Morgunblaðið - 11.06.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 11.06.2000, Síða 22
iii2 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTÓNLIST Wu-Tang t fjölskyldu- ! vinir ÞÓ EKKI hafl heyrst frá Wu-Tang genginu í all- langan tfma eru þelr fé- lagar enn að, ýmist að gefa út sólóskífur eða fást við kvikmyndatón- list og jafnvel leik, eins og heyra mátti og sjá í kvikmyndinni Ghost Dog. Flestir kannast v v við aðal-Wu-Tang lið- ana, en það koma fleiri við sögu í fjölskyldunni sem fer sífellt stækk- andi. Fyrir skemmstu sendu tveir nátengdir frá sér skífur, Royal Fam flokkurinn og Kill- ah Priest. Klllah Priest hefur starfað talsvert með þeim Wu-Tang mönnum j og kemur meðal annars við sögu á skífum 1 Gravediggaz og einnlg á sólóskífu 01’ Dirty Bastard og Liquid Swords með GZA. Hann þótti snemma með fremstu texta- smlðum og sérstaklega er framlag hans á Liqu- j | I I I id Swords glæsilegt. Á -M. endanum gaf hann út sólóskífu, Heavy Ment- ai, sem kom út ffyrir tveimur árum eða svo. j Killah vann sér álit og virðingu fyrir lærða 1 texta sína, enda tók 1 hann sér frí frá rappinu j um tíma til að fræðast betur um sögu og trúar- brögð, en um tíma rak hann líka rappflokkinn j Sunz of Man. Heavy j Mental kom svo út fyrir I tveimur árum. Platan I nýja, View From Mas- ada, kom út á dögunum en á umslagi kemur i fram að Killah hefur I tekiö sér nafnið Mas- j ada. i Á plötunni nýju er Kiilah enn viö sama heygarðshornlð með lærða og lyklaða texta, en músíkin er í höndum ýmissa upptökumanna Ifkt og áður, en enginn Wu-Tang maður kemur við sögu. Royal Fam er aftur I móti samstarfsverkefni nokkurra rappvina sem tengjast Wu-fjölskyld- unni og hafa tengst all- lengi. Þeir félagar 4 Timbo King, Dark Ag- es, Mighty Jarret og i Y-Kim the lllfigure hafa komið að ýmsum Wu- verkefnum, meðal ann- ars hafa þeir brallað I ýmislegt saman GZA j ogTimbo, en hann j tengist elnnig fjölskyld- i unni í gegnum sameig- i inlegan félaga, upp- i tökustjórann Y-Klm 1 sem kom mjög við sögu á Heavy Mental-skífu Killah Priest. Mjög eru þær ólíkar I þessar skífur, önnur | byggir nánast alfarið á textaflæði og spuna, en hin hefðbundanri og eilítiö gamaldags, minnir á forna frægð Wu-Tang manna án þess þó að ná að bæta %r miklu við. GRÓSKAN er mikil vestan hafs í lágstemmdu rokki, en smám saman hafa sveitim- ar sem hófu að syngja og spila í hálfum hljóðum verið að fjölga litum á tónlistarspjald- inu; gott ef ekki má kalla út- komuna póstmódemískt rokk þar sem allt á rétt á sér. Meðal þeirra sem beitt hafa sér fyrir slíkri tilraunamennsku em I þau hjónin Sue Gamer og Rick Brown sem sendu frá sér skífuna Still fyrir skemmstu. Sue Gamer er fædd og uppalin í Georgíu sem má reyndar oft greina á söng I hennar. Hún fluttist til New J York og tók þar þátt í hreyf- 1 ingu sem kennndi sig við enga i tónlistarstefnu, No Wave, með hljómsveit sinni Vietnam. ; Síðar var hún í ýmsum hljóm- sveitum og loks £ Run On sem var mjög nátengd Yo La Tengo. Upp úr því hóf Gamer sóló- ! ferilsinnoghefur sentfrásér tvær breiðskífur, To Run More Smoothly og Still, sem • er rétt nýkomin út eins og get- ið er, en fyrir henni em þau reyndar bæði skrifuð Sue Garner og Rick Brown Klíka neðanjarðartónlistar- manna í New York var mjög nátengd og þannig komu liðs- menn Yo La Tengo við sögu á skífum Run On. Sumum finnst reyndar sem tónlistinni á skíf- um Gamer svipi til þess sem Yo La Tengo hefur verið að fást við en fjölbreytileikinn er öllu meiri, hljóðfæraskipan óvenjulegri og rætumar liggja annað. Það hefur eflaust sitt að segja við stemmning- una á plötunni að þau Garner og Brown tóku skífuna upp í heimahljóðveri þeirra, þar sem lag var fest á band nánast um leið og það varð til. Sue Gamer syngur lögin á skífunni og leikur á bassa, gít- ar, marimba, fiðlu og slag- verk, en Rick Brown, sem er trommuleikari, lætur sér nægja ýmislegt slagverk, náttúrlegt og rafrænt. Aðrir aðstoðarmenn sjá síðan um balkanklarinett, saxófón, fleiri gítara og