Morgunblaðið - 11.06.2000, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Haraldur Pétursson leggur út í vatnstorfæru á Mussónum og komst klakklaust yfir. Gunnar Gunnarsson vippar Trúðnum gegnum dekkjahlið á brekkukambi.
Tryllitæki torfæru-
1 víkinganna skelfdu
Breta og skemmtu
Kampavíni sprautað á verðlaunapalli en frá vinstri eru Gunnar Egils-
son, Ásgeir Jamil Allansson og Gunnar Ásgeirsson.
✓
Islenskir torfærukappar höfðu eríndi
sem erfíði þegar þeir kepptu í Swindon í
Bretlandi um síðustu helgi. Ágúst
Asgeirsson slóst í för með þeim og fylgdist
með frammistöðunni.
ISLENSKIR torfærukappar
komust að því er þeir kepptu í
Bretlandi um síðustu helgi að
þar gilda önnur viðmið gagn-
vart umhverfinu en hérlendis.
Var þeim frjálst að spæna upp grasi
grónar brekkur á allt að þúsund
hestafla bflum sínum og sjálfsagt
þótti að saga niður tré sem ella yrðu
á vegi þeirra í gilinu í Refabrekkum
við borgina Swindon. Stranglega var
hins vegar tekið fyrir að spjöll yrðu
þar unnin á keppnisbrautum fyrir
mótorkross sem voru úr möl og leir. I
Refabrekkum háðu 14 íslenskir öku-
þórar, tveir sænskir og einn norskur
keppni á opna breska torfærumeist-
aramótinu sem var liður í tilraunum
til þess að flytja íslensku torfæru-
íþróttina út og gera hana að alþjóð-
legri keppnisgrein.
Bretar gerðu sérstakar undan-
tekningar svo keppa mætti í íslenskri
torfæru á enskri grundu. Þar sem
torfærukapparnir brúka flugvéla-
bensín á mótora sína, sem ekki við-
gengst í Bretlandi, varð að fá sér-
staka undanþágu þar að lútandi,
bæði hjá yfirvöldum og hjá breska
i akstursíþróttasambandinu. Þá
skylda umhverfisverndarreglur
breska utanvegarakstursíþrótta-
menn til að brúka hljóðkúta í bflum
sínum. Þeir eru til óþurftar í torfæru-
bílunum og þar sem hljóðin frá þeim
eru langt yfir leyfilegum mörkum
varð sömuleiðis að fá undanþágur
þess vegna.
Fyrirmenni sem hugðust koma til
mótsins í þyrlum fengu hins vegar
ekki jafn vinsamlega fyrirgreiðslu og
íslensku torfærukappamú. Nokkrir
af boðsgestum Goodyear-dekkjafyr-
irtækisins, aðalstyrktaraðila móts-
* ins, vildu fá að lenda þyrlum sínum á
keppnissvæðinu en sakir þrengsla og
væntanlegs áhorfendafjölda fengu
þeir ekki leyfi til þess.
Utanvegarformúlan var torfæru-
keppnin nefnd en hún hlaut óvenju-
mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Kom
það forsvarsmönnum Móton's, fyrir-
tækis Aflvaka, Nýsköpunarsjóðs og
nokkurra einstaklinga er vinna að út-
rás torfærunnar, þægilega á óvart.
Gengu sumir meira svo langt að
segja að hér væri komin fram keppn-
isgrein sem hefði meira skemmtana-
gildi en Formúla-1. Undir fyrirsögn-
inni „Hverjir þurfa brýr“, sem
greypt var í stóra mynd af torfærubfl
þjótandi yfir íslenska bergvatnsá í
blaðinu The Daily Express, sagði að
íslendingar væru búnir að finna upp
afbrigði mótoríþrótta sem sé svo
undarlegt, svo skelfilegt en þó svo
hrífandi að Formúla-1 væri barna-
skapur í samanburði.
Swindon og Mónakó
Hápunkti náði umfjöllunin í hinu
virta alþjóðlega akstursíþróttariti
Autosport sem út kom í vikunni fyrir
mótið í Swindon. Varði það þremur
síðum í umfjöllun um íslenska tor-
færu með fjölda Ijósmynda af tUþrif-
um ökuþóra í malargryfjum og ám.
