Morgunblaðið - 31.05.2000, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Nýstúdentar komnir með hvíta kollinn eftir að hafa verið brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
FS útskrifar 51 stúdent
KEFLAVÍK - Fjölbrautaskóla Suð-
umesja var slitið við hátíðlega athöfn
að viðstöddu fjölmenni á sal skólans á
laugardaginn. Að þessu sinni voru
brautskráðir nemendur 81 og þar af
voru 51 sem lauk stúdentsprófí. Alls
voru 680 nemendur í dagskóla á vor-
önninni en nemendur í öldungadeild
vom 170.
Asdís Jóhannesdóttir hlaut hæstu
einkunn á stúdentsprófi en hún út-
skrifaðist af þremur brautum, eðlis-
fræði-, náttúru- og málabraut. Ásdís
hlaut viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur í íslensku, dönsku,
ensku, þýsku, frönsku og í raungrein-
um.
Aðrir nemendur sem hlutu viður-
kenningar á stúdentsprófi voru: Jak-
ob Snævar Ólafsson fyrir góðan ár-
angur í þýsku og hagfræðigreinum,
Kolbrún Fanngeirsdóttir fyrir þýsku,
stærðfræði og raungreinar og Svava
M. Sigurðardóttir fyrir íslensku,
efnafræði, þýsku, stærðfræði og
dönsku. Að venju stóðu nemendur
skólans sjálfir að skemmtidagskránni
við athöfnina og þar komu fram Jón
Björnsson nýstúdent sem lék á vald-
hom við undirleik Ragnheiðar Skúla-
dóttur og Heimir Sverrisson nýstúd-
ent lék á harmonikku. Ólafur Jón
Arnbjömsson skólameistari braut-
skráði nemendur og Kristján
Asmundsson aðstoðarskólameistari
flutti yfirlit yfu' störf á önninni.
Fjórar ær fjúrlembdar
Sauðburður langt
kominn í Mýrdal
Fagradal - Sauð-
burður í Mýrdal
hefur gengið víð-
ast hvar vel þetta
vorið og sums stað-
ar langt kominn
eða búinn og frjó-
semi í góðu meðal-
lagi.
Á Suður-Götum í
Mýrdal þar sem
Jón Hjaltasson og
Guðrún Einars-
dóttir búa er sauð-
burðurinn nánast
búinn, aðeins ein
ær óborin en þar
hefur að sögn Guð-
rúnar sauðburður
gengið mjög vel og
góð frjósemi, af
120 fullorðnum ám
voru 4 ær fjór-
lembdar og 21 ær
þrflembd.
Þessi frjósemi
telst mjög góð þar
sem fleiri en tvö
lömb eru eftir
hverja vetrar-
fóðraða kind að
meðaltali.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Erna Jónsdóttir hefur gaman af þvf að líta í
fjárhúsin á vorin og heilsa upp á lömbin.
Vel gengur
að selja
sushi-rétti
Sindra-
bergs
ísafirði - Sindraberg ehf. á ísafirði,
sem framleiðir frosið sushi, á nú í
viðræðum við erlenda aðila um sölu
og dreifingu á framleiðslu fyrirtæk-
isins og er gert ráð fyrir að útflutn-
ingur geti hafist á næstu vikum.
Fyrir stuttu tók fyrirtækið þátt í ár-
legri matvælasýningu í Brussel í
Belgíu og vakti framleiðslan mikla
athygli gesta sem komu víða úr
heiminum.
Framleiðsla Sindrabergs hefur
mikla sérstöðu því fyrirtækið er eitt
þriggja í heiminum sem getur fram-
leitt frosið sushi. Á næstu vikum
verður vélakostur fyrirtækisins
aukinn verulega auk þess sem
starfsfólki verður fjölgað til að auka
afköstin. Frá áramótum hefur
starfsfólki fyrirtækisins fjölgað úr 4
í 25 og er það nú með stærri atvinnu-
rekendum á svæðinu og væntanlega
annað stærsta „frystihúsið" á svæð-
inu hvað starfsmannafjölda varðar.
Sindraberg hóf sölu á frosnu sushi
á innlandsmarkaði fyrir rúmum
tveimur mánuðum og hafa viðbrögð
við framleiðslunni verið góð, að sögn
forsvarsmanna fyrirtækisins.
Sindraberg ehf. var stofnað í októ-
ber á síðasta ári og er hlutafé þess
50 milljónir króna. Hluthafar eru 13
og eru Sameinaðir útflytjendur ehf.
