundum veldur hann hræringum.
Hann segir okkur eitthvað um það
hver við vorum, með því að opna
glugga til fortíðar, og eins um það
hver við erum, með því að endur-
spegla nútímann. Hann opnar dyr
inn í framtíðina. Með verkefnavali
sínu endurspeglar San Francisco-
ballettinn alla þessa eiginleika. Við
sýnum gimsteina frá liðnum tímum
sem draga upp mynd af tímalaus-
um kringumstæðum og tilfinning-
um, ný verk sem óma við hjartslátt
tímans og verk blandin hreyfingum
frá ólíkum menningarheimum, sem
móta nýjan orðaforða, bæði kunn-
uglegan og framandi í senn.
Borgarleikhúsið, 26. maí kl. 20,
27. maí kl. 14 og 20 og 28. maí kl. 14
°g 20.
„Glæsil
flokkur
San Francisco-ballettinn
hefur á undanförnum
áratug unnið sér sess
sem einn virtasti ballett-
flokkurheims
LISTRÆNN stjórnandi San
Francisco-ballettflokksins er Helgi
Tómasson og hafa bæði uppsetn-
ingar hans á sígildum ballettum og
nýjar danssmíðar hans sjálfs vakið
mikla athygli. Helgi kom með
nokkra dansara úr flokknum á
Listahátíð 1990, en þetta er í fyrsta
skipti sem allur flokkurinn kemur
hingað með stóra sýningu. Svana-
vatnið er ein frægasta sýning
flokksins og er þetta langumfangs-
mesta danssýning sem sést hefur
hér á landi. I flokknum sem hingað
kemur eru um 60 dansarar auk
tæknifólks. Koma ballettsins verð-
ur tvímælalaust stórviðburður í ís-
lensku listalífi og er eitt af höfuð-
samstarfsverkefnum Listahátíðar
og Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000. Sérstakur bak-
hjarl þessa viðburðar er Lands-
banki Islands.
Hrifningin nálgaðist
múgæsingn
San Francisco-ballettinn sýndi
Svanavatnið í London í október
1999 við fádæma hrifningu gagn-
rýnenda: „Það eitt, hversu mörgum
frábærum dönsurum ílokkurinn
skartar gerir hann einstakan meðal
ballettflokka heimsins," sagði
gagnrýnandi The Times. „Hrifning
áhorfenda yfir stórkostlegri
frammistöðu ballettflokksins nálg-
aðist múgæsingu. San Francisco-
ballettinn ógnar nú stöðu New
York-ballettsins sem fremsti, mest
skapandi og glæsilegasti ballett-
flokkur Bandaríkjanna,“ sagði
gagnrýnandi The Evening Stand-
ard.
Helgi Tómasson varð listrænn
stjórnandi San Francisco-balletts-
ins árið 1985 eftir að hafa verið
einn af aðaldönsurum New York
City-ballettsins um árabil. Dansút-
gáfa Helga Tómassonar af Svana-
vatninu við tónlist Tchaikovskys
var frumsýnd í San Francisco árið
1988 og er vinsælasta uppfærsla
dansflokksins. Helgi endurskapaði
og endursamdi þennan sígilda ball-
ett, til að hann mætti hæfa nútíma
dansflokki, um leið og hann hélt
fast við hefðir ballettsins. Helgi
hefur sett saman flokk frábærra
dansara, sem sökum hæfileika
sinna og tækni geta ráðið við hvaða
Nýtt söngverk við Útsæ
Nordvest Musik tón-
leikaröðin leggur aðal-
áherslu á tónleikahald á
vestnorrænu löndunum;
íslandi, Færeyjum og
Grænlandi
FYRSTU tónleikarnir fara fram í
Norðurlandahúsinu í Færeyjum og
í menningarhúsinu Katuaq í Nuuk á
Grænlandi 10. og 12. maí. Þar syng-
ur Sólrún Bragadóttir sópran nor-
ræna ljóðatónlist við undirleik hins
heimskunna norska píanóleikara
Einars Steen-Noklebergs. Þau
koma svo til íslands og halda tón-
leika í íslensku óperunni sunnudag-
inn 14. maí kl. 20.30 og ljúka þar
með íýrstu tónleikaferð Nordvest
Musik.
