Morgunblaðið - 31.05.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.05.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ - Guðsþjón- I ustur á uppstign- ingardag GUÐSÞJÓNUSTA í kirkjunni kl. 14 á morgun, uppstigningardag, degi aldraðra. Sr. Birgir Snæbjörnsson J messar. Kór aldraðra syngur. Org- fa anisti Guðjón Pálsson. Kaffiveitingar p íyrir eldri borgara í Safnaðarheimil- inu eftir guðsþjónustu. Kyrrðar- stundin í hádeginu fellur niður. GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 14 á morgun, uppstigningardag, dagur aldraðra. Sigurður Guðmundsson biskup predikar. Kaffiveitingar í safnaðarsal að athöfn lokinni í boði Kvenfélagsins Baldursbrár. Karla- kór Amarneshrepps syngur þar nokkur lög. Eldri borgarar eru sér- |v staklega boðnir velkomnir í messu |í þennan dag. LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Grenilundi á morgun, upp- stigningardag, og hefst hún kl. 16. Guðsþjónusta verður við Grenivíkur- höfn á sjómannadaginn, 4. júní, kl. 11. Helgistund við minnismerki um látna sjómenn að lokinni messu. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í L dag, miðvikudag, kl. 18 og á morgun, uppstigningardag, kl. 11. ---------------- Fundur um krækl- ingarækt KYNNINGARFUNDUR um krækl- L ingarækt verður haldinn á Akureyri fóstudaginn 2. júní nk. Að fundinum L standa Atvinnuþróunarfélag Eyja- || fjarðar, Hafrannsóknarstofnun og V eiðimálastofnun. A fundinum, sem stendur frá kl. 11- 16, verður fjallað um líffræði krækl- ings, staðarval, ræktunartækni, vinnslu, markaðsmál og arðsemi. Á undanförnum árum hefur áhugi landsmanna á möguleikum kræki- ingaræktar hérlendis farið vaxandi. Á síðasta ári var samþykkt þingsálykt- l unartillaga um stuðning ríkisins við K verðandi ræktendur, þar sem byggð |í skyldi upp sérfræðiþekking og þjón- usta á viðeigandi rannsóknarstofnun- um til leiðbeiningar og eftirlits. Þátttaka á kynningarfundinn til- kynnist til Benedikts Guðmundsson- ar hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyja- fjarðar fyrir miðvikudaginn 31. maí. -----------UH-------- Safnasafnið á Svalbarðs- I strönd LAUGARDAGINN 3. júní kl.14 verða opnaðar tvær nýjar sýningar á Safnasafninu á Svalbarðsströnd í Eyjafirði. I Homstofu verður Svava Björnsdóttir, myndhöggvari í Reykjavík, með einkasýningu á nýj- um skúlptúrum úr pappír og nem- endur Myndlistarskólans á Akureyri halda útisýningu á hreyfi- og hljóð- verkum. Fyi’ir eru sex sýningar sem standa gestum til boða í allt sumar. Safnasafnið er opið daglega frá kl. 10-18, til 29. ágúst. Hægt er að taka á móti hópum á öðmm tímum með stuttum fyrir- vara. Almennur aðgangseyrir er 300 krónur. Ókeypis sýningarskrá. ---------------- Einsöngs- tónleikar SIGURBJÖRG Gestsdóttir heldur einsöngstónleika á sal Tónlistarskól- ans á Akureyri föstudaginn 2. júní kl. 17. Tónleikarnir em liður í lokaáfanga 6. stigs sem Sigurbjörg lauk nú í vor | frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Undirleikari er Agnieszka Chelk- | owska og er aðgangur ókeypis. AKUREYRI Utanríkisráðherra opnar ljósmyndasýningu á Amtsbókasafninu Þróun íslenskrar utan- ríkisþjónustu í 60 ár Itarleg úttekt á möguleikum Eyjafjarðar í fjar- og gagnavinnslu Álitlegir kostir eru á heil- brigðissviðinu STYRKUR Eyjafjarðarsvæðisins hvað varðar möguleika á fjar- og gagnavinnslu felst í almennt góðri þekkingu fólks á tölvunotkun, sem er grundvallaratriði gagnvart möguleikum til uppbyggingar fjar- og gagnavinnslu í framtíðinni. Eyjafjarðarsvæðið er sterkast í þáttum eins og samgöngum, samfé- lagslegri þjónustu og framboði á húsnæði. Eyjafjarðarsvæðið er aftur á móti tiltölulega veikt hvað varðar sérfræðiþekkingu, ekki síst sér- fræðilega tungumálaþekkingu. Tæknilegir þættir sem snúa að gagnaflutningum eru svæðinu einn- ig fjötur um fót en þar er um að ræða háa verðlagningu þessarar þjónustu almennt á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í ítarlegri skýrslu sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur gefið út og ber yfirskriftina „Úttekt á möguleikum Eyjafjarðar í fjar- og gagna- vinnslu“. Höfundar skýrslunnar eru Bjarni Þór Þórólfsson forstöðumað- ur nýsköpunar- og markaðssviðs AFE og Einar Áskelsson ráðgjafi hjá Rekstri og Ráðgjöf Norður- landi. Þeir kynntu skýrsluna á fundi á Akureyri en fyrsta eintakið var afhent Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Skýrslunni er ætlað að vera vegvís- ir að árangursríkri uppbyggingu starfa á svæðinu sem tengjast nýj- um og sívaxandi möguleikum sem upplýsingatæknin býður upp á. Þetta er fyrsta atvinnusvæðið á landsbyggðinni til að ráðast í gerð