Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 B 5
REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
ÞAU ERU MEÐAL FLYTJENDA LEIKHÚSTÓNLISTAR í ÞJÓÐLEIKHÚSINU:
ÓRN ÁRNASON, EDDA HEIÐRÚN BACKMAN, JÓHANN SIGURÐARSON,
MARTA GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR OG JÓHANN G. JÓHANNSSON.
Hvert örstutt
spor...
íslensk leikhústónlist á 20. öld
ANNAR hluti tónlistarhátíð-
arinnar, sem Tónskáldafélag
Islands stendur fyrir á menn-
ingarárinu, hefst með opnun-
artónleikum Listahátíðar í
Þjóðleikhúsinu laugardaginn
20. maí kl. 13.30. Yfirskrift
tónleikanna er Hvert örstutt
spor og eru þeir helgaðir
tónlist og söngvum úr ís-
lenskum leiksýningum frá
fyrstu árum 20. aldarinnar og
allt fram á okkar daga.
Mörg ágætustu sönglög ís-
lenskra tónskálda eru samin
til flutnings í leiksýningum.
Fjölmörg þessara laga hafa
fangað hug og hjarta leikhús-
gesta við fyrstu heyrn enda
oftar en ekki gi’ípandi, einföld
og áheyrileg. Þau hafa tekið
flugið utan leikhússins, ratað
inn á efnisskrár einsöngvara,
kóra og skólabarna og jafnvel
sungið sig inn í þjóðarsálina.
Má t.d. nefna Maístjörnuna
og fleiri lög sem Jón Asgeirs-
son samdi fyrir sýninguna
Hús skáldsins í Þjóðleikhús-
inu 1982 en af öðrum þekkt-
um sönglögum úr leikhúsinu
má nefna Ave Maríu Sigvalda
Kaldalóns úr Dansinum í
Hruna, lög Emils Thoroddsen
úr Pilti og stúlku, lög Páls Is-
ólfssonar úr Gullna hliðinu,
lög Atla Heimis Sveinssonar
t.d. Lokasönginn úr Ofvitan'-
um og Kvæðið um fuglana úr
Eg er gull og gersemi. Lög
Jóns Múla Arnasonar úr
leikritum þeirra bræðra og
Barnagælu Jóns Nordals úr
Silfurtunglinu sem dagskráin
stekir nafn sitt til.
í dagskránni munu mörg
ofantalinna laga hljóma auk
fjölmargra annarra, þekktra
og lítt þekktra sem hljómað
hafa í leikhúsum landsins
undanfarna öld.
Flytjendur dagskrárinnar
eru Edda Heiðrún Backman,
Jóhann Sigurðarson, Marta
Guðrún Halldórsdóttir, Ólaf-
ur Kjartan Sigurðarson,
Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, Örn Árnason. Umsjón
og píanóleik annast Jóhann
G. Jóhannsson tónlistarstjóri
Þjóðleikhússins og sviðsetn-
ing er í höndum Guðjóns
Pedersen.
Tónleikarnir verða endur-
teknir þriðjudaginn 23. maí
kl. 20.30.
09.05-30.06 Sjúkdómar og
dánarmein íslenskra forn-
Stórsöngvara-
veisla
í Laugardalshöll
í tilefni af 30 ára afmæli
Listahátíöar veröur efnt til
hátíðartónleika í Laugar-
dalshöll fimmtudaginn 8.
júní, þar sem Sinfóníu-
hljómsveit íslands og fjórir
heimsþekktir íslenskir ein-
söngvararflytja óperu-
perlur
SÖNGVARARNIR eru Kristinn Sig-
mundsson, Kristján Jóhannsson, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og Rannveig
Fríða Bragadóttir Þetta verður í
fyrsta sinn sem þessir söngvarar
koma fram saman á tónleikum.
Sinfóníuhljómsveit íslands, sem
með öflugum hætti hefur tekið þátt í
starfi Listahátíðar frá upphafi, leikur
á tónleikunum undir stjórn hins
heimsþekkta ítalska hljómsveitar-
stjóra Giorgio Croci. Einsöngvarar
með hljómsveitinni er úrvalslið okkar
þekktustu söngvara og á efnisskránni
verða aríur, dúettar og forleikir úr
ítölskum og frönskum óperum; sum
verkin eru alkunn og vinsæl en önnur
minna þekkt. Meðal annars verða
fluttar aríur úr Madame Butterfly,
La Damnation de Faust, Rigoletto,
Lucia di Lammermoor, Don Carlos,
Samson et Delilah og La Traviata.
