Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 E 5
netið
Nýir tímar
PC-tölvur ganga nú í gegnum
mikið breytingaskeiö. Árni
Matthíasson tók til kosta
nýja tÖIVU frá Hewlett-
Packard.
PC-TOLVAN er komin til ára
sinna tæknilega þó ekki séu
mörg ár síöan tölvur urðu al-
menningseign. í þeim erým-
islegt sem er óþarft tyrir al-
menna notendur en haft í
tölvunum til að tryggja að þeir
geti notast við ólíkar gerðir
jaðartækja, til að mynda tengiraufir ogfleira
sem velflestirtölvunotendur þurfa ekki á að
halda. í nýjum geröum PC-tölva sem senn
koma á markað hafa menn aftur á móti gengið
hreinttil verks og kastað út því sem almennt
má telja óþarfa. Fyrir vikiö eru vélarnar einfald-
ari ogtraustari I reksti og, það sem ekki skiptir
minna máli, ódýrari.
Segia má að Aþþle hafi haft frumkvæði í nú-
tímavæðingu einkatölvunnar með iMakkanum
sem fyrirtækið setti á markað fyrirtveimurár-
um eða svo. Þærvélar voru stórum einfaldari
en fyrri gerðir Makka en þó öflugri ogýmsu
sleþpt úr þeim sem fáir eða engir notuðu leng-
ur. Fyrir vikið var hægt að selja tölvurnar á
lægra verði en ella og einnig breyta út af í hönn-
un og útliti. Vinsældir Makkanna urðu svotil að
sannfæra PC-tölvuframleiðendur um að fara
áþekka leið. Ekki er svo langt síðan fyrstu tölv-
ur slíkrar gerðar tóku aö koma á markað og
kærkomið að fá að taka til kosta nýja vél frá
HP, e-Vectra.
Sérdeilis smávaxin
Ekki er laust við að mönnum bregði við þegar
þeir berja e-Vectruna augum í fyrsta sinn, enda
er vélin sérdeilis smávaxin miöað við afl, um 9
sentimetrar á breidd, 24 á hæö og 27 á breidd
og ekki nema tæp fjögur kíló að þyngd. Hægt
er að hafa vélina lárétta, en fer betur á að hafa
hana lóðrétta enda er hún með sérstaka fætur
til þess. Prufuvélin var meö 500 MHz Celeron
örgjörva á 66 MHz kerfisbraut, að vísu ekki
meö hraövirkasta móti. Minni í henni var 64
MB, harður diskur8,4 GB. í vélinni, sem seld
er án skjás, er Intel 810E skjástýring á móður-
borði með Direct AGP. Enn er það ekki það
besta sem í boði er en kapþnógfyrir alla venju-
lega vinnslu. 24 hraða geisladrif er í vélinni og
kemurekki að sök þó það sé upþ á rönd, þvf
diskarnirhaldastíþráttfyrirþað. Með því
skemmtilegasta við vélina er að svo haganlega
er hörðum disk hennarfyrir komið að einfalt er
aö kippa honum úr ogtaka með sér ef maður
vill.
Lítið um stækkunarmöguleika
Eins og getið er er innvols vélarinnar allt ein-
faldaö og lítið um stækkunarmöguleika í sam-
ræmi við grunnhugsunina á bak við hana.
Þannig eru engar PCI-raufar, hvað þá ISA-
raufar, enda ekki til þess ætlað að bætt sé í
tölvuna neinum sþjöldum. Á henni eru tvö USB-
tengi sem gerir kleift að bæta við hana jaðar-
tækjum á einfaldan hátt. Einnig er 25 þinna
þrentaratengi og eitt níu pinna raötengi. Reynd-
ar hefði mátt sleppa prentaratenginu og nýta
USB fýrir prentara. Á vélinni eru tengi fyrir hljóð-
nema og inn/út víöómstengi, en hljóökort er á
móöurboröi. Einnigeríhenni Ethernet-kort.
Ekki þurfti nema að skella vélinni upþ á borö
og stinga í samband, en skjár er ekki meö í
pakkanum. Hún er ágætlega spræk miðað við
örgjörvann, endafæstheldurmeiri hraði úrvél
án ISA-raufa. Að sögn umboðsaðila hér á landi
verður verð á vélinni lægra en tíökast meö
sambærilegar PC samhæfðartölvur. Væntan-
legar eru síðan álíka vélar frá fleiri framleiöend-
um þannig að e-Vectran boðar nýja tíma í tölvu-
málum.
A/S0'"
Örugg scnnskipti!
Yfir 17 milljónir afgreiðslustaða um allan heim