heildstæðrar skýrslu um þessi mál. Fram kemur í skýrslunni að ekki sé nýtt af nálinni að horft sé til möguleika í fjarvinnslu í Eyjafirði en ljóst að tæknilegar og þekking- arlegar forsendur fyrir atvinnu- möguleikum í Eyjafirði á þessum sviðum hafa margfaldast á allra síðustu árum. Tölvueign á heimil- unum er hraðvaxandi, sem og notk- un almenns hugbúnaðar og við- skiptahugbúnaðar. Tilkoma Há- skólans á Akureyri hefur einnig aukið sérfræðilega þekkingu á svæðinu og sama er að segja um tilurð fyrirtækja sem sérhæfa sig í tölvu- og hugbúnaðarþjónustu. Rannsóknarverkefni að baki skýrslunni skilaði banka af verk- efnahugmyndum sem mögulegt er að vinna frekar með og fram- kvæma í framtíðinni, sum í allra nánustu framtíð. Þannig geta áhugasamir einstaklingar og fyrir- tæki notað skýrsluna við val á verkefnum sem áhugi kynni að vera á að takast á við. Alls er um að ræða 45 verkefni en 16 þeirra eru talin koma best út. Þau verkefni sem álitlegust þykja eru í heil- brigðisgeiranum. Verðlagning gagna- flutninga flöskuháisinn Fram kemur í skýrslunni að allt tal um mikilvægi upplýsingatækni fyrir byggðaþróun sé til lítils ef jafnræðis við verðlagningu á gjöld- um fyrir not á tækninni er ekki Morgunblaðið/Margrét Valgerður Sverrisdðttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tekur við skýrslu um fjar- og gagnavinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu úr hendi Bjarna Þórs Þórólfssonar, annars tveggja höfunda skýrslunnar. gætt. Þannig er verðmunur á 2Mb/s sýndarrás 135.900 krónur milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur annars vegar og milli fyrirtækja innan Reykjavíkur hins vegar. Einnig er mikill verðmunur á leigulínum, bæði hvað varðar stofngjöld og mánaðargjöld hvað varðar aðila á höfuðborgarsvæðinu annars vegar, og hins vegar milli Akureyrar og Reykjavíkur, og munar samtals um 360 þúsund krónum. „Hér er því um umtalsverðan mismun að ræða sem hýtur að skipta máli hvað varð- ar rekstrarlega og samkeppnislega stöðu fyrirtækja sem eru að keppa á sama markaði," segir í skýrslunni og ennfremur að ljóst sé að óheppi- leg verðlagning Landssíma íslands á gagnaflutningaþjónustu fyrir landsbyggðina sé flöskuháls fyrir þróun fjar- og gagnavinnslu á landsbyggðinni. „Ef þessu verður ekki breytt verður gífurlega erfitt fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni að standast samkeppni við sambærileg fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu nema ríkið geri þeim það fjárhags- lega kleift í formi peningalegra byggðaaðgerða,“ segir í skýrslunni. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra opnaði í vikunni Ijós- myndasýningu um sögu utanríkis- þjónustunnar í Amtsbókasafninu á Akureyri. Við sama tækifæri hélt utanríkisráðherra fyrirlestur um utanríkisþjónustuna og utanríkis- mál íslands og kom þar víða við. Ljósmyndasýningin, sem ber yf- irskriftina „Yfirlit yfir þróun ís- lenskrar utanríkisþjónustu“, er sett upp í tilefni af sextíu ára af- mæli utanríkisþjónustunnar og stendur til loka júnímánaðar. Sýn- ingin var fyrst opnuð í Þjóðarbók- hlöðunni á afmælisdegi utanríkis- þjónustunnar þann 10. apríl sl. í máli utanríkisráðherra við opn- un sýningar kom fram að með sýn- ingunni væri reynt að draga fram helstu viðburði í sögu utanríkis- þjónustunnar á seinni hluta 20. ald- ar og hins vegar væri reynt að gefa hugmynd um dagleg störf starfs- manna hennar. Ráðherra sagði jafnframt mikilvægt að fá tækifæri til að kynna utanríkisþjónustuna, sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna Islands á erlendum vett- vangi. „Þau mál sem við fjöllum um eru pftar en ekki mikilvægustu málefni fslands og því jafnframt innan- landsmál. Mörkin milli innanlands- mála og utanríkismála verða sífellt óljósari. Lykillinn að velgengi ís- lendinga í framtíðinni felst ekki síst í því hvernig til tekst í utanrík- ismálum á næstu árum. Það á ekki síður við um þetta landssvæði en Morgunblaðið/Kristján Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, skoða myndir á ljós- myndasýningunni um sögu utanríkisþjónustunnar í Amtsbókasafninu. önnur í landinu," sagði utanríkis- ráðherra. í tengslum við ferð sína til Akur- eyrar tók Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra þátt í kynningu á starfsemi Viðskiptaþjónustu utan- ríkisráðuneytisins á meðal fyrir- tækja á Akureyri og af Eyjafjarð- arsvæðinu. Viðskiptaþjónustan, sem settvar á stofn fyrir þremur árum, er með viðskiptafulltrúa í okkar helstu við- skiptalöndum og er ætlað að efla þjónustu við íslensk fyrirtæki, bæði stór og smá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.