Var það annað aðalumfjöllunarefni
blaðsins. Hitt var Mónakókappakst-
urinn.
„Síðast komu víkingarnir á lang-
skipum hingað til lands. Nú eru far-
artæki þeirra mun skelfilegri,“ sagði
útvarpsþulur sem lýsti frá keppninni.
Mikil eftirvænting ríkti með viðtökur
og áhuga því það var talið geta ráðið
úrslitum um hvort íslenska torfær-
uíþróttin verði útflutningsgrein.
Mótið tókst vonum framar en eftir er
að koma í ljós hvort það marki upp-
haf útrásar torfæruíþróttarinnar.
Altént lýstu styrktaraðilar sig án-
ægða með hvemig til tókst og helstu
fjölmiðlar flykktust á vettvang.
Tók torfæruna fram
yflr Formúlu-1
Til marks um viðbúnaðinn skráðu
yfir 70 blaða-, útvarps- og sjónvarps-
menn sigtil leiks í Swindon, en þar
voru að störfum upptökulið m.a. frá
BBC, Sky Sport, ITV og Meridian-
stöðvunum og frá ungverska sjón-
varpinu. Um 5.000 áhorfendur göptu
hvað eftir annað af undrun yfir getu
bflanna og færni ökuþóranna og
Gunnar Ásgeirsson veltir Erninum með tilþrifum í Refabrekkum Swindon.
Sjúkraflutningamenn búa Benedikt Ásgeirsson undir flutning á sjúkra-
hús eftir svakalega flugbyltu Gösla.
fögnuðu tflþrifum þeirra í þverhnípt-
um þrautaþrautum í Refabrekkum.
Keppt var samkvæmt forsendum
íslensku torfærunnar en við breskar
aðstæður sem voru gjörólíkar malar-
og hraungryfjunum sem keppt er í á
íslandi. I grónum Refabrekkunum
var gripfesta bflanna mikil en er oft-
ast af skomum skammti heima.
Þulur mótsins var kunnur breskur
sjónvarpsmaður, Steve Slater, og at-
hyglisvert að hann kaus heldur að
sitja í skúr eða ofan á Landrover-
jeppa í Swindon og lýsa torfærunni
fremur en fara niður til Mónakó og
lýsa frá Formúlu-1 í sjónvarpi. „Mér
fannst þetta meira spennandi og tók
mér því frí til að vera við torfæru-
keppnina," sagði hann í samtali við
Morgunblaðið. Slater hefur að jafn-
aði þann starfa að lýsa Formúlu-1
fyrir ESPN-sjónvarpsstöðina sem
sendir út á heimsvísu. Lýsir í útsend-
ingum á ensku til Asíu og Persaflóa
en eftir að hafa heimsótt ísland og
fylgst með torfærumóti ákvað hann
að taka Swindon fram yfir Mónakó.
Lifði sig inn í hlutverkið og var
greinilega vel undirbúinn, þekkti
nöfn og bíla allra ökuþóranna, fyrri
afrek þeirra og störf, innvols bílanna
og smíði, o.s.frv.
Gunnar Egilsson, skipstjórinn frá
Selfossi, kom, sá og sigraði í Swin-
don. Fór fremstur íslensku torfæru-
víkinganna sem komnir voru til að
gera strandhögg í Bretlandi og reyna
ná fótfestu fyrir íþrótt sína þar. Tók
forystu strax í fyrstu þraut af átta og
hélt henni út í gegn. Sýndi mikið ör-
yggi sem endurspeglast í því að hann
hlaut 2170 stig af 2400 mögulegum
en það telst mjög góður árangur.
Framan af fékk hann mesta keppni
frá Ragnari Róbertssyni og Sigurði
Þór Jónssyni en í tveimur síðustu og
jafnframt erfiðustu þrautunum mátti
Ragnar sín ekki mikils, enda á kraft-
minnsta bflnum, og seig niður á við
stigatöfluna; vann þó á endanum