Nýtt verk Atla Heimis
Sveinssonar
A efnisskránni er m.a. ljóðaflokk-
ur Griegs, Haugtussa og frumflutn-
ingur á verki Atla Heimis Sveins-
sonar við texta Einars Bene-
diktssonar, Útsær. Að sögn Þór-
arins er þar um að ræða „...eitt
stærsta og kyngimagnaðasta söng-
lag sem samið hefur verið á íslenska
tungu en verkið tekur um tuttugu
mínútur í flutningi." Til stendur að
hljóðrita efnisskrá þeirra Sólrúnar
og Einars og gefa út á hljómdiski.
Að sögn Þórarins Stefánssonar
sem er aðalhvatamaður þessa fram-
taks er hugmyndin að baki Nord-
vest Musik að stækka markaðinn
fyrir norræna tónlistarmenn en
minnka um leið bilið sem virðist að
mörgu leyti vera á milli Skandin-
avíu og vestnorrænu landanna.
„Færeyjar og Grænland hafa verið
nokkuð afskipt til þessa en augu
manna hafa á síðustu árum beinst í
auknum mæli að vestnorræna
TRIO NORDICA: BRYNDÍS HALLA GYLFADÓTTIR, MONA SANDSTRÖM OG AUÐUR HAF-
STEINSDÓTTIR.
koma því ekki. Gott dæmi um þetta
er Yggdrasil kvartettinn sem hefur
hljóðritað verk Jóns Leifs á geis-
ladisk. Sá kvartett er væntanlegur
hingað í ágúst árið 2001 og mun
Einar Jóhannesson þá meðal ann-
ars leika með þeim. Þá eru viðræð-
ur í gangi um að Anne Sofie von
Otter og Bengt Forsberg komi
hingað á vegum Nordvest Musik.
Eitt markmiða Nordvest Musik er
einnig að stuðla að auknu samstarfi
milli íslenskra tónlistarmanna við
starfsbræður þeirra á hinum Norð-
urlöndunum, í þeirri von að Nord-
vest Musik sé aðeins byrjun á nán-
ara samstarfi og að efnisskrár
Nordvest Musik megi ferðast víðar
um heiminn. Það má því segja að
Nordvest Musik gegni hlutverki
hjónabandsmiðlara í óeiginlegum
skilningi auðvitað."
Þórarinn segir að efnskrár tón-
leikanna byggi að stærstum hluta á
norrænni tónlist. „Þær eru, að því
leyti sem því verður við komið,
samsettar annars vegar af verkum
norrænu meistaranna en einnig
verður lögð áhersla á frumflutning
nýrra verka eftir norræn tónskáld.
Þetta er haft að markmiði en auð-
vitað verða undantekningar hér á.“
Fernir tónleikar í sumar
Nordvest Musik byggist upp á
fernum litlum tónleikaferðum yfir
sumartímann. Fyrsta ferðin verður,
eins og áður sagði, farin af Sólrúnu
Bragadóttur og Einari Steen-
Nokleberg nú í maí. Þá er sænski
klarinettuleikarinn Martin Frost
væntanlegur seinni part júní en með
honum leikur Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson píanóleikai'i. I júlí er það
Tríó Nordica sem ferðast um og í
lok ágúst leika þau Sigrún Eðvalds-
dóttir og sænski píanóleikarinn Rol-
and Pöntinen meðal annars nýtt
verk eftir danska tónskáldið Bent
Sorensen sem frumflutt var í Nor-
egi í október síðastliðnum.
Nordvest Musik tónleikaröðin er
meðal annars styrkt af Norræna
menningarsjóðnum, Flugfélagi Is-
lands, Atlantic Airways, Maersk Air
og Ríkisstjórn íslands.
MARTIN ROLAND
FROST PÖNTINEN
SIGRÚN ÞORSTEINN GAUTI
EDVALDSDÓTTIR SIGURÐSSON
svæðinu og samstarfi á milli land-
anna þriggja. Sem Norðurlandabúa
þykir mér mjög skrýtið að vita af
fjölda frábærra og í mörgum tilfell-
um heimsfrægra norrænna tónlist-
armanna sem aldrei hafa heimsótt
Island. Ahugi tónlistarmannanna á
að heimsækja þennan heimshluta er
mikill en þeim er bara ekki boðið og
SÓLRÚN BRAGA-
DÓTTIR
EINAR STEEN-
NOKLEBERG