selló. Fyrri skífa Sue Garner var mjög náttúruleg ef svo má segja, einíiöld að allri gerð og beinskeytt, en á Still em þau Brown að gera ýmis- legar tilraunir sem allar gangaupp. man FYRIR skemmstu hélt Bubbi Morthens tón- leika í íslensku óperunni á vegum Listahátíð- ar í Reykjavík þar sem hann söng ljóð og kvæði eft- ir sænska skáldið, tónlistarmanninn og sérvitr- inginn Carl Michael Bell- mann. Skömmu fyrir tónleik- ana hljóðritaði Bubbi nokkur laganna sem hann söng á tónleikunum um kvöldið og kom út á diski fyrir rúmri viku. Á plötu Bubba, sem heitir einfaldlega Bellmann, syng- ur hann lög eftir Carl Micha- el Bellmann, sem uppi var á árunum 1740 til 1795. Bell- mann var umdeildur á sinni tíð og reyndar umdeildur enn, því menn eru ekki á eitt sáttir hvernig þeir eiga að meta hann; sem alþýðuskáld, fórnarlamb aðstæðna eða há- spekilegan háðfugl. Hefð er fyrir því að menn syngi Bell- mann á samkomum og í drykkjusamsætum og þann- ig er Bellmann samnefnari yfir flest það skemmtilegt sem íslenskir námsmenn hafa upplifað £ Sv£þjóð. Það hnykkti þvi mörgum við þeg- ar Bubbi Morthens dró upp þá mynd af Bellmann að hann hafi verið helsjúkur alkóhólisti. Fyrir þvi má þó færa sterk rök, ekki síst f textum Bellmanns sem eru fullir beiskju, ekki síður en glaðværum náttúru- og mannlýsingum. Bubbi segir að upptökur hafi tekið skamman tíma, hófust 25. april og var lokið 7. maí. „Við vorum lika búnir að æfa eins og berserkir, en samt fundum við ekki Bell- mann fyrr en í hljóðverinu,“ segir Bubbi og bætir við að þegar upptökur hófust hafi hann fundið samhljóminn i Bellman. Þeir Bubbi og Guðmundur unnu útsetningar sameigin- lega, en allir gítarar eru úr smiðju Guðmundar. Bubbi segir að þeir hafi velt lögun- um fyrir sér þangað til þeir voru sáttir, en síðan kom inn í verkið Eyþór Gunnarsson „yfirherforingi," sem sá um aðrar útsetningar, stýrði upptökum, lék á kirkjuorgel og bassatrommu. Jón „Skuggi“ Steinþórsson sá síðan um bassaleik. „Við Guðmundur unnum efnið í mjög náinni samvinnu og hlustuðum meðal annars saman á fjölmarga Bellmann túlkendur aðra til að sjá hvaða leiðir þeir höfðu farið. Gummi vann mjög mikið í gitarspilinu og síðan fléttuð- um við inn munnhörpu til að undirstrika ömurleikann í gleðinni, enda er hljómur hennar svo einmana- og átakanlegur." Bubbi hefur látið þau orð falla að hann hafi fundið samhljóm í Bellmann sem óvirkur fíkill, enda hafi Bell- mann verið bullandi virkur alkóhólisti. „Það má heyra í ljóðunum hans og vísum hvernig hann dreymir um fyrstu fylleríin sem voru sannkallaðar hamingju- stundir og hvernig sú ham- ingja fjarlægist síðan sífellt sama hvað þeir reyna að fanga hana. Þetta þekkja all- ir alkóhólistar,“ segir Bubbi og bætir við að í heimalandi Bellmans séu hátíðir honum helgaðar jafnan miklar fyll- eríshátíðir þar sem menn drekka samfara spilmennsk- unni og sitja með rauðvíns- kútana við hlið sér á sviðinu. Hljóðfæraútsetningar á plötunni eru einfaldar og blátt áfram og Bubbi segir að það sé gert með ráðnum hug. I upphafi hafi menn velt því fyrir sér að hafa fleiri hljóð- færi í undirleiknum, en það hafi ekki komist lengra en á umræðustig. „Einn maður með gítar og rétt efni er eins og vígvél, miklu öflugri en einhver þungarokksveit með hamagangi og hávaða.“ Bubbi lýsir mikilli ánægju með Bellmannverkefnið og segist hyggjast leika Bell- mann á nokkrum tónleikum til, næst í Grindavík eftir hálfa aðra viku, en einnig sé hann að velta því fyrir sér að setja upp aðra tónleika í haust og þá vonandi með fleiri lögum. Svo langi hann til að spila Bellmann í skól- um viða um land. „Þetta er búið að vera stórkostlega skemmtilegt, mér finnst ég hafa hitt gamlan vin og vímu- bróður, mér finnst ég endur- nærður. Ég á eftir að gefa út fleiri Bellmann-plötur og þá jafnvel fara aðrar leiðir, en þessi vinna á líka eftir að nýtast mér í eigin tónlist; það hafa opnast ýmsir möguleik- ar sem ég á eftir að skoða.“ eftir Árna Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.