Listahátíð og Menningarborgin
standa sameiginlega að tónleikunum
en íslandsbanki er sérstakur kost-
unaraðili þeirra.
STÓRSÖNGVARARNIR SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR, RANNVEIG FRÍÐA BRAGADÓTTIR,
KRISTINN SIGMUNDSSON OG KRISTJÁN JÓHANNSSON.
SAGA/
MENNINGARARFUR
LEIKLIST
07.05 Perlur og skínandi gull
Leikhópurinn Perlan, sem
skipaður er fullorðnu þroska-
heftu fólki, frumsýnir þrjá leik-
þætti í Iðnó. Leikritið Midas
konungur, látbragðsleikinn í
dag og leikgerð byggða á ævin-
týri um sólina og vindinn. Leik-
stjóri er Sigríður Eyþórsdóttir
og danshöfundur Lára Stefáns-
dóttir. Sýningin hefst kl. 15:00.
25.05 Einhver í dyrunum
Forsýning á nýju verki eftir
Sigurð Pálsson á litla sviði Leik-
félags Reykjavíkur í Borgarleik-
húsinu. Verkið fjallar um stór-
leikkonu (leikin af Kristbjörgu
Kjeld) sem hefur lokað sig inni á
heimili sínu og neitar að fara út.
Verkið verður tekið til almennra
sýninga í haust en forsýningar
25., 27. og 28. maí eru hluti af
dagskrá Listahátíðar. Leikstjóri
er Kristín Jóhannesdóttir.
26.05. - 28.05. Svanavatnið
Einn virtasti ballettflokkur
heimsins, San Francisco Ballet,
sýnir Svanavatnið undir stjórn
Helga Tómassonar. Fimm sýn-
ingar verða í Borgarleikhúsinu
og er uppselt á þær allar. Koma
San Francisco-ballettsins er
samstarfsverkefni Menningar-
borgar og Listahátíðar í
Reykjavík.
Heilundar, holund-
ar og mergundar
Lækningaaöferöirtil forna, hverjir
stunduöu þær og átrúnaöur af
ýmsu tagi tengdur lækningum er
viðfangsefni heilbrigóissýningar
sem Landspítali-Háskólasjúkra-
hús og fleiri aöilar standa aö
SÝNINGIN verður opnuð 9. maí í anddyri Land-
spítalans og er sett upp í samvinnu Nesstofusafns,
Landspítalans-Háskólasjúkrahúss og Menningar-
borgarinnar. Efni sýningarinnar er sótt í bók Sig-
urðar Samúelssonar læknis: Sjúkdómar og dánar-
mein íslenskra fornmanna. I bókinni er greint frá
lýsingum af áverkum og sjúkdómum og þeim lækn-
ingaraðferðum sem beitt var gegn þeim úr Islend-
ingasögum, biskupasögum, Sturlungu, riddarasög-
um, fornaldarsögum, Eddukvæðum, Heimskringlu
og öðrum ritum. I bókinni reynir Sigurður, út frá
lýsingunum, að greina sjúkdómana með aðferðum
nútíma læknisfræði.
„Maðr... hafði meinsemi þá, at allr líkamr hans
þrútnaði, bæði höfuð hans ok búkr, hendr ok fætr...
Hrafn brenndi hann marga díla, bæði í kross fyrír
brjósti ok í höfði ok ímeðal herða. En hálfum mán-
aði síðar var allrþroti ór hans hörundi, svá at hann
varð alheill."
„Kona sú kom á fund Hrafns, er mikit hugarvál-
að hafði. Hon grét löngum ok var svá brjóstþungt,
at nær helt henni til örvinglunar. Hrafn tók henni
æðablóð íhendi íæðiþehi, erhann kallaði þjótandi.