þeirra stærstir. Margir hluthafanna
eru búsettir í ísafjarðarbæ. Stjórn-
arformaður fyrirtækisins er Ivar
Pálsson.
lillá —HT
II 41 I \ G |ip| ' Pmm
\ VWil
\% •, . y
W fflRk jlf - mmk
Fj ölbrautaskóla
Vesturlands slitið
BRAUTSKRÁNING nemenda
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi á vorönn fór fram við há-
tíðlega athöfn á sal skólans föstu-
daginn 20. maí sl. Að þessu sinni
brautskráð
ust 62 nemendur: 31 stúdent af 8
mismunandi brautum. I hópnum
sem útskrifaðist nú voru stúlkur
nokkru fleiri en piltar og athyglis-
vert er að af fjórum nemendum
sem luku stúdentsprófi af eðlis-
fræðibraut voru 3 stúlkur.
Auk stúdentanna brautskráðust
13 nemendur af sjúkraliðabraut, 3
nemendur af viðskiptabraut, 2 nem-
endur í rafvirkjun, 2 nemendur í
húsasmíði, 2 nemendur í vélsmíði, 1
nemandi af starfsbraut, 1 nemandi í
rafsuðu, 1 nemandi af íþróttabraut
fyrri hluta og 6 nemendur luku
fyrri hluta prófi í rafeindavirkjun.
Auk þess kvöddu 3 skiptinemar
skólann eftir árs nám hér.
1 ræðu Harðar Ó. Helgasonar að-
stoðarskólameistara við athöfnina
kom m.a. fram að á önninni hefur
mikið verið unnið að því að laga
skólastarfið að nýrri námsskrá fyr-
ir framhaldsskóla og nýjar náms-
brautir eru í undirbúningi. Hörður
ræddi einnig um erlend samskipti
sem eru vaxandi þáttur í skóla-
starfinu.
Þórir Ólafsson skólameistari
ávarpaði útskriftarnemendur og
flutti þeim kveðjur skólans. Þórir
hvatti útskriftarnemendur til að
huga vel að menntun sinni og
minnti á að menntun er viðfangs-
efni alla ævina því hún er virkasta
aðferð okkar til að aðlagast breytt-
um aðstæðum.
Alma Auðunsdóttir nýstúdent
ávarpaði samkomuna fyrir hönd út-
skriftarnemenda. Alma rifjaði upp
atburði frá skólagöngunni og þakk-
aði starfsfólki skólans fyrir samver-
una á liðnum árum. Nemendur
skólans sáu um tónlistarflutning.
Sönghópur FVA söng undir stjórn
Heiðrúnar Hámundardóttur og
Dóra Erna Ásbjörnsdóttir nemandi
á tónlistarbraut lék á píanó en hún
hefur nýlokið 8. stigs prófi í píanó-
leik.
Hlutu verðlaun fyrir
afburða námsárangur
Margar viðurkenningar fyrir
framúrskarandi námsárangur voru
veittar að vanda og meðal þeirra
var viðurkenning fyrir bestan
árangur á stúdentsprófi sem að
þessu sinni kom í hlut Kristínar
Gróu Þorvaldsdóttur, stúdents af
eðlisfræðibraut. Námsárangur
Kristínar Gróu er sérlega glæsileg-
ur en hún lauk stúdentsprófi á að-
eins 6 önnum. Kristín Gróa hlaut
einnig viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur í dönsku, frönsku,
ensku, íslensku og sögu. Loks hlaut
hún verðlaun úr minningarsjóði
Þorvaldar Þorvaldssonar fyrir
framúrskarandi árangur í stærð-
fræði og eðlisfræði.
Gísli Gíslason bæjarstjóri Akra-
ness afhenti námsstyrk Akranes-
kaupstaðar sem Gauti Jóhannesson
hlaut að þessu sinni. Gauti útskrif-
aðist á síðustu haustönn með mikl-
um ágætum og nemur hann nú
læknisfræði í Svíþjóð. Unnar Þór
Bachmann sem einnig útskrifaðist
á síðustu haustönn hlaut verðlaun
úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar
frá Sýruparti, en Unnar hyggur á
nám í eðlisfræði næstkomandi
haust.
Fjórum sinnum
Bókaðu í síma 570 3030 og 4813300
ffft 7.230 kr. meðfluyvallarsköttuui
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is