Morgunblaðið - 11.06.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000 B 9
væri sagt frá því um hvaða fugl hefði
verið að ræða.“
Óskar náði að uppfylla skilyrði
Vonarsjóðsins og skila inn skýrslu og
frumgerð af Islenska fuglaspilinu til
að fá greiddan út seinni hluta styrks-
ins vorið 1997. Hins vegar hafði enn
ekki fundist útgefandi að spilinu.
„Ég byrjaði á því að fara til Náms-
gagnastofunar og fékk því miður
ekkert sérstaklega jákvæð viðbrögð.
Að ætla að koma á markað hljóða-
bingói virtist talin hálfspaugileg hug-
mynd í nútímanum. Með tölvuút-
færslu af spilinu hefði ég hugsanlega
átt smávon," segir Óskar og gerði til-
raun til að ná sambandi við talsmenn
almenns útgáfufyrirtækis. „Ég
reyndi aftur og aftur og aldrei var
neinn við, a.m.k. ekki rétta mann-
eskjan." Og hver vikan af annarri leið
án þess að Óskari yrði ágengt í
tengslum við útgáfuna.
Ekkí bara hljóðabingó
Óskari var boðið að kynna spilið á
Málþingi um nýbreytni í skólastarfi í
byijun ágúst árið 1997. „Á málþing-
inu komst ég í kynni við Arna Arna-
son hjá bókaútgáfunni Æskunni.
Bókaútgáfan hafði nýverið verið slit-
in frá bindindisfélaginu og metnað-
urinn aldrei meiri. Árni lýsti yfir
áhuga sínum á að gefa út spilið og
hafist var handa við undirbúninginn.
Upphaflega stóð til að spilið kæmi út
síðasta vor. Utgáfunni var frestað af
því Æskan var í öðru stóru verkefni
og ákveðið var að bæta nokkrum
möguleikum við spilið. Eftir breyt-
inguna er spilið ekki aðeins hljóða-
bingó þar sem þátttakendumir
hlusta á fuglahljóð af geisladiski og
geta sér til um fuglinn. Spilið getur
verið myndabingó og minnisspil, allt
eftir óskum hvers og eins. Þar fyrir
utan býður spilið upp á ýmsa aðra
möguleika, t.d. með því að búa til
spumingar uppúr meðfylgjandi
frasðsluefni um fuglana.“
Óskar segir að viðtökur íslenska
fuglaspilsins hafi farið fram úr björt-
ustu vonum. „Hugmyndinni hefur
frá upphafi verið tekið mjög vel. ís-
lenskur almenningur ferðast meira
og meira um sitt eigið land. Algengt
er að fjölskyldur taki sig upp með
fellihýsi um hverja einustu helgi á
sumrin enda er íslenska sumarið
ekki svo langt. Allir vita hvemig
fræðsla hefur jákvæð áhrif á nátt-
úruskynjun. Eiginlega er sorglegt að
blóm skuli ekki gefa frá sér hljóð til
að hægt sé að miðla fræðslu um blóm
með svipuðum hætti og um fugla.
Markmiðið með Islenska fuglaspil-
inu er fyrst og fremst að fræða.
Hvorki fjárhagslegur gróði né frægð
og frami fengu mig til að hrinda hug-
myndinni í framkvæmd. í sjálfu sér
vom heldur engar sérstakar vænt-
ingar í tengslum við viðtökurnar og
já - fyrstu viðbrögðin við spilinu í
verslunum hafa verið mjög jákvæð
og því farið fram úr allra björtustu
vonurn."
Þráir skólabekkinn
Vel á minnst. Þú hlýtur að vera
farinn að leggja drög að næsta verk-
efni! Óskar dregur við sig svarið.
„Tja, margir hafa komið að máli við
mig,“ segir hann, glottir og byijar
upp á nýtt. „Svona lagað er auðvitað
slagur um frítíma. Ég er svona skóla-
týpa og iða allur í skinninu eftir að
setjast aftur á skólabekk eftir langt
hlé. Draumurinn verður vonandi að
veruleika ef ég kemst í nám í
viðskipta- og útflutningsfræði á
mastersstigi á vegum Endurmennt-
unarstofnunar Háskólans í haust.
Fyrir utan aðrar skyldur efast ég
hreinlega um að hafa tíma til að spá í
spilin," segir hann og viðurkennir þó
að upp hafi komið hugmynd að nýju
spili.
Húsdýraspil?
„Úff, hvílík fyla,“ annar starfsmað-
ur hefur rekið inn nefið og bakkar út.
Óskar er inntur frekar eftir hug-
myndinni. „Jú, útgefendumfr hafa
nefnt við mig húsdýraspil. Ég veit
ekki. Þekkja ekki allir húsdýrin?"
spyr hann og svarar sjálfum sér,
„sumir borgarkrakkar komast nátt-
úrlega aðeins í kynni við íslensku
húsdýrin í Húsdýragarðinum. Hver
veit hvað framtíðin ber í skauti sér!“
TIL SOLU
Petta 20 feta hjólhýsi, árg. '89 er
til sölu. 2ja hásinga, flutt
til landsins sumariö ’99.
Fullbúið eldhús, 4 hellur,
bakaraofn, ísskápur. Fullbúiö
baðherb., sturta, vaskur og wc.
Heitt og kalt rennandi vatn. Mikiö
skápapláss, massífar viðarhuröir.
Lokað hitakerfi m. 7 ofnum. 12v
og 220w straumur + gas.
Upplýsingar í síma 565 7293
og 869 7892.
mbl.is \ LLTA/= £!TTH\TAO rj
STlGPi
SLATTUVELAR
Utsölustaðir um allt land
Landsþekkt
varahlutaþjónusta
Notendavænar
Morgar gerðir
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864
MNGÁRSÁU
Verslunin flytur
50% afsláttur af öllu
Verslunin opnar í Bæjarlind 14 -16 þann 24. júní.