En þegar eftir þat varð hon heil. “
Auk þess sem að ofan er talið verður einnig fjall-
að um fornlagaákvæði er tengjast heilbrigðismál-
um. í Grágás var t.d. þetta ákvæði: Ef maður vegur
mann, og varðar það skóggang. Sá maður er óæll
(óalandi) til dóms er hann vegur mann eða veitir
hin mehi sár. En þau eru hin meiri sár, heilund og
holund og mergund. Það er heilund er rauf er á
hausi til heila, hvort sem hann er höggvinn eða rifn-
aður eða brotinn. En þá er holund ef blóð má falla á
hol úr sárí. En þá er mergund ef bein er í sundur til
mergjar, það sem mcrgur er í, hvort sem það er
höggvið eða brotið.
I fornum lögum má einnig finna ákvæði um
framfærslu veikra hjúa, ákvæði um undanþágu frá
fostuhaldi fyrir sjúka menn, gamla, böm og þung-
aðar konur og mæður með börn á brjósti. Sýnd
verða gömul lækningaáhöld eins og blóðtökuhnífar
og brennslujárn og munir úr kumlum, sem varð-
veittir em á Þjóðminjasafni íslands. Prófessor Jón
Steffensen setti fram þá kenningu að munir í kuml-
um tengdust margir lækningum. Sem dæmi má
nefna náttúrusteina sem hann taldi geta hafa
tengst átrúnaði á steina „til heilindis sér, t.d. dropa-
steinn, Ijósgrár og hálfglær, einkennilega líkw
mannshendi í laginu úr konukumli hjá Ketilsstöð-
um og tveir einkennilegir steinar, annar egglaga,
dökkgrár, hinn hvítur með dökkum blettum, líkur
tréskó í laginu úr konukumli á Hafurbjarnarstöð-
um ofI.“ Jón minntist einnig á að hringaprjóna
hefði mátt nota sem sárakanna eða kera, sem vom
nauðsynleg tæki til að meta hvort sár vom heilund-
ar, holundar eða mergundar. Slíkir prjónar fundust
FÆÐINGARTÆKI FRÁ1804 ER VORU f EIGU THOMAS
KLOG LANDLÆKNIS. TVÍBUGA FÆÐINGARKRÓKUR,
HOFUÐBOR OG FÆÐINGARTÖNG.
m.a. í konukumli á Hafurbjarnarstöðum, í kumli á
Þjóðljótsstöðum og i kumli karls á Tindum í Svína-
vatnshreppi. Smátangir (pincets) sem fundist hafa í
tveimur kumlum taldi Jón vera læknistæki, notuð
til að taka í sárbarma og til að tína beinflísar og
smá-aðskotahluti úr sári. Loks nefndi Jón að hnífa
sem fundist hafa í kumlum hafi mátt nota til blóð-
töku, t.d. hnífa úr kumlum á Grásíðu og Sílastöðum.
Sýningin stendur til 30. júní en fyrirhugað er að
setja hana upp á sjúkrahúsum og byggðasöfnum
víða um landið.
manna
Heilbrigðissýningin verður
opnuð kl. 16:00 í K-byggingu
Landsspítalans. Á sýningunni
er fjallað um lækningaaðferð-
ir til forna, sýnd gömul lækn-
ingaáhöld, gerð grein fyrir
átrúnaði og hjátrú o.fl. Sýn-
ingin verður síðan sett upp í
tengslum við heilsugæslu
víðsvegar um landið.
01.06-31.08 Kristnitaka og
Vínlandsferðir
Handritasýning á elstu
heimildum um þessa merku
viðburði hefst í Stofnun Árna
Magnússonar. Sýningin er
opin alla daga frá 13:00-17:00.
www.hi.is/HI/RANNS/SAM
01.06 Saga byggingar-
tækninnar
Sýning Menntafélags bygg-
ingariðnaðarins í Ullarhúsinu,
einu elsta húsi Árbæjarsafns.
Lokið verður við endurbygg-
ingu hússins og sýning höfð á
gömlum verkfærum og hand-
verki byggingaiðngreina.
03.06-31.08 Reykjavík í
bréfum og dagbókum
Nýstárleg sýning á bréfum
og dagbókum sem varðveitt
eru á handritadeild Lands-
bókasafns íslands - Háskóla-
bókasafns. Sérstök áhersla
verður lögð á líf alþýðufólks
og alþýðukvenna í Reykjavík
á 19. öld og fyrri hluta 20.
aldar og leitast við að nálgast
viðfangsefnið út frá persónu-
legri reynslu einstaklingsins
á hverjum tíma. www.bok.